Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 75
Á golfvöllum er oft og iðu-
lega landslag sem gerir
kröfur um kunnáttu golfara
til að slá höggin, hvort sem
boltinn er fyrir ofan fætur
eða neðan, auk hliðarhalla,
sem og sambland af báðu.
Þar kemur Orange Peel til
hjálpar.
„Orange Peel Whip gerir kylfing-
um fært að slá höggin miðað við
legu vallarins en ekki af sléttum
fleti sem í raun gerir öll högg
auðveldari og líkir ekki eftir ólíku
landslagi golfvalla,“ segja Bára
Valdís Ármannsdóttir og Pétur S.
Pálsson hjá Golfsveiflunni.
„Orange Peel hentar vel þegar
verið er að spila eða æfa í golf-
hermi. Besta æfingin er að líkja
eftir aðstæðum sem kylfingur
kemur til með að þurfa að bregðast
við á vellinum, auk þess að laga
vankanta á sveiflunni og auka jafn-
vægið frekar,“ útskýrir Bára Valdís.
Bætir jafnvægið og sveifluna
Góður golfari þarf að búa yfir takti
og jafnvægi. Þar hjálpar Orange
Whip-sveifluþjálfinn til við að ná
réttum takti í sveifluna og Orange
Peel hjálpar til við að finna jafn-
vægið í sveiflunni.
„Þegar horft er á góða áhuga- eða
atvinnukylfinga má sjá að þeir
eru í góðu jafnvægi og vinda upp
á líkamann til að skapa þyngdar-
flutning, á meðan hinn almenni
kylfingur á það til að færa líkam-
ann of mikið aftur fyrir boltann.
Lagið á Orange Peel stuðlar að
betri vindu og þyngdarflutningi
á líkamanum fyrir golfsveifluna
og hjálpar við að styrkja fótstöðu
kylfingsins á réttan hátt,“ greinir
Pétur frá.
Orange Peel er framleitt af
Orange Whip Golf, leiðandi
fyrirtæki á markaði sveifluþjálfa.
Fyrirtækið var stofnað af PGA-
kennaranum Jim Hackenberg sem
jafnframt var kylfuberi í PGA-
Framúrskarandi
æfingatæki fyrir
golfara sem vilja
ná lengra
Oft má sjá Orange Whip-æfingatæki gægjast upp úr golfpokum þeirra bestu.
Æfingatæki þeirra bestu
Golfæfingatækin frá Orange
Whip hafa margoft verið valin
bestu hjálpartækin til að fá
betri, stöðugri og áhrifaríkari
golfsveiflu.
Sveifluþjálfinn og hrað-
sveifluþjálfinn eru notaðir af
fjölda PGA- og LPGA-kylfinga
og sjást oft í pokunum hjá
mörgum af bestu kylfingum
heims, eins og: Harris English,
Lexi Thompson, Jessicu
Korda, Dough Ghim, Joel
Dahmen, Daniel Berger og
fleirum.
Daniel Berger segir: „Orange
Whip hjálpar mér að fá tilfinn-
ingu fyrir sveiflunni í líkam-
ann í stað þess að hugsa bara
um að hitta boltann.“
Hreyfðu þig og sveiflaðu betur
Orange Whip Power Peel var hannaður til að þróa
sveifluna bæði á og utan golfvallarins. Plattinn er
með sex tengipunkta fyrir böndin sem halda við og
gera þér mögulegt að þróa og styrkja þessi fimm
undirstöðuatriði í golfsveiflunni:
■ GOLFSVEIFLU-LÍKAMSRÆKT: Power Peel-pakkinn
gerir þér kleift að sameina sveifluþjálfun með
æfingaprógrömmum sem bæta sveifluna og auka
styrk fyrir golfið með aðeins 20 mínútna æfingu á
dag. Hannað til að notast með Orange Whip Golf
& Fitness sem streymir golfæfingum og sveiflu-
leiðbeiningum á netinu.
■ EYKUR JAFNVÆGIÐ: Notaðu Power Peel með sex
böndum sem styðja við meðan á æfingu stendur
til að hjálpa til við æfingar og líkja eftir því sem
gerist á golfvellinum. Það hjálpar þér að ná snún-
ingnum og styrkir stóru golfvöðvana auk þess að
koma í veg fyrir ýktar hliðarhreyfingar.
