Fréttablaðið - 16.10.2021, Qupperneq 35
Súsönnu Óskar er glæsilegur og
núna mætir hún í tímana til okkar
upprétt og full af orku, með bros á
vör. Munurinn frá því að hún gekk
fyrst inn um dyrnar haltrandi og
gat varla gengið upprétt er í raun
ótrúlegur. Að auki hefur hún misst
91 sentimetra í ferlinu, sem er góður
bónus,“ segir Sigrún.
Sögur eins og Súsönnu eru
hvetjandi, að sögn Sigrúnar.
„Þær eru ástæða þess að við
erum alltaf tilbúin að leggja hart
að okkur við að aðstoða viðskipta-
vini af fremsta megni til að ná
hámarksárangri. Slagorð okkar er:
„Þinn árangur er okkar markmið“
og það má með sanni segja að við
viljum að þeir sem koma til okkar
nái árangri,“ segir Sigrún
Stækkuð stofuna í Covid-lokun
The House of Beauty er í Fákafeni
9 og er líkamsmeðferðarstofan
öll hin glæsilegasta. Kristalsljósa-
krónur, speglaflísar og glamúrlúkk
með klassísku ívafi skapa þægilegt
og afslappað andrúmsloft.
„Fljótlega eftir að The House
of Beauty var opnað kom í ljós að
húsnæðið var of lítið. Eftirspurn
eftir meðferðum varð strax mikil,
þrátt fyrir rúman opnunartíma.
Við erum með opið alla virka daga,
frá morgni og oftast til klukkan
22 eða 23 á kvöldin, og einnig um
helgar. Þrátt fyrir það var fjögurra
vikna bið í meðferðir hjá okkur.
Því var ákveðið að stækka stofuna
og nýttum við tímann í Covid-lok-
unum til þess,“ segir Sigrún.
Makeover-pakkar vinsælastir
Vinsælustu pakkarnir hjá The
House of Beauty eru svokallaðir
makeover-pakkar þar sem við-
komandi mætir í valdar með-
ferðir nokkrum sinnum í viku
og í nokkrar vikur með ákveðið
markmið í huga.
„Við erum til dæmis með
pakkana Húð- og styrkingar-
makeover, Total Body-makeover
og Tummy Tuck-makeover. Eftir
Covid-ástandið og allt sem því
fylgdi þráir fólk að koma heilsunni
og líkamsforminu í lag. Eitt af því
vinsælasta hjá okkur eru sérvaldir
makeover-pakkar sem samtvinna
meðferðir með ákveðin markmið
í huga. Þeir eru á betri kjörum en
ef allt er verslað sem stakar með-
ferðir,“ upplýsir Sigrún.
Til að aðstoða fólk við að finna
meðferð eða pakka sem hentar því
best er boðið upp á fría mælingu og
ráðgjöf án allra skuldbindinga.
„Árangur er alltaf persónu-
bundinn og samstarfsverkefni
meðferðaraðila og viðskiptavinar.
Við erum með tækin, tólin og góðu
ráðin en svo er það á ábyrgð hvers
og eins að fara eftir leiðbeiningum
sem aðstoða við útkomu með-
ferðanna,“ segir Sigrún.
Þinn árangur er okkar markmið
Í The House of Beauty er ekki gerð
sérstök krafa um hreyfingu eða
mataræði.
„Þeir sem koma til okkar eru eins
misjafnir og þeir eru margir. Sumir
geta einfaldlega ekki hreyft sig og
þurfa þar af leiðandi aðstoð okkar
til að byggja líkamann upp, en við
gefum góð ráð hvað varðar vatns-
drykkju, gufu, góða næringu og
ýmis önnur heilræði sem bæta
heilsuna og hjálpa við að hámarka
árangur hvers og eins. Svo hvetjum
við viðskiptavini til dáða í ferlinu
og það hefur alltaf jákvæð áhrif
líka,“ segir Sigrún.
En eru meðferðir The House of
Beauty fyrir alla?
