Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 52

Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 52
Hofsstaðaskóli • Leiðbeinandi á frístundaheimili Urriðaholtsskóli • Leikskólakennari á leikskólastig • Sérkennari á grunnskólastig Leikskólinn Akrar • Leikskólakennari Leikskólinn Bæjarból • Leikskólakennari Leikskólinn Holtakot • Deildarstjóri • Leikskólakennari Leikskólinn Kirkjuból • Leikskólasérkennari eða þroskaþjálfi Leikskólinn Krakkakot • Leikskólakennari Leikskólinn Mánahvoll • Leikskólakennarar Íþróttamiðstöðvar Garðabæjar • Starfsmenn Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is gardabaer.is STÖRF HJÁ GARÐABÆ Sala innréttinga og ráðgjöf Vegna mikilla verkefna leitum við að kraftmiklum einstaklingi til að starfa með okkur í söludeild innréttinga. Helstu verkefni og ábyrgð • Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf • Hönnunarvinna í teiknikerfi GKS • Tilboðsgerð og eftirfylgni Hæfniskröfur • Þekking og/eða reynsla af notkun teiknikerfa s.s. 2020, winner eða sambærilegra • Áhugi og þekking á sviði hönnunar- og innréttingavinnu • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli • Almenn tölvukunnátta og notkun viðskiptakerfa t.d. DK GKS er leiðandi fyrirtæki í sölu á innréttingum og þjónar bæði verktaka- og einstaklingsmarkaðnum. Umsóknarfrestur er til 31.okt. Umsóknir sendist á gks@gks.is eða www.alfred.is kopavogur.is Salaskóli var stofnaður árið 2001. Skólaárið 2020 til 2021 eru tæplega 600 nemendur í skólanum. Í skólanum er jafnframt rekin öflug og góð frístund fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og þar ríkir góður starfsandi. Salaskóli er framsækinn skóli sem byggir starf sitt og þróun á reynslu og rannsóknum. Nemendur og hagsmunir þeirra eru ávallt í fyrsta sæti og lögð er áhersla á að nemendur byggi upp sjálfstraust og sjálfsaga sem nýtist þeim í hvers kyns aðstæðum seinna meir. Skólinn er UNESCO-skóli og byggir því stefnu sína á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Það felur í sér að nemendur, starfsfólk og allt skólasamfélagið leggi sig fram við að stuðla að sjálfbærni jarðar á öllum sviðum. Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbóta- drifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veitir faglega forystu og búa yfir hæfni til að skipuleggja skapandi skólastarf í samvinnu við nemendur, kennara, foreldra og skólayfirvöld. Menntunar- og hæfniskröfur · Kennaramenntun og leyfisbréf kennara · Kennslureynsla á grunnskólastigi · Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunar- fræða, stjórnunar eða sambærilegra greina · Reynsla af stjórnun og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í grunnskóla · Reynsla af rekstri skóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana · Leiðtogahæfni, afburða hæfni í samskiptum og skipulagshæfileikar Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2021. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar um starfið má finna á vef Kópavogsbæjar undir auglýst störf. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is. Skólastjóri Salaskóla í Kópavogi Skóla- og frístundasvið Leikskólastjóri - Heiðarborg Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Heiðarborg lausa til umsóknar. Heiðarborg er fjögurra deilda leikskóli við Selásbraut í Árbæ í næsta nágrenni við falleg útivistarsvæði í Elliðaárdal, Víðidal og við Rauðavatn. Einkunnarorð skólans eru vinátta – gleði – virðing. Í uppeldisstarfinu er einkum horft til kenninga John Dewey og fjölgreindakenningar Howard Gardner og áhersla lögð á að horfa á styrkleika barnanna og nýta þá í náminu. Heiðarborg er Grænfánaleikskóli, útikennsla er á öllum deildum og markvisst er unnið að því að efla þekkingu og virðingu barnanna fyrir nátt- úrunni, m.a. með ræktun matjurtagarðs. Leikskólinn tekur einnig þátt í vináttuverkefni Barnaheilla og er Heilsueflandi leikskóli. Unnið er að innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar með áherslu á sköpun og börnin fá fræðslu um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þróunarverkefnið Stígur á milli stiga er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Seláshverfi og miðar að því að auka samstarf og samvinnu milli skólastiga, elstu börnin í leikskólanum fara reglulega í heimsókn í grenndarsvæðið Heimahaga til að vinna sameiginleg verkefni með yngstu nemendum grunnskólans. Gott samstarf er einnig við foreldra og grenndarsamfélagið, s.s. hestamannafélagið Fák, íþróttafélagið Fylki og félagsmiðstöð eldri borgara í hverfinu. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf í Heiðarborg. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2022. Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2021. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111. Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is Meginhlutverk leikskólastjóra er að: • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar. • Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum. • Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn. • Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og um- bótaáætlunum. • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi. • Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskóla- stigi. • Reynsla af stjórnun æskileg. • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða. • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun. • Lipurð og hæfni í samskiptum. • Sjálfstæði og frumkvæði. Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.