Morgunblaðið - 02.06.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við bentum á það strax í upphafi að
þetta færi allt í pítsur og bensín. Við
vildum láta setja inn skilmála svo
ferðagjöfin væri betur nýtt úti á
landi og fólk myndi kaupa alvöru-
þjónustu. Því miður fengum við ekki
áheyrn á það og þetta er niður-
staðan,“ segir Arnheiður Jóhanns-
dóttir, framkvæmdastjóri Markaðs-
stofu Norðurlands.
Frestur til að nýta sér fimm þús-
und króna ferðagjöf stjórnvalda
rann út á mánudag. Margir voru á
síðustu stundu og alls voru hátt í níu
þúsund ferðagjafir sóttar síðasta
daginn. Enn fleiri kláruðu að nýta
sínar ferðagjafir. Alls var ríflega
einn milljarður króna nýttur af
ferðagjöfinni til að greiða fyrir þjón-
ustu. Þegar upp var staðið voru
rúmlega 19 þúsund ferðagjafir ónot-
aðar.
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
nutu helst góðs af ferðagjöfinni.
Mest var hún notuð hjá FlyOver Ice-
land en litlu minna hjá bensín-
stöðvum og verslunum N1 og Olís. Á
lista yfir tíu vinsælustu fyrirtækin er
einnig að finna hótel, Bláa lónið og
Flugfélag Íslands auk skyndibita-
staða á borð við Domino’s, KFC og
Hlöllabáta.
Arnheiður segir í samtali við
Morgunblaðið að hún hefði kosið að
meira af ferðagjöfinni hefði runnið
til ferðaþjónustufyrirtækja á lands-
byggðinni. Það hafi væntanlega ver-
ið upphaflegi tilgangurinn þótt nið-
urstaðan hafi kannski verið önnur.
„Tilgangurinn var að styðja við
ferðaþjónustuna og hvetja fólk til að
kaupa sér slíka þjónustu,“ segir hún
og bætir við að ferðaþjónustufyr-
irtæki hafi verið misjafnlega dugleg
við að búa til pakka sem myndu
hvetja fólk til að verja ferðagjöfinni
hjá þeim.
„Það hafa margir boðið eitthvað
aukalega, að þú fáir eitthvað meira
fyrir fimmþúsundkallinn hjá þeim.
Við höfum hvatt fólk til að gera þetta
og maður sér á tölunum að þau fyrir-
tæki sem það gerðu fengu mest af
henni til sín. Hér á Norðurlandi eru
það stærstu fyrirtækin, þau sem eru
með markaðsdeildir, tíma og pen-
inga. Þau gátu auglýst tilboðspakka
og það skilaði sér. Kannski hefði
þurft að styðja betur við minni fyrir-
tækin hvað þetta varðar.“
Arnheiður bætir við að nú hafi
gefist góður tími til að meta hverju
ferðagjöfin skilaði og gaman væri að
sjá annan brag á henni nú þegar
ferðagjöfin 2021 er aðgengileg
landsmönnum. Hún bætir jafnframt
við að gæta þurfi að því að ferða-
þjónustufyrirtæki eigi greiða leið að
ferðagjöfinni.
„Núna höfum við til dæmis þurft
að gera athugasemdir við að tjald-
stæðin eru ekki inni í ferðagjöfinni.
Ég get ímyndað mér að ástæðan sé
sú að einhver hafi haldið að þau
væru öll rekin af sveitarfélögum en
sú er ekki raunin. Það eru fjölmörg
einkarekin tjaldstæði og mörgum
finnst þetta einkennilegt. Tjaldúti-
legan er jú grunnferðalag okkar Ís-
lendinga. Ég vona að þetta verði lag-
að.“
Eitt af þeim fyrirtækjum sem
nutu góðs af kaupvilja landsmanna á
lokadegi ferðagjafarinnar var veit-
ingakeðja Sigmars Vilhjálmssonar.
Hann bauð upp á gjafabréf sem virk-
aði þannig að fyrir fimm þúsund
króna ferðagjöf gat fólk fengið þrjú
þúsund króna inneign á þrjá staði;
Barion, Hlöllabáta og Minigarðinn.
