Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 20
Fáar þjóðir
búa að jafn
mikil-
vægum
auðlindum
og við.
Það er
virðingar-
vert og
þannig
geta menn
haldið
áfram.
Í dag, laugardag, klukkan
14, fer Urriðagangan á Þing-
völlum fram í tuttugasta sinn.
Gangan er ætluð öllum og
kostar ekkert og samkvæmt
veðurspá verður rólyndis-
veður.
bjork@frettabladid.is
Jóhannes Sturlaugsson stendur
fyrir göngunni í tuttugasta sinn í
samráði við Þjóðgarðinn. „Gangan
hefur mælst það vel fyrir að um
margra ára skeið hefur þátttakan
verið hreint út sagt mögnuð, gjarn-
an 300-600 manns. Allt upp í fjór-
föld miðað við þann mannfjölda
sem mætti á Alþingishátíðina
2018,“ segir Jóhannes í léttum tón.
Sjálfur hefur Jóhannes gert rann-
sóknir á einstökum Þingvallaurrið-
anum og miðlað þeim fróðleik til
gesta. „Urriðar Öxarár, líkt og aðrir
Þingvallaurriðar, eru einstakir
vegna stærðar sinnar og langlífis,
enda að segja má óþekkt að urriðar
finnist annars staðar sem eru upp
í 13 kíló eða meira og allt upp í á
annan metra að lengd. Áhugaverðir
lífshættir Þingvallaurriðanna í víð-
feðmu og fjölbreyttu vistkerfi Þing-
vallavatns sem og fornt útlit þessara
ísaldarurriða er einnig einkennandi
fyrir þá,“ segir Jóhannes, sem hefur
notast við rafeindafiskamerki til að
sækja gögn yfir hegðun urriðanna.
„Urriðagangan gefur mér ein-
stakt færi á að kynna fyrir almenn-
ingi, þar með talið veiðimönnum,
í hverju líf þessara fiska felst. Það
gefur fólki sýn á tilvistargrundvöll
urriðans í Þingvallavatni – og um
leið hvernig við mannfólkið getum
stuðlað að verndun Þingvallaurrið-
ans og í reynd alls lífríkis vatnsins.
Í heild tekur urriðagangan um
eina og hálfa klukkustund en
fólki er frjálst að koma og fara
eftir hentugleikum enda margt
sem gleður augað að hausti á Þing-
völlum. „Einungis eru gengnir um
800 metrar á góðum göngustíg. Þeir
sem ekki eiga kost á því að ganga
geta sloppið alfarið við það, því
upphafsvettvangur göngunnar
er þar sem fyrstu urriðarnir eru
skoðaðir við brúna, við bílastæðin
þar sem fyrrum stóð Valhöll. Þegar
lengra er haldið, við f lúðirnar niður
af Drekkingarhyl, bíða f leiri stór ur-
r iðar þess að heilsa gestum, meðal
annars í stóru búri uppi á bakk-
anum, sem hentar börnunum sér-
lega vel. n
Tuttugasta urriðagangan
Þingvallaurriðar
eru einstakir
vegna stærðar
sinnar og lang-
lífis, enda verða
þeir allt að 13
kíló að þyngd
og allt upp í á
annan metra að
lengd.
MYND/AÐSEND
Dalrún, dóttir Jóhannesar, hefur lengst af hjálpað honum í árlegu urriða-
göngunni. „Ég þykist vita að hún taki við mínu hlutverki þegar fram í sækir en
ég tel mig nú eiga ansi mörg ár eftir áður en þörf verður á því,“ segir hann.
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Við mælum með
BJORK@FRETTABLADID.IS
Jól í Costco
Jólapappírinn í Costco er þannig
gerður að á honum eru ólík munstur
eftir því hvernig maður snýr honum.
Þetta getur ekki annað en fallið í
kramið hjá unnendum jólaundir-
búnings. Jólamerkimiðarnir eru
síðan svo skemmtilegir að maður
kemst í ljómandi jólaskap við það
eitt að horfa á þá.
Við Íslendingar erum um margt
lánsöm þjóð. Við búum í friðsælum
heimshluta og erum ein auðugasta
þjóð í heimi miðað við fólksfjölda.
