Fréttablaðið - 16.10.2021, Síða 52
Hofsstaðaskóli
• Leiðbeinandi á frístundaheimili
Urriðaholtsskóli
• Leikskólakennari á leikskólastig
• Sérkennari á grunnskólastig
Leikskólinn Akrar
• Leikskólakennari
Leikskólinn Bæjarból
• Leikskólakennari
Leikskólinn Holtakot
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
Leikskólinn Kirkjuból
• Leikskólasérkennari eða þroskaþjálfi
Leikskólinn Krakkakot
• Leikskólakennari
Leikskólinn Mánahvoll
• Leikskólakennarar
Íþróttamiðstöðvar Garðabæjar
• Starfsmenn
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Sala innréttinga og ráðgjöf
Vegna mikilla verkefna leitum við að kraftmiklum einstaklingi
til að starfa með okkur í söludeild innréttinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf
• Hönnunarvinna í teiknikerfi GKS
• Tilboðsgerð og eftirfylgni
Hæfniskröfur
• Þekking og/eða reynsla af notkun teiknikerfa s.s. 2020,
winner eða sambærilegra
• Áhugi og þekking á sviði hönnunar- og innréttingavinnu
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
• Almenn tölvukunnátta og notkun viðskiptakerfa t.d. DK
GKS er leiðandi fyrirtæki í sölu á innréttingum og þjónar
bæði verktaka- og einstaklingsmarkaðnum.
Umsóknarfrestur er til 31.okt.
Umsóknir sendist á gks@gks.is eða www.alfred.is
kopavogur.is
Salaskóli var stofnaður árið 2001. Skólaárið 2020 til 2021 eru tæplega 600 nemendur í skólanum.
Í skólanum er jafnframt rekin öflug og góð frístund fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Í skólanum fer fram
metnaðarfullt starf og þar ríkir góður starfsandi.
Salaskóli er framsækinn skóli sem byggir starf sitt og þróun á reynslu og rannsóknum. Nemendur og
hagsmunir þeirra eru ávallt í fyrsta sæti og lögð er áhersla á að nemendur byggi upp sjálfstraust og
sjálfsaga sem nýtist þeim í hvers kyns aðstæðum seinna meir. Skólinn er UNESCO-skóli og byggir því
stefnu sína á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Það felur í sér að nemendur, starfsfólk og allt
skólasamfélagið leggi sig fram við að stuðla að sjálfbærni jarðar á öllum sviðum.
Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbóta-
drifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veitir
faglega forystu og búa yfir hæfni til að skipuleggja skapandi skólastarf í samvinnu við nemendur,
kennara, foreldra og skólayfirvöld.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
· Kennslureynsla á grunnskólastigi
· Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunar-
fræða, stjórnunar eða sambærilegra greina
· Reynsla af stjórnun og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í grunnskóla
· Reynsla af rekstri skóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana
· Leiðtogahæfni, afburða hæfni í samskiptum og skipulagshæfileikar
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2021.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2022 eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á vef Kópavogsbæjar undir auglýst störf.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is.
Skólastjóri
Salaskóla í Kópavogi
Skóla- og frístundasvið
Leikskólastjóri - Heiðarborg
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Heiðarborg lausa til umsóknar.
Heiðarborg er fjögurra deilda leikskóli við Selásbraut í Árbæ í næsta nágrenni við falleg útivistarsvæði í Elliðaárdal, Víðidal og
við Rauðavatn. Einkunnarorð skólans eru vinátta – gleði – virðing. Í uppeldisstarfinu er einkum horft til kenninga John Dewey
og fjölgreindakenningar Howard Gardner og áhersla lögð á að horfa á styrkleika barnanna og nýta þá í náminu. Heiðarborg er
Grænfánaleikskóli, útikennsla er á öllum deildum og markvisst er unnið að því að efla þekkingu og virðingu barnanna fyrir nátt-
úrunni, m.a. með ræktun matjurtagarðs. Leikskólinn tekur einnig þátt í vináttuverkefni Barnaheilla og er Heilsueflandi leikskóli.
Unnið er að innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar með áherslu á sköpun og börnin fá fræðslu um Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Þróunarverkefnið Stígur á milli stiga er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Seláshverfi og miðar
að því að auka samstarf og samvinnu milli skólastiga, elstu börnin í leikskólanum fara reglulega í heimsókn í grenndarsvæðið
Heimahaga til að vinna sameiginleg verkefni með yngstu nemendum grunnskólans. Gott samstarf er einnig við foreldra og
grenndarsamfélagið, s.s. hestamannafélagið Fák, íþróttafélagið Fylki og félagsmiðstöð eldri borgara í hverfinu.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf
í Heiðarborg.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda
á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2022. Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2021.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111.
Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og
stefnu Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og
starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og um-
bótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskóla-
stigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu
Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar
sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf
og fagmennska.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.