Morgunblaðið - 02.06.2021, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021
HANDBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Agnar Smári Jónsson átti stórleik
fyrir Val þegar liðið heimsótti KA í
fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum
Íslandsmóts karla í handknattleik í
KA-heimilinu á Akureyri í gær.
Leiknum lauk með 30:26-sigri KA
en Agnar Smári skoraði níu mörk
fyrir Valsmenn.
Valsmenn byrjuðu leikinn af mikl-
um krafti og skoruðu fyrstu þrjú
mörk leiksins. Valsmenn náðu mest
fimm marka forskoti í fyrri hálfleik,
8:3 og 12:7, en Akureyringum tókst
að laga stöðuna undir lok fyrri hálf-
leiks og Valsmenn leiddu 15:12 í
hálfleik.
Valsmenn byrjuðu síðari hálfleik-
inn líkt og þann fyrri og voru komnir
sjö mörkum yfir eftir sjö mínútna
leik, 19:12. Valsmenn juku forskot
sitt í níu mörk þegar tíu mínútur
voru til leiksloka, 26:17, en Akureyr-
ingum tókst að minnka forskot Vals-
manna í fjögur mörk og þar við sat.
„KA tókst að minnka muninn í
þrjú mörk en dúndurskot frá Agnari
Smára Jónssyni var lokamark leiks-
ins og Valssigur, 30:26, staðreynd.
Martin Nagy var lykillinn í að
byggja upp forskot Vals í seinni hálf-
leiknum en hann varði eins og vit-
leysingur fyrri hluta hans,“ skrifaði
Einar Sigtryggsson meðal annars í
umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Markmenn Vals áttu báðir mjög
góðan leik en Martin Nagy varði níu
skot, þar af eitt vítakast, og Einar
Baldvin Baldvinsson varði sex skot.
Hjá KA átti Árni Bragi Eyjólfs-
son stórleik og skoraði fimmtán
mörk, þar af tvö af vítalínunni, en
Nicolas Satchwell í marki KA varði
sextán skot, þar af tvö vítaskot.
Liðin mætast á nýjan leik hinn 4.
júní en samanlögð úrslit tveggja
leikja ráða úrslitum um það hvort
liðið fer áfram í undanúrslit Íslands-
mótsins.
Dramatík í Garðabæ
Ísak Gústafsson fór mikinn fyrir
Selfoss þegar liðið heimsótti Stjörn-
una í TM-höllina í Garðabæ.
Ísak var markahæsti leikmaður
Selfoss með sjö mörk en leiknum
lauk með tveggja marka sigri Sel-
fyssinga, 26:24.
Mikið jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik en Selfyssingar voru þó
með yfirhöndina. Þeir náðu þriggja
marka forskoti í fyrri hálfleik eftir
23 mínútna leik, 9:6. Garðbæingum
tókst að minnka muninn í eitt mark
og var staðan 12:10, Selfossi í vil, í
hálfleik.
Selfyssingar byrjuðu seinni hálf-
leikinn af krafti og náðu fjögurra
marka forskoti eftir átta mínútna
leik, 17:13. Selfyssingar leiddu með
fjórum mörkum þegar fimmtán mín-
útur voru til leiksloka en þá hrukku
Garðbæingar í gang.
„Stjarnan neitaði hinsvegar að
gefast upp og með góðum kafla tókst
heimamönnum að jafna í 24:24 þegar
rúmar tvær mínútur voru til leiks-
loka. Selfoss skoraði hinsvegar tvö
síðustu mörkin og tryggði sér sætan
sigur,“ skrifaði Jóhann Ingi Haf-
þórsson m.a í umfjöllun sinni um
leikinn á mbl.is.
Hergeir Grímsson skoraði sex
mörk fyrir Selfyssinga og Vilius
Rasimas varði þrettán skot í marki
Selfoss.
Hafþór Már Vignisson var marka-
hæstur Garðbæinga með níu mörk
og Adam Thorstensen varði átta
skot í markinu, þar af eitt vítaskot.
