Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 14

Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Safnaðarnefnd Glaumbæjarsóknar í Skagafirði hefur ákveðið að láta rifa álklæðningu utan af kirkjunni í Glaumbæ, einangra veggi hennar og múra upp á nýtt. Með því færist hún í upprunalegt horf. Fjármunir hafa verið tryggðir til framkvæmd- arinnar. Glaumbæjarkirkja er steinsteypt hús, byggð árið 1926. Þá hafði eldri timburkirkja eyðilagst í óveðri. Turn kirkjunnar var klæddur með áli um 1980 vegna þess að múrinn var farinn að hrynja af og turinn orðinn skellóttur. Kirkjan var óeinangruð í upphafi. Nokkrum árum eftir að turninn var klæddur var ákveðið að einangra veggina að utan og klæða alla kirkjuna. Vinsæll túristastaður „Álið er að vera fjörutíu ára og farið að sjá á því. Klæðningin breytti útliti kirkjunnar. Hún stendur á viðkvæmu svæði því byggðasafnið í gamla torfbænum er vinsæll viðkomustaður ferða- fólks,“ segir Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæ, spurður um ástæður þess að ákveðið er að færa kirkjuna til upprunalegs horfs. Hann bætir því við að líklega eigi Hjörleifur Stefánsson arkitekt hugmyndirnar að þessum breyt- ingum. Kirkjan var gerð upp að innan á árinu 1996 og þá voru timburklæðningar fjarlægðar og kirkjan öll múruð að innan. Gísli segir að í kjölfarið hafi vaknað áhugi á að færa hana í upprunalegt horf að utan. Stefnt er að því að ráðast í við- gerðina í ágústmánuði. Búið er að fá múrara til að annast hana. Séra Gísli segir að fjöldi ferða- fólks leggi leið sína í byggðasafnið á hverju ári og flestir þeirra líti einnig inn í kirkjuna. Áætlað hefur verið að 70 þúsund manns hafi komið á staðinn á ári, áður en dró úr komum erlendra ferðamanna vegna kórónuveirufaraldursins. Gísli segir mikilvægt að kirkjan líti vel út og nú sé lag að ráðast í verk- ið því búist sé við að færri ferða- menn komi í sumar og kirkjan verði þá tilbúin fyrir næstu lotu. Aðeins eru um 100 íbúar í sókn- inni og ekki miklir fjármunir af- gangs til að ráðast í stórfram- kvæmdir. Áætlað er að viðgerðin kosti eitthvað á annað tug milljóna og styrkur úr jöfnunarsjóði sókna gerir kleift að ráðast í verkið. Glaumbæjarkirkja í upprunalegt horf - Álklæðing verður rifin af og kirkjan öll múruð að utan Fyrir 1980 Glaumbæjarkirkja er steinsteypt hús en var lengi óeinangruð. Eftir 1980 Útlit kirkjunnar breyttist nokkuð eftir að hún var klædd með áli. Hlynur Jónsson lögmaður var hæf- astur umsækjenda til að hljóta skip- un í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra, að mati dóm- nefndar um hæfni umsækjenda. Dómsmálararáðherra skipar í embættið. Embættið var auglýst laust til umsóknar 26. mars sl. Alls bárust fjórar umsóknir um embættið, frá Hlyni, Herdísi Hallmarsdóttur lög- manni, Oddi Þorra Viðarssyni lög- fræðingi og Sigurði Jónssyni lög- manni. Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson, formaður, Helga Mel- korka Óttarsdóttir, Kristín Bene- diktsdóttir, Óskar Sigurðsson og Ragnheiður Harðardóttir. Dómur Aðsetur Héraðsdóms Norðurlands eystra á Akureyri. Talinn hæf- astur í dóm- araembætti Í tilefni sjómannadagsins á morgun verður ókeypis í Sjóminjasafnið í Reykjavík. Guðbrandur Benedikts- son safnstjóri verður með leiðsögn um sýningar safnsins kl. 13 og 15 og þá verður einnig boðið upp á leiðsögn um borð í varðskipinu Óðni kl. 11 og 14. Á safninu má finna grunnsýn- inguna Fiskur & fólk – sjósókn í 150 ár sem fjallar um sögu fiskveiða á Íslandi frá því árabátar viku fyrir stórskipaútgerð á síðustu áratug- um 19. aldar og allt fram yfir alda- mótin 2000. Þá má einnig finna sýninguna Melckmeyt 1659 á safninu en þar fá gestir innsýn í rannsóknaraðferðir neðansjávarfornleifafræði og valda þætti úr sögu hollenska kaupskips- ins Melckmeyt, sem strandaði við Flatey á Breiðafirði á 17. öld. Ókeypis aðgangur í Sjóminjasafnið Ljósmynd/Sjóminjasafnið Sjóminjasafnið Aðgangur verður ókeypis á safnið á sjómannadaginn. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, vill seinka upphafi kennsludaga í grunnskólum Reykjavíkur í þeim tilgangi að auka svefn barna og unglinga. Borgarstjóri ræddi erindið á opn- um fundi um lýðheilsustefnu Reykjavíkurborgar í gær en hann lagði til að farið yrði í tilraunaverk- efni þar sem skólar í borginni hefji kennslu seinna en vaninn er, eða klukkan níu á morgnana. Í samtali við mbl.is sagði Dagur að verkefnið væri búið að vera í undirbúningi frá því í byrjun árs í samstarfi við embætti landlæknis og dr. Erlu Björnsdóttur en borg- arstjóri vonast eftir að fá alla vega tvo skóla til að taka þátt svo hægt sé að gera samanburð. „Það er svo magnað að svefn hefur svo ótrúleg áhrif á hvernig okkur líður, hvað okkur gengur vel í skólanum, hvort við erum líkleg til að hreyfa okkur og hvort við séum líkleg til að fá kvíða- eða þunglyndiseinkenni.“ Vilja að kennsla hefjist seinna á morgnana Morgunblaðið/Eggert Skólakrakkar Fá mögulega að sofa leng- ur út á næstu árum en þeir gera nú.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.