Morgunblaðið - 02.06.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021
Hildur
Stjórnmál
Sverris
skipta máli
dóttir
3.– 4. sæti
Kjósum Hildi Sverrisdóttur
í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Það er ánægjulegt að sjá hversu
hátt hlutfall íbúa tók þátt í kosning-
unni því auðvitað hafa ekki allir
skoðun á svo afmörkuðu skipulags-
máli,“ segir Sóley Björk Stefáns-
dóttir, formaður Stýrihóps um íbúa-
samráð á Akureyri. Ráðgefandi
íbúakosningu um aðalskipulag Odd-
eyrar sem stóð yfir í fimm daga er
lokið. Alls tóku 3.878 íbúar Akureyr-
ar þátt eða um 26% þeirra sem upp-
fylltu skilyrði til þátttöku.
Sóley Björk segir að þátttakan
hvetji bæinn til að halda áfram á
þeirri vegferð sem hófst fyrir tveim-
ur árum þegar hann tók þátt í til-
raunaverkefni Sambands íslenskra
sveitarfélaga um íbúasamræðu.
„Síðan þá höfum við stigið markviss
skref í að hafa betra samráð við
íbúana á ýmsum stigum mála.
Valið í íbúakosningunni stóð á
milli fjögurra kosta, það er að velja
gildandi aðalskipulag sem gerir ráð
fyrir húsum upp á 3 til 4 hæðir, mála-
miðlunartillögu sem gerði ráð fyrir 5
til 6 hæða húsum og svo tillögu að
aðalskipulagsbreytingu sem kynnt
var í byrjun árs og gerir ráð fyrir að
á svæðinu verði bara byggingar allt
að 6 til 8 hæðir. Loks gat fólk hakað
við þann valkost að það hefði ekki
skoðun á málinu. Flestir greiddu
gildandi aðalskipulagi atkvæði sitt,
eða 67% þeirra sem tóku þátt.
Gott veganesti
Sóley Björk segir að þátttakan
sýni fram á að íbúar bæjarins vilji
gjarnan vera þátttakendur í stjórn-
sýslu bæjar þegar um er að ræða
mál sem þeir hafa skoðun á.
„Þetta verður gott veganesti fyrir
okkur inn í önnur íbúasamráðsverk-
efni. Það er gott fyrir okkur að fá svo
afgerandi niðurstöðu og hún gefur
okkur góðan umræðugrundvöll um
málið sem fer nú í sitt ferli í stjórn-
kerfinu, segir hún. „Það er ekki ólík-
legt að við höldum áfram að spyrja
íbúa um álit þeirra þegar upp koma
umdeild mál, en við leggjum sér-
staka áherslu á að hafa samráð á
fyrstu stigum mála eins og við höfum
gert núna í síðustu viku í undirbún-
ingi við skipulag nýs hverfis í norð-
urhluta bæjarins.“
Oddeyri Flestir voru sáttir við gildandi skipulag sem hér sést á tölvumynd.
Flestir völdu
gildandi skipulag
- Ánægð með þátttöku bæjarbúa
Kattaeigendum í Reykjavík ber að
skrá kettina sína. Í skýrslu stýri-
hóps um gæludýr kemur fram að
umfang kattahalds er óljóst og
skráning ófullnægjandi. Þorkell
Heiðarsson var einn þeirra sem
vann skýrsluna. Segir hann fjölda
kvartana koma inn á borð borg-
arinnar um lausagöngu katta á
þessum tíma árs, enda varptími
fugla.
Aðspurður segir hann lausa-
göngubann í Reykjavík ekki hafa
verið skoðað af fullum þunga en þó
komið til umræðu enda sé lausa-
ganga katta bönnuð í flestum borg-
um erlendis. Hann segir lausa-
göngu ekki síst skapa vanda fyrir
köttinn ef litið er til þess hve marg-
ir kettir verða fyrir bíl.
