Fréttablaðið - 16.10.2021, Síða 6

Fréttablaðið - 16.10.2021, Síða 6
Forsetaefnið Líklegustu ráðherraefnin langflest af höfuðborgarsvæðinu Ráðherraspá Frétta- blaðsins gerir ráð fyrir töluverðum landsbyggðarhalla. KLETTAGÖRÐUM 8—10 / HÁTÚNI 2A / SUÐURHRAUNI 2B / LYNGHÁLSI 2 TÍMAPANTANIR Á KLETTUR.IS OG Í SÍMA 590 5100 Bókaðu dekkjaskiptin á klettur.is Margir leika sér að því að leggja ráðherrakapla. Flestir gera ráð fyrir því að halla muni á landsbyggðarkjör- dæmin í næstu ríkisstjórn og konur verði fleiri en karlar í nýrri stjórn. adalheidur@frettabladid.is bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Þótt formenn stjórnar- f lokkanna séu enn að ræða mál- efnalega samleið eru almennir f lokksmenn og annað áhugafólk um stjórnmál löngu farið að leggja sína ráðherrakapla. Líkleg skipting ráðuneyta er talin verða þannig að Sjálfstæðisflokkurinn fái fimm ráðuneyti, Framsóknarflokkurinn fjögur og Vinstri græn haldi sínum þremur. Skiptingin er þó óráðin enda liggur ekki fyrir hve mörg ráðuneytin verða, nái f lokkarnir saman. Flestum ber saman um að for- menn stjórnarf lokkanna verði áfram í sínum stólum, verði af áframhaldandi stjórnarsamstarfi. Katrín verði áfram forsætisráð- herra, Bjarni Benediktsson í fjár- málaráðuneytinu og Sigurður Ingi með samgöngu- og sveitarstjórnar- mál en bæti við sig veigamiklum málaflokkum úr öðrum ráðuneyt- um í nýju innviðaráðuneyti. Ásmundur Einar Daðason og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þykja einnig líkleg til að halda kyrru fyrir í barnamálum og dómsmálum. Formaður Framsóknarflokksins er hins vegar sagður leggja áherslu á að fá utanríkismálin fyrir Lilju Alfreðsdóttur en Guðlaugur Þór Þórðarson sem þar er fyrir á f leti mun hafa hug á stól Svandísar Svav- arsdóttur í heilbrigðisráðuneytinu. Fréttablaðið ræddi við þunga- vigtarfólk úr f lokkunum þremur um mögulegar breytingar á ríkis- stjórn, sem virðist ætla að ganga í endurnýjun lífdaga á næstunni. Edward Huijbens, prófessor í menningarlandafræði og fyrrver- andi varaformaður Vinstri grænna, telur ljóst að flokkurinn muni þurfa að gefa einhver embætti eftir. „Katrín verður áfram forsætis- ráðherra en spurningin er hvort Svandís verði áfram á sínum stað í heilbrigðisráðuneytinu eða fær- ist til. Ég vona að Svandís stjórni áfram heilbrigðismálunum, því það þarf að verja kerfið,“ segir Edward. Hann lýsir hins vegar áhyggjum af umhverfismálunum. „Ég er ansi hræddur um að Fram- sókn poti sér inn í umhverfisráðu- neytið, það verði til einhver Sif Friðleifs endurfædd, mér dettur í hug að Ingibjörg Isaksen, sem vann stórsigur í Norðausturkjördæmi, fái það embætti.“ Forseti þingsins muni renna til Framsóknarf lokks eða Sjálfstæðisflokks. „Kannski verður dreginn upp einhver Steingrímur úr íhaldinu,“ segir Edward. „Mér finnst eðlilegt að gera kröfu um fjóra ráðherra,“ segir Guðmund- ur Baldvin Guðmundsson, oddviti Framsóknarmanna á Akureyri og formaður bæjarráðs, og vísar til sigurs Framsóknarflokksins í kosn- ingunum. „Sigurður Ingi hefur staðið sig frábærlega og er góður í hvaða ráð- herraembætti sem er,“ segir Guð- mundur. Hann telur augljóst að f lokkurinn þurfi að halda sínum manni, Ásmundi Einari Daðasyni, í embætti barnamálaráðherra. „Við hér fyrir norðan gerum okkur svo væntingar um að eign- ast ráðherra, ég sé fyrir mér Ingi- björgu Isaksen sem ráðherra,“ segir Guðmundur. Hann telur að bak- grunnur hennar gæti nýst í annað hvort mennta- og menningarmála- ráðuneytið eða heilbrigðismálin, en varaformaðurinn Lilja Alfreðsdóttir gæti orðið utanríkisráðherra. „Þá er Willum Þór Þórsson afskaplega vel liðinn innan þings sem utan og mögulegt ráðherraefni eða þingforseti,“ segir Guðmundur Baldvin að lokum. „Það skiptir máli að hafa val- inn mann í hverju embætti,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrver- andi forseti Alþingis og þingmaður í Suðurkjördæmi. Hún segir ekkert gefið þegar kemur að ráðherra- efnum. „Formaðurinn hefur auð- vitað í gegnum tíðina komið okkur á óvart og ekki endilega farið eftir fyrirfram gefnum línum,“ segir Unnur Brá og tekur dæmi um