Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 76
Golffélagið ehf. er fyrir kylf-
inga á öllum getustigum þar
sem enginn auka kostnaður
fellur til á golfarann með
mánaðarlegum gjöldum og
allir eru boðnir velkomnir.
Dagur Þór Hilmarsson, eigandi og
framkvæmdastjóri hjá Golffélag-
inu, segir fyrirtækið bjóða upp á
þrjá Trackman 4 golfherma – sem
eru taldir þeir bestu á markaðnum:
„Þessir golfhermar henta vel til
æfinga þar sem þeir mæla ýmislegt
sem við kemur sveiflu golfarans en
einnig henta þeir vel til leiks þar
sem boðið er upp á fjölda golfvalla
um allan heim. Þeir eru einfaldir í
notkun fyrir notandann þar sem
einungis þarf að ýta á einn hnapp
til þess að ræsa kerfið.“
Hver er sérstaða Golffélagsins?
„Við hjá Golffélaginu leggjum
áherslu á að bjóða upp á fallega
aðstöðu og notalegt umhverfi þar
sem golfarinn getur mætt og æft sig
í rólegheitum á sanngjörnu verði.
Enginn starfsmaður er á staðnum
en það skilar sér í heimilislegri
aðstöðu án truflunar.
Enginn aukakostnaður fellur til
á golfarann með mánaðarlegum
gjöldum og við bjóðum alla vel-
komna að spila á hagkvæmu verði
en fullt verð á háannatíma er 4.500
kr. á tímann.
Einnig tryggja margir sér fasta
tíma yfir veturinn en þá fá við-
skiptavinir hagstæðara verð á
tímann eða 3.900 kr. á háannatíma
og 2.900 kr. fyrir kl. 15.00 á virkum
dögum. Til þess að tryggja sér fasta
tíma er best að senda beiðni á net-
fangið golffelagid@golffelagid.is
eða skilaboð á samfélagsmiðlum.“
Tímapantanir á netinu
Dagur Þór segir að golfarar panti
sér tíma á netinu og fái þá sendan
aðgangskóða að húsnæðinu
Golffélagið á Granda býður upp á Trackman 4
Dagur Þór segir að Golffélagið leggi áherslu á að bjóða upp á fallega aðstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hjá Golffélag-
inu eru þrír
Trackman 4
golfhermar sem
henta vel til
æfinga þar sem
þeir mæla ýmis-
legt sem við-
kemur sveiflu
golfarans.
Eins og sjá má er
umhverfið vist-
legt og nægilegt
pláss fyrir
kylfinginn.
klukkustund áður en tími hefst.
„Við bjóðum upp á óáfenga
drykki til sölu á hagstæðu verði
og treystum þar á heiðarleika
viðskiptavina til að greiða sjálfir í
gegnum posa. Kjósi golfarar heldur
að mæta með sína eigin drykki
og setja í kælinn hjá okkur, er það
sjálfsagt. Mögulegt er að leiga
aðstöðu Golffélagsins fyrir hópa
og þannig hægt að skipuleggja
góða skemmtun með hagkvæmum
hætti.“
Fyrir hverja hentar aðstaða
Golffélagsins helst?
„Golffélagið er hugsað fyrir
kylfinga á öllum getustigum. Við
bjóðum upp á lægra verð eða 3.500
kr. á tímann til kl. 15.00 alla virka
daga sem er kjörið fyrir þá sem
eru í vaktavinnu, námsmenn sem
eiga lausa stund eða eldri borgara
sem eru hættir að vinna og farnir
að njóta lífsins á annan hátt. Það
er um að gera að mæta snemma og
njóta þess að spila á lægra verði.
Einnig er aðstaða Golffélagsins
hentug fyrir ýmsa hópa, eins og
vina- og vinnuhópa eða fyrir ýmiss
konar hópeflisstarf. Þátttakendur
geta þá pantað sér mat þaðan sem
fólk vill og eru engar takmark-
anir, þar sem viðskiptavinir eru
ekki bundnir við að kaupa slíka
þjónustu á staðnum.
Við erum til húsa á Eyjaslóð 9 úti
á Granda. Húsið er vel merkt Golf-
félaginu og ætti því að vera auðvelt
að finna okkur.“ ■
8 kynningarblað 16. október 2021 LAUGARDAGURGolfhermar