Fáar þjóðir búa að jafn mikilvæg-
um auðlindum og við. Við strendur
landsins eru fengsæl fiskimið og á
hverri sekúndu streymir ógnarafl
frá jöklum til sjávar, hrein orka
brýst fram úr iðrum jarðar og ekki
skortir kröftugan vind sem hægt er
að beisla. Við eigum líka ómetan-
lega náttúru og gnægð af hreinu
vatni, sem er einhver eftirsóttasta
auðlind jarðar. Þjóðin í þessu gjöf-
ula landi er vel menntuð.
Með þessa auðlegð stendur
ekkert í vegi þess að við lifum hér
góðu lífi. Ekkert nema mögulega
við sjálf. Fátt er svo gjöfult að ekki
megi sólunda því og klúðra. Fyrir
fáum áratugum var Venesúela eitt
auðugasta ríki veraldar vegna olíu-
auðlinda. Nú getur Venesúela ekki
brauðfætt fólkið í landinu vegna
rangrar stjórnarstefnu um árabil.
Vítin eru til að varast þau.
Við verðum að nýta auðlindir
okkar rétt og vel. Það hámarkar
lífskjör þjóðarinnar. Einnig hvílir
á okkur samfélagsleg skylda í sam-
félagi þjóða að nýta sjálf bærar
orkuauðlindir landsins í þágu alls
heimsins. Kolefnisspor orkufrekrar
stóriðju og gagnavera sem knúin
eru sjálf bærri orku, líkt og hér á
landi, er einungis brot af kolefnis-
spori slíkra iðjuvera í Kína og víðar,
sem knúin eru kolum.
Þetta er undir okkur komið
Mat á Reðasafninu
Matseðillinn á Reðasafninu á
Hafnartorgi kemur skemmtilega á
óvart og bragðast unaðslega. Þar má
meðal annars finna typpavöff lur
bæði í formi aðalréttar og eftir-
réttar. Við mælum sérstaklega með
kjúklingavöff lunni sem borin er
fram með stökkum frönskum kart-
öflum sem kitla bragðlaukana. n
Okkur Íslendingum er nauðsyn-
legt að finna jafnvægi milli nýting-
ar og varðveislu okkar náttúruauð-
linda. Vörumst öfgar í báðar áttir
og höfum hugfast að við, þessar
370 þúsund hræður, erum grund-
völlur kraftaverksins sem gerist hér
á landi á degi hverjum. Við búum
í góðu og gjöfulu landi en hagsæld
okkar er engu að síður undir okkur
sjálfum komin. Fólkið gengur fyrir
og maður og náttúra geta lifað í sátt
og samlyndi. n
Velgengni og frægðarsól Skúla Mogensen fór með himinskautum á meðan flugfélag hans WOW flaug hátt. Hann þorði á meðan úrtölu-menn hristu hausinn. Félagið skilaði
margra milljarða hagnaði og nafn Skúla var á
allra vörum og sympatískt bros hans í öllum
blöðum. En í draumi hvers manns er fall hans
falið og brotlending félagsins varð jafnframt
brotlending sjálfsmyndar upphafsmanns þess.
Í rúm þrjú ár eftir gjaldþrot félagsins, sem
hann jafnframt lýsir sem andlegu og líkamlegu,
hefur Skúli haft sig lítið í frammi. Hann hefur
þó sannarlega ekki setið auðum höndum heldur
eignast tvo syni með konu sinni Grímu og unnið
að uppbyggingu ferðaþjónustu í Hvamms-
víkinni í Kjós.
Í fyrsta sinn tjáir hann sig nú um mistökin sem
hann gerði, ofmatið og loks fallið. Það gerir hann
á hispurslausan og einlægan hátt. Þann hátt sem
aðeins maður sem hefur horft stíft í eigin spegil-
mynd án þess að líta undan, getur gert.
Það er virðingarvert og þannig geta menn
haldið áfram. Eins og Skúli er að gera. Spennið
beltin. n
Flugtak og lending
20 Helgin 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 16. október 2021 LAUGARDAGUR