Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 78
Löngunin til að hanna sín
eigin föt leiddi Guðnýju Mar-
gréti Magnúsdóttur í nám í
fatahönnun við Listaháskóla
Íslands. Hún segir námið
vera bæði krefjandi og
skemmtilegt.
starri@frettabladid.is
„Það er svo margt í boði í tísku-
bransanum sem mér finnst spenn-
andi. Ég stefni á að fara í starfsnám
þegar ég útskrifast og sjá svo til
hvort ég fari í framhaldsnám
eða ekki,“ segir Guðný Margrét
Magnúsdóttir, nemandi á öðru
ári í fatahönnun við Listaháskóla
Íslands.
Guðný, sem er 21 árs gömul, seg-
ist hafa kennt sjálfri sér að sauma
árið 2019 eftir útskrift úr mennta-
skóla. „Mig hafði lengi langað til
þess að kunna að gera mín eigin föt
og það leiddi mig út í námið í fata-
hönnun við Listaháskólann árið
2020. Námið tekur mikinn tíma og
getur verið mjög krefjandi en um
leið skemmtilegt. Síðasta sumar
var ég ásamt tveimur bekkjar-
félögum í Skapandi sumarstörfum
hjá Reykjavíkurborg. Þar unnum
við að verkefni sem hét Umskipti
sem snerist um að sauma ný föt
úr endurunnum textíl sem var
mjög skemmtilegt og áhugavert
verkefni.“
Lengi haft áhuga á tísku
Tískuáhuginn hefur fylgt henni
lengi. „Ég hef haft áhuga á tísku
Margt spennandi í boði í tískubransanum
frá því að ég man eftir mér en sá
áhugi hefur bara vaxið síðustu ár.
Námið í Listaháskólanum er mjög
fjölbreytt og skemmtilegt, í hverju
námskeiði fæst ég við eitthvert nýtt
viðfangsefni sem ýtir mér út fyrir
þægindarammann en er um leið
mjög gefandi.“
Hvernig hefur tískuáhugi þinn
þróast undanfarin ár?
Undanfarin ár hefur áhugi minn
þroskast mikið og orðið stærri hluti
af lífi mínu og persónuleika. Stíll-
inn minn hefur þróast mjög mikið
og mér finnst miklu auðveldara
að treysta innsæinu og vita hvað
mér finnst flott eða ekki án þess að
þurfa álit annarra.
Hvernig fylgist þú með tískunni?
Helst gegnum Instagram, Twitter,
Vogue runway og 1Granary.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Ég kaupi flest föt á nytjamörk-
uðum eða sauma þau sjálf.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Blár, hvítur og svartur þegar
kemur að fötum.
Áttu minningar um gömul tísku-
slys?
Nei, í rauninni ekki þó að sum
„outfit“ hafi verið betri en önnur.
Hvaða þekkti einstaklingur, inn-
lendur og erlendur, er svalur þegar
kemur að fatnaði eða tísku?
Ég held að það sé óhætt að segja
að Björk sé mesta „tísku-icon“
Íslendinga. Síðan finnst mér Olsen-
systurnar vera með mjög flottan
stíl.
Hvaða flíkur hefur þú átt lengst
og notar enn þá?
Elsta flíkin mín er Marimekko-
kápa sem Birna langamma mín átti
upprunalega. Ég hef átt og notað
hana síðustu fimm ár og mun halda
áfram að gera það.
Áttu uppáhaldsverslanir?
Mér finnst langskemmtilegast
að versla í nytjamörkuðum og „vin-
tage“-búðum. Rauði krossinn er
ofarlega á listanum.
Áttu eina uppáhaldsflík?
Nei, ekki beint. Uppáhaldsflíkin
mín breytist reglulega eftir því
hvernig ég er að klæða mig.
Bestu og verstu fatakaupin?
Verstu fatakaupin eru örugg-
lega þau föt sem ég keypti í „fast
fashion“-verslunum og notaði
síðan alltof lítið áður en ég missti
áhugann á þeim. Bestu kaupin eru
öll fínu „second hand“-fötin sem ég
hef fundið.
Notar þú fylgihluti?
Já, fylgihlutir eru mjög mikil-
vægir.
Eyðir þú miklum peningum í föt
miðað við jafnaldra þína?
Nei, líklegast ekki. Það er mjög
ódýrt að kaupa notuð föt og ég
kaupi mjög sjaldan ný föt. n
RÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Blússan að ofan er
frá Bitte Kai Rand,
svarta bolinn saum-
aði hún og skórnir
og pilsið eru keypt á
nytjamarkaði.
Blái bolurinn er
úr Norr, hvíta
bolinn saumaði
hún sjálf og
pilsið er keypt á
nytjamarkaði.
Hvíta bolinn
saumaði Guðný,
buxurnar eru úr
COS og kjóllinn er
keyptur á nytja-
markaði.
Ég stefni á að fara í
starfsnám þegar ég
útskrifast og sjá svo til
hvort ég fari í framhalds-
nám eða ekki.
Hafið samband við einar@netgolfvorur.is fyrir heildsölu eða í síma 824-1418.
Einstaklingar verslið á www.netgolfvorur.is
Birtee Pro keilutíin
eru vinsælustu tíin fyrir golfherma.
Kom
a í
8 hæ
ðum
og m
örgum
litum
.
6 kynningarblað A L LT 16. október 2021 LAUGARDAGUR