Morgunblaðið - 02.06.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.06.2021, Blaðsíða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ TIMELESS FILMS CHINA LION TOLERA RT NMENT HUAYI TENCENT ENTERTAINMENT HB WINK ANIMATION A DAVID SILVERMAN FILM “EXTINCT" ADAM DEVINE RACHEL BLOOM ZAZIE BEETZ NG SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Washington post austin chronicle SILENCE IS NOT ENOUGH EM I LY B L U N T C I L L I A N MURPH Y THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA “EMMA STONE AND EMMA THOMPSON, THE TWO ARE A DELIGHT BOTH APART AND TOGETHER…” “THE BIGGEST SURPRISE OF 2021…” “IT JUST EXCEEDED ALL OF MY EXPECTATIONS…” Sýningar hefjast í dag á gaman- myndinni Saumaklúbburinn í leik- stjórn Göggu Jónsdóttur sem einn- ig skrifaði handritið með Snjólaugu Lúðvíksdóttur. Í myndinni segir af vinkonum í saumaklúbbi sem ákveða að skella sér yfir helgi í sumarbústað einnar þeirra ásamt samstarfskonu hennar. Ætlunin er að hafa það huggulegt, slaka á og borða góðan mat og drekka gott vín en fljótlega fer að krauma undir og gamlar syndir fljóta upp á yfirborð- ið. Myndin er framleidd af Erni Marinó Arnarsyni og Þorkeli Harð- arsyni sem gerðu Síðustu veiðiferð- ina og framleiddu Ömmu Hófí. Í aðalhlutverkum eru leikkonurnar Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Arndís Egilsdóttir og Helga Braga Jónsdóttir. Hátíðarforsýning var haldin á myndinni í síðustu viku og Laugar- ásbíói og er myndin nú sýnd í því bíói auk Smárabíós, Borgarbíós og Háskólabíós. Bústaðarferð Úr Saumaklúbbnum. Saumaklúbburinn kominn í bíó Stuttmyndin Kitchen By Measure/ Eldhús eftir máli eftir Atla Arn- arsson og Sólrúnu Ylfu Ingimars- dóttur fór með sigur af hólmi í stuttmyndasamkeppni Stockfish, Sprettfiskinum. Hátíðinni lauk um nýliðna helgi og hlutu Atli og Sól- rún verðlaunagrip og eina milljón króna í úttekt hjá tækjaleigunni Kukli. Dómnefndina skipuðu Mar- ina Richter blaðamaður og kvik- myndarýnir, Tinna Hrafnsdóttir leikkona og leikstjóri og Grímur Hákonarson handritshöfundur og leikstjóri. Stuttmyndin Spaghetti/ Spagettí eftir Egil Gauta Sigur- jónsson og Nikulás Tuma Hlynsson hlaut staka viðurkenningu. Sigur Atli Arnarsson, annar leikstjóri Eld- húss eftir máli. Hinn er Sólrún Ylfa Ingi- marsdóttir sem stödd var erlendis þegar verðlaunin voru afhent á Stockfish. Eldhús eftir máli hlaut Sprettfisk Undirritaður hefur verið stofnana- samningur vegna leikara og dans- ara við Þjóðleikhúsið. „Í fyrsta skipti í sögu stofnanaleikhúsa á Íslandi hafa laun og réttindi dans- ara verið jöfnuð á við laun og rétt- indi leikara. Þetta er mikið og stórt framfaraskref í átt til aukins jafn- réttis og þar með hefur margra ára baráttumáli Félags íslenskra leik- ara og Leikarafélags Íslands nú verið siglt í höfn með nýjum stjórn- endum Þjóðleikhússins,“ segir í til- kynningu frá Þjóðleikhúsinu. Þar kemur fram að búið sé að aðlaga samninginn nútíma- starfsumhverfi, opnað sé „fyrir nýj- ar vinnuaðferðir, aukinn sveigjan- leika, aukið samstarf og frumkvæði starfsfólks í húsinu“. Samstarfsnefndin Arnmundur Ernst Back- man Björnsson, Steinunn Þórhallsdóttir, Hrafnhildur Theódórsdóttir, Bjarni Snæ- björnsson, Birna Hafstein, Magnús Geir Þórðarson og Tinna Lind Gunnarsdóttir. Á myndina vantar Eddu Arnljótsdóttur. Kjör dansara og leikara loks jöfn Stefan Litt, sérfræðingur hjá Þjóðarbókasafninu í Ísrael, sýnir handrit sem Franz Kafka skrifaði bæði á þýsku (vinstra megin) og hebresku (hægra megin). Eft- ir áralanga rannsókn og forvörslu á þeim handritum og bókum sem safnið á eftir Kafka hafa þau loks verið gerð aðgengileg almenningi með rafrænum hætti. Meðal þess sem í safninu leynist eru handrit að bók- um, ferðadagbækur, persónuleg bréf, skissubækur og teikningar. Allt var þetta um árabil í vörslu Skjalasafns Max Brod, en Brod gaf út fjölda verka Kafka að skáld- inu látnu, þeirra á meðal eru Réttarhöldin, og skrifaði fyrstu ævisöguna um Kafka. AFP Handrit Kafka komin á rafrænt form Alls 90 milljónum króna var nýverið úthlutað úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2021 til 37 verk- efna. Þetta var í þriðja sinn frá stofnun sjóðsins 2018 sem veittir voru styrkir til barnamenningar. Alls bárust 113 umsóknir og var sótt um rúmlega fjórfalda þá upphæð sem sjóðurinn hafði til úthlutunar eða rúmar 373 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hlaut hæsta styrkinn í ár, alls sjö milljónir, fyrir verkefnið Stelpur filma á landsbyggðinni. Hönnunarmiðstöð Íslands fær sex milljónir fyrir verkefnið Hönnun fyrir alla og sömu upphæð fær Reykjanesbær fyrir verkefnið Söfn fyrir börn. Listasafn Árnesinga fær 5,5 millj- ónir fyrir verkefnið Smiðjuþræðir úr safninu inn í sveitirnar. Auður Þórhallsdóttir fær fimm milljónir fyrir verkefnið Skúnaskrall; barna- menningarhátíð Norðurlands vestra og sömu upphæð fær Ásrún Magn- úsdóttir fyrir verkefnið Litla systir. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir fær 4,5 milljónir fyrir verkefnið Krakka- veldi kynnir BarnaBar! 90 milljónir til 37 verkefna 2021 Ásrún Magnúsdóttir Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir Kór Neskirkju fagnar vori og batn- andi tíð með tónleikum í Neskirkju í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20. Flutt verða verk eftir J.S. Bach, G.P. da Palestrina, Báru Gríms- dóttur, Maurice Duruflé, Ola Gjeilo, og Steingrím Þórhallsson, stjórn- anda kórsins. Aðgangur er ókeypis. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Vortónleikar Kórs Neskirkju í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.