Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 35

Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 35
Súsönnu Óskar er glæsilegur og núna mætir hún í tímana til okkar upprétt og full af orku, með bros á vör. Munurinn frá því að hún gekk fyrst inn um dyrnar haltrandi og gat varla gengið upprétt er í raun ótrúlegur. Að auki hefur hún misst 91 sentimetra í ferlinu, sem er góður bónus,“ segir Sigrún. Sögur eins og Súsönnu eru hvetjandi, að sögn Sigrúnar. „Þær eru ástæða þess að við erum alltaf tilbúin að leggja hart að okkur við að aðstoða viðskipta- vini af fremsta megni til að ná hámarksárangri. Slagorð okkar er: „Þinn árangur er okkar markmið“ og það má með sanni segja að við viljum að þeir sem koma til okkar nái árangri,“ segir Sigrún Stækkuð stofuna í Covid-lokun The House of Beauty er í Fákafeni 9 og er líkamsmeðferðarstofan öll hin glæsilegasta. Kristalsljósa- krónur, speglaflísar og glamúrlúkk með klassísku ívafi skapa þægilegt og afslappað andrúmsloft. „Fljótlega eftir að The House of Beauty var opnað kom í ljós að húsnæðið var of lítið. Eftirspurn eftir meðferðum varð strax mikil, þrátt fyrir rúman opnunartíma. Við erum með opið alla virka daga, frá morgni og oftast til klukkan 22 eða 23 á kvöldin, og einnig um helgar. Þrátt fyrir það var fjögurra vikna bið í meðferðir hjá okkur. Því var ákveðið að stækka stofuna og nýttum við tímann í Covid-lok- unum til þess,“ segir Sigrún. Makeover-pakkar vinsælastir Vinsælustu pakkarnir hjá The House of Beauty eru svokallaðir makeover-pakkar þar sem við- komandi mætir í valdar með- ferðir nokkrum sinnum í viku og í nokkrar vikur með ákveðið markmið í huga. „Við erum til dæmis með pakkana Húð- og styrkingar- makeover, Total Body-makeover og Tummy Tuck-makeover. Eftir Covid-ástandið og allt sem því fylgdi þráir fólk að koma heilsunni og líkamsforminu í lag. Eitt af því vinsælasta hjá okkur eru sérvaldir makeover-pakkar sem samtvinna meðferðir með ákveðin markmið í huga. Þeir eru á betri kjörum en ef allt er verslað sem stakar með- ferðir,“ upplýsir Sigrún. Til að aðstoða fólk við að finna meðferð eða pakka sem hentar því best er boðið upp á fría mælingu og ráðgjöf án allra skuldbindinga. „Árangur er alltaf persónu- bundinn og samstarfsverkefni meðferðaraðila og viðskiptavinar. Við erum með tækin, tólin og góðu ráðin en svo er það á ábyrgð hvers og eins að fara eftir leiðbeiningum sem aðstoða við útkomu með- ferðanna,“ segir Sigrún. Þinn árangur er okkar markmið Í The House of Beauty er ekki gerð sérstök krafa um hreyfingu eða mataræði. „Þeir sem koma til okkar eru eins misjafnir og þeir eru margir. Sumir geta einfaldlega ekki hreyft sig og þurfa þar af leiðandi aðstoð okkar til að byggja líkamann upp, en við gefum góð ráð hvað varðar vatns- drykkju, gufu, góða næringu og ýmis önnur heilræði sem bæta heilsuna og hjálpa við að hámarka árangur hvers og eins. Svo hvetjum við viðskiptavini til dáða í ferlinu og það hefur alltaf jákvæð áhrif líka,“ segir Sigrún. En eru meðferðir The House of Beauty fyrir alla? „Stutta svarið er nei,“ svarar Sigrún. „Þumalputtareglan er „þinn árangur er okkar markmið“. Ef tilskilinn árangur næst ekki fljótlega eftir að meðferð hefst er mikilvægt að láta meðferðaraðila vita svo hægt sé að gera breytingar á prógramminu.“ Sigrún heldur áfram: „Við erum eins misjöfn og við erum mörg og líkami okkar bregst mismunandi við. Fókusinn hjá okkur er ekki að viðskiptavinir missi ákveðinn fjölda kílóa heldur aðstoðum við þá við að vinna á staðbundnum breytingum á fitusöfnun, slappri húð, bjúg, bólgum, sliti og ýmsu öðru. Við einblínum frekar á að árangur sjáist með berum augum og á myndum heldur en að missa ákveðinn fjölda kílóa. Árangur byggist því á samstarfi meðferða, meðferðaraðila og viðskipta- vinar.“ Nú um helgina verða í boði Eins og ný manneskja „Ég mætti í The House of Beauty sárþjáð, gat varla hreyft mig og gekk nánast um með göngugrind. Það eina sem læknar gátu gert var að gefa mér sterasprautur og sjúkraþjálfarar voru búnir að gefast upp á mér,“ segir Sús- anna Ósk, sem öðlast hefur betri heilsu og líkamsform í meðferðum hjá The House of Beauty. „Ég byrjaði í Lipomassage Silklight-meðferð í septem- ber í fyrrahaust og meðferðin hefur gert kraftaverk á mér. Ég er farin að geta hreyft mig á ný, ég geng upp tröppur og get beygt mig, sem ég ekki gat áður. Þá hafa fokið af mér fleiri, fleiri sentimetra,“ segir Súsanna, ánægð með árangurinn. „Ég er búin að missa 91 sentimetra og geðheilsan er orðin miklu betri. Það er líka svo æðislegt að vera hjá The House of Beauty, þar er alltaf tekið á móti manni með bros á vör. Ég er bara eins og ný manneskja frá því ég byrjaði að mæta í The House of Beauty, en ég vissi hrein- lega ekki að annað eins væri til. Ég mæli því svo sannarlega heilshugar með The House of Beauty.