Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 8

Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Viðreisn var sögð stofnuð sem val-kostur fyrir hægrimenn sem vildu villast inn í Evrópusambandið. Það var út af fyrir sig sérkennilegt. Enn sérkennilegra hefur þó verið að fylgjast með þessum flokki, bæði á þingi og í borg- arstjórn, þar sem hann hefur reynt að renna saman við Samfylkingu og iðu- lega Pírata líka. Í Reykjavík sést eng- inn munur á þessum þremur flokkum. Þeir stíga sömu feil- sporin í þéttum takti og eru komnir vel á veg með að setja höfuðborgina á höf- uðið. Eitt af því undarlega sem þeir standa fyrir er að ganga hart fram í að ýta Reykjavíkurflugvelli út úr Reykjavík. Nýjasta æfingin í því sam- bandi er að flækjast fyrir því að Landhelgisgæslan geti haft aðstöðu fyrir þyrlur sínar og flugvélar. - - - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttirdómsmálaráðherra hefur rétti- lega brugðist við þessu með því að benda á að endurbætur þoli ekki bið og að hún muni óska eftir framkvæmdaleyfi hjá borginni til að bæta aðstöðuna, enda sé flugvöll- urinn ekki á förum á næstu árum. - - - Við því bregst borgarfulltrúimeirihlutans í Reykjavík, Pa- wel Bartozek, með hótfyndni um að hann viti að nú sé prófkjörsvika hjá ráðherranum, rétt eins og það hafi eitthvað með þörf Gæslunnar á að- stöðu að gera. Þá gefur hann í skyn að Gæslan eigi að fara á Suðurnesin eða í Hvassahraun! - - - Nú þarf Landhelgisgæslan aðhalda í vonina um að fá að byggja upp á Reykjavíkurflugvelli. Mikil ógæfa er að hún þurfi að vera upp á furðuflokkinn Viðreisn komin í því sambandi. Á Gæslan sér viðreisnar von? STAKSTEINAR Pawel Bartozek Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Íbúar á tveimur svæðum greiða í dag atkvæði um sameiningu sveitar- félaga. Annars vegar eru það fjögur sveitarfélög í Austur-Húnavatns- sýslu, Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagaströnd, Húnavatnshreppur og Skagabyggð. Hins vegar eru það Skútustaðahreppur (Mývatnssveit) og Þingeyjarsveit í Suður-Þingeyj- arsýslu. Um 1.880 búa í sveitarfélögunum fjórum í Austur-Húnavatnssýslu sem lagt er til að sameinist. Kosið verður á öllum stöðunum. Á Blöndu- ósi og Skagaströnd stendur kjör- fundur frá klukkan 10 til 22 en skem- ur í Húnavatnshreppi og Skaga- byggð. Talning atkvæða fer fram á sömu stöðum og hefst eftir klukkan 22. Úrslit verða birt í hverju sveitar- félagi og á vef sameiningarnefndar, hunvetningur.is. Þess má geta að Blönduósbær býður íbúum upp á akstur á kjörstað. Íbúar í Þingeyjarsveit og Skútu- staðahreppi eru samtals liðlega 1.300. Kjörfundir eru í Skjólbrekku og Ljósvetningabúð frá klukkan 10 til 22. Talning hefst strax að loknum kjörfundi. Búist er við að talning taki langan tíma en þegar úrslit liggja fyrir verður bein útsening á Face- book og heimasíðum sveitarfélag- anna. helgi@mbl.is Atkvæði greidd á tveimur svæðum - Kemur í ljós í kvöld hvort sveitar- félögum fækkar um fjögur á næsta ári Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skagaströnd Íbúar nokkurra sveit- arfélaga greiða atkvæði í dag. þeirra, sem er kominn til ára sinna, verði endurnýjaður samhliða fram- kvæmdinni. Gangbrautarljósin og umferðarljósin á gatnamótum Geirs- götu/Lækjargötu/Kalkofnsvegar verða samstillt. Undirbúningur vegna endurnýjunar ljósanna