Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 22
VIÐTAL
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Íslenskir tónlistarmenn hafa æ
meira þurft að reiða sig á tekjur
frá streymisveitum líkt og Spotify
eftir algjört tekjuhrun vegna kór-
ónuveirufaraldursins. STEF, sam-
tök tónskálda og eigenda flutnings-
réttar, hafa nýlega gert nýjan
samning við Spotify sem á að bæta
kjör tónlistarfólks. Sérstaklega
hefur tónhöfundum reynst erfitt að
afla tekna en nýi samningurinn er
sagður skref í rétta átt.
„Hvert streymi er að gefa í raun-
inni eina og hálfa krónu á Íslandi.
Þessi eina og hálfa króna skiptist
þannig að Spotify tekur um það bil
hálfa krónu og þá er ein eftir fyrir
rétthafa, sem skiptist þá á milli
höfunda, flytjenda og útgefenda.
Þessi upphæð sveiflast eftir því
hversu miklu er streymt á hverju
tímabili fyrir sig, svo það er erfitt
að bera þetta saman. En eftir
þessa nýju samninga er þetta í
rauninni í kringum 8% hækkun fyr-
ir okkur,“ segir Guðrún Björk
Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
STEFs.
Einfaldar innheimtu gjaldanna
Þó að ljóst sé að nýi samningur-
inn muni ekki kollvarpa fjárhags-
stöðu greinarinnar, vonar Guðrún
að skýrsla sem var gefin út af Birni
Ulveus, söngvara hljómsveitarinnar
ABBA, muni verða að neistanum
sem þurfti til þess að hefja frá
grunni endurskipulagningu á hag-
kerfi streymisveita.
Samningurinn hefur einfaldað
innheimtu gjaldanna til muna, þar
sem nú kemur greiðslan öll frá ein-
um aðila í staðinn fyrir að fara í
gegnum fjölmörg höfundaréttar-
samtök á víð og
dreif um heim-
inn.
„Samningur-
inn tekur þá ekki
eingöngu til
streymis á Ís-
landi, heldur
einnig til streym-
is íslenskrar tón-
listar í töluverð-
um fjölda
annarra landa,“ segir Guðrún og
tekur dæmi um það að höfund-
arréttarsamtökin í Grikklandi hafi
verið með samning við Spotify um
alla tónlist í Grikklandi og að þá
hafi Íslendingar þurft að hlíta þeim
samningsskilmálum sem Grikkir
höfðu samið um.
„Í staðinn fyrir að bíða eftir
greiðslum sem fara í gegnum
grísku samtökin og síðan til okkar,
þá fáum við núna greitt beint fyrir
streymi á íslenskri tónlist í allri
Evrópu, Mið-Austurlöndum, Afríku
og hluta af Asíu. Varðandi Banda-
ríkin fáum við greitt fyrir íslenska
tónlist sem er streymt í Bandaríkj-
unum í gegnum systursamtök okk-
ar þar,“ segir Guðrún.
Bent er á það að tekjum frá
streymisveitum er greinilega mis-
skipt milli höfunda annars vegar og
hljómplötuframleiðenda og flytj-
enda hins vegar. Þegar gróft er lit-
ið á þóknun tónhöfunda má sjá að
þeirra hluti af tekjunum frá hverju
streymi er þrisvar sinnum lægri en
þóknun framleiðenda og flytjenda.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
STEFs.
„Síðan má líka tala um það hvort
skiptingin milli höfunda, flytjenda
og útgefenda sé rétt. En við erum
á þeirri skoðun að þarna sé kök-
unni ekki rétt skipt,“ segir Guðrún.
„Mikið fyrir lítinn pening“
Þótt samningurinn hafi aðeins
tekið gildi í september hafa tekjur
samtakanna tvöfaldast milli fyrsta
ársfjórðungs á þessu ári og fyrsta
ársfjórðungs á því síðasta. Ef
tekjur milli ára eru skoðaðar, sjást
vel áhrifin sem samningurinn hefur
haft en tekjur sem samtökin fá frá
streymisveitum hafa hækkað um 18
milljónir úr 26 milljónum í tæpar
44 milljónir og nemur hækkunin
því um70%. STEF benda á að far-
aldurinn hafi líklega einnig haft
áhrif þar sem fleiri hafa keypt sér
áskrift að streymisveitu.
Guðrún segir að þótt þessi
hækkun sé skref í rétta átt finnist
henni áskriftargjaldið fyrir stóru
streymisveiturnar einfaldlega vera
of lágt.
„Þetta upphaflega verð sem var
stillt upp af þessum tæknifyrir-
tækjum sýnir að þau voru ekki
beinlínis að horfa á hagsmuni
þeirra sem skapa tónlist. Þannig að
ég held að í grunninn sé þetta mjög
ódýr vara og kannski endurspegli
ekki virði hennar. Þú ert að fá
ótrúlega mikið fyrir lítinn pening,“
segir Guðrún.
Spotify var stofnað árið 2006 og
er sænskt fyrirtæki, en síðan þá
hefur tónlistarstreymisveitan farið
eins og eldur í sinu um heims-
byggðina og er nú stærsta
tónlistarstreymisveita í heimi með
u.þ.b. 32% af heildarmarkaðshlut-
deild heimsins. Fyrirtækið er metið
á 45 milljarða bandaríkjadala eða
sem samsvarar tæplega tvöfaldri
landsframleiðslu Íslands.
Aldrei skilað hagnaði
Síðan fyrirtækið fór á markað í
apríl 2018 hafa hlutabréfin í fyrir-
tækinu hækkað úr 148 dölum í 234
dali og jafngildir það u.þ.b. 58%
hækkun. Þegar verðið var sem
hæst í febrúar var hvert bréf í
fyrirtækinu metið á 365 dali sem
jafngildir um 146% hækkun frá því
að fyrirtækið fór á markað. Þótt
Spotify hafi aldrei skilað hagnaði
hafa tekjur fyrirtækisins síðustu ár
verið að hækka og voru tekjurnar
2017 u.þ.b. fjórir milljarðar banda-
ríkjadala en á seinasta ári voru
tekjur fyrirtækisins tæpir 8 millj-
arðar dala.
Samningur við Spotify eykur tekjur
AFP
Streymisveitur Forstjóri Spotify, Daniel Ek, er metinn á 4 milljarða dala.
- Nýr samningur bætir kjör og einfaldar greiðslur fyrir íslenskt tónlistarfólk - Hvert streymi um ein
króna - Tekjuhrun í faraldrinum - „Kökunni ekki rétt skipt“ - Spotify með 32% markaðshlutdeild
Guðrún Björk
Bjarnadóttir
Bandaríkjadalir á hlut
Gengi bréfa í Spotify frá skráningu ámarkað
2018 2019 2020 2021
350
300
250
200
150
100
15. feb. 2021
364,59
3. apríl 2018
147,92
31.maí 2021
237,74
Heimild: yahoo!finance
22 FRÉTTIRViðskipti| Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
5. júní 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.11
Sterlingspund 170.23
Kanadadalur 99.47
Dönsk króna 19.673
Norsk króna 14.392
Sænsk króna 14.467
Svissn. franki 133.48
Japanskt jen 1.0933
SDR 173.3
Evra 146.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.0772
Hrávöruverð
Gull 1892.15 ($/únsa)
Ál 2386.5 ($/tonn) LME
Hráolía 71.27 ($/fatið) Brent
« Skömmu eftir opnun markaða í gær-
morgun tilkynnti Gildi lífeyrissjóður að
hlutur hans í Icelandair Group væri