Fréttablaðið - 16.10.2021, Síða 97

Fréttablaðið - 16.10.2021, Síða 97
En hvernig var að vera barn á landnámsöld? kolbrunb@frettabladid.is Í dag, laugardaginn 16. október klukkan 13, verður haldin smiðja í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi. Brynhildur Þórarinsdóttir rithöf- undur leiðir smiðjuna, sem ætluð er allri fjölskyldunni. Um smiðjuna, sem ber yfirheitið Prakkarar við langeldinn, segir Brynhildur: Land- námsöld var tími bardaga. Allir bændur áttu vopn sem þeir hikuðu ekki við að beita ef þeir meiddust eða móðguðust. Eða þannig lýsa Íslendingasögurnar þessu tímabili. Þessar sögur af víkingum og vopna- skaki voru sagðar við langeldinn, kynslóð fram af kynslóð, uns þær voru skráðar á bækur. En hvernig var að vera barn á landnámsöld? Hvar eru sögurnar um krakkana sem fylgdust með átökunum eða lentu í eigin ævintýrum? – Þær verða til við langborðið í Bókasafni Garðabæjar. Brynhildur rif jar upp fornar sögur og kemur börnunum af stað við að skapa eigin Íslendingasögur. Smiðjan er ókeypis. n Smiðja Brynhildar í bókasafni Garðabæjar Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur. kolbrunb@frettabladid.is Liðin eru 100 ár frá útgáfu fyrstu íslensku útleggingarinnar á Bók- inni um veginn. Síðan hefur ritið verið þýtt fjórum sinnum til við- bótar, þar af einu sinni úr frum- málinu, en fyrsta endursögnin eftir bræðurna Jakob J. Smára og Yngva Jóhannesson hefur þó ávallt notið mestrar hylli, líklega einkum og sér í lagi eftir að Halldór Kiljan Laxness skrifaði formála að 2. útgáfu hennar sem út kom fyrir 50 árum eða árið 1971. Í tilefni þessara tímamóta er efnt til málþings í Auðarsal, Veröld – húsi Vigdísar, í dag, 16. október, kl. 10.00- 15.00. Í átta erindum verður einkum fjallað um áhrif heimspeki dao- ismans á verk Halldórs og túlkanir hans sjálfs á hugmyndum hennar, en jafnframt verður leitað fanga víðar í íslenskri bókmenntasögu og grafist fyrir um annars konar dul- spekileg áhrif á Nóbelsskáldið. n Skáldið og taóið Halldór Kiljan Laxness. kolbrunb@frettabladid.is Fyrstu tónleikar Kórs Langholts- kirkju á starfsárinu 2021-2022 verða haldnir í Langholtskirkju miðviku- daginn 20. október kl. 20.00. Á efnis- skránni eru tvö verk: Jesu, meine Freude, eftir J.S. Bach og glæný messa eftir Magnús Ragnarsson, stjórnanda kórsins. n Messa eftir Magnús Magnús Ragnarsson tónskáld. Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA ÚTGÁFUHÓF í dag kl. 14 í Gaflaraleikhúsinu. Öll velkomin! F Y N D I N O G S P E N N A N D I í anda Stellubókanna HAPPDRÆTTI LALLI TÖFRAMAÐUR UPPLESTUR Ókeypis inn en tryggja þarf pláss á tix.is LAUGARDAGUR 16. október 2021 Menning 49FRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.