Morgunblaðið - 02.06.2021, Side 17

Morgunblaðið - 02.06.2021, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 ✝ Valgeir Backman fæddist 19. októ- ber 1931, hann lést í faðmi fjölskyldu sinn- ar á Landspítalanum 20. maí 2021. Foreldrar hans voru Ernst Fridolf Backman, f. í Svíþjóð 13.8. 1891, d. 19.4. 1959, og Jónína Salvör Helgadóttir Backman, f. á Kvíavöllum í Mið- neshreppi 16.7. 1894, d. 15.11. 1988. Bjuggu þau lengst af saman á Háaleitisvegi 23. Systkini Valgeirs eru Elsa 15.10. 1914, d. 2.8. 1992. Valgeir kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Helgu Sigríði Ágústsdóttur sjúkraliða, 17.10. 1959 og eiga þau fjögur börn. Hildur Salvör Backman, maki Eríkur Pétursson, börn Tara Lind og Marta. Valgeir Fridolf Backman, maki Sigurborg Árný Ólafsdóttir, börn Ágústa Eygló, Aron Elmar og Valgeir Snær. Helga Margrét Backman, maki Ingvar Haraldur Ágústsson, börn Selma Rut, Viktor Jes og Sunneva Mist. Hjördís Hrönn Backman, börn Hilmar Ársæll og Stein- unn Helga. Útförin fer fram frá Bústaða- kirkju í dag, 2. júní 2021, klukk- an 13. Slóð á streymi: https://tinyurl.com/53t6vwm7 Streymishlekk má finna á www.mbl.is/andlat Viola, f. 16.3. 1919, d. 21.11. 1923, Ernst Fri- dolf, f. 20.10. 1920, d. 22.2. 2018, Halldór Sigurður, f. 30.1. 1922, d. 20.1. 1984, Elsa Viola, f. 21.11. 1924, d. 21.7. 2016, Óskírð Lilla, f. 25.4. 1926, d. 7.2. 1927, Henning Karl, f. 7.7. 1927, d. 10.1. 2013, Ingi- björg Helga, f. 24.1. 1930, Sonja Backman, f. 26.8. 1938, d. 5.10. 2019 og Ingimar Karlsson, f. 1984: Þá er ég ekki að vitna í sögu George Orwells heldur er ég að vitna í árið sem ég kynntist tengdapabba mínum, Valgeiri Backman. Ég og dóttir hans Helga Mar- grét fórum að rugla saman reyt- um þetta sumar og líklega var komið fram á haust þegar ég gisti í fyrsta skiptið í Hörðalandi 14. Á þessum tíma var ég að vinna á vöktum í slökkviliðinu og var þetta um helgi, ég þurfti samt að mæta snemma á vakt. Ég læddist hljóðlega fram í eldhús til að fá mér morgunmat, en þá birtist Valgeir og fékk ég svona smá í magann en það var ástæðulaust. Hann byrjaði bara að spjalla um daginn og veginn og áttum við marga góða morgna í eldhúsinu eftir þetta. Svo þegar við Magga eins og konan mín er alltaf kölluð keypt- um okkur íbúð þá var hann boð- inn og búinn að hjálpa til að standsetja, það var ekki bara ein íbúð heldur urðu þær tvær og svo heilt parhús í Mosfellsbænum. Okkur Valgeiri eða Valla eins hann var kallaður gekk mjög vel að vinna saman; hann vildi að allt væri snyrtilegt á vinnustað og allt í röð og reglu. Það var aldrei farið frá verki að kvöldi öðruvísi en að snyrta upp og sópa. Það var farið í mörg ferðalög með þeim Valgeiri og Helgu þar sem þau nutu þess að vera með börnum sínum og barnabörnum. Við eigum margar góðar minn- ingar sem væri of langt að telja upp hér. Eins og flestir vita sem þekktu Valla var hann hagmæltur mjög og liggja eftir hann mörg ljóð og stökur. Ætla ég að læða einni hér með í lokin sem hann samdi fyrir Selmu mína þegar bróðir hennar fæddist. Kíkti í gegnum glerið gettu hvað ég sá. Litla sæta bróður minn í léttu rúmi lá. Ingvar Haraldur