Morgunblaðið - 02.06.2021, Page 20
H
afliði Örn Björnsson
fæddist 2. júní 1941 í
risinu á gamla Land-
spítalanum í Reykja-
vík. Hann bjó fyrst á
Þórsgötu 19. Átta ára gamall var
hann sendur í sveit til frænku sinn-
ar á Melum í Melasveit og seinna
meir fór hann í sveit til Svefneyja í
Breiðafirði hjá frænda sínum.
Þegar Hafliði var aðeins níu ára
gamall fór hann einn ásamt frænda
sínum, Jóni E.B., sem var átta ára,
með Gullfaxa til London til að heim-
sækja föðursystur sína, þetta þótti
merkilegt og kom grein í Morgun-
blaðinu um ferðalag drengjanna.
Hann minnist vel hvernig London
leit út eftir stríðið. „Mér er líka
minnisstætt að flugstjórinn í þess-
ari ferð var Þorsteinn Jónsson flug-
kappi og hann leyfði mér að sitja í
flugstjórnarklefanum og „fljúga“
vélinni. Leiðir okkar Þorsteins áttu
eftir að liggja saman þegar við flug-
um saman í Lúxemborg.“
Árið 1951 flutti fjölskyldan á
Keflavíkurflugvöll þar sem faðir
hans var settur yfirmaður flug-
umsjónar vallarins. Hann bjó þar í
tvö ár og gekk í skóla í Keflavík.
Árið 1956 byrjaði hann í sumar-
vinnu á radíóverkstæði flugmála-
stjórnar þar sem hann starfaði með
námi.
Hafliði lauk tveggja ára námi við
loftskeytaskólann eftir gagnfræða-
skólann og var svo fastráðinn hjá
Flugmálastjórn. Árið 1960 fór hann
að læra flug og lauk atvinnuflug-
mannsprófinu og siglingafræðiprófi
1966. Eftir það fór hann í nám í
Oklahoma til að læra á nýjustu
blindflugstækin sem átti að setja
upp á Íslandi. „Ég hafði alltaf mik-
inn áhuga á flugi, sem barn var ég
mikið með föður mínum á Sand-
skeiði þar sem ég lærði að umgang-
ast svifflugur og flugvélar með virð-
ingu,“ en faðir hans var meðal
stofnenda Svifflugsfélags Íslands
og Flugmálafélags Íslands. Árið
1966 varð Hafliði sigurvegari á Ís-
landsmótinu í vélflugi.
Árið 1969 fékk Hafliði leyfi frá
störfum hjá Flugmálastjórn til þess
að fara til Nígeríu fyrir Hjálp-
arstofnun kirkjunnar, en þar var
Bíafra-stríðið í gangi. Hann fór
þangað til að sjá um radíótæki í
hjálparvélunum.
Hafliði hóf störf hjá Loftleiðum
árið 1970 sem siglingafræðingur og
flugmaður. Á árunum 1971-1985 bjó
fjölskyldan í Lúxemborg þar sem
hann starfaði hjá Cargolux. Hann
flaug um allan heim og hefur hann
ferðast til allra heimsálfa nema
Suðurskautslands. „Á þessum árum
var flogið á marga staði þar sem
stríð og spilling voru í gangi og má
þar nefna Víetnam, Afganistan og
Pakistan. Ég man eftir kargóflugi
til Úganda þar sem áhöfnin var
handtekin við lendingu en það
leystist farsællega. Ég man líka eft-
ir því þegar ég þurfti að fá vega-
bréfsáritun til Rússlands vegna
fraktflutninga að þá var fylgst með
með mér áður en áritunin var sam-
þykkt. Ævintýrin voru mörg.“
Eftir að Hafliði flutti aftur til Ís-
lands hóf hann á ný störf hjá Flug-
málastjórn sem aðflugshönnuður og
sem flugmaður á vél Flugmála-
stjórnar. „Aðflugshönnunin er í
raun að hanna blindaðflug og brott-
flug fyrir allt Ísland. Það felst í því
að gera flugmönnum mögulegt að
lenda á stöðum þegar veður er lé-
legt eða slæmt skyggni. Við reikn-
um út hvað þeir geta komist lágt í
aðflugi og ef þeir sjá ekki niður í
þessu lágmarki þarf að vera klárt
að þeir komist í burtu líka.“ Hafliði
flugprófaði einnig allt aðflug á
Grænlandi og í Færeyjum, þar sem
hann starfaði til rúmlega sjötugs.
Helstu áhugamál Hafliða hafa
tengst fluginu auk þess sem hann
var í golfi á árunum í Lúxemborg.
Áhugi hans hefur smitast yfir á
börnin þar sem þau hafa öll starfað
í flugi.
Hafliði Örn Björnsson, fyrrverandi aðflugshönnuður og flugmaður – 80 ára
Fjölskyldan Stödd í París 2013 að fagna gullbrúðkaupi Hafliða og Maju.
Fór til allra heimsálfa
nema Suðurskautslands
Flugmaðurinn Hafliði í flugi á 747
hjá Cargolux.
Frændurnir Hafliði og Jón á ferða-
laginu með Gullfaxa árið 1950.
