Fréttablaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 39
Aðstaðan hér er
einstök og er í raun
leitun að jafn góðum
búnaði sem er aðgengi-
legur fyrir almenning. Í
vetur verða golfkennarar
að störfum í Golfklúbbn-
um og verður stefnt er á
að bjóða uppá fjölbreytt
námskeið sem og einka-
þjálfun.
Viggó Haraldur
Golfklúbburinn hóf starf-
semi haustið 2017 með
fimm hágæða golfherma.
„Við erum núna að fara inn
í fimmta tímabilið okkar og
í fyrra bættum við einum
hermi við safnið,“ segir
Viggó Haraldur Viggósson,
eigandi Golfklúbbsins.
Í golfhermunum er leikið með
raunverulegar golfkylfur og golf-
bolta. Kylfingurinn slær höggið
rétt eins og hann gerir þegar golf
er leikið úti. Boltinn flýgur í átt að
skjánum og þar tekur við tölvu-
grafík sem sýnir boltaflugið.
Vönduðustu hermarnir
„Hermarnir okkar eru þeir
vönduðustu á markaðnum, ein
af ástæðunum er sú að þeir sýna
boltaflugið með eðlilegri hætti en
aðrir hermar. Margir hermar eru
þannig að það tekur 1-3 sekúndur
fyrir kerfið að sýna ferð boltans.
Tengingin á milli raunheims og
sýndarveruleika í okkar hermum
er viðstöðulaus, það er ekkert hik
og boltinn birtist á réttum stað á
tjaldinu og flýgur þar með líkum
hætti og gerist úti á velli. Hermir-
inn greinir hvernig höggið er
slegið, hraða boltans, stefnu hans
og klifurhorn og hvernig kylfan
kemur í boltann, sveifluferil og
hraða. Kerfið reiknar á svipstundu
út hvernig boltinn hefði flogið í
raunveruleikanum sem skilar sér
fullkomlega í tölvugrafíkinni. Í
mínum huga skiptir miklu máli
að boltinn skili sér úr raunheimi
í sýndarveruleikann hiklaust og
með eðlilegum hætti, það er stór
hluti af upplifuninni,“ segir Viggó.
Frægir vellir vinsælastir
Í hermunum er hægt að spila á
mörgum frægustu golfvöllum
heims, en einnig nokkrum fanta-
síuvöllum. „Uppistaðan eru raun-
verulegir golfvellir, enda eru þeir
langvinsælastir hjá viðskiptavin-
um okkar. Við bjóðum upp á um
100 golfvelli sem eru nákvæmar
eftirlíkingar af frægum raunveru-
legum golfvöllum sem finna má
um allan heim. Hver völlur í herm-
inum er nákvæmlega mótaður í
þrívíddarmódeli eftir mælingum
á raunverulega vellinum. Það eina
sem er í raun öðruvísi er að í herm-
inum eru aðstæðurnar alltaf þær
sömu, boltinn liggur óaðfinnan-
lega og það er logn og 20 gráðu hiti
alla daga.
Vinsælustu vellirnir hjá okkur
hverju sinni eru oftast þeir vellir
sem verið er að keppa á, til dæmis á
PGA-mótaröðinni. Þarna eru frægir
vellir sem marga kylfinga dreymir
um að spila einhvern tíma á í raun-
veruleikanum. Hjá okkur kemst
fólk ansi nálægt draumnum.“
Ólíkir viðskiptavinir
Starfsemi Golfklúbbsins er þríþætt.
„Golfklúbburinn er vetrarmiðstöð
fyrir kylfinga, við erum staður
þar sem fólk kemur inn að leika
sér. Í fyrsta lagi erum við að bjóða
kylfingum upp á að leika golf sér til
afþreyingar, þá erum við frammi-
stöðumiðstöð, en hvergi er betra að
æfa sig en í Golfklúbbnum. Í þriðja
lagi munum við opna sportbar á
komandi mánuðum og bjóða upp
á veitingar og drykki, eins og við
gerðum fyrir Covid-fárið.
Líklegast er engin þjóð í heim-
inum jafn æst í golfíþróttina og
við Íslendingar. Ríflega 20 þúsund
manns eru skráðir í golfklúbba og
er talið að um 60 þúsund manns
fari í golf árlega. Ástundun kylfinga
hér á landi er líka óvenju mikil.
Fram til ársins 2017, þegar Golf-
klúbburinn hóf að bjóða upp á golf-
hermana, hafði hópurinn engan
stað til þess að leika sér í golfi og
æfa sveifluna yfir vetrarmánuðina,
Komdu inn að leika á draumavellinum
Viggó Haraldur
Viggósson
byrjaði að bjóða
upp á golfherma
árið 2017 og
fylgist spenntur
með þróuninni
í rafíþróttum á
Íslandi.
Fréttablaðið/
Sigtryggur ari
Golfhermarnir í Golfklúbbnum eru fyrsta flokks og er ferillinn frá sveiflu,
höggi og yfir í sýndarveruleika algerlega laus við hik.