Ágústsson. Okkur er orðafátt á þessum stundum, þótt margs sé að minn- ast. Þökkum ömmu Jónu fyrir bænina þegar hún hjúkraði afa Backman til lífs. Hún var afar trúuð og lofaði að giftast Ernst ef guð þyrmdi lífi hans. Ævintýrið hófst. Pabbi ólst upp á Háaleit- isvegi 23 í stórum systkinahópi, sjálfsagt dálítið dekraður enda yngstur, afi Ernst var sænskur sprengjusérfræðingur og stein- smiður, sprengdi grunn Stýri- mannaskólans meðal annars. Pabbi og eldri bræður voru stundum sendir með heitan drykk til afa í ullarvettlingi. Pabbi gekk í Laugarnesskóla sem barn, æfði fimleika og seldi blöð í bænum með eldri bræðr- um. Menntaskólann kláraði hann ekki, ævintýraþrá var mikil og réð hann sig ásamt góðum vini sínum á norska skipið MS Tarn sem sigldi um heimsins höf í tvö ár. Hann hitti svo mömmu á Þórskaffi og sleppti ekki takinu, þau giftu sig 1959 enda búin að hlaupa af sér hornin! Hildur var nefnilega á leiðinni! Sænski helmingur Valgeirs hafði augljós- lega áhrif á líf hans þótt hann hafi ekki náð að fara á fæðingarstað föður síns Karlstad í Varmlandi en gæti verið þar nú í góðra vina hópi. Hann hafði mikið gaman af að hlusta á sænsk þjóðlög eins og Evert Taube, var hrókur alls fagnaðar á mannamótum og söng fallega með sinni bariton-tenór- rödd. Pabbi var einstaklega mús- íkalskur, spilaði á harmonikku, píanó, gítar, samdi texta við lög. Hans uppáhald var ljóðagerð og ritun, hann skilur eftir sig mikið safn af kvæðum, ljóðum, stökum og teikningum. Margar fallegar teikningar eru til eftir hann þótt hann sé hálfdrættingur Helgu en veggir heimila barna og barna- barna eru þaktir dásamlegum myndum þeirra. Mikið var ferðast um landið og mamma var klár með nesti. Ferðalag fjöl- skyldunnar um Vestfirði var ógleymanlegt. Pabbi og mamma byggðu sumarbústað á Þingvöll- um, þar áttum við góðar stundir. Hann fór daglega í sund og átti vini þar, Pottormana. Valgeir vann við byggingar alla sína tíð, var vinnusamur, verklaginn og góður verkstjóri á stórum vinnustöðum. Afar hjálp- samur, aðstoðaði börn sín við húsasmíðar og breytingar. Seinni árin voru þau hjón dugleg að ferðast til heitari landa, slitu mörgum strigaskóm. Pabbi og mamma höfðu mikið gaman af því að dansa gömlu dansana. Valgeir var pólitískur og kannski róttæk- ur á köflum, Keflavíkurgöngurn- ar voru ófáar gengnar og fleira í þeim dúr. Þjóðviljinn var í áskrift, samkvæmur sjálfum sér og fastur á sínu. Pólitíkin var nú ekki í fremsta hlutverki síðustu áratugina held- ur fjölskyldan, ferðalög, skrif og ljóðagerð og skipulag, já guð minn góður! Hann skipulagði allt svo vel. Nú getum við afkomend- ur gengið að nöfnum okkar á möppum með myndum, afmælis- kveðjum, ljóðum o.s.frv. Við gerum okkur ljóst að pabbi hélt mörgu fyrir sig, sagði ekki allt, síðustu og næstu daga kynn- umst við pabba upp á nýtt og hans ævintýrum, með tilhlökkun. Á dánarbeði sungum við fjöl- skyldan saman með pabba og nokkrum tímum síðar á síðustu andartökum pabba settist svart- þröstur á handriðið á svölunum fyrir utan gluggann og söng loka- lagið og flaug svo út í vorið með pabba inn í sumarlandið. Vængir, ljóð til pabba eftir Hjördísi