Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 30
Hér má sjá einstaka hönnun West Hollywood, Times Square og London Edition hótelana. MYNDIR/NIKOLAS KOENIG
Edition hótelið í Shanghai er gullmoli fyrir aðdáendur fallegrar og stílhreinnar hönnunar. MYND/NIKOLAS KOENIG
sem systir mín barðist við alvar-
leg veikindi. Ég áttaði mig í raun
ekki á því fyrr en síðar, en ég hafði
verið á erfiðum stað í þó nokkurn
tíma, en þráhyggja mín með Studio
54 náði mér upp úr þessari ládeyðu.
Þetta voru frábærir tímar.“
Skammaðist sín fyrir fortíðina
Ian viðurkennir þó fúslega að
lengi vel hafi hann átt erfitt með
að horfast í augu við fortíð sína í
næturklúbbsbransanum. Eigend-
urnir voru sakfelldir fyrir skattsvik
og Studio 54 lokað árið 1980, eftir
aðeins 33 mánuði í rekstri.
„Vanalega man maður það góða
og gleymir því slæma en það var
ekki raunin með mig í þessu tilfelli.
Þegar metnaður minn var farinn að
standa til annarra hluta skamm-
aðist ég mín fyrir fortíðina. En ég
komst svo yfir það nýlega,“ segir
Ian, en heimildarmynd um Studio
54 kom út fyrir nokkru og tók hann
þátt í gerð hennar.
Algjört frelsi
„Ég er ekki viss um hvert svarið er,“
segir Ian aðspurður um hverjir töfr-
arnir á bak við vinsældir þessa sögu-
lega klúbbs hafi verið.
„Steve skapaði orðið „bouti-
que hotel,“ það var hans leið til
að útskýra fyrir fólki hver hug-
myndin væri. Ef verslunarmiðstöð
er að reyna að vera allt fyrir alla er
„boutique“ með ákveðna hugmynd
og hvernig eigi að nálgast hana. Við
töpuðum reyndar eignarhaldi yfir
orðinu, sem nú er hluti tungumálsins
og allir með sína eigin túlkun á því,“
segir Ian, en saman fóru þeir félagar
í hótelgeirann eftir Studio 54-ævin-
týrið.
„Nú til dags er sjaldgæft að við
fáum að upplifa algjört frelsi. Gestir
Studio 54 höfðu engar áhyggjur af
því að ævintýri næturinnar drægju
dilk á eftir sér daginn eftir. Fólk
mætti til að skemmta sér og vera það
sjálft. Ef stórstjarna stóð við hlið þér
var þér skítsama. Þetta snerist um
skemmtun. Ég held að frelsið sem við
náðum að skapa með fólki frá ólík-
um bakgrunni og stéttum hafi búið
til ákveðna ringulreið og tilfinningu
um að hvað sem er gæti gerst.
Hótelin eðlilegt framhald
Nú fjörutíu árum síðar er þetta
enn markmið okkar á hótelunum.
Að veita fólki frelsi til að gera það
sem það langar til. Ég held að það sé
lykillinn að velgengninni. Fólk talar
enn þann dag í dag meira um Studio
54 heldur en til að mynda Wood-
stock-hátíðina, sem var á svipuðum
tíma, svo þetta hlýtur að vera djúp-
stætt.“
Við sölu Studio 54 fengu þeir Ian
og Steve greitt með hlutabréfum í
hóteli og þannig færðu þeir sig yfir
í þann geira. „En fyrir okkur var
hótel eðlilegt framhald af nætur-
klúbbi. Við vildum sjá til þess að
fólki liði vel og skemmti sér. Þetta
er þó flóknari og siðmenntaðri biss-
ness. Fólk sem starfar á næturklúbbi
lítur út eins og vampírur á daginn og
á erfitt með að halda eðlilegri rút-
ínu,“ segir Ian, en bendir á að hvort
sem það sé rekstur veitingastaða,
næturklúbba eða hótela þá snúist
þetta allt um þjónustu.
Einstök stemning á Edition
Ian er hugmyndasmiðurinn á bak
við Edition hótelkeðjuna sem opnar
hótel hér á landi í næsta mánuði.
Hugmyndin á bak við keðjuna er að
skapa einstaka stemningu þar sem
gestir blanda geði við heimamenn
innan um vandaða hönnunina.
„Þegar Edition opnaði upphaf-
lega talaði fólk um að við værum
að reyna að skapa næturklúbb í
lobbíinu en ekkert gæti verið fjær
sannleikanum. Hugmyndin var
þó að skapa þessa sömu eldfimu
stemningu þegar fólk hittist. Við
vildum ekki búa til næturklúbb en
við vildum að ef þig langaði að fara
á aðalstaðinn í borginni sem þú ert
að heimsækja, þá þyrftir þú bara að
fara niður í lobbíið, en þetta væri
lágstemmt.“
Þegar blaðamaður hefur orð á
því hversu augljóst það virðist að
taka frekar á móti gestum í lifandi
og skemmtilegri stemningu heldur
en að þeir gangi beint inn í kulda-
lega gestamóttöku svarar Ian: „Allar
frábærar hugmyndir eru augljósar.“
Vildi láta hjörtun slá hraðar
Eftir að hafa verið í hótelgeiranum í
nokkra áratugi fór Ian á fund stjórn-
enda Marriott-keðjunnar með hug-
myndina að Edition.