“ Súsanna Ósk The House of Beauty er líkamsmeðferðarstofa sem á engan sinn líka hér á landi. Hún býður heildstæðar og sérhæfðar lausnir fyrir heilsu og líkamlegt útlit. „Markmið okkar er að hjálpa fólki að bæta heilsu sína og auka sjálfs- traustið, enda er slagorð stofunnar: „Þinn árangur er okkar markmið“,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, konan á bak við líkamsmeðferðar- stofuna The House of Beauty. Sigrún Lilja er oftast kennd við íslenska hönnunarmerkið Gyðju Collection. Hún er kunn fyrir að hafa hannað fjöldann allan af fylgihlutum og ilmvötnum sem slógu í gegn hér á landi sem erlendis en í dag rekur hún líkams- meðferðarstofuna The House of Beauty, sem orðin er vinsæll við- komustaður Íslendinga sem vilja bæta líkamlegt form og heilsu. „Ætli það megi ekki segja að The House of Beauty sé eins konar mekka líkama og heilsu,“ segir Sigrún, innt eftir því hvernig hún myndi helst lýsa líkamsmeðferðar- stofunni, en nýverið fagnaði stofan þriggja og hálfs árs afmæli með glæsilegri stækkun. Án skurðaðgerða og inngripa The House of Beauty er líkams- meðferðarstofa sem segja má að sé sú eina sinnar tegundar hér á landi en hún býður upp á sérhæfð með- ferðartæki og heildstæðar lausnir fyrir heilsu og líkamlegt útlit, án skurðaðgerða og inngripa. „Við bjóðum upp á mismunandi líkamsmeðferðir sem við teljum með þeim fremstu í heiminum í dag og sem allar hafa sinn sér- stæða fókus. Við bjóðum til dæmis upp á meðferðina Velashape sem þéttir slappa húð og vinnur á stað- bundinni lausri fitu, en hún hefur til að mynda nýst vel á svokallaða „svuntu“ sem stundum myndast neðst á kviðinn eftir þyngdartap eða barnsburð,“ upplýsir Sigrún. Önnur meðferð er laser lipo sem vinnur á staðbundinni, harðri fitu og Led-húðmeðferð sem vinnur á sliti og þéttingu húðar. „Við bjóðum líka upp á Fitform og nú nýjustu meðferðina okkar Msculpta PRO sem má segja að sé Rollsinn í uppbyggingu og mótun vöðva. Að auki bjóðum við með- ferðina Lipomassage Silklight sem er án efa ein öflugasta sogæðameð- ferð sem völ er á. Fyrir utan að losa um bólgur og stíflur, vökvasöfnun og bjúg, þá gerir hún undur fyrir húðina og framkallar svokallaða sokkabuxnaáferð án appelsínu- húðar,“ greinir Sigrún frá. „Þrátt fyrir að meðferðirnar vinni gríðarlega vel hver um sig gera þær enn meira þegar þær eru nýttar saman. Þess vegna vinnum við mikið með svokallaða make- over-pakka þar sem meðferðir eru settar saman með ákveðin mark- mið í huga,“ segir Sigrún. Hvetjandi árangurssögur Sögur af einstökum árangri ánægðra viðskiptavina The House of Beauty skipta hundruðum. „Við þrýstum aldrei á viðskipta- vini okkar að birta myndirnar sínar og margir fara í gegnum meðferðir hjá okkur með glæstum árangri sem aðeins þeir og við vitum af. Það fylgir að sjálfsögðu trúnaður við viðskiptavini og er algjörlega eðlilegt miðað við það sem við sérhæfum okkur í. Svo eru alltaf einstaka dásemdir sem eru til í að leyfa okkur að birta myndir svo fólk geti séð hvað við erum að gera alla daga, og okkur þykir mjög vænt um það,“ segir Sigrún. Ein af nýlegum árangurssögum er frá Súsönnu Ósk. „Súsanna var svo yndisleg að leyfa okkur að deila árangri sínum. Hún byrjaði í meðferðum hjá okkur í fyrrahaust, með það að markmiði að bæta heilsuna og lina daglega verki, en hún var sárþjáð. Árangur Mekka líkama og heilsu Sigrún Lilja Guðjónsdóttir er eigandi líkamsmeðferðarstofunnar The House of Beauty. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Í The House of Beauty er tekið á móti öllum af alúð og um- hyggju. MYNDIR/AÐSENDAR Aðstaðan er hlýleg og umvefjandi. Gæði meðferða eru í fyrirrúmi.Húsakynni stofunnar eru glæsileg. spennandi „Happy Hour“-tilboð í The House of Beauty. „Við bjóðum allar meðferðir og pakka á 25 prósenta afslætti til miðnættis á mánudag og hvetjum áhugasama að sjálfsögðu til að nýta sér það tækifæri. Hægt er að bóka sig í fría mælingu og ráðgjöf, versla á staðnum eða á einfaldan og þægilegan máta á vefnum okkar, og nýta svo meðferðirnar þegar hentar best, því kortin okkar renna ekki út,“ segir Sigrún Lilja og býður alla hjartanlega velkomna. n Nánari upplýsingar um tilboðið og makeover-pakkana, ásamt bókun í fría mælingu og ráðgjöf, er að finna á thehouseofbeauty.is. ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 16. október 2021
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.