Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 26
mikið og tíminn of knappur á þeim
hluta ársins þegar eftirspurnin er
minnst.“
Skúli tapaði öllu sínu, sjálfsmynd
inni og sjóðunum. Honum var ráð
lagt að fara í persónulegt gjaldþrot
en þráaðist við. Með falli WOW,
einu og sér, tapaði hann fjórum
milljörðum, en þess utan skuldaði
Skúli og félög hans annað eins, sem
hann er að greiða niður með sölu
fasteigna, jarða, verðbréfa og lista
verka „og sú vinna er í fullum gangi,“
viðurkennir hann fúslega og metur
það svo að með aðstoð fjölskyldu
og vina klári hann sín mál. „Þetta
virtist að vísu vonlaust í farsótt
inni, enda var landinu lokað, en nú
er allt breytt, markaðir og fasteignir
í methæðum og það hefur hjálpað
mér mikið í þessu uppgjöri.“
Myndirðu gera þetta allt aftur?
„Tvímælalaust.“
Ertu viss?
„Algjörlega. WOW er ævintýri lífs
míns og ég hefði ekki viljað missa
af einum degi í allri þeirri rússi
banareið sem rekstur félagsins var.
Þarna var samankominn ótrúlegur
hópur fólks sem bjó til einstaka
stemningu og liðsheild sem vann
kraftaverk á hverjum degi. Ég sakna
þess gríðarlega að hafa ekki fengið
tækifæri til að klára það mikla starf
Skúli og Gríma, ásamt Jaka og litla bróður í móðurkviði sem nú er nýfæddur.
Fuglinn Fönix
flaug of hátt
eins og fleiri
á myndinni.
Spurður hvaða
ráð hann gæfi
sjálfum sér,
færi hann aftur
á loft, svarar
Skúli: „Á meðan
beðið er eftir
rafmagnsvélum
myndi ég fá nýju
Airbus a220 sem
eru langdrægar
150 sæta vélar
sem ég tel henta
fullkomnlega
fyrir íslenskar
aðstæður.“
sem WOWliðið var búið að byggja
upp og var einstakt á heimsvísu. Við
vorum ein stór fjölskylda.“
Gríma er miklu meiri töffari en ég
Hann segir f lugið vera einstaka
atvinnugrein og að hennar bíði
stórkostlegar áskoranir : „Það
verða straumhvörf á næstu árum
þegar rafmagnsflugvélar verða að
veruleika. Þær verða ekki aðeins
umhverfisvænni, hljóðlátari og
langdrægari heldur mun rekstrar
kostnaður f lugfélaga lækka um
allt að 30 prósent á svipstundu.
Og staðan verður þá þessi: Ísland
verður orkustöð fyrir allt flug á milli
Evrópu, Ameríku og Asíu þar sem
hagkvæmi og hreini rafáfyllingar
staðurinn í Keflavík verður í lykil
hlutverki,“ segir Skúli, dreyminn á
svip.
Þú ert aftur kominn á f lug?
„Auðvitað. Og við þetta mun
draumur minn rætast um að gera
öllum kleift að ferðast. Flugmiðinn
sjálfur verður allt að því ókeypis.
Flugfélögin munu þurfa að standa
sig miklu betur í þjónustu og bjóða
farþegum meiri og betri upplifun,
bæði fyrir og eftir f lug. Þar með
verða hliðartekjur f lugfélaganna
aðalatriði og flugfélög fara aftur að
bjóða upp á upplifun, í staðinn fyrir
að vera bara í gripaflutningum.“
Ég hélt þú værir lentur hérna í
Hvammsvíkinni?
„Veistu, ég vona að mig hætti aldr
ei að dreyma og hugsa stórt hérna í
sveitinni, en vel að merkja, í Hval
firðinum hef ég líka lært að leita
ekki langt yfir skammt og finna það
sem skiptir mig mestu máli í lífinu.
Við Gríma erum rétt að byrja okkar
ævintýri. Hún hefur mátt þola
umtalið, allt frá því við byrjuðum
saman, sem auðvitað vakti athygli
vegna 20 ára aldursmunar. Og vel
að merkja, hún var alltof ung í huga
mér í fyrstu, enda féll ég ekki fyrir
henni fyrr en mörgum árum eftir
fyrstu kynni, þegar hún hafði sem
flugfreyja hjá WOW elt drauma sína
út fyrir landsteinana og lagt stund á
nám í innanhússhönnun. Og henni
er ekki fisjað saman,“ segir Skúli og
nú nær brosið til augnanna. „Einu
sinni fældi hundur hér í Hvamms
víkinni fjárhóp úr Brynjudalnum
svo ég varð að hendast á fjórhjóli
upp um allar hlíðar til að bjarga
hjörðinni. Þegar ég kom til baka
fann ég Grímu hvergi, fyrr en ég sá
hana ganga á land niðri í vík, kvik
nakta, eftir að hafa synt eina 50
metra á haf út til að bjarga þar einni
kindinni á land. Gríma er miklu
meiri töffari en ég.“
Og talandi um Grímu. Hún hring
ir undir lok samtalsins. Jaki er kom
inn með smávægilega pest. Skúli
eigi að aka í bæinn eftir lyfjum.
Helst sem fyrst. En einmitt þannig
er lífið. n
Við Gríma erum rétt að
byrja okkar ævintýri.
Hún hefur mátt þola
umtalið, allt frá því við
byrjuðum saman, sem
auðvitað vakti athygli
vegna 20 ára aldurs-
munar.
• Gistiheimili, sex fullbúin herbergi
• Veitingasalur ásamt fullbúnu eldhúsi
• Stórt tjaldsvæði og mjög góð grill- og
eldunaraðstaða sem og hreinlætisaðstaða
• Fallegur skógarreitur til útivistar
• Stór hlaða innréttuð sem veisluaðstaða
• Hesthús ásamt beitarhaga
• 88 m2 íbúð fyrir leigutaka á staðnum
Einstakt tækifæri
- Gistiheimili við þjóðveg 1 til leigu
Húnavatnshreppur
hunavatnshreppur.is
Húsnæðið er laust frá og með 1. janúar 2022.
Senda skal umsókn fyrir 1. desember nk.
á netfangið einar@hunavatnshreppur.is.
Nánari upplýsingar:
Einar Krisján Jónsson sveitarstjóri í síma 455 0010
og 842 5800. Áskilinn er réttur til að taka hvaða
umsókn sem er eða hafna öllum.
Félagsheimilið Húnaver ásamt öllu sem því tilheyrir
26 Helgin 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