■ EYKUR KRAFTINN Í SVEIFLUNNI: Með hraðþjálfan-
um eykst hraðinn á kylfuhausnum og á sama tíma
eykst stjórnin og stöðugleiki sveiflunnar. Það er
fullkomin leið til að sameina kraft og nákvæmni.
■ TEYGJUR OG AUKINN STYRKUR: Kemur með belti
með fjórum tengipunktum sem auka aðhald og
hjálpa til þegar notað er Orange Peel. Enn fremur
fylgir jógamotta undir Orange Peel, fyrir teygju-
æfingar.
■ UNDIRBÚÐU LÍKAMANN TIL AÐ NÁ MEIRI ÁR-
ANGRI: Notaðu alla fylgihluti Power Peel saman
til að bæta undirstöðuatriðin í golfsveiflunni á
mun styttri tíma; stöðuna, snúninginn, skiptingu
í niðursveifluna (e. segmentation), þyngdarflutn-
inginn og jafnvægið til að fá betri sveifluferil.
■ Í PAKKANUM ER: Orange Peel platti, hrað-
sveifluþjálfi, Power-fótabönd (2), 25cm svört
teygjubönd (2), 35 cm Orange-aðhaldsbönd (e.
resistance bands) (2), handföng (2), fitnessbelti,
jógamotta og bakpoki fyrir böndin.
Með áskrift hjá Orange Whip GFX færðu aðgang
að mörgum mismundi æfingum, svo sem dag-
legu SWOD, E9, STRETCH, ON THE RANGE, og SPEED
TRAINING sem bæta hreyfingu þína og boltaflugið
strax. Árangur kemur strax í ljós eftir fyrstu æfingar.
14 daga ókeypis prufuáskrift fylgir Orange Whip
Power Peel.
Verð á pakkanum er 79.000 krónur, með einum
stífleika af böndum.
Helstu kostir Orange Power Peel eru:
■ Samþætt sveifluþjálfun og golfþrek sem bætir
golfsveifluna strax.
■ Staðsetning á tengingu bandanna skapar
mótstöðu og veitir þjálfun sem styrkir helstu
vöðva sem notaðir eru í golfsveiflunni.
■ Hraðsveifluþjálfinn eykur sveifluhraðann og
þar að leiðandi högglengd, ásamt því að gefa
kylfingum meiri stjórn.
■ Hjálpar til við grunnatriði sveiflunnar; sterka
líkamsstöðu, snúning og þyngdarflutning,
skiptingu úr aftursveiflu í framsveiflu, jafn-
vægi og þróar sveifluferilinn.
■ Hægt að velja stífleika á böndum í réttu hlut-
falli við stífleika kylfuskaftsins.
túrum þar sem hann fékk
gott tækifæri til að stúdera
sveiflu þeirra allra bestu.
„Jim fór því að leita að
tæki sem gæti auðveldað
venjulegum golfara
að bæta sveifluna
og kom síðan með
Orange Whip sveiflu-
þjálfann sem var fyrsta
tækið til að æfa sveifluna
með drævernum. Síðan
hafa bæst við fyrir fleiri
lengdir af kylfum, einnig til að æfa
vippin og púttin,“ upplýsir Bára
Valdís.
Í kjölfarið kom á markaðinn
tækið Orange Peel sem bætir
þyngdarfærslur, jafnvægi og að
slá högg miðað við mismun-
andi legur í landslagi.
„Nú hefur einnig bæst við
líkamsræktarpakkinn Orange
Power Peel með hraðsveifluþjálfa
og böndum sem er hægt að fá í sam-
svarandi stífleika kylfuskaftanna.
Þar að auki er boðið upp á æfinga-
kerfi í áskrift á netinu, en með
því að stilla böndin rétt er hægt
að kenna líkamanum ákveðnar
hreyfingar og tengja við sveifluna,
sem og að slá bolta af plattanum
með böndin tengd til
að fá líkamann til
að muna hreyf-
inguna,“ útskýrir
Pétur. ■ Nánar á golfsveiflan.is og á Golfsveiflan á Facebook.
Lesið QR-kóðana til að sjá kennslu- og æfingamyndbönd frá Orange Whip.
Phil Mickelson að æfa sig á
bílastæðinu fyrir lokahring á
PGA-móti með Orange Whip
sveifluþjálfa. mynd/aðsend
kynningarblað 7LAUGARDAGUR 16. október 2021 GolFhermar