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021
ENGINN
ÐBÆTTUR SYKUR
ENGIN
ROTVARNAREFNI
85%
TÓMATPÚRRA
VI
50 ÁRA Elfa Hrund Guttorms-
dóttir er Njarðvíkingur, og á ættir
að rekja í Skagafjörðinn og vestur á
Snæfellsnes. Hún lauk embættis-
prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Ís-
lands í júní 2003 og BA-prófi í upp-
eldis- og menntunarfræði frá sama
skóla árið 1999. Elfa Hrund hefur
mikla reynslu af starfi við félags-
þjónustu og vann hjá Fjölskyldu- og
félagsþjónustu Reykjanesbæjar
2000-2011. Hún hefur unnið hjá Virk
starfsendurhæfingarsjóði frá árinu
2011.
Hún hefur starfað í bæjarpólitík í
Reykjanesbæ, verið formaður vel-
ferðarráðs og menningarráðs. „Sú
reynsla var bæði lærdómsrík og gef-
andi.“
Helstu áhugamál Elfu eru skíði,
laxveiði, fjallgöngur, hjól, utanveg-
arhlaup og ferðalög, bæði hérlendis
og erlendis. „Ferðin sem stendur
upp úr er ferð til grísku eyjarinnar
Mykonos sem við fjölskyldan heim-
sóttum eitt sumarið. Menningin,
þjónustan og maturinn var til fyrir-
myndar. Frakkland er líka í miklu
uppáhaldi hjá mér. Ég var au-pair í
Parísarborg á mínum yngri árum,
fór í Sorbonne-háskóla og nam
frönsku. Allt sem tengist franskri
menningu er að mínu mati áhuga-
vert og franska kvikmyndahátíðin er
ómissandi hluti af mínu lífi. Vina-
hópurinn hefur einnig farið í margar
skemmtilegar ferðir í gegnum tíð-
ina, bæði með börnin og án þeirra.
Við höfum farið saman utan á fimm
ára fresti og hefur Ítalía verið vin-
sæll áfangastaður.“
FJÖLSKYLDAN Eiginmaður Elfu
er Einar Ásbjörn Ólafsson, f. 1959.
Hann rekur sitt eigið fyrirtæki.
Börn þeirra eru Harpa Hrund, f.
1997, hún mun útskrifast frá HR
með B.Sc. í sálfræði 19. júní nk., Eva
Sól, f. 2001, stúdent frá Verzlunar-
skóla Íslands, Ólafur Hrafn, f. 2005,
grunnskólanemi. Einar átti fyrir
dótturina Emmu Hönnu, f. 1986,
stúdent frá Keili. Starfar sem skóla-
liði í Njarðvíkurskóla. Barnabörnin
eru tvö, Leonard Aron, f. 2016, og
Alexandra Emma, f. 2019. Fjöl-
skyldan er búsett í Reykjanesbæ.
Foreldrar Elfu voru Guttormur
Arnar Jónsson, f. 1932, verkstjóri,
og Hrefna Einarsdóttir, f. 1931, hús-
móðir. Þau eru bæði látin.
Elfa Hrund
Guttormsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er í lagi að þér finnist þú alveg
einstakur á öllum sviðum. Láttu það ekkert
fara í taugarnar á þér heldur sýndu skilning
og vertu viðbúinn þegar aðstæður breytast.
20. apríl - 20. maí +
Naut Í dag ertu ekki lengur til í að hunsa
það sem hefur angrað þig í nokkurn tíma.
Eigðu bara samskipti við fólk sem þú nærð
frábæru sambandi við.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú þarft ekki að hafa svona miklar
áhyggjur af því hvað öðrum finnst um þig. Ef
þér finnst þú alltaf á sviðinu breyttu þá at-
riðinu þínu af og til.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Reyndu að troða sem fæstum um
tær. Fólk er almennt óvenjuþægilegt og -af-
slappað. Forðastu fljótfærna vini sem best
þú getur.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þér finnst þú vera sjálfstæð/ur og öll-
um óháð/ur í dag. Stuðningur vinkonu þinn-
ar mun koma þér á óvart.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Hvaðeina sem viðkemur æðri mennt-
un, útgáfumálum og fjölmiðlum gengur vel í
dag. Vertu opinn og líttu á allar hugmyndir
sem hluta af stórum hugmyndapotti.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þarft bara að nefna það að þú eigir í
vanda og sérfræðingar í honum skjóta upp
kollinum. Dálæti þitt á fallegum stöðum og
hlutum vex til muna.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Að koma sér á framfæri er
spurning um einbeitingu. Hugaðu að því
hvernig þú getir öðlast heilbrigða sál í
hraustum líkama.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þér finnst eitthvað að þér
þrengt í vinnunni. Jafnvel þótt fólk meini vel,
þá er mögulegt að það sé ekki með allt á
hreinu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú leyfir hæfileikafólki að komast
upp með hvað sem er því þú nýtur nærveru
þess í lífinu. Gefðu þér góðan tíma og ras-
aðu ekki um ráð fram.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það eru ýmsar nýjungar að
banka upp á hjá þér og þér finnst erfitt að
sinna þeim öllum í einu. En það er nauðsyn-
legt svo krefjandi verkefni verði leyst.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Láttu ekki eirðarleysið ná tökum á
þér. Alvöruvinum er sama hvar þú færð ráð,
svo lengi sem þau duga þér.
Til hamingju með daginn