Valur í kjörstöðu gegn KA
- Úrslitin réðust á lokamínútunum hjá
Stjörnunni og Selfossi í Garðabænum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Illviðráðanlegur Agnar Smári Jónsson skoraði níu mörk á Akureyri.
Stórtíðindi bárust úr Njarðvík í
gærkvöldi þegar Njarðvíkingar til-
kynntu að landsliðsmaðurinn Hauk-
ur Helgi Pálsson ætlaði að koma
heim og leika með Njarðvík á næsta
keppnistímabili í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik.
„Það var ekki auðveld ákvörðun
að kveðja atvinnumennskuna á
meginlandi Evrópu, það er stórt
skref og stór ákvörðun og því hafa
fylgt miklar tilfinningar. Við fjöl-
skyldan erum þó að sækjast eftir
meiri festu í okkar líf,“ er m.a. haft
eftir Hauki á heimasíðu UMFN.
Lið Njarðvíkur
styrkist gífurlega
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reyndur Haukur Helgi Pálsson í
búningi Njarðvíkur árið 2017.
Kría frá Seltjarnarnesi vann sér í
gærkvöldi rétt til að leika í úrvals-
deild karla í handknattleik á næsta
keppnistímabili. Kría vann Víking
2:0 í umspili um laust sæti en annar
leikur liðanna fór fram á Seltjarn-
arnesi í gær. Kría vann 20:17 og
vann fyrri leikinn í Fossvogi 32:25.
Kría tapaði ekki leik þegar í úr-
slitakeppnina var komið.
Lárus Gunnarsson, þjálfari Kríu,
tjáði blaðinu í gær að markmiðið
fyrir tímabilið hefði verið að fara
upp um deild og nú yrði fagnað en
viðtal við hann er að finna á mbl.is.
Kría í efstu deild
í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umspil Kristján Orri Jóhannsson
skorar fyrir Kríu í gær. _ Carlo Ancelotti hefur verið ráðinn
knattspyrnustjóri Real Madrid á Spáni
og hefur því látið af störfum sem stjóri
Everton á Englandi. Þetta staðfesti
spænska félagið á samfélagsmiðlum
sínum í gær. Ancelotti, sem er 61 árs
gamall, skrifaði undir tveggja ára
samning við spænska félagið en hann
hefur stýrt Everton frá árinu 2019.
Ancelotti þekkir vel til hjá spænska fé-
laginu eftir að hafa stýrt Real Madrid
frá 2013 til 2015 en hann gerði liðið að
Evrópumeisturum árið 2014.
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður
Íslands, er leikmaður Everton, en fé-
lagið hefur nú þegar hafið leit að nýj-
um knattspyrnustjóra.
_ Markvörðurinn Erla Rós Sigmars-
dóttir hefur gert samkomulag við
handknattleiksdeild ÍBV og mun hún
leika með liðinu á næsta tímabili. Erla
kom til Fram frá ÍBV árið 2018 en lék
ekki á þessari leiktíð vegna barneigna.
Hún er uppalin hjá ÍBV og snýr aftur
heim. Erla á leiki með yngri landsliðum
Íslands og þá hefur hún verið valin í A-
landsliðið.
_ Þórður Þórðarson mun láta af
störfum sem þjálfari U19 ára landsliðs
kvenna í fótbolta í lok mánaðar. KSÍ
greindi frá því í gær að Þórður og sam-
bandið hefðu komist að samkomulagi
um starfslok. Þórður hefur stýrt liðinu
frá árinu 2015 og stýrir æfingum liðs-
ins á Selfossi síðar í mánuðinum, áður
en hann lætur af störfum.
_ Karlalið ÍR-PLS tryggði sér á mánu-
dag Íslandsmeistaratitil karla í keilu er
það lagði KFR-Stormsveitina í þriðju
og síðustu viðureign liðanna um tit-
ilinn. ÍR-PLS náði 28 stigum gegn 14.
Meðalskor ÍR-PLS í viðureigninni var
221,4 en KFR-Stormsveitin var með
209,0.
KFR-Valkyrjur unnu Íslandsmót kvenna
hinn 12. maí.