Hrönn Backman. Svartþröstur svífur, sólarupprás bíður. Sest og sækir andann, vængjum lyftir - flýgur! Senn er stund á enda, kveðjustund að lenda. Sólin mystík býður, sálin siglir – friður Þjáningum að henda minningum sem streyma. Tár sem finna heima. Hönd í hönd – vangi í vanga. Koss og knús. Góða nótt – sofðu rótt – góða ferð Takk fyrir okkur pabbi. Minn- ing þín lifir. Hildur, Valgeir, Helga og Hjördís. Valgeir Backman Í hvert skipti sem ég sagði vinum mínum einhverja skemmtilega sögu um afa minn sögðu þau mér alltaf hvað þeim fyndist hann æðislegur, jafnvel þótt þau hefðu aldrei hitt hann áður. Mér fannst það alltaf svo gaman að tala um hann við aðra af því öllum fannst hann hljóma svo skemmtilegur og ég var svo stolt af því að eiga svo æðislegan afa. Þegar ég vann í bakaríi rétt hjá blokkinni hans tók ég alltaf með mér sérbakað vínarbrauð eftir vaktina og fór með það til hans og það var besti partur dagsins míns. Ég sat hjá honum og spjallaði við hann á meðan hann fékk sér vínarbrauð með ostsneið ofan á. Ég sakna þess mest. Það mun aldrei ná að venj- Kristmann Eiðsson ✝ Kristmann Eiðsson fæddist 27. maí 1936. Hann lést 20. október 2020. Hann var jarð- sunginn 27. maí 2021. ast að geta ekki kíkt við í Sól- túninu og séð hann sitja við sjónvarpið. Selma Gautadóttir. HINSTA KVEÐJA Elsku afi, mikið hlakka ég til að segja þeim sem ég elska meira frá þér. Fjóla Gautadóttir. Útför í kirkju Allt um útfarir utforikirkju.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN MARGRÉT JÚLÍUSDÓTTIR, Hákonarstöðum, Jökuldal, lést á hjúkrunarheimilinu Dyngju sunnudaginn 9. maí. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Sigvaldi Júlíus Þórðarson Kristrún Björg Gunnarsdóttir Gréta Dröfn Þórðardóttir Páll Halldór Benediktsson Hákon Jökull Þórðarson Valgerður Jónsdóttir Trausti Þórðarson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, ÁRNI ÓLI ÓLAFSSON frá Suðurgarði, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 29. maí. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 12. júní kl. 13. Athöfnin er opin öllum. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn Vestmannaeyja, kt. 651090-2029, reikningur: 582-26-2000. Hanna Birna Jóhannsdóttir Ólafur Árnason Guðrún Möller Jóhann Ingi Árnason Amy Árnason Anna Svala Árnadóttir Anders Lerøy og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORBERGUR KRISTINSSON, prentari og útlitsteiknari, lést 27. maí á líknardeild Landspítalanns í Kópavogi. Útför fer fram í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg 56 í Reykjavík 7. júní klukkan 15. Sigrún Gróa Jónsdóttir Kristinn Þorbergsson Kristín Anna Ólafsdóttir Jón Sævar Þorbergsson Rannveig Einarsdóttir Snorri Goði Þorbergsson Nanna Gísladóttir Wium barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, MARÍAS HAFSTEINN GUÐMUNDSSON málarameistari, lést 31. maí. Útför verður auglýst síðar. Halla Magnúsdóttir Jakob Maríasson Arléne Lucianaz Guðrún Ósk Maríasdóttir Árni Björn Kristjánsson Auður Ása Maríasdóttir Ingvar H. Birgisson og barnabörn Þegar ég var að verða sex ára flutti fjölskyldan í nýtt hverfi í Stokkhólmi sem hafði það