Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 15
UMRÆÐAN 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021 Í dag, 2. júní 2021, nær Charlie Watts því að verða áttatíu ára gamall. Það þykja svo sem engin stórtíðindi lengur að ná þeim aldri. Í hópi rokktónlist- armanna er það nokk- uð gott, ekki síst hafi menn barið húðir í stórhljómsveitum í rokkheiminum. Char- lie Watts gekk til liðs við eina fræg- ustu og jafnframt langlífustu rokk- sveitina, The Rolling Stones, í janúar 1963 og hefur verið trommu- leikari hennar í rúm 57 ár. Charles Robert Watts eignaðist sitt fyrsta trommusett þegar foreldrar hans gáfu honum eitt 1955. Hann hafði mikinn áhuga á djassi, en lærði graf- íska hönnun og vann við það þegar hann lét tilleiðast að ganga til liðs við Mick Jagger, Keith Richards, Bill Wyman, Ian „Stu“ Stewart og Brian Jones, sem auglýsti eftir tónlist- armönnum til þess að stofna Rollin’ Stones eins og sveitin hét upp- haflega þegar hún kom fyrst fram opinberlega hinn 12. júlí 1962. Nafn- inu var síðar breytt í núverandi horf og Andrew Loog Oldham, umboðs- maður þeirra og fyrrverandi starfs- maður The Beatles, ýtti Ian út úr sveitinni. Charlie lærði grafíska hönnun við Harrow Art School (sem nú er Har- row-hluti University of Westminster í London). Alexis Korner, einn af forgöngumönnum hins breska blús, bauð Charlie að ganga til liðs við hljómsveit sína Blues Incorporated 1961. Charlie hafnaði því enda á leið til Danmerkur til starfa sem graf- ískur hönnuður. Heim kominn ári seinna varð hann trommari Blues Incorporated þar til hann varð með- limur í The Rolling Stones, með hálf- um huga þó. Söguna þekkja flestir enda sveitin sú með þeim þekktari í tónlist- arheiminum og hefur slegið flest met á þeim vettvangi. Charlie þykir og er góður trommari og virtur á sínu sviði. Tímaritið Rolling Stone setti hann árið 2016 í 12. sæti yfir þá bestu. Hann hefur einnig hlotið við- urkenningu fyrir að vera best klæddi alþjóðlegi trommarinn í Van- ity Fair. Sama árið var hann valinn í Modern Drummer- frægðarhöllina. Tón- listargagnrýnandinn Robert Chistgau telur hann besta tromm- arann eða eins og hann orðaði það: Watts is „rock’s greatest drum- mer“. Sem fyrr segir er Charlie þekktur fyrir klæðaburð og þykir til fyrirmyndar. Djassá- hugi hans varð til þess að hann hefur gefið út 10 skífur, undir ýmsum nöfnum, einkum Charlie Watts Orchestra; Quintett og Tenett, og þar á meðal eina með stórsveit danska útvarps- ins. Með Rolling Stones hefur hann gefið út 37 skífur, auk þess hafa komið út 14 safnplötur. Þá er ótalinn aragrúi ólöglegra útgáfna, svokall- aðra „bootlegs“. Charlie teiknaði myndir á plötu- umslag Between the Buttons sem út kom árið 1967 og gaf út á bók „An Ode To A High Flying Bird“, teikni- myndir af Charlie Parker, átrún- aðargoði sínu. Hann hefur teiknað margar af sviðsmyndum The Rolling Stones og átti hugmyndina að því að kynna tónleikaferðina 1975 með því að hljómsveitin æki um Manhattan á aftanívagni og spilaði Brown Sugar. Í einkalífinu hefur hann látið lítið fyrir sér fara, er enn kvæntur Shir- ley frá 1964, á nokkurt safn bíla, þótt hann hafi ekki bílpróf, og þau hjónin rækta arabíska hesta. Þau hjón eiga eina dóttur. Ég leyfi mér að gera ráð fyrir því að á næsta ári, 2022, haldi The Rolling Stones upp á 60 ára af- mæli sitt með hljómleikaferð og þar verði Charlie eins og ævinlega sá sem límir tónlistina saman með takt- inum. Til hamingju Charlie og allir aðdáendur hans. Eftir Ólaf Helga Kjartansson » Charlie Watts, einn frægasti trommu- leikari heims