Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 24
meiri náttúruvernd. Og Ísland
skorar þar hæst allra þjóða á norð-
urslóðum með öllu sínu ósnortna
víðerni, hreinu vatni og lofti – og
öryggi,“ segir Skúli, minnugur þess
hvað ferðamaðurinn vill. „Hingað
mun New York-búinn koma sem
aldrei hefur komið við mold eða séð
lifandi fisk.“
Hvernig gengur uppbyggingin?
„Furðuvel, enda mikil vinna að
baki og jafnframt sú hugsun okkar
Grímu að ganga í öll störf. Hún segir
að ég sé bestur með skítaburstann í
höndum á meðan hún sinni innan-
hússhönnuninni.“
Til Kanada og aftur heim
Hann segir húmorinn fyrir sjálfum
sér hafa hjálpað á síðustu árum, en
einnig hitt, að nú loksins geti hann
horft á WOW og sína gömlu sjálfs-
mynd úr fjarlægð – og allt það heila
ævintýri sem byrjaði eftir að Skúli
f lutti frá Kanada árið 2008, sterk-
efnaður maðurinn að aflokinni sölu
á netfyrirtækinu OZ til Nokia fyrir
330 milljónir dala, en örfáum árum
áður hafði hann ásamt nokkrum
félögum bjargað OZ með naum-
indum frá þroti þegar netbólan
sprakk, á tímum þegar hlutabréf í
stórfyrirtækjum á borð við Ericson
hrundu um 97 prósent á svipstundu.
Viðbragð OZ-verja var að loka öllum
skrifstofum OZ utan einnar og
fækka starfsmönnum úr 220 í 19.
„Þarna kynntist ég því hversu
hratt veður geta skipast í lofti,
jafnt til hins verra og betra. Það
var magnað að sjá hversu hratt við
náðum að koma fyrirtækinu í gang
á ný, sem sést best á því að starfs-
menn þess voru orðnir 200 þegar
við seldum það.“
Og hann hugsar sig um: „Þessi
Skúli Mogensen í Falcon Crest, gamla byrgi bandamanna í Hvammsvík sem
hann og Gríma hafa breytt í glæsilega íbúð.
minning og reynsla hefur hjálpað
mér mikið við að koma mér í gegn-
um núverandi lægð, enda sýnir hún
hvað hægt er að gera ef allir leggjast
á eitt og halda haus.“
Hvers vegna selduð þið OZ?
„Við vissum af hverfulleikanum í
netheimum, vorum rækilega minnt-
ir á hann þegar allt sprakk fáeinum
árum fyrr. Og svo var tilboð Nokia
einfaldlega of gott til að trúa því að
annað betra kæmi síðar.“
Skúli flutti heim ásamt þáverandi
konu sinni og börnum þeirra hjóna
þegar Ísland var í félagslegri upp-
lausn, svo fordæmalausri, að ósk
þáverandi forsætisráðherra um
blessun guðs, þjóðinni til heilla,
virtist ekki ætla að rætast. Í tilviki
Skúla tóku við alls konar fjárfest-
ingar í fyrirtækjum og fjármála-
sjóðum, svo sem MP-banka sem
síðar varð Kvika, „en mér fannst
galið á þessum tíma þegar ríkið sat
uppi með alla viðskiptabankana
þrjá að einkaframtakið hefði ekkert
fram að færa á þessu sviði.“
En svo fór þér að leiðast?
„Ójá, ég sat bara í stjórnum og taldi
peninga og lét mér leiðast. Ég var
ekki hamingjusamur, mig vantaði
áskorun. Ég fann að eðlislæg fram-
takssemi var farin að dofna og áttaði
mig öðru fremur á því að kyrrseta á
ekki við mig. Mig þyrsti í að komast
aftur í frumkvöðlastólinn og byggja
eitthvað upp, en vissi jafnframt að
það yrði að vera stórt og krefjandi
verkefni svo mér myndi ekki leiðast.
Ég fór því að hugsa út fyrir kassann
og áttaði mig smám saman á því
hver samlegðaráhrifin af hnattstöðu
landsins og náttúrugersemum þess
eru mikil.“
Þetta var þitt WOW?
„Já, akkúrat, augu mín opnuðust.“
Og einkunnarorðin komu til sög-
unnar?
„Já, heimsyfirráð eða dauði, ekkert
minna,“ svarar Skúli og hlær, en segir
svo ákveðið að hugsunin hafi strax
orðið þessi: „Það sem á að heita óger-
legt er bara skoðun, ekki staðreynd.“
Hreinasta rugl í honum Skúla
Fyrsta flugið – og Skúli lygnir aftur
augunum – var til Parísar í maí 2012.
„En það voru allir á því að þetta væri
hreinasta rugl í honum Skúla,“ segir
hann sposkur á svip: „Enda töp-
uðum við meiri peningum á fyrsta
sumrinu en við höfðum nokkurn
tíma óttast. Svo það var annað hvort
að loka eða leggjast á bæn.“
Og hvað gerðist?
„Á þessum tíma var ég kominn
með nasaþefinn af því sem flugið
gæti gert fyrir land og þjóð. Ég lét því
slag standa, jók fjárfestingu mína
í WOW og tók sjálfur við stjórnar-
taumunum. Þar með hófst ballið
fyrir alvöru,“ segir Skúli og kímir:
„Ég horfði til öflugustu lággjalda-
Það sem á að heita
ógerlegt er bara skoð-
un, ekki staðreynd.
24 Helgin 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