Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 42

Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 42
Hönnuður burðarvirkja NNE Verkfræðistofa leitar eftir góðu fagfólki til framtíðar- starfa á burðarvirkjasvið. Í boði er gott og fjölskylduvænt starfsumhverfi. Starfið felst í allri almennri hönnun burðarvirkja. Menntunar- og hæfniskröfur • Tækni- eða verkfræðimenntun • Gott vald á Revit og Autocad • Lágmark 3ja ára starfsreynsla • Sjálfstæði í starfi • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum. • Góð kunnátta í íslensku og ensku Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið sao@nne.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. NNE Verkfræðistofa er lítið en öflugt fyrirtæki á sviði mannvirkjahönnunar. Fyrirtækið þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina og framundan eru spennandi verkefni. www.nne.is STARFSMAÐUR TÖLVUÞJÓNUSTU Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir einstaklingi í fullt starf við tölvuþjónustu á Hvanneyri. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ • Uppsetning og uppfærsla á tölvum starfsmanna og nemenda • Viðhald og eftirlit með tölvum og hugbúnaði skólans • Aðstoð við starfsmenn og nemendur • Önnur tilfallandi verkefni HÆFNISKRÖFUR • Menntun sem nýtist í starfi • Góð þekking og reynsla af tölvuvinnslu og Microsoft hugbúnaði skilyrði • Þekking á kennslukerfum s.s. Uglu og Canvas æskileg • Þekking á Microsoft AD og rekstri netkerfa æskileg • Góð þjónustulund, frumkvæði og samskiptahæfni skilyrði FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahags- ráðherra og Sameyki hafa gert. Starfshlutfall er 100%. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 4. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar veitir Guðjón Helgi Þorvaldsson - gudjon@lbhi.is Guðmunda Smáradóttir - gudmunda@lbhi.is - 433 5000 Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Nánar á lbhi.is/storf LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS LBHI.IS | 433 5000 Reynsla af sambærilegu starfi eða lögmannsstörfum hjá fyrirtækjum eða hinu opinbera er æskileg. Málflutningsréttindi eru kostur. Starfið er krefjandi og fjölbreytt. Á lögfræðiskrifstofunni starfa nú 20 lögmenn og sex aðstoðarmenn. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir, ásamt upplýsingum um náms- og starfsferil berist á netfangið grimur@landslog.is fyrir 24. október. landslog.is Landslög veita alla almenna lögfræði- þjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir hins opinbera og einstaklinga. Landslög voru stofnuð þann 1. júní 1971 og spannar saga stofunnar því meira en fimmtíu ár. Á þeim tíma hafa einstaklingar, opinberar stofnanir og stór og smá fyrirtæki leitað liðsinnis okkar. Markmið Landslaga hefur ávallt verið hið sama – að veita viðskiptavinum okkar fyrsta flokks ráðgjöf og víðtæka þjónustu. Lögfræðistofan Landslög óskar eftir umsóknum um starf löglærðs fulltrúa Sterk liðsheild í 50 ár SÁLFRÆÐINGAR ÓSKAST Á FRÆÐSLU- OG MENNINGARSVIÐ gardabaer.is Garðabær óskar eftir að ráða sálfræðinga til starfa á fræðslu- og menningarsviði í allt að 100% starfshlutfall. Í Garðabæ eru reknir fimm grunnskólar, níu leikskólar, ein leikskóladeild og einn samrekinn leik- og grunnskóli. Sálfræðingar hafa umsjón með greiningum, sinna ráðgjöf og stýra þeim verkefnum sem undir þá heyra. Sálfræðingar starfa að faglegri þróun og ráðgjöf í nemendaverndarmálum og snemmbærum stuðningi. Sálfræðingar taka þátt í þverfaglegri samvinnu með metnaðarfullu samstarfsfólki. Starf sálfræðinga býður upp á tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu og mótun sérfræðiþjónustu bæjarins. Starfssvið: • Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla • Forvarnastarf með áherslu á að efla skólana við að leysa mál sem upp koma • Athuganir og greiningar á börnum, ráðgjöf og eftirfylgd mála • Fræðsla og námskeið fyrir foreldra, nemendur og starfsfólk skóla Menntunar- og hæfniskröfur: • Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur • Þekking á þroska og þroskafrávikum barna • Hæfni til að starfa í hópi fagaðila • Góðir skipulagshæfileikar • Færni í samskiptum • Sjálfstæði í vinnubrögðum Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu á skólastarfi og reynslu af sálfræðilegri greiningu og ráðgjöf vegna barna. Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2021. Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá um fyrri störf umsækjanda og menntun. Einnig skal fylgja stutt greinargerð um faglega sýn viðkomandi á starf sálfræðings. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Björn Björgvinsson sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs í síma 8208540 eða netfang eirikurbjorn@gardabaer.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, er hvattir til að sækja um. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.