Morgunblaðið - 02.06.2021, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2. J Ú N Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 128. tölublað . 109. árgangur .
Friðjón Friðjónsson
í 4. sæti
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík 4. – 5. júní
Frjálsara samfélag,
betra Ísland
Tökum forystu
GAMLAR DISKÓ-
AUGLÝSINGAR
VEITTU INNBLÁSTUR
PÍTSUR OG
BENSÍN FYRIR
TUGI MILLJÓNA
Á HVAÐA VERÐI
SELJAST HLUTIR
Í ÍSLANDSBANKA?
FERÐAGJÖFIN 6 VIÐSKIPTAMOGGINNDISKÓTEK Í HAFNARBORG 24
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þeim sem fengu ávísuð ADHD-lyf
fjölgaði verulega á seinasta ári bæði
meðal barna og fullorðinna og jókst
notkunin um 19,4%. Metýlfenidat er
algengasta lyfið í þessum lyfjaflokki
og er notkun þess mest meðal
drengja á aldrinum 10 til 14 ára. 156
af hverjum þúsund drengjum á þess-
um aldri eða tæplega 16% fengu það
lyf ávísað í fyrra. Mest var þó aukn-
ingin meðal 15-17 ára eða 16% hjá
drengjum og 14% hjá stúlkum.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýrri grein í Talnabrunni Landlækn-
is um notkun ADHD-lyfja á Íslandi
en þau eru notuð til meðferðar við at-
hyglisbresti með ofvirkni. „Þegar lit-
ið er til síðustu fimm ára má sjá um
42% aukningu í notkun lyfja í þess-
um lyfjaflokki frá árinu 2016 og um
152% aukningu frá árinu 2018 […],“
segir í greininni.
Höfundar greinarinnar segja
brýnt í ljósi stigvaxandi notkunar að
hún verði rannsökuð frekar. Um-
ræðan um notkun lyfjanna og ástæð-
ur hennar þurfi að vera fagleg og
hófstillt. Margir þurfi nauðsynlega á
lyfjunum að halda í daglegu lífi.
Tæp 16% drengja 10-14 ára
fengu ávísuð ADHD-lyf
- Notkun lyfja við athyglisbresti og ofvirkni jókst um 19,4%
Ávísanir á
metýlfenidatlyf
Fjöldi drengja af hverjum 1.000
er fengu a.m.k.eina ávísun á árinu
150
125
100
75
50
25
0
5-9 ára 10-14 ára 15-17 ára
H
e
im
il
d
:
la
n
d
læ
k
n
ir
2011
2020
MNotkun ADHD-lyfja jókst… »12
Á mánudagsmorgun neyddust
starfsmenn HS Orku til þess að
slökkva á annarri tveggja túrbína
sem tryggja samanlagt 100 Mw raf-
orkuframleiðslu Reykjanesvirkjun-
ar. Óvæntur titringur í vélbúnaðin-
um olli viðbragðinu en heimildir
herma að ekki liggi fyrir hvað olli bil-
uninni. Það muni koma í ljós á næstu
dögum þegar hægt verður að opna
túrbínuna. Sérfræðingar fyrirtækis-
ins telja að túrbínublöð hafi
skemmst eða losnað og sé það reynd-
in mun viðgerð taka tvær til þrjár
vikur. Reynist bilunin stærri í snið-
um er hætt við að lengri tíma taki að
koma búnaðinum í gagnið að nýju.
Fyrst um sinn mun þetta bakslag
ekki hafa veruleg áhrif á raforku-
markaðinn þótt ljóst sé að tjón HS
Orku vegna framleiðslustöðvunar-
innar verði verulegt. Stærsti kaup-
andi raforku fyrirtækisins er álverið
á Grundartanga og munu ráðstafanir
hafa valdið því að ekki reyndist
nauðsynlegt að grípa til skerðinga á
orkuafhendingu til þess. Hins vegar
eru vaxandi áhyggjur yfir bágborn-
um orkubúskap Landsvirkjunar á
hálendinu en lægra vatnsyfirborð
helstu lóna fyrirtækisins hefur ekki
sést um árabil. Sérfræðingur á raf-
orkumarkaði sem ViðskiptaMogginn
ræddi við segir áhrifa þessarar stöðu
gæta nú þegar í verðmyndun á orku-
markaði. »ViðskiptaMogginn
Óvissa um fram-
leiðslugetu HS Orku
- Reykjanesvirkjun á hálfum snúningi
Sex hundruð fimm og sex ára glaðvær leikskólabörn sungu
saman á tónleikum í Ráðhúsinu í gær ásamt forskólanem-
endum í Tónskóla Sigursveins. Börnin eru nemendur á þrjátíu
leikskólum í borginni. Þau höfðu æft lögin frá upphafi árs og
var því um mikla uppskeruhátíð að ræða. Tónleikarnir eru
haldnir á hverju ári en voru blásnir af í fyrra vegna kórónu-
veirufaraldursins. Sungin voru lög eftir Aðalstein Ásberg Sig-
urðsson við undirleik nemendahljómsveitar Tónskóla Sigur-
sveins. Tónleikarnir eru liður í Barnamenningarhátíðinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sex hundruð leikskólabörn stigu á svið í Ráðhúsinu í Reykjavík