Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
369.750 kr
.
Tilboðsverð
697.500 kr
.
Tilboðsverð
449.400 kr
.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
Afar einfalt er
að reisa húsin
okkar
Uppsetning te
kur aðeins ein
n dag
BREKKA 34
- 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44
fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
TIL Á LAGER VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Dregið var í gær um í hvaða röð ár-
gangarnir 1975 til 2005 verða bólu-
settir á höfuðborgarsvæðinu. Ár-
gangarnir dreifast yfir næstu þrjár
vikur eða til 25. júní og er gert ráð
fyrir að hægt sé að bólusetja tíu ár-
ganga í hverri viku. Röðina má sjá
meðal annars á mbl.is.
Yfir 100 þúsund Íslendingar telj-
ast nú fullbólusettir gegn Covid-19
en um 187 þúsund hafa fengið að
minnsta kosti fyrri skammt. Mest
hefur verið bólusett með Pfizer-
bóluefninu.
Sjö smit greindust innanlands í
fyrradag og voru þau öll utan
sóttkvíar. Að sögn Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarnalæknis er um að
ræða smit innan eins hóps sem sé
mjög afmarkaður. Smitaðir eru
umsækjendur um alþjóðlega vernd
sem búa á afmörkuðum stað á veg-
um hins opinbera. Alls voru 1.720
skimaðir innanlands í fyrradag og
1.706 á landamærunum. Nýgengi
innanlands á hverja 100 þúsund
íbúa síðustu tvær vikurnar er 10,6
og 2,7 á landamærunum.
Niðurstaða úr bólusetningarlottói höfuðborgarsvæðisins er ljós
Tíu ár-
gangar í
hverri viku
Morgunblaðið/Eggert
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Ísland hefur gert nýjan fríverslunar-
samning við Breta sem tekur til allra
þátta viðskipta milli ríkjanna. Samn-
ingurinn er afar umfangsmikill. Í
honum má finna ákvæði á sviði hug-
verkaréttinda, heilbrigðisreglna fyrir
matvæli, tæknilegra reglugerða um
ríkisstyrki, samkeppnismál og starfs-
umhverfi fyrirtækja.
„Nýr fríverslunarsamningur við
Bretland hefur verið forgangsmál í
ráðherratíð minni og mun skipta
sköpum fyrir bæði íslensk fyrirtæki
og neytendur. Ég hef lagt mikla
áherslu á að tryggja gott framtíðar-
samband við Bretland eftir útgöng-
una úr Evrópusambandinu og ég er
sannfærður um að þessi samningur
muni styrkja
efnahags- og vina-
tengsl Íslands og
Bretlands um
ókomna tíð,“ segir
Guðlaugur Þór
Þórðarson utan-
ríkisráðherra í til-
kynningu. Stjórn-
arandstaðan
gagnrýndi Guð-
laug Þór í gær
fyrir samráðsleysi vegna málsins.
Samningurinn er að miklu leyti
unninn í samvinnu við EES-ríkin en
samningaviðræður hafa staðið yfir
frá því í september. Guðlaugur segir
að það sé í mörg horn að líta í svona
víðtækum fríverslunarsamningum.
Hann bendir á að Bretar séu að
semja við margar þjóðir á sama tíma
og það auki flækjustig. Helsta áhrifa-
þáttinn segir hann þó vera hve lang-
an tíma það hefur tekið fyrir Bret-
land og Evrópusambandið að ná
saman.
Með samningnum fær Ísland að-
gang að breskum markaði, sem er af-
ar mikilvægt í ljósi þess að Bretland
er einn stærsti útflutningsmarkaður
og næstmikilvægasta viðskiptaþjóð
Íslendinga. Auk þess geymir samn-
ingurinn skuldbindingar ríkjanna á
sviði loftslagsmála, sjálfbærni og
jafnréttismála en þetta er í fyrsta
skipti sem jafnréttismál eru tekin inn
sem þáttur í fríverslunarsamningi.
Guðlaugur segir Ísland ekki hafa
þurft að gefa neitt eftir í viðræðun-
um. „Í fríverslunarsamningi sem
þessum eru bara sigurvegarar,“ bæt-
ir hann við.
Samningur Íslands og
Bretlands staðfestur
- Nýr fríverslunarsamningur - Samráðsleysi var gagnrýnt
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Maðurinn sem
lést í slysi sl.
sunnudag í botni
Patreksfjarðar
hét Sveinn Eyj-
ólfur Tryggvason
og var fæddur ár-
ið 1972, til heim-
ilis í Sigtúni á
Patreksfirði.
Sveinn Eyjólfur
lætur eftir sig
eiginkonu og sjö börn.
Fram kemur í tilkynningu lög-
reglunnar á Vestfjörðum að rann-
sókn á tildrögum slyssins miði vel.
Vinir Sveins Eyjólfs og eiginkonu
hans, Margrétar Brynjólfsdóttur,
efna til söfnunar til að styðja fjöl-
skylduna á þessum erfiðu tímum.
Reikningur söfnunarinnar er á
nafni Margrétar, nr. 0123-15-
030020, kt. 190670-5039.
Lést í slysi í
Patreksfirði
Sveinn Eyjólfur
Tryggvason
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Það er ákaflega dapurt, svo ekki sé
sterkara að orði kveðið, að horfa upp
á þessa stöðu sem hefur byggst upp í
kringum þetta ágæta fyrirtæki
[Samherja]. Ég sagði það strax þeg-
ar þetta mál hófst að forsvarsmenn
þess yrðu að ganga fram fyrir
skjöldu og greina þessa stöðu og
gera hreint fyrir sínum dyrum. Ég
held að flestir sem fylgjast með
þessari umræðu geti verið sammála
um að það hafi fyrirtækinu ekki tek-
ist enn þann dag í dag.“
Þetta segir Kristján Þór Júl-
íusson, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, um þjóðfélagsumræð-
una sem skapast hefur í kringum
Samherja í viðtali sem birt er í sjáv-
arútvegsblaðinu 200 mílum sem
fylgir Morg-
unblaðinu í dag.
Um þá gagn-
rýni sem hann
hefur sjálfur orð-
ið fyrir í
tengslum við mál
útgerðarinnar
segir Kristján:
„Ég hef í þessari
umræðu verið
samsamaður við-
brögðum fyrirtækisins við þessu
máli. Í pólitík er ekkert spurt um
hvort það sé sanngjarnt eða ekki, en
ég hef frá fyrsta degi lagt mig fram
um að svara þeim spurningum sem
að mér hefur verið beint.“
Þá segir ráðherrann vont að um-
ræðan um Samherja smiti út frá sér
og hafi áhrif á tiltrú til sjávarútvegs-
ins í heild sinni.
Mál Samherja
smiti út frá sér
- Kristján Þór segir stöðuna dapra
Kristján Þór
Júlíusson