„Mín afstaða er að það þurfi að
skoða þetta mál af fullri alvöru,“
segir Þorkell. Hann segir margar
leiðir færar og myndi vilja skoða
lausagöngubann, meðan á varptíma
stendur. Hann segir að bera verði
virðingu fyrir sterkum tilfinning-
um bæði kattaeigenda og fugla-
vina.
Aðeins Norðurþing hefur gripið
til þess að banna lausagöngu katta
en Fjarðabyggð er það sveitarfélag
sem stendur sig best hvað varðar
skráningu þeirra. Anna Berg Sam-
úelsdóttir er umhverfisstjóri
Fjarðabyggðar og telur hún að gott
gengi í skráningu megi rekja til
þess trausts sem íbúar beri til sveit-
arfélagsins. Fjarðabyggð er með
samning við Villikattafélagið og
finnast margar farsælar sögur af
köttum sem hafa komist heim til
eigenda sinna vegna skráningar.
thorab@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kettir Umræða um lausagöngu katta brýst oft fram á varptíma fugla.
Kettir sjaldan
skráðir í borginni
- Fjarðabyggð sterkust í skráningu
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Sjálfstæðisflokkurinn gegnir forystu-
hlutverki í íslenskum stjórnmálunum,
segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra og vill að: „Við
eigum alltaf að stefna að því að hafa
forystu og leiða ríkisstjórn.“ Þetta
kemur fram í viðtali í Dagmálum
Morgunblaðsins í dag, sem opið er öll-
um áskrifendum blaðsins.
Sjálf vill hún gegna forystuhlut-
verki í ríkisstjórn áfram. „Ég er að
gefa kost á mér til þess að leiða Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík. Sjálf-
stæðisflokkurinn þarf að horfa til
framtíðar, þora að taka stór skref og
treysta nýrri kynslóð.“
Áslaug Arna telur að Sjálfstæðis-
flokkurinn eigi inni mikið kjörfylgi,
ekki síst í Reykjavík. „Ég held að við
getum verið enn stærri flokkur en við
erum. Við þurfum að þora að tala við
alla hópa, vera sú stóra breiðfylking
sem við segjumst vera.“
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að
tala til ungs fólks
Hún varar við því að fólk leiði hjá
sér vinstrisveiflu meðal ungs fólks í
von um að hún eldist af mörgum. Á
því þurfi að taka og sjálfstæðismenn
verði að skýra stefnu sína betur fyrir
unga fólkinu. „Hún á við unga fólkið
eins og eldra fólkið. Hún á við alla og
bætir lífskjör allra. Þess vegna hef ég
verið að útskýra það sem við erum að
fást við; af hverju erum við að gera
þetta, hver er stefna Sjálfstæðis-
flokksins. Hana þurfum við að skýra
fyrir unga fólkinu, það vill skilja og
það vill hlusta á okkur. Við þurfum að
tala til allra kynslóða, því við eigum
mikið inni.“
En er hún of ung til þess að tala til
eldri kynslóða? „Nei, ég er ekki of
ung og Sjálfstæðisflokkurinn hefur
góða og einstaka sögu að segja um
hvernig hann treystir og leiðir fram
ungt fólk til forystu og ábyrgðar-
starfa. Ég gef kost á mér til þess að
nýrri kynslóð sé treyst og ég vil
stækka Sjálfstæðisflokkinn í Reykja-
vík, höfuðborgin á ekki að draga
flokkinn niður á landsvísu.“
Hún segir fjölmörg verkefni blasa
við eftir kórónukreppuna en enn fleiri
tækifæri. „Það hefur aldrei verið
betra að búa í heiminum – hvort sem
er á Íslandi eða annars staðar – og
mig langar til þess að leiða Sjálfstæð-
isflokkinn inn í framtíðina, koma
sjálfstæðisstefnunni á framfæri við
fleiri, bera höfuðið hátt og setja kass-
ann út gagnvart því að vera hægri
maður“
Horfum til framtíðar og
treystum nýrri kynslóð
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra í viðtali
Morgunblaðið/Hallur
Framtíðin Áslaug Arna vill auka kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.