Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 6
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Um eitt bretti af bjór selst í net-
verslun Sante Wines SAS á dag að
sögn Arnars Sigurðssonar fram-
kvæmdastjóra og eiganda versl-
unarinnar.
Um sextíu kassar af bjór eru á
einu bretti. Salan í gegnum net-
verslunina nemur milljónum króna á
degi hverjum, en einnig kaupir fólk
léttvín og gin í vefversluninni. „Al-
gengt er að fólk kaupi sér gæðavín
og bjór með,“ segir Arnar í samtali
við Morgunblaðið.
Aðspurður segir hann að bjórinn
sé sú vara sem langmest seljist af í
netversluninni.
Gengið vonum framar
Á dögunum barst nýr fjörutíu feta
gámur fullur af Peroni-bjór sem
seldur verður í gegnum netversl-
unina, sem nú hefur verið starfrækt
í um einn mánuð. „Þetta hefur geng-
ið vonum framar,“ segir Arnar. „Ég
hafði samband við Hagstofuna sem
hefur mælt áfengisneyslu Íslend-
inga byggt á sölutölum Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins, ÁTVR.
Það er býsna ónákvæmur mæli-
kvarði því inni í tölurnar vantar alla
sölu áfengis í Leifsstöð, alla sölu
víns á veitingahúsum og allan inn-
flutning einstaklinga og lögaðila til
eigin nota.“
Arnar bendir á að allar tölur sem
landlæknisembættið birtir séu því
augljóslega rangar. „Við bentum
Hagstofunni á að þeir gætu tekið
með í útreikninga sína að hjá okkur
færðu í raun fjórðu kippuna fría ef
þú kaupir þrjár kippur af bjór. Það
hlýtur að muna um það, til dæmis
við útreikning vísitölu neysluverðs.
Það er býsna mikið hagsmunamál
fyrir neytendur ef þetta hefur áhrif
til lækkunar á vísitölunni. Þetta er
milljarðaspursmál. Menn ættu ekki
að nálgast það af léttúð.“
Ekki refsa allri þjóðinni
Um einokunarverslun með áfengi,
eins og er stunduð á Íslandi í gegn-
um ÁTVR, segir Arnar að hann trúi
því að slík hóprefsing sé ekki lækn-
ing, eins og hann orðar það. „Með
því að refsa allri þjóðinni með úrelt-
um verslunarháttum og óþarfa
kostnaði læknarðu ekki fólk af
áfengissýki.“
Arnar segir að þögn Samkeppn-
iseftirlitsins og Neytendasamtak-
anna í málinu sé ærandi.
ÁTVR undirbýr nú lögbanns-
kröfu, málshöfðun og lögreglukæru
á hendur netverslunum með áfengi
til neytenda. Í tilkynningu fyrir-
tækisins í maí segir að þeirri starf-
semi sé beint gegn lögbundnum
einkarétti ÁTVR á smásölu áfengis,
sem sé grunnstoð áfengisstefnu
stjórnvalda með lýðheilsu að meg-
inmarkmiði og grunnforsenda fyrir
rekstri fyrirtækisins að auki.
Spurður fregna af kröfu ÁTVR
segist Arnar ekkert hafa heyrt
meira af þeirri kæru. Það hljóti að
vera ákveðið flækjustig að fara fram
á lögbann í öðrum löndum. Net-
verslun Santewines SAS er með
heimilisfesti í Frakklandi þó svo að
áfengið sé afhent frá lager fyrir-
tækisins úti á Granda.
Fjölga tegundum
Spurður um næstu vikur og mán-
uði í netversluninni segir Arnar að
stefnt sé að því að fjölga bæði teg-
undum bjórs og léttvíns í netversl-
uninni. Fyrirtækið sé minna í sterk-
um drykkjum, en selji þó hið
íslenska Ólafsson-gin. „Það er um
700 krónum ódýrara hjá okkur en í
ríkinu.“
Víninnflutningsfyrirtæki Arnars
hefur aldrei selt vín í vínbúðunum.
„Við rekum samfélagslega ábyrga
stefnu og verslum ekki við einok-
unarfyrirtæki.“
Spurður um veltu fyrirtækisins á
þessu ári segir Arnar að hún verði
vel á annan milljarð. Starfsmenn
eru fjórir.
