Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
ára. Á Akureyri var meðalhitinn 4,7
stig, -1,5 stigum undir meðallagi ár-
anna 1991 til 2020, en -1,7 stigum
undir meðallagi síðustu tíu ára. Í
Stykkishólmi var meðalhitinn 4,4
stig og 4,2 stig á Höfn í Hornafirði.
Maí var sá kaldasti á öldinni á Egils-
stöðum, Dalatanga, Teigarhorni og á
Höfn.
Úrkoma í Reykjavík mældist 38,9
millimetrar, sem er 74% af meðal-
úrkomu áranna 1991 til 2020. Á
Akureyri mældist úrkoman 14,9 mm
sem er 62% af meðalúrkomu áranna
1991 til 2020. Í Stykkishólmi mæld-
ist úrkoman 20,1 mm og 20,9 mm í
Höfn í Hornafirði. Nánast úrkomu-
laust var á Höfn þar til hinn 28.
og meðalhitinn alls staðar vel undir
meðallagi. Að tiltölu var kaldast
austanlands en hlýrra vestanlands.
Neikvætt hitavik miðað við síðustu
tíu ár var mest -3,4 stig á Kára-
hnjúkum en minnst -0,5 stig á Gjög-
urflugvelli.
Norðaustlægar áttir voru ríkjandi
fram eftir mánuðinum auk þess sem
kalt var og óvenju úrkomulítið um
land allt. Gróður tók lítið við sér og
sinueldar voru tíðir. Alvarlegasta til-
fellið var í Heiðmörk 4. maí, þegar
56 hektarar skóglendis brunnu.
Meðalhiti í Reykjavík í maí var 5,7
stig og er það -1,1 stigi undir meðal-
lagi áranna 1991 til 2020 og einnig
-1,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sólskinsstundir í nýliðnum maí
mældust 355 í Reykjavík og hafa
aldrei mælst fleiri í þeim mánuði síð-
an mælingar hófust 1911. Var það
126 stundum yfir meðallagi áranna
1991 til 2020. Gamla metið var frá
1958, eða 330,1 stund.
En ekki er allt sem sýnist eins og
fram kemur í tíðarfarsyfirliti Veður-
stofunnar. „Hafa ber þó í huga að
skipt var um mæliaðferð í Reykjavík
síðastliðin áramót. Hætt var að
mæla sólskinsstundir með svoköll-
uðum Campbell-Stokes-mæli, þar
sem sól skín í gegnum glerkúlu og
brennir rauf í blað sem þar er komið
fyrir. Skipt var um blað einu sinni á
sólarhring og lengd randarinnar á
blaðinu mæld. Nú er notast við sjálf-
virkan sólskinsstundamæli. Örlítill
munur er á mælunum tveimur,
mestur á heiðríkum dögum, en þá
mælir sjálfvirki mælirinn meira en
sá gamli. Því má ætla að sólskins-
stundirnar í Reykjavík í maí 2021
hafi jafnað metið frá því 1958,“ segir
þar. Fjallað var ítarlega um þessar
breytingar í fréttagrein í Morgun-
blaðinu 28. maí sl.
Maí kaldur um allt land
Á Akureyri mældust sólskins-
stundirnar 206,6, sem er 35,6 stund-
um meira en að meðaltali áranna
1991 til 2020.
Fram kemur í veðurfarsyfirlitinu
að maí var mjög kaldur um allt land
Morgunblaðið/Eggert
Gangbrautin máluð Vegna þess hve bjart og þurrt var mestan hluta mámánaðar viðraði vel til allra útiverka.
Sólskinsstundir fleiri
en áður hafa mælst
- Líklega metjöfnun vegna nýrrar aðferðar við mælingu
Morgunblaðið/Eggert
Heiðmörk Mikil hætta var á sinubrunum vegna hinna miklu þurrka í maí.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þingmenn í efnahags- og viðskipta-
nefnd Alþingis hvetja stjórnvöld til
að huga að úrræðum fyrir þá sem
ekki geta vegna aðstæðna sótt sér
rafræn skilríki áður en komið verður
á fót stafrænu pósthólfi fyrir lands-
menn í miðlægri þjónustugátt, sem
lagt er til í frumvarpi fjármála- og
efnahagsráðherra.
Þetta kemur fram í nefndaráliti
nefndarinnar en athugasemdir hafa
verið gerðar við að ekki sé kveðið á
um það hvaða rafrænu auðkenning-
arleiðir yrðu fullnægjandi til inn-
skráningar í pósthólfið. Þjóðskrá
hefur bent á að um 33% innskrán-
inga á vefinn Ísland.is séu með Ís-
lykli en um 67% með rafrænum skil-
ríkjum.
„Bendir stofnunin á að það geti
verið vandkvæðum bundið að tak-
marka aðgengi að rafrænu pósthólfi
við notkun rafrænna skilríkja, sér-
staklega ef notendur eru búsettir er-
lendis. Hægt sé að fá Íslykil í gegn-
um heimabanka eða sendan í
sendiráð, en ekki sé hægt að fá út-
gefin rafræn skilríki nema sótt sé um
þau í eigin persónu hjá útgáfuaðila,“
segir í nefndarálitinu.
Áform eru enn uppi um að ríkið
eignist fyrirtækið Auðkenni
Eins og fram hefur komið eru uppi
áform um að ríkið eignist fyrirtækið
Auðkenni sem annast útgáfu raf-
rænna skilríkja og bendir nefndin á
að gangi þau áform eftir muni aðili í
eigu ríkisins sjá um útgáfu þeirra.
„Þótt Íslykill hafi nokkra kosti um-
fram rafræn skilríki, líkt og að fram-
an greinir, er hann samt aðeins auð-
kennislykill og inniheldur ekki
möguleika á fullgildri rafrænni und-
irritun. Öryggisstig rafrænna skil-
ríkja er því hærra. Telur nefndin að
eftir því sem innleiðingu stafræns
pósthólfs vindur fram verði eðli
málsins samkvæmt gerðar ríkari
kröfur til sannvottunar, m.a. með til-
liti til eðlis og umfangs þeirra gagna
sem birt verði í pósthólfi einstakl-
inga,“ segir í áliti þingnefndarinnar.
Þörf á úrræðum vegna pósthólfs
- Efnahags- og viðskiptanefnd segir öryggisstig rafrænna skilríkja hærra en Íslykilsins - 33% inn-
skráninga á vefinn Ísland.is eru með Íslykli en um 67% með rafrænum skilríkjum skv. Þjóðskrá
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kíkt í símann Gögn verða aðgengileg
í stafrænu pósthólfi hvers og eins.
Framkvæmdir eru í fullum gangi í grunni Nýja Landspítalans við Hring-
brot. Starfsmenn hjá vertakanum Eykt unnu við það í vikunni að reisa
stærsta kranann sem notaður verður við byggingu spítalans.
„Verkefnið gengur vel hjá okkur og nú er búið að leggja niður um 6.300
rúmmetra af steypu í þrifalög og undirstöður. Hvað rúmmál varðar þá er
steypuvinna við undirstöður um það bil hálfnuð. Vinna er byrjuð hjá okkur
við fyllingar innan í sökkla og gerum við ráð fyrir að steypa fyrstu botn-
plötu í þessum mánuði,“ segir Ingvar Stefánsson, verkefnisstjóri hjá Eykt,
í nýjustu framkvæmdafréttum Nýja Landspítalans.
Morgunblaðið/Eggert
Stærsti kraninn reistur
á lóð Nýja Landspítalans