sem spilar með The Rolling Stones, er áttatíu ára í dag. Hógvær snillingur sem límir saman tónlistina. Ólafur Helgi Kjartansson Höfundur er þekktur áhugamaður um The Rolling Stones. olafur.helgi.kjartansson@outlook.com AFP Einstakur Charlie Watts, trommuleikari Rolling Stones, er áttræður í dag. Charlie Watts áttræður Það þykir slæmur ljóður á ráði foreldra að gera upp á milli barna sinna. Sama á við ef ríkið dekrar eina atvinnugrein umfram aðra. Mörgum hefur fundist að ferðaþjónustan væri einmitt í þeirri stöðu. Hafi greitt lægri gjöld og notið ýmissa fríðinda vegna er- lendrar samkeppni t.d. Trúlega verða undanþágur áfram þó réttara væri að taka upp auðlindagjald á túrismann því hann leggur allt landið undir sig og spyr lítið hvernig öðrum líki átroðn- ingurinn. En er nokkur atvinnugrein sem stendur á eigin fótum á landinu? „Grasið sprettur úr mold/ gamlir menn ganga í barndóm/ þorskurinn gengur í net- in/til að fá styrk úr ríkissjóði,“ sagði skáldið. Niðurgreiðslur á öllum sköpuðum hlut- um og ríkisframlög hafa lengi verið ráðandi í hagstjórn landsins. Þannig erum við í reynd öll dekurbörn í ríku landi og þurfum ekki að metast innbyrðis um það. Samt er það umhugsunarefni ef verð- mætasköpun í fámennu auðugu landi getur ekki staðið á eigin fótum. Lifum við bara á veltunni? Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Dekurbörnin Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Atvinnugreinar Ferðamennska hefur verið fyrirferðarmikil hin síðari ár. Þessari farsótt hef- ur verið haldið uppi með óáreiðanlegum og ónákvæmum PCR- prófum, en þeim var ekki ætlað að greina smitsjúkdóma segir Kary Mullis höfundur þeirra (i). Þessi PCR- próf eru víða þekkt erlendis fyrir falskar jákvæðar niðurstöður. Það ætti að vera búið að banna heilbrigðisyf- irvöldum að nota þessi PCR-próf af þeirri ástæðu. Portúgalskur áfrýjunardómstóll hefur úrskurð- að að PCR-próf séu óáreiðanleg og það sé ólögmætt að setja fólk í sóttkví byggt eingöngu á þeim. Aðrir dómstólar í Þýskalandi, Austurríki og Hollandi hafa einn- ig úrskurðað að PCR-próf séu ekki áreiðanleg til að greina Co- vid-19 og í því sambandi hafi þessar lokanir engan vísindalegan og/eða lagalegan grundvöll. Hér á landi er ennþá verið að segja heil- brigðu fólki að það sé veikt, til þess eins að þröngva upp á okkur þessari „farsótt“ og bólusetn- ingum. Miðað við að heilbrigðisyfirvöld (ísl.) notist áfram við PCR-prófin verður Covid-19 farsótt áfram hér í mörg hundruð ár eða endalaust, þar sem PCR-próf eru keyrð yfir 35 snúninga hringrásarmögn- unarþröskuldinn, en skv. fyrir- mælum frá Alþjóðaheilbrigðis- stofnuninni (WHO) á 45 hringrása snúningi (ii) getur slíkt fram- kallað allt að 97% falskar niður- stöður (iii). Þessi bóluefni virðast ekki virka neitt gegn „sjúkdómnum“. Í Ísrael mældust yfir 12.000 bólu- settir einstaklingar gegn Covid-19 jákvæðir og í Bandaríkjunum mældust yfir 5.800 bólusettir ein- staklingar jákvæðir og höfðu náð því að veikjast skv. (CNN) Bóluefnin gegn Covid-19 eru að ná því að vera þekkt fyrir alvar- legar aukaverkanir, blóðtappa og dauðsföll. Öll athygli fjölmiðla hefur hins vegar verið í sambandi við blóðtappa, en öll dauðsföll fá- einum dögum frá bólusetningu, þúsundir tíða- og æxlunar- færaraskana, andlitslömun og bráðaofnæmistilfelli fá litla sem enga athygli hjá ritstýrðu og rík- isstyrktu fjölmiðlunum á Íslandi. Dr. Pal Andre Holme læknir, er leiddi hóp er rannsakaði blóð- tappatilfellin eftir bólusetningar með AstraZeneca í Noregi, komst að þeirri niðurstöðu að „það er ekkert annað en bóluefnið er get- ur skýrt þetta“ (iv), en hvers vegna bönnuðu ekki íslensk heil- brigðisyfirvöld notkun á þessu bóluefni, eins og margar aðrar þjóðir í Evrópu? Frá og með 16. apríl sl. hafa 86.080 aukaverkanir verið skráðar í Bandaríkjunum, þar með talið 12.374 alvarlegar aukaverkanir, 6.282 sjúkrahúsvistanir og 3.186 dauðsföll eftir bólusetningar með bóluefnunum frá Moderna, Pfizer og Janssen. 