Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 18

Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 18
Það er löngu tímabært að ráðast í byggingu nýs þjóðarleikvangs og ég er vongóð um að hann muni rísa á næstu fimm árum. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, árið 2020 Það sem er kannski að koma í ljós er að Reykjavíkurborg virðist ekki tilbúin að taka á sig þann stofnkostnað sem leiðir af hlutdeild hennar í félaginu, þótt hún hafi lagt mikið kapp á það í upphafi að hafa meirihluta. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, árið 2021 70 milljónir króna voru tekjur af lands- leikjum samkvæmt ársreikn- ingi KSÍ 2016. Alls komu 13 þúsund manns á landsleikina fimm hjá karla- landsliðinu í september og október, flestir boðsgestir. KSÍ fékk um 30 milljónir í kassann þegar best gekk og Laugardalsvöllur var fullur. Tekjutapið er því mikið. Nýr Laugardalsvöllur er á teikni- borðinu, en hugmyndin safn- ar ryki og lítið er að gerast. benediktboas@frettabladid.is Tekjutap KSÍ vegna áhugaleysis landsmanna á íslenska karlalands- liðinu er mikið. Á betri tímum þegar íslenska landsliðið fór á EM og HM var KSÍ með um 100 milljónir í tekjur á ári af heimaleikjum lands- liðsins. Á leikjum þar sem var upp- selt komu um 30 milljónir í kassann hjá KSÍ. Í bjartsýnustu spám var gert ráð fyrir að tekjur á ári gætu numið um 300 milljónum króna með nýjum velli. Samkvæmt tímaáætlun átti að vígja hann í lok þessa árs. Ljóst er að það mun aldrei standast enda er nýr völlur ennþá nánast á byrjunarreit, þrátt fyrir margra ára vinnu. Síðustu endurbætur á stúkum í Laugardal voru gerðar árið 2007 og ekki er gert ráð fyrir nýjum velli í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2022-2026. Þegar áætlunin var kynnt sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra að völlurinn væri kominn of stutt á veg til að hafa hann með. Innan við  200 miðar seldust á landsleikinn gegn Armeníu. Seldir Svartasta spáin að verða að veruleika Tólfan fékk það hlutverk að finna áhorf- endur fyrir KSÍ FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Frá viljayfirlýsingu um nýjan völl. Bjarni, Guðrún Inga, Guðni og Dagur. Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas @frettabladid.is miðar á Liechtenstein voru einn- ig örfáir en KSÍ fór þá leið að gefa miða í gríð og erg. Sögðu tólfunni að koma miðabunkum út. Íslenska landsliðið spilaði fimm heimaleiki með skömmu millibili í september og október. Ítrekaðar breytingar á sóttvarna- reglum hafa orsakað að áhorfendur vilja frekar vera grímulausir heima í stofu en taka þátt í leikþætti yfir- valda. Ásakanir um kynferðisbrot og slæmt umtal í kjölfarið fældu lands- menn einnig frá og orð landsliðs- þjálfarans voru lítið að hvetja fólk til að mæta. Alls komu 13 þúsund manns á þessa fimm leiki. Flestir á Liechtenstein, þar sem var nánast frítt fyrir alla og svo trekkti stórlið Þýskalands að rúmlega 3.500 manns. Laugardalsvöllur tekur tæplega 9.800 manns í númeruð sæti, og þegar hann fylltist voru tekjur af seldum miðum um 30 milljónir króna, samkvæmt skýrslu KPMG um Laugardalsvöll. Í sömu skýrslu er einmitt skoðuð svartasta spáin þar sem árangur og áhugi hrynur. Eðli- lega var ekki gert ráð fyrir Covid en skýrslan var skrifuð árið 2018. Spáin er nánast búin að rætast en Ísland situr nú í 60. sæti heimslista FIFA og tekjur af heimaleikjum litlar sem engar. Um tíma var íslenska lands- liðið það besta í Skandinavíu og sat á topp 20 listanum með formann sem sá nýjan völl í hillingum. Vanda Sigurgeirsdóttir, nýr formaður KSÍ, þarf að leysa önnur vandamál áður en hún hugar að nýjum velli. Síðan Geir Þorsteinsson, þáver- andi formaður KSÍ, minntist á það fyrir hartnær áratug að í framtíð- inni yrði svokölluð Þjóðadeild þar sem íslenska landsliðið myndi þurfa að byrja og enda keppnina á úti- völlum, fór af stað vinna sem hefur gengið afar hægt. Það er vissulega búið að skrifa fjölmargar skýrslur, benda á hluti, skrifa f leiri skýrslur og stofna undirbúningsfélagið Þjóð- arleikvang ehf. Hlutverk félagsins er að undirbúa lokaákvörðun um end- urnýjun Laugardalsvallar og í kjöl- farið byggingu þeirra mannvirkja sem ákveðið verður að byggja. Þjóðarleikvangur ehf. skilaði 17 milljóna króna tapi á síðasta rekstr- arári en rekstrargjöld námu heilum 46 milljónum króna. Þjóðarleik- vangur ehf. er í eigu ríkis, borgar og KSÍ. Félagið réði breska ráðgjafar- fyrirtækið AFL til að sinna valkosta- greiningu fyrir nýjan völl. AFL telur að 15.000 manna leikvangur án þaks sé hagkvæmasti kosturinn, ef eingöngu er horft til beinna fjár- hagslegra þátta. Slíkur leikvangur með opnanlegu þaki myndi þó skila bestu heildarniðurstöðunni. Í júní hittist stjórn Þjóðarleikvangs á sérstökum aukaaðalfundi þar sem ákveðið var að næsta skref yrði að framkvæma markaðskönnun. Sagði KSÍ í fundargerð að sambandið vildi að niðurstaða málsins fengist í haust. Í greiningu AFL voru fjórir val- kostir skoðaðir auk viðskiptaáætl- unar og mats á efnahagslegum þáttum: Að núverandi völlur verði að mestu leyti óbreyttur, en ráðist Hörður Snævar Jónsson hordur @frettabladid.is verði í lágmarksendurbætur og -lagfæringar. Að Laugardalsvöllur verði endurbættur svo hann upp- fylli kröfur og staðla UEFA og FIFA. Að byggður verði nýr 15.000 manna leikvangur, með opnanlegu þaki eða án þaks. Að byggður verði fjöl- notaleikvangur með 17.500 sætum, með opnanlegu þaki eða án þaks. Í skýrslu KPMG kemur fram að Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2022 Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna. Áhersla er lögð á eftirfarandi: • Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu og félagsfærni. • Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu. • Áfengis, vímu- og tóbaksvarnir. • Verkefni sem tengjast kynheilbrigði. • Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu. Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum: • Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi • Stefna í áfengis- og vímuvörnum til 2020 • Stefna og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til 2020 • Þingsályktun um lýðheilsustefnu til ársins 2030 Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang: - Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu. - Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun. Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu. Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2021. Sótt er um á nýju vefsvæði Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.is Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins. Nánari upplýsingar á www.landlæknir.is Embætti landlæknis - Katrínartúni 2 - 105 Reykjavík - lydheilsusjodur@landlaeknir.is 18 Íþróttir 16. október 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. október 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.