_ Belgíski miðjumaðurinn Kevin De
Bruyne þarf ekki á aðgerð að halda
vegna meiðslanna sem hann varð fyrir
í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í
fótbolta á laugardaginn var. De Bruyne
fór meiddur af velli eftir samstuð við
Antonio Rüdiger, varnarmann
Chelsea, og var óttast að hann yrði
ekki með á Evrópumótinu. Þrátt fyrir
nefbrot og áverka á augnbotni verður
De Bruyne klár í slaginn með Belgum
sem eru með Dönum, Finnum og
Rússum í riðli á mótinu.
_ Naomi Osaka frá Japan hefur dreg-
ið sig úr keppni á Opna franska meist-
aramótinu í tennis í kjölfar þess að
hún neitaði að ræða við blaðamenn
meðan á mótinu stóð. „Sannleikurinn
er sá að ég hef glímt við þunglyndi frá
því Opna bandaríska meistaramótið
fór fram árið 2018 og hefur það reynst
mér mjög erfitt. Allir sem þekkja mig
vita að ég er hlédræg og feimin. Ég
verð alltaf mjög stressuð fyrir blaða-
mannafundi og þegar ég þarf að tala
fyrir framan fólk. Hefur það slæm
áhrif á andlega heilsu,“ er haft eftir
Osaka í yfirlýsingu í gær en
Osaka var kjörin
íþróttakona árs-
ins í heiminum
þegar Lau-
reaus-
verðlaunin
voru afhent.
Eitt
ogannað
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Dominkykas Milka átti mjög góðan
leik fyrir deildarmeistara Keflavík-
ur þegar liðið fékk KR í heimsókn í
fyrsta leik liðanna í undanúrslitum
Íslandsmóts karla í körfuknattleik í
Blue-höllina í Keflavík í gær.
Milkas skoraði 26 stig og tók tólf
fráköst en leiknum lauk með 89:81-
sigri Keflavíkur í spennandi leik.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn bet-
ur og leiddu með þremur stigum
eftir fyrsta leikhluta, 26:23. KR-
ingar mættu ákveðnir til leiks í ann-
an leikhluta og þeim tókst að
minnka forskot Keflvíkinga í eitt
stig. Staðan því 43:42, Keflavík í vil,
í hálfleik.
KR-ingar byrjuðu seinni hálfleik-
inn af krafti og komust sex stigum
yfir, 56:50, eftir fimm mínútna leik í
seinni hálfleik. Keflvíkingar svöruðu
og var staðan 63:60 að þriðja leik-
hluta loknum. KR-ingar leiddu
76:75 þegar fimm mínútur voru eft-
ir af leiknum en Keflvíkingar náðu
að snúa leiknum sér í vil.
Staðan var 84:79, Keflavík í vil,
þegar ein og hálf mínúta var til
leiksloka, en KR-ingum tókst að
minnka forskot þeirra í þrjú stig.
Brynjar Þór Björnsson var nálægt
því að setja niður þriggja stiga
körfu fyrir KR þegar 20 sekúndur
voru til leiksloka en boltinn skopp-
aði upp úr körfunni og eftir það var
leikurinn svo gott sem búinn.
Deane Williams skoraði 18 stig
fyrir Keflavík og tók fjórtán fráköst
og þá skoraði Hörður Axel Vil-
hjálmsson 13 stig og gaf átta stoð-
sendingar. Hjá KR-ingum var Tyler
Sabin stigahæstur með 29 stig og
níu fráköst, Brandon Nazione skor-
aði 16 stig og Brynjar Þór Björns-
son skoraði 14 stig.
Liðin mætast í öðrum leik einvíg-
isins 4. júní í DHL-höllinni í Vest-
urbæ en vinna þarf þrjá leiki til að
tryggja sér sæti í úrslitum. Í hinu
undanúrslitaeinvíginu leiðir Stjarn-
an 1:0 gegn Þór frá Þorlákshöfn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tvenna Dominykas Milka skoraði 26 stig og tók tólf fráköst gegn KR.
Mjótt á mun-
um í Keflavík
- Úrslitin réðust í fjórða leikhluta