Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 38
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Golfsvítan býður upp á frábæra
aðstöðu fyrir kylfinga sem vilja æfa
sig og spila golf í fullkomnu næði
án truflunar frá öðrum. Í dag býður
Golfsvítan upp á tvær svítur, í Bæj-
arhrauni 24 í Hafnarfirði og í Ögur-
hvarfi 2 í Kópavogi en seinni svítan
var opnuð fyrr í þessum mánuði,
segir Guðmundur Árni Ólafsson,
framkvæmdastjóri Golfsvítunnar.
„Upphaflega var Golfsvítan í Hafn-
arfirði stofnuð af föður mínum og
tveimur vinnu félögum hans sem
vildu einmitt æfa í ró og næði við
frábæra aðstöðu. Það kom aldrei
neitt annað til greina en að nota
golfherma frá Trackman enda eru
þeir rómaðir fyrir gæði og notaðir
af nánast öllum bestu kylfingum
heims. Í Kópavogi notum við fjóra
Trackman-herma og í Hafnarfirði
eru tveir Trackman-hermar til
staðar.“
Viðtökurnar hafa verið mjög
góðar og eru viðskiptavinir Golf-
svítunnar mjög ánægðir með
aðstöðuna, segir Guðmundur. „Það
er óhætt að segja að kylfingar hafi
tekið Golfsvítunni mjög vel og því
sem hún stendur fyrir. Það má því
segja að fyrsta árið hafi gengið
vonum framar. Við þróuðum
líka strax í upphafi kerfi þar sem
flestar aðgerðir yrðu sjálfvirkar og
um leið engir starfsmenn á vett-
vangi. Það er forsenda fyrir lágu
verði án þess að verið sé að fórna
neinu í gæðum.“
Mikill vöxtur fram undan
Fyrr í þessum mánuði var Golf-
svítan í Ögurhvarfi í Kópavogi
opnuð sem er rökrétt framhald af
því sem byrjað var á í Hafnarfirði,
segir Guðmundur. „Með viðbót í
eigendahópnum var ráðist í fram-
kvæmd með fjórum Trackman-
hermum þar sem tveir þeirra eru
í sér herbergjum og tveir hermar
samsíða með möguleika á tjaldi
á milli og meira næði. Hvert rými
er mjög rúmgott og með sjónvarpi
sem nær öllum sportrásunum. Við
leggjum mikla áherslu á snyrti-
legt húsnæði þar sem kylfingum
líður vel en við leggjum líka mikla
áherslu á að fólk gangi vel um enda
er það algjör forsenda fyrir rekstri
eins og þessum þar sem starfs-
maður er sjaldan til staðar.“
Guðmundur sér fram á mikinn
vöxt í golfíþróttinni næstu árin
þar sem golfhermar koma inn með
svipuðum hætti og knatthúsin
hafa gert fyrir fótboltann. „Þau
hafa svo sannarlega lyft fótbolt-
anum upp á hærra plan. Golf-
hermar gera kylfingum kleift að
stunda golfið allt árið og að spila
í sýndarveruleika á mörgum af
flottustu golfvöllum heims um leið
og þeir fá nákvæmar upplýsingar
um höggin á „æfingasvæðinu“.“ n
Nánari upplýsingar á golfsvitan.is.
Guðmundur
Árni tekur hér
létta sveiflu.
Golfhermarnir
líkja ótrúlega
vel eftir alvöru
golfvöllum.
Hægt er að spila
golf á mörgum
af þekktustu
golfvöllum
veraldar.
„Það er óhætt að segja að kylfingar hafi tekið Golfsvítunni mjög vel,“ segir Guðmundur Árni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIFrábær aðstaða til að ræða málin og horfa á sjónvarp í rólegheitunum.
Eins og sjá má er aðstaðan frábær til golfiðkunar og til að slaka á.
Hér má sjá hluta aðstöðunnar í Golfsvítunni í Hafnarfirði.
Það kom aldrei
neitt annað til
greina en að nota golf-
herma frá Trackman.
2 kynningarblað 16. október 2021 LAUGARDAGURgolfhermar