Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 8

Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 8
Staðreyndin er sú að norðurslóðir eru að hlýna þrisvar sinnum hraðar en heimshiti að meðaltali, maður gæti sagt að þær séu kanarí- fuglinn í kolanámunni. Mark Green, forstjóri Woodrow Wilson miðstöðvarinnar Öryggi bæjarbúa verður alltaf númer eitt tvö og tíu. Ásthildur Sturlu- dóttir, bæjar- stjóri Akureyrar Málþing með notendum Faxaflóahafna Fimmtudaginn 21. október 2021, kl. 14:00, Björtuloft, Hörpu Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum sf. og fræðast um starf- semina á hafnarsvæðum fyrirtækisins boða Faxaflóahafnir sf. til málþings fimmtudaginn 21. október kl. 14:00, Björtuloft (6. og 7. hæð) Hörpu. Dagskrá málþingsins á að snerta málefni sem flestra á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. og verður sem hér segir: • 14:00 Ávarp formanns Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, varaformaður Faxaflóahafna • 14.10 Horft til framtíðar Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri Faxaflóahafna • 14:35 Fjórða iðnbyltingin – Möguleg áhrif á hafnir og sjávarútveg Yngvi Björnsson, prófessor og sérfræðingur í gervigreind við Háskólann í Reykjavík • 15:00 Íslenski sjávarklasinn – Starfsemin, samstarf á alþjóðlegum vettvangi, sjávarakademían Nanna Ósk Jónsdóttir, rekstrarstjóri Íslenska sjávarklasans • 15:25 Stafrænt vistkerfi – Tækninýjung fyrir sjávarútveginn Þorsteinn Svanur Jónsson, framkvæmdarstjóri vöruþróunnar hjá Klöppum • 15:50 Umræður og fyrirspurnir • 16:00 Fundarslit Fundarstjóri: Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Faxaflóahafna Fundurinn er opinn öllum, en þeir sem eru með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. eru sérstaklega hvattir til að mæta. Á fundinum gefst tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir og ábendingar um það sem varðar hafnarrekstur, þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini. Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri bth@frettabladid.is NÁTTÚRUVÁ „Ég hef fylgst rækilega með og spurt hvaða hættur séu í bæjarlandi Akureyrar, ég er vön slíkum hættum að vestan,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, vegna minnisblaðs frá Veðurstofu. Akureyri er meðal ell- efu þéttbýlisstaða sem kanna þyrfti með tilliti til aurskriðuhættu, sam- kvæmt minnisblaðinu. Fréttablaðið hefur fjallað um málið í vikunni en Ásthildur segir að sér hafi ekki komið þetta á óvart, því hún hafi verið búin að fara yfir þær skýrslur sem liggja fyrir. „Það er lágmarkshætta í bæjarlandinu á Akureyri eins og staðan er í dag.“ Hættan tengist hugsanlegum aurskriðum í hlíðum ofan við Innbæinn, einn elsta og syðsta hluta bæjarins. Kerfisbundið hefur verið unnið að því að minnka hættuna til dæmis með gróðursetningu svo jarðvegur bindist betur. Skriðuföll urðu á þessum stað á tíunda áratug síðustu aldar og var þá farið í kerfis- bundnar aðgerðir. Nokkrar umræður urðu síðast- liðið sumar um hvort brekkan gæti hreinlega brotnað niður vegna hug- mynda um háhýsi við Tónatröð, íbúagötu ofan við Innbæinn. Ást- hildur segir að ítarlegar jarðvegs- rannsóknir þurfi alltaf að fara fram þegar byggð sé skipulögð. „Loftslagsbreytingar geta hrundið af stað áhrifum á umhverfi okkar sem við þurfum að fylgjast vel með. En ég ítreka að þarna er talað um lágmarkshættu. Öryggi bæjarbúa verður alltaf númer eitt, tvö og tíu.