Alls níu þúsund krónur. Yfir fjórar
milljónir skiluðu sér í kassann á
lokadeginum og fyrirtækið rauk inn
á topp tíu listann yfir nýttar ferða-
gjafir. „Það kom áhlaup þarna í lokin
og við höfðum vart undan. Það klár-
uðust þrjár rúllur af gjafabréfum og
nú þurfum við að prenta fleiri. Við
munum að sjálfsögðu bjóða áfram
upp á þetta tilboð,“ segir Sigmar.
Nýtt í pítsur
og bensín en
ekki ferðalög
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ferðaþjónusta Á Siglufirði hafa ferðamenn getað séð söltunarsýningar á vegum Síldarminjasafnsins á sumrin.
383 m.kr.
211
139
98
55
40
32
18
17
Svona nýttu landsmenn ferðagjöfina
Tíu stærstu móttakendur ferðagjafarinnar, milljónir kr.
Notkun ferðagjafarinnar eftir landshlutum, milljónir kr.
Skipting eftir tegund þjónustu
Heimild: Ferðamálastofa
Flyover Iceland 53
N1 50
Olíuverslun Íslands 45
KFC 32
Íslandshótel 31
Flugleiðahótel 27
Bláa lónið 26
Domino‘s 25
Flugfélag Íslands 24
Hlöllabátar 22
Höfuðborgarsvæðið
Á landsvísu
Suðurland
Norðurland eystra
Vesturland
Suðurnes
Austurland
Norðurland vestra
Vestfirðir
Veitingastaðir 403
Gisting 231
Afþreying 217
Samgöngur 119
Bílaleigur 10
Ferðaskrifstofur 3
Annað 11
Milljónir kr.
Arnheiður
Jóhannsdóttir
Sigmar
Vilhjálmsson
- Átti að styðja við ferðaþjónustuna
- Tjaldsvæði ekki með - Sigmar sáttur
„Þetta fer fyrr af stað. Kannski svo-
lítið brattara en maður vill,“ segir
Benedikt Helgason, framkvæmda-
stjóri Go Campers, sem gerir út sér-
útbúna ferða- eða útilegubíla.
„Það er lítið eftir í fáum flokkum
eiginlega út sumarið. Þetta hefur
breyst mjög hratt á síðustu vikum,“
segir hann og bætir við að eftir-
spurnin frá erlendum ferðamönnum
sé meiri í ár en fyrrasumar.
„Bólusettir Bandaríkjamenn hafa
tekið mjög vel við sér og aðrar þjóðir
líka á síðustu vikum, til að mynda í
Mið-Evrópu,“ segir hann en lang
stærstur hluti pantana er frá Banda-
ríkjunum. „Ef einhverjir Íslendingar
ætla að leigja sér bíl í sumar þurfa
þeir að hafa hraðar hendur,“ segir
Benedikt en það eru einna helst
minnstu bílarnir sem eru eftir, að
hans sögn.
Spurður hvernig gekk að standa af
sér storminn í samkomutakmörkun-
unum segir hann:
„Bara allt sem mögulega var hægt
að gera. Við byrjuðum strax í apríl
að losa okkur við allar óþarfa eignir
og óþarfa kostnað. Skera inn að
beini. Reyna bara að halda í starfs-
fólkið. Það eru náttúrulega búin að
vera mjög fín úrræði í boði frá
stjórnvöldum sem við höfum reynt
að nýta eftir fremsta megni.“
Benedikt segir fyrirtækið hafa
komist hjá því að segja upp starfs-
fólki. „Hlutabótaleiðin er sú leið sem
við nýttum í að halda í lykilstarfs-
menn yfir veturinn auk þess sem
þessir styrkir sem hafa verið að
koma núna hafa skipt sköpum. Við
vorum sem betur fer á góðum stað
þegar þetta kom upp í fyrra. Vorum
ekki byrjuð að ráða inn fyrir sumarið
þegar útlit var fyrir að þetta kæmi til
landsins í fyrravor,“ segir Benedikt.
ari@mbl.is
Útilegubílar
taka við sér
- Sumarið í ár ólíkt seinasta sumri
Ljósmynd/Go Campers
Ferðabílar Komum ferðamanna til
landsins fjölgar hratt þessa dagana.