Fréttablaðið - 16.10.2021, Síða 112
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is
Magrétar Erlu
Maack
n Bakþankar
Dóttir mín, dásamlegasta mann-
eskja heims, fagnaði tveggja ára
afmæli um liðna helgi. Móðir
hennar henti í mjög ljóta en
gríðarlega góða tígrisköku af
þessu tilefni. Eins og gengur og
gerist minntu samfélagsmiðlar
mig á gamlar minningar – og þar
birtist mynd af henni, voðalega
krumpaðri með fósturfituna í
hárinu. Þegar ég sá þessa mynd
helltust yfir mig tilfinningar.
Þarna sá ég fallegasta barn í
heimi. En á þeim tíma sem
myndin var tekin, 9. október
2019, upplifði ég engar tilfinn-
ingar, bara f lata tilfinningalínu,
búin á því eftir frekar eðlilega
fæðingu.
Í endurliti tekur hjarta mitt
kipp þegar ég man eftir mann-
inum mínum svipta sig klæðum
til að leyfa henni að leggjast á
bera bringuna sína, en þá fann ég
ekkert. Ekki neitt.
Og þannig leið fyrsta árið. Ég
var eins og draugur sem rétt náði
að sinna sjálfri mér og barninu,
engu öðru. Ég er ennþá með hana
á brjósti því það er það eina sem
ég gerði rétt á sínum tíma. Allt
annað á fyrsta árinu fannst mér
misheppnað og ekki nógu gott.
Sem betur fer óskaði ég eftir
hjálp, alltof seint og það var
ógeðslega erfitt. Fæðingarþung-
lyndi er stórt orð. Það felur í sér
hræðilegan niður á við-spíral og
það erfiðasta er að það er ekki
hægt að safna í neinn gleði-
banka. Ef þessi skrif hjálpa bara
einni móður að segja upphátt við
einhvern annan að hún sé þung-
lynd, er takmarkinu náð. Ástin er
þarna. En hún er hvorki sjálfsögð
né skapast um leið og klippt er á
naflastrenginn. n
Minningar um ást
Nýtt
Nýtt
Nýtt
200kr.
af hverjum seldum
rúðuvökva rennur til
Bleiku slaufunnar
í október
Bara ávextir,
ekkert annað.