„Stutta svarið er nei,“ svarar
Sigrún. „Þumalputtareglan er
„þinn árangur er okkar markmið“.
Ef tilskilinn árangur næst ekki
fljótlega eftir að meðferð hefst er
mikilvægt að láta meðferðaraðila
vita svo hægt sé að gera breytingar
á prógramminu.“
Sigrún heldur áfram: „Við erum
eins misjöfn og við erum mörg og
líkami okkar bregst mismunandi
við. Fókusinn hjá okkur er ekki
að viðskiptavinir missi ákveðinn
fjölda kílóa heldur aðstoðum við
þá við að vinna á staðbundnum
breytingum á fitusöfnun, slappri
húð, bjúg, bólgum, sliti og ýmsu
öðru. Við einblínum frekar á að
árangur sjáist með berum augum
og á myndum heldur en að missa
ákveðinn fjölda kílóa. Árangur
byggist því á samstarfi meðferða,
meðferðaraðila og viðskipta-
vinar.“
Nú um helgina verða í boði
Eins og ný manneskja
„Ég mætti í The House of
Beauty sárþjáð, gat varla
hreyft mig og gekk nánast um
með göngugrind. Það eina
sem læknar gátu gert var að
gefa mér sterasprautur og
sjúkraþjálfarar voru búnir að
gefast upp á mér,“ segir Sús-
anna Ósk, sem öðlast hefur
betri heilsu og líkamsform í
meðferðum hjá The House of
Beauty.
„Ég byrjaði í Lipomassage
Silklight-meðferð í septem-
ber í fyrrahaust og meðferðin
hefur gert kraftaverk á mér.
Ég er farin að geta hreyft mig
á ný, ég geng upp tröppur og
get beygt mig, sem ég ekki
gat áður. Þá hafa fokið af
mér fleiri, fleiri sentimetra,“
segir Súsanna, ánægð með
árangurinn.
„Ég er búin að missa 91
sentimetra og geðheilsan
er orðin miklu betri. Það er
líka svo æðislegt að vera hjá
The House of Beauty, þar er
alltaf tekið á móti manni með
bros á vör. Ég er bara eins
og ný manneskja frá því ég
byrjaði að mæta í The House
of Beauty, en ég vissi hrein-
lega ekki að annað eins væri
til. Ég mæli því svo sannarlega
heilshugar með The House of
Beauty.“
Súsanna Ósk
The House of Beauty er
líkamsmeðferðarstofa sem
á engan sinn líka hér á landi.
Hún býður heildstæðar
og sérhæfðar lausnir fyrir
heilsu og líkamlegt útlit.
„Markmið okkar er að hjálpa fólki
að bæta heilsu sína og auka sjálfs-
traustið, enda er slagorð stofunnar:
„Þinn árangur er okkar markmið“,“
segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir,
konan á bak við líkamsmeðferðar-
stofuna The House of Beauty.
Sigrún Lilja er oftast kennd við
íslenska hönnunarmerkið Gyðju
Collection. Hún er kunn fyrir
að hafa hannað fjöldann allan
af fylgihlutum og ilmvötnum
sem slógu í gegn hér á landi sem
erlendis en í dag rekur hún líkams-
meðferðarstofuna The House of
Beauty, sem orðin er vinsæll við-
komustaður Íslendinga sem vilja
bæta líkamlegt form og heilsu.
„Ætli það megi ekki segja að
The House of Beauty sé eins konar
mekka líkama og heilsu,“ segir
Sigrún, innt eftir því hvernig hún
myndi helst lýsa líkamsmeðferðar-
stofunni, en nýverið fagnaði stofan
þriggja og hálfs árs afmæli með
glæsilegri stækkun.
Án skurðaðgerða og inngripa
The House of Beauty er líkams-
meðferðarstofa sem segja má að sé
sú eina sinnar tegundar hér á landi
en hún býður upp á sérhæfð með-
ferðartæki og heildstæðar lausnir
fyrir heilsu og líkamlegt útlit, án
skurðaðgerða og inngripa.