Þór- dísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem hvorug var oddviti í sínu kjör- dæmi þegar þær urðu ráðherrar. Hún sjálf hafi gegnt embætti for- seta Alþingis þrátt fyrir að vera neðar á lista en aðrir þingmenn flokksins. Unnur Brá er úr Suðurkjördæmi en f lokkurinn hefur ekki átt ráð- herra í kjördæminu síðan Ragn- heiður Elín Árnadóttir lét af emb- ætti iðnaðarráðherra árið 2016. „Það er alltaf krafan í mínu kjör- dæmi að eiga ráðherra í ríkisstjórn en það hefur ekki verið þannig að þar sé réttur maður á réttum stað,“ segir Unnur Brá kímin, en bætir við að núverandi oddviti f lokksins í kjördæminu, Guðrún Hafsteinsdóttir, hafi mikla reynslu úr atvinnulífinu og geti vel staðið undir ábyrgð ráðherraembættis. Unnur Brá furðar sig hins vegar á þeirri áherslu sem lögð er á að kom- ast í ráðherraembætti. „Fólk býður sig fram til að verða þingmenn. Það þarf að bera virðingu fyrir því starfi og sinna því af vandvirkni,“ segir Unnur. Birgir Ármannsson er ítrekað nefndur sem líklegur forseti Alþing- is. Unnur Brá sem gegndi því emb- ætti segist fullviss um að Birgir yrði góður forseti. Hún bendir þó á að í þinginu séu fleiri reynsluboltar og tekur sem dæmi Líneik Önnu Sæv- arsdóttur úr Framsókn, Bryndísi Haraldsdóttur, Sjálfstæðisf lokki, og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur úr Vinstri grænum. Aðspurð um mikilvægustu eigin- leika forseta segir Unnur gott póli- tískt nef grundvallaratriði. „Það er gríðarlega mikilvægt að hafa skilning á öllum flokkum sem skipa þingið, á bakgrunni þeirra og hvaðan þeir eru að koma, vera læs á pólitík,“ segir hún, auk þess að kunna góð skil á þingsköpum. „Aðalmálið er þó að vera góður í mannlegum samskiptum og geta miðlað málum með sanngirni að vopni. Forseti, sem ekki virðir rétt minnihlutans, þarf aðeins að lesa sér til um embættið.“ ■ Margir spá hrókeringum á stjórnarheimilinu Kynjahlutföll hafa meira vægi en jafnræði milli byggða Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir almennt litið til þess að hafa jafnvægi milli höfuðborgarkjördæma og landsbyggðarkjördæma í ríkis- stjórn. „Í dag er þó miklu meiri áhersla lögð á kynjajafnvægi en byggðajafnvægi sem er ákveðin breyting frá því sem áður var.“ Eiríkur bendir þó á að flokkarnir hafi sjálfdæmi um sína ráðherra og þessi sjónarmið geti því verið erfiðleikum bundin. Margir þættir spili inn í val á ráðherrum, bæði velgengni í prófkjörum og kosningum, þing- reynsla og sérþekking hvers og eins. „Þetta verður ríkisstjórn með þremur flokkum. Bara með því að taka frá formenn og varaformenn erum við komin með helming ráðherrastólanna,“ bendir Eiríkur á. Þetta geri val á öðrum ráðherra- efnum þrengra. Svo ráði ráðuneytaskiptingin milli flokka auðvitað miklu máli. „Það er ekki bara hægt að líta til stöðu þingmanna innan flokks eða árangurs í kosningum, heldur líka hverjir eigi erindi út frá styrkleikum í málaflokkunum sem hver flokkur fær.“ Aðspurður segir Eiríkur ekki óþekkt að ráðherrar detti úr ríkis- stjórn eftir kosningar. Ekkert bendi þó til að þess þurfi núna. „Það losnar stóll hjá Sjálfstæðisflokknum og margt bendir til að það verði bætt við ráðuneyti sem skapar pláss fyrir nýliðun. En það á auðvitað enginn ráðherrastól og ef aðrir eru taldir heppilegri er ekkert óvanalegt að sitjandi ráðherra sé skipt út af.“ Eiríkur Bergmann Einarsson, pró- fessor við Háskólann á Bifröst. Guðmundur Baldvin Guð- mundsson, oddviti Fram- sóknarmanna í bæjastjórn á Akureyri Unnur Brá Konráðsdóttir fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og forseti Alþingis Edward Huij- bens, prófessor í menningar- landafræði og fyrrverandi varaformaður Vinstri grænna Ég treysti mér í hvað sem er og til þeirra verka sem formaður flokksins mun fela mér. Guðrún Haf- steinsdóttir, Sjálfstæðis- flokki, 1. þing- maður Suður- kjördæmis Ég tel eðlilegt að horft sé til árangurs kjörinna fulltrúa í kosning- unum. Ákvörðunin er svo í höndum for- mannsins og þing- flokksins. Ingibjörg Isaksen, Fram- sóknarflokki, 1. þingmaður Norðausturkjör- dæmis 6 Fréttir 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.