“ ■ Loftslagsbreytingar gætu hróflað við öryggi Akureyringa í framtíðinni Frá sólríkum sumardegi í miðbæ Akureyrar fyrr í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN 8 Fréttir 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ Annar dagur Arctic Circle- ráðstefnunnar um málefni norðurslóða var í Hörpu í gær. Ábyrgð Bandaríkjamanna í loftslagsmálum, formennska Íslands í Norðurskautsráðinu og aukinn áhugi Frakka á norðurslóðum, var meðal þess sem var í brennidepli á ráðstefnunni. tsh@frettabladid.is NORÐURSLÓÐIR Arctic Circle, þing Hringborðs norðurslóða, hélt áfram í Hörpu í gær. Á allsherjarþingi ráð- stefnunnar leiddi Geir H. Haarde, f y r r verand i forsæt isráðher ra Íslands, pallborðsumræður, í sam- starfi við fulltrúa Woodrow Wilson alþjóðamiðstöðvar fræðimanna. Geir ræddi við öldungadeildar- þingmennina Lisu Murkowski og Sheldon Whitehouse, Mark Green, forstjóra Woodrow Wilson mið- stöðvarinnar, Mike Sfraga, for- mann Rannsóknarnefndar Banda- ríkjanna um norðurslóðir og Heiðar Guðjónsson, fyrrverandi formann Norðurslóða viðskiptaráðsins. Green sagði meginhlut verk Wood row Wilson miðstöðvarinnar vera að styrkja sambandið á milli fræðasviðsins og opinberra stefnu- mála. Hann sagði málefni norður- slóða skipta miðstöðina miklu máli því þau sýndu áskoranir vegna lofts- lagsbreytinga í smækkaðri mynd. „Staðreyndin er sú að norður- slóðir eru að hlýna þrisvar sinnum hraðar en heimshiti að meðaltali, maður gæti sagt að þær séu kanarí- fuglinn í kolanámunni. Enn mikil- vægara er þó að þær segja okkur strax hverju við þurfum að hafa áhyggjur af.“ Whitehouse, öldungadeildarþing- maður Rhode Island, tók undir orð Green og ræddi jafnvægislistina við að vernda viðkvæm svæði á sama tíma og unnið er að efnahagsþróun. „Atvinnulíf í heimi sem er í jafn- vægi og umhverfisvænn og styður við sjálfbært mannlíf er einn hlutur. Atvinnulíf í heimi þar sem kerfi eru að breytast og riðlast og ný átök brjótast út og auðlindir sem voru eitt sinn fáanlegar eru að hrynja, er allt, allt annar heimur og mjög napurlegur heimur.“ Í kjölfar pallborðsins flutti Guð- laugur Þór Þórðarson utanríkisráð- herra erindi þar sem hann fór yfir árangur Íslands í Norðurskauts- ráðinu á þeim tveimur árum sem landið fór með formennsku. Guðlaugur sagði Ísland hafa tekið við formennsku í Norðurskautsráð- inu á erfiðasta tíma í sögu ráðsins vegna ágreinings aðildarríkjanna um málefni loftslagsbreytinga. Hann kvaðst vera ánægður með árangur Íslands í formannsstóln- um þrátt fyrir þær þrengingar sem Covid olli starfseminni. „Stærsta afrekið var að mínu mati innleiðing fyrstu framtíðar- stefnunnar í sögu ráðsins. Fram- tíðarstefnan veitir ráðinu langtíma leiðarvísi í vinnu þess til næstu tíu ára. Hún gefur ráðinu sterkari til- gang, gerir það ekki jafn viðkvæmt fyrir stefnubreytingum og leyfir því að útvíkka sjónarhorn sitt og umfang út fyrir hið hefðbundna tveggja ára tímabil.“ Olivier Poivre d'Arvor, sendiherra Frakklands í málefnum norður- og suðurskautsins, hélt einnig erindi þar sem hann ræddi markmið Frakka í þessum heimshluta, sem er töluvert fjarri þeirra áhrifasvæði. D‘Arvor sagði áhuga Frakklands á norðurslóðum fyrst og fremst vera vísindalegs eðlis. Frakkar líti hvorki á sjálfa sig sem norðurskautsþjóð né hafi þeir í hyggju að gera tilkall til þess. „Við virðum fullkomlega full- veldi norðurskautsþjóðanna og þeirra forgangsrétt í málefnum norðurslóða. Á sama tíma getum við ekki hunsað að það er sam- eiginleg ábyrgð að takast á við þennan heimshluta þegar kemur að athöfnum á svæðum sem hafa áhrif á norðurslóðir,“ sagði hann. D‘Arvor vinnur nú að fyrstu frönsku stefnumótuninni í mál- efnum norður- og suðurskautsins sem hann mun kynna fyrir Emm- anuel Macron Frakklandsforseta á næstunni. Hann ítrekaði mikilvægi vísinda- og loftslagsrannsókna fyrir stefnumótunina. „Ég sé loftslagsbreytingar ekki sem tækifæri, ég sé þær ekki sem hættu, ég sé þær sem raunveruleika sem við verðum að takast á við,“ sagði d‘Arvor. ■ Norðurslóðir eru kanarífuglinn í kolanámunni Sheldon White- house, Mark Green, Lisa Mur- kowski, Mike Sfraga, Heiðar Guðjónsson og Geir H. Haarde. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.