í för með sér að til stóð að ég myndi byrja fyrsta bekk í nýjum skóla. Ég hafði lokið við fimm ára bekk í Södermalmskolan og lík- aði þar vel, svo aðspurð svaraði ég því að nei, ég vildi ekki skipta um skóla. Í stað þess að hafa vit fyrir barninu og senda mig bara í nýja hverfisskólann, enda styttra að fara og við bíl- laus, þá sagði faðir minn gott og vel og fylgdi mér þar eftir alla morgna í gamla skólann. Í mörg ár röltum við saman á neðan- jarðarlestarstöðina, tókum lest- ina fjögur stopp á Mariatorget og röltum þaðan í skólann. Oft gleymdum við skólatöskunni minni heima og þurftum að snúa aftur til að sækja hana, enda bæði frekar utan við okk- ur. Að loknu þessu öllu saman fór faðir minn sömu leið heim til að hefja vinnudaginn sinn því hann vann „faktiskt“ heiman Baldur Kristjánsson ✝ Baldur Krist- jánsson fæddist 6. mars 1951. Hann lést 9. maí 2021. Útför Baldurs fór fram 19. maí 2021. frá. Þetta finnst mér svo lýsandi fyrir pabba. Hann hlustaði á það sem ég hafði að segja þótt barnung væri (enda barnasál- fræðingur með mikla ástríðu fyrir faginu sínu) og sýndi mér og skoð- unum mínum virð- ingu. Þegar ég seinna meir var byrjuð í menntaskóla og bað hann að lesa yfir ritgerðirnar mínar fyrir skil þá gerði hann það alltaf með glöðu geði, sama hvað það var mikið að gera. Hann gaf sér góðan (jafnvel, að mér fannst stundum, aðeins of góðan) tíma til að fara með mér yfir hverja einustu setningu af mikilli nákvæmni. Saman spek- úleruðum við í málfari, hvort betra væri að setja kommu hér eða þar og hvort mögulega mætti stytta setninguna eða endurorða hana svo hún kæmi sem best út. Þrátt fyrir þessar spekúleringar var hann dugleg- ur að hrósa mér og sagðist vera stoltur yfir því hvað ég væri góður og skemmtilegur penni. Eftir á að hyggja átta ég mig á því hvað þetta átti stóran hlut í því að byggja upp sjálfstraust mitt og trú mína á að ég gæti gert allt það sem ég ætlaði mér. Pabbi var alveg frábær fræðimaður og gat setið frá morgni og langt fram á nótt að vinna fyrir framan tölvuna heima. Eitt sinn spurði ég hann hvort honum fyndist ekki leið- inlegt að vinna svona mikið en hann sagði það fjarri, því hon- um þætti það sem hann var að fást við svo skemmtilegt. Þarna áttaði ég mig ung á því að vinna þurfi alls ekki að vera kvöð og ég hef haft það að leiðarljósi síðan. Þessar handahófskenndu minningar, sem allar tengjast þó innbyrðis, mynda hluta af heildinni sem er það sem pabbi var fyrir mér; faðir sem var alltaf til staðar þegar ég þurfti á honum að halda, sem nennti að flækjast með mér hingað og þangað án þess að kvarta og sem sýndi því sem ég var að fást við alltaf áhuga. Maður sem hugsaði vel um fólkið sitt (og dýrin sín), sama hversu flókið það gat reynst. Elsku pabbi minn, ég vona að þú njótir þín í sumarlandinu. Að horfa á eftir þér hverfa inn í gleymskuna er það erfiðasta sem ég hef upplifað og ég hef syrgt þig milljón sinnum síð- ustu árin. Þín er og verður sárt saknað en minningin um hjálp- saman, eldkláran og metnaðar- fullan mann lifir. Ég elska þig svo, svo mikið. Þín, Sif Baldursdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.