Golfklúbburinn býr að góðri aðstöðu fyrir kylfinga sem vilja bæta frammi-
stöðuna. Með sveiflugreiningabúnaði má greina sveifluna í smáatriðum.
Hátækni púttflötur frá PuttView er á staðnum.
kylfunum var kyrfilega parkerað í
geymslum og bílskúrum landsins.
En eftir að við hófum starfsemi
okkar hefur ásókn í hermana vaxið
hratt og fleiri og fleiri kylfingar
átta sig á því að golfhermaiðkun er
skemmtileg og gefandi. Hér mæta
bæði einstaklingar, sem og hópar
að leika golf, sumir hverjir eiga
fasta vikulega eða hálfsmánaðar-
lega tíma og aðrir koma óreglu-
lega. Algengast er að kylfingar séu
fjórir saman í hverjum hermi og
taki átján holur á þremur klukku-
stundum. Þarna fær fólk útrás fyrir
sveifluna og ekki síst fyrir félags-
lega þáttinn sem golfástundun svo
sannarlega gefur.“
Kennarar og kylfingar
„Við leggjum áherslu á að hér í
Golfklúbbnum eru kjöraðstæður
fyrir kylfinga til að bæta frammi-
stöðuna, þetta gildir fyrir alla, allt
frá byrjendum til afrekskylfinga.
Við erum með ýmsan hátækni-
búnað á staðnum, golfherma frá
Full Swing, púttflöt frá PuttView
og sveiflugreiningarbúnað frá
Swing Catalyst, þar sem hægt
er að greina sveiflu kylfingsins
í smáatriðum. Við erum að tala
um sams konar búnað og bestu
kylfingar og þjálfarar í heimi eru
að nota í sinni vinnu, búnað til
að greina þætti í sveiflunni sem
sjást ekki með berum augum og
hjálpa þannig kylfingum að bæta
frammistöðu sína.
Aðstaðan hér er einstök og er í
raun leitun að jafn góðum búnaði
sem er aðgengilegur fyrir almenn-
ing. Í vetur verða golfkennarar að
störfum í Golfklúbbnum og verður
stefnt á að bjóða upp á fjölbreytt
námskeið sem og einkaþjálfun.“
Hópasprell
Á föstudögum og laugardögum
er svo opið fyrir hópa eins og
vinahópa, gæsa- og steggjahópa
eða fyrirtækjasprell að koma og
skemmta sér í hermunum. „Það
er skemmtilegt að taka á móti
hópi fólks þar sem stór hluti hefur
kannski varla snert golfkylfu áður
og að sjá hversu gaman er hjá fólki.
Hér ríkir iðulega skríkjandi gleði
jafnt hjá vönum golfurum sem
byrjendum. Það er líka skemmti-
legt að fylgjast með fólki sem
hélt að golf væri einföld íþrótt
uppgötva að það getur varla hitt
boltann. Þetta er alveg dúndur-
skemmtun fyrir alla. Það geta allt
að átta spilað saman í hverjum
hermi og hjá hverjum þeirra er góð
aðstaða þar sem hægt er að setjast
niður og spjalla á meðan maður
bíður eftir að fá að gera næst.
Uppistaðan af kúnnahópnum
okkar eru þó fastagestir, það er
golfarar sem eiga fasta bókaða
tíma, ætli það sé ekki ríflega helm-
ingur af gestunum. Þá eru margir
sem koma reglulega og bóka þá
með fyrirvara, það er mikilvægt
fyrir hópa að reyna að hafa góðan
fyrirfara, svo er talsverður fjöldi
sem dettur inn í eitt og eitt skipti.
Aðal atriðið er að allir hafa gaman
af því að koma inn að leika,“ segir
Viggó.
Framtíðin í golfhermakeppnum
Viggó fylgist spenntur með þróun
rafíþrótta á Íslandi, en Íþrótta-
samband Íslands færist nær því að
taka rafíþróttir undir sinn hatt.
„Rafíþróttir eru margs konar og
meðal þeirra eru til dæmis golf,
siglingar, kappakstur, skotfimi og
margt fleira. Af þessu er golf hvað
líkast móðuríþróttinni, en í golf-
hermi ertu í raun að framkvæma
nákvæmlega sömu hreyfingu
og á raunverulegum golfvelli. Ég
er spenntur að vita hvert næsta
skref verður hjá Golfsambandi
Íslands í málaflokknum, hvernig
okkur tekst til dæmis að samræma
keppnisumhverfið. Til að mynda
vantar að þróa aðferðafræði til að
útdeila réttri forgjöf á kylfinga sem
taka þátt í keppnum í golfherm-
um,“ segir Viggó að lokum n.
Golfklúbburinn er staðsettur að
Fossaleyni 6, 112 Reykjavík. Nánari
upplýsingar má fá í síma 820-
9111 og á golfklubburinn.is og á
Facebook: Golfklúbburinn.
kynningarblað 3LAUGARDAGUR 16. október 2021 golfhermar