og vegna gerðar nýrrar ljósastýrðrar gönguþverunar hefur verið unninn í samstarfi við Vegagerðina, sem er veghaldari Geirsgötu, segir í grein- argerðinni. Gönguþverunin á móts við Reykja- stræti var samþykkt með atkvæðum Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulags- og samgönguráð Reykja- víkur samþykki á síðasta fundi sínum að gönguþverun yfir Geirsgötu, móts við Reykjastræti, verði stjórnað með umferðarljósum. Fram kemur í greinargerð deild- arstjóra samgangna hjá Reykjavík- urborg að í tengslum við uppbygg- ingu Austurhafnar hafi skrifstofa samgöngustjóra og borgarhönnunar unnið að frágangi svæðisins í sam- starfi við skrifstofu framkvæmda og viðhalds. Reykjastræti er samkvæmt skipulagi göngugata/stofnstígur sem liggur milli Hafnarstrætis og Hörpu. Þegar Reykjastræti verður opnað megi búast við töluverðri umferð gangandi vegfarenda yfir götuna. „Með hliðsjón af fjölda gangandi veg- farenda, fjölda akreina á Geirsgötu og því að umferð bíla er einnig mikil er æskilegt út frá sjónarmiðum umferðaröryggis að umferðarljós séu á gönguþveruninni,“ segir þar. Á Geirsgötu eru þegar tvær ljósa- stýrðar gönguþveranir. Önnur er á móts við Hafnarhúsið og hin á móts við Tollhúsið. Umferðarljósin við Tollhúsið hafa ekki verið í notkun að undanförnu vegna framkvæmda. Gert er ráð fyrir að ljósabúnaður meirihlutaflokkanna í ráðinu en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni. Þeir bókuðu að ljósastýringar við Geirsgötu væru í molum og yllu mikl- um óþarfa töfum á umferð. „Umferð- arljós eru illa stillt og er umferð á rauðu ljósi ítrekað að óþörfu. Mik- ilvægt er að gera úrbætur í þessum efnum áður en enn einum ljósum verði bætt við með tilheyrandi óþarfa töfum á umferð, mengun, óþæg- indum og minnkandi öryggi fyrir óvarða vegfarendur.“ Þriðju gönguljósin verða sett upp á Geirsgötunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjastræti Ný göngugata/stofnstígur sem liggur eftir Hafnartorgi og Austurhöfn, milli Hafnarstrætis og Hörpu. Strætið þverar Geirsgötuna. Í Dubai finnurðu allt það glæsilegasta og stærsta í heiminum á ótrúlega mörgum sviðum enda ráðamenn þar ákveðnirí því að gera staðinn að mesta áfangastað í heimi. Dubai er eitt af sjö borgríkjum sem mynda Sameinuðu Arabísku furstadæmin og er stað- sett í miðausturlöndum við Arabíuskagann. Dubai sem eitt sinn var lítið fiskimannaþorp er í dag alþjóðleg borg þar sem um 200 þjóðerni búa og þar finnst flest allt sem hug- urinn girnist. Ótrúlega stórar og fjölbreyttar verslanamiðstöðvar sem ekki eiga sinn líka, hæsta bygging í heimi sem er Burj Khalifa skýjaklúfurinn, veitingastaðir, skemmtistaðir, skoðunarferðir, fagrar hvítar strendur, gullnar eyðimerkur og gríðarlega mikil afþreying af ýmsum toga fyrir alla aldurshópa. Síðumúli 29, 108 Reykjavík | Sími 588 8900 info@transatlantic.is | www.transatlantic.is Dubai Innifalið: Flug með sköttum, gjöldum, tösku og handfarangri. Hótel 4* í 2 nætur í Riga með morgunmat. Hótel 5* í Dubai í 12 nætur með morgunmat. Einn Gala kvöldverður í Dubai. Íslensk fararstjórn. 308.500 á mann fyrir 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára 356.800 á mann í 2ja manna herbergi Takmarkaður fjöldi sæta í boði 21. desember til 4. janúar Töfrar Arabíu bíða þín Jól og áramót Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.