28% þessara dauðs- falla urðu innan 48 klukkustunda frá bólusetningu. Yngsti einstaklingurinn er lést var 18 ára (v). Lyfjastofnun Evrópu (vi) skráði fram til 17. apríl 7.766 dauðsföll og 330.218 aukaverkanir, þar með talið 176.921 almenna truflun með skilyrðum fyrir lyfjagjöf, 123.072 taugakerfissjúkdóma, 63.671 melt- ingarfærasjúkdóm, 26.632 húð- og undirhúðarraskanir, 20.414 önd- unarfæra- og brjóstholstruflanir, 14.125 sýkingar og smit, 11.932 blóð- og eitlasjúkdóma, 10.545 æðasjúkdóma, 10.507 hjarta- sjúkdóma, 7.768 augntruflanir, 5.943 eyrnatruflanir, 3.783 ónæm- iskerfissjúkdóma, 1.801 nýrna- og þvagfærasjúkdóm, 1.451 æxl- unarfæra- og brjóstverkjatruflun, 278 lifrartruflanir, 195 meðgöngu- barnsburðarmál, og síðan 153 inn- kirtlatruflanir eftir bólusetningar. En listinn er lengri. (vii) Öll þessi tilraunabóluefni gegn Covid-19 eru orðin þekkt fyrir alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll, samt er því alltaf haldið fram að ávinn- ingur bólusetninganna vegi þyngra en áhættan, sem á hins vegar alls ekki við í þessu tilfelli. Þessi bóluefni gegn Covid-19 fengu eingöngu leyfi undir farsótt- arkringumstæðum, þau eru ekki fullrannsökuð og því alls EKKI örugg. Í öllum þessum sóttvarnaáróðri má alls ekki minnast á að það sé ýmislegt til sem geti styrkt/varið ónæmiskerfi okkar eins og hy- droxychloroquine, ivermectin eða D-vítamín. Það miðar allt að því að koma inn bólusetningum. Þess- ir ritstýrðu og ríkisstyrktu fjöl- miðlar hafa gætt þess vel að minn- ast hvergi á Alþjóðalæknabandalagið World Doctors Alliance (viii), 87 þúsund lækna og hjúkrunarfólk er hafa mótmælt Covid-19-bólusetningum (x), svo og passað upp á að minn- ast lítið sem ekkert á alvarlegar aukaverkanir, hvað þá innihalds- efni. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að hóplögsóknir á vegum dr. Reiners Fullmich byrji gegn heilbrigðisyfirvöldum og spilltum stjórnvöldum (xi). Heimildaskrá i) https://www.bitchute.com/video/ wOSeTz57xrCF/ ii) The Truth About COVID-19 Exposing The Great Reset, Lockdowns, Vaccine Passports and the New Normal, eftir dr. Joseph Mercola, bls. 78. iii) Clinical Infectious Diseases ciaa 1491 (28. sept. 2020), https:// doi.org/10.1093/cid/ciaa1491 iv) https://bit:ly/3qVfSo5 v) https://www.openvaers.com/ vi) https://covid-19.no/european- database-drug-reactions-for-covid-19- vaccines?fbclid=IwAR2IfNfhAA- WaSc4kxZg6EFHKqjvIAzIjj-chXuzqB2Ba- erVuEJt0RK1q3w vii) https://directorsblog.nih.gov/tag/ sars-cov-2/ viii) https://worlddoctorsalliance.com/ x) https://www.bitchute.com/video/ GrAmcLjZymKa/ xi) https://www.youtube.com/ watch?v=ANKLLWX0DMQ&t=390s Covid-hræðslunni haldið uppi til að koma inn bólusetningum Eftir Þorstein Sch. Thorsteinsson og Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur » Bóluefnin gegn Covid-19 eru að ná því að vera þekkt fyrir alvarlegar auka- verkanir, blóðtappa og dauðsföll. Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Þorsteinn er margmiðlunarfræð- ingur. Ingibjörg er höfuðbeina- og spjaldhryggjarjafnari. macromediaguru@msn.com agnyrose@gmail.com Þorsteinn Sch. Thorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.