„Við bjóðum upp á mismunandi
líkamsmeðferðir sem við teljum
með þeim fremstu í heiminum
í dag og sem allar hafa sinn sér-
stæða fókus. Við bjóðum til dæmis
upp á meðferðina Velashape sem
þéttir slappa húð og vinnur á stað-
bundinni lausri fitu, en hún hefur
til að mynda nýst vel á svokallaða
„svuntu“ sem stundum myndast
neðst á kviðinn eftir þyngdartap
eða barnsburð,“ upplýsir Sigrún.
Önnur meðferð er laser lipo sem
vinnur á staðbundinni, harðri fitu
og Led-húðmeðferð sem vinnur á
sliti og þéttingu húðar.
„Við bjóðum líka upp á Fitform
og nú nýjustu meðferðina okkar
Msculpta PRO sem má segja að sé
Rollsinn í uppbyggingu og mótun
vöðva. Að auki bjóðum við með-
ferðina Lipomassage Silklight sem
er án efa ein öflugasta sogæðameð-
ferð sem völ er á. Fyrir utan að losa
um bólgur og stíflur, vökvasöfnun
og bjúg, þá gerir hún undur fyrir
húðina og framkallar svokallaða
sokkabuxnaáferð án appelsínu-
húðar,“ greinir Sigrún frá.
„Þrátt fyrir að meðferðirnar
vinni gríðarlega vel hver um sig
gera þær enn meira þegar þær eru
nýttar saman. Þess vegna vinnum
við mikið með svokallaða make-
over-pakka þar sem meðferðir eru
settar saman með ákveðin mark-
mið í huga,“ segir Sigrún.
Hvetjandi árangurssögur
Sögur af einstökum árangri
ánægðra viðskiptavina The House
of Beauty skipta hundruðum.
„Við þrýstum aldrei á viðskipta-
vini okkar að birta myndirnar
sínar og margir fara í gegnum
meðferðir hjá okkur með glæstum
árangri sem aðeins þeir og við
vitum af. Það fylgir að sjálfsögðu
trúnaður við viðskiptavini og er
algjörlega eðlilegt miðað við það
sem við sérhæfum okkur í. Svo eru
alltaf einstaka dásemdir sem eru
til í að leyfa okkur að birta myndir
svo fólk geti séð hvað við erum að
gera alla daga, og okkur þykir mjög
vænt um það,“ segir Sigrún.
Ein af nýlegum árangurssögum
er frá Súsönnu Ósk.
„Súsanna var svo yndisleg að
leyfa okkur að deila árangri sínum.
Hún byrjaði í meðferðum hjá okkur
í fyrrahaust, með það að markmiði
að bæta heilsuna og lina daglega
verki, en hún var sárþjáð. Árangur
Mekka líkama og heilsu
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir er eigandi líkamsmeðferðarstofunnar The House of Beauty. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Í The House of
Beauty er tekið
á móti öllum
af alúð og um-
hyggju.
MYNDIR/AÐSENDAR
Aðstaðan er hlýleg og umvefjandi. Gæði meðferða eru í fyrirrúmi.Húsakynni stofunnar eru glæsileg.
spennandi „Happy Hour“-tilboð í
The House of Beauty.
„Við bjóðum allar meðferðir og
pakka á 25 prósenta afslætti til
miðnættis á mánudag og hvetjum
áhugasama að sjálfsögðu til að
nýta sér það tækifæri. Hægt er að
bóka sig í fría mælingu og ráðgjöf,
versla á staðnum eða á einfaldan og
þægilegan máta á vefnum okkar, og
nýta svo meðferðirnar þegar hentar
best, því kortin okkar renna ekki
út,“ segir Sigrún Lilja og býður alla
hjartanlega velkomna. n
Nánari upplýsingar um tilboðið og
makeover-pakkana, ásamt bókun
í fría mælingu og ráðgjöf, er að
finna á thehouseofbeauty.is.
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 16. október 2021