„Ég hafði opnað og starfrækt hótel
um árabil og hafði aldrei áhuga á
að vera stærstur, ég vildi bara vera
bestur. Og ég hafði náð því. Ég vann
kannski að hóteli í tvö til þrjú ár,
opnaði og það sló í gegn. Þá fóru
aðrir hóteleigendur að velja úr það
sem þeim líkaði, eins og krakkar í
nammibúð og herma eftir. Ég er ekki
einn þeirra sem tek því sem hrósi
þegar hugmynd minni er stolið.
Þetta er mín hugmynd! Ég fór því að
hugsa að það gæti verið gaman að
fara í samstarf við stóra keðju og við
myndum opna svo hratt að það yrði
erfitt að herma eftir okkur.“
Ian fór á fund framkvæmdastjóra
Marriott og þeir náðu vel saman. „Ég
fann strax að hann væri mikill hönn-
unaraðdáandi. Allir bestu hótel-
rekendurnir elska hönnun, þetta er
ekki viðskiptafólk eða markaðsfólk
heldur fólk sem vill opna flott hótel.“
„Við náðum vel saman og lang-
aði að gera einstök hótel sem ekki
finnast í bæklingum og myndu
ekki líta út eins og önnur hótel. Það
væri tekin áhætta. Hugmyndin var
að þegar fólk gengi inn færu hjörtu
þess að slá hraðar. Við höfðum
okkar eigin trommutakt og iðnað-
urinn þurfti það. Einhverra hluta
vegna er nýjum hugmyndum ekki
endilega gert hátt undir höfði í
hóteliðnaðinum, kannski vegna
hluthafanna,“ segir Ian.
Ný afstaða og nálgun
Aðspurður hvernig viðbrögðin hafi
verið þegar „boutique“ hótel-mað-
urinn fór í samstarf við stóra keðju
segist Ian ákveðinn í að láta slíka
gagnrýni ekki snerta sig.
„Varan var ekki að fara að vera lak-
ari, ekki minna sérstök eða minna
sérsniðin. Þetta var ný hugmynd að
keðju. Ný afstaða og nálgun. Hvert
og eitt hótel er sérstakt og ber augljós
merki þess staðar sem það stendur í.
Þegar þú heimsækir hótelið í Reykja-
vík muntu hugsa að þetta hótel gæti
hvergi annars staðar verið.“
Það skiptir Ian augljóslega máli
að einkenni hvers staðar séu höfð í
hávegum og það sé hluti upplifunar-
innar. „Ég man að ég fór einu sinni
til Parísar með Steve og hann vildi
borða á McDonalds en ég tók það
ekki í mál að borða á McDonalds í
París.“
Mómentið fyrir Ísland
Glæsilegt Edition hótel hefur risið
við höfnina í Reykjavík, hótelið
er nú opið í forsýningu en form-
leg opnun verður 9. nóvember.
Aðspurður hvers vegna ákveðið
hafi verið að opna Edition á Íslandi,
en fyrir eru hótel í stórborgum á
við London, New York, Róm, Dubai,
Tókýó og Shanghai, segir Ian:
„Ég hugsa út fyrir boxið og sé það
sem aðrir sjá ekki. Núna er móment-
ið fyrir Ísland. Ég finn orkuna. Unga
fólkið er að tala um það, enda lif-
andi næturlíf og mikil tenging við
náttúruna. Ísland er ólíkt öllum
öðrum stöðum í heiminum,“ segir
Ian sem er spenntur fyrir opnuninni
hér á landi.
„Fyrsta tenging mín við Ísland
er einvígi Bobbys Fischer og Boris
Spasskys árið 1972 en ég var algjör-
lega heillaður af uppreisnarmann-
inum Fischer. Ég man eftir að hafa
skoðað ljósmyndir í LIFE-tímaritinu
af íslenskri náttúru og aldrei séð
annað eins.“
Þegar blaðamaður segir Ian að
hinsta hvíla Fischers sé á Íslandi er
eins og hringnum sé lokað og hann
verður uppnuminn.
Neitar að setjast í helgan stein
Ian varð 75 ára gamall í sumar og
aðspurður hvernig hann haldi
fullri starfsorku og svo frjóum huga
svarar hann: „Mitt leyndarmál er að
ég nýt þess sem ég geri. Það er ekki
vinna fyrir mér og aldur er bara
aldur. Þegar ég varð sjötugur gat ég
ekki einu sinni komið því í orð.
Ég held áfram á meðan ég geri
þetta vel. Ég er enn að gera þetta
vel og held enn að við gerum þetta
betur en allir aðrir,“ segir Ian og
vonast til að halda fullri starfsorku
í það minnsta næstu tíu árin.
„Að setjast í helgan stein er eins
nálægt dauðanum og hægt er að
komast. Ég held að þetta snúist
um forvitni, ég er forvitinn um alla
hluti. Ég sé hluti sem aðrir sjá ekki
og þeir hafa þýðingu fyrir mér, eins
og það að Bobby Fischer sé jarðaður
á Íslandi. Þetta er lykillinn að æsku-
brunninum,“ segir hann að lokum
og biður um upplýsingar um greftr-
unarstað Fischers. n
Við náðum vel saman
og langaði að gera
einstök hótel sem ekki
finnast í bæklingum og
myndu ekki líta út eins
og önnur hótel.
Víkurhvarfi 6 - 203 Kópavogur - Sími 412 1700 - idex@idex. is
www.idex.is
Byggðu til framtíðar með lausnum frá IDEX
Betri gluggar - betri heimili
30 Helgin 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