Selur bretti af bjór á dag á netinu
- Um sextíu kassar af bjór eru á einu bretti - 40 feta gámur barst af Peroni-bjór - Fjórða
kippan frí - Gæti lækkað vísitölu neysluverðs - Miklir hagsmunir - Hóprefsing sé ekki lækning
Morgunblaðið/Eggert
Kassar Arnar Sigurðsson hjá Santé kaupir Peroni-bjór beint frá útlöndum og selur í netverslun sinni.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Hildur
Stjórnmál
Sverris
skipta máli
dóttir
3.– 4. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík.
„Stjórnmál eiga að standa
vörð um frelsi fólks og
láta yfirvegun og heildar-
hagsmuni ráða ferðinni“
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Sjómannadagurinn er á morgun,
sunnudag. Lítið verður um stór há-
tíðarhöld á höfuðborgarsvæðinu
vegna samkomutakmarkana. Mikið
er þó um dagskrá á landsbyggðinni.
Í Vestmannaeyjum hófst dagskrá á
fimmtudaginn og hélt áfram í gær
með kynningu á sjómannabjórnum
2021 auk ljósmyndasýningar Bjarna
Sigurðssonar: 1000 andlit Heima-
eyjar. Í dag hefst dagskrá á dorg-
veiðikeppni á Nausthamarsbryggju,
þar á eftir verður sjómannafjör á
Vigtartorgi en þar verður kapp-
róður, koddaslagur, tuðrukvartmíla,
sjómannaþraut og Grímur kokkur
með humarsúpu. Á sjómannadaginn
sjálfan verða svo fánar dregnir að
húni og afhjúpun á minnisvarða um
þá sem fórust í Pelagus-slysinu.
Klukkan 13 hefst svo sjómanna-
messan í Landakirkju. Séra Guð-
mundur Örn predikar og þjónar fyr-
ir altari. Eftir messuna verður
minningarathöfn við minnisvarða
hrapaðra og drukknaðra en þar mun
Lúðrasveit Vestmannaeyja leika
nokkur lög undir stjórn Jarls Sig-
urgeirssonar. Í kjölfarið hefst svo
hátíðardagskrá á Stakkó.
Í Bolungarvík er dagskrá alla
helgina. Í gær var dorgveiðikeppni á
Brimbrjótnum og í dag er ýmist
hægt að skella sér í sund í sundlaug
Bolungarvíkur eða fagna þriggja ára
afmæli Víkurskálans. Leikhópurinn
Lotta sýnir Pínulitlu gulu hænuna
og lýkur deginum á djammi í Ein-
arshúsi. Á sjómannadaginn hefst
hópganga frá Brimbrjótnum að
Hólskirkju og hátíðarguðsþjónustan
þar hefst strax í kjölfarið.
Á Austurlandi má einna helst
nefna dagskrá Neskaupstaðar. Dag-
skrá dagsins í dag hefst með kapp-
róðri á hádegi. Hoppukastalar verða
á bryggju neðan við kirkjuna og DJ
Magic Maiken frá Danmörku í
Beituskúrnum í kvöld. Samtímis
verður gigg í lystigarðinum en Hlyn-
ur Ben treður þar upp. Á morgun
hefst svo sjómannadagurinn sjálfur
með sjómannadagsmóti GN og
Gjögurs á Norðfjarðarvelli, skip og
bátar draga íslenska fánann að húni
og bæjarbúar eru hvattir til að
flagga sem víðast.
Á Ólafsfirði fyrir norðan er kapp-
róður og keppt um Alfreðsstöngina,
grip sem fyrst var gefinn 1955 og
margur sómadrengurinn hefur
hampað. Knattspyrnuleikur milli
sjómanna og landmanna verður á
laugardag og um kvöldið brekku-
söngur við Tjarnarbók. Á sjó-
mannadag er skrúðganga að Ólafs-
fjarðarkirkju. Hátíðarmessa og
sjómenn verða heiðraðir. Fjöl-
skylduskemmtun og árshátíð sjó-
manna um kvöldið. Allt er þó minna í
sniðum í ár vegna sóttvarnareglna.
Sjómannadegin-
um víða fagnað
- Mikið um
hátíðarhöld á
landsbyggðinni
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Spariklæddur Jökull ÞH 299 kom
til hafnar á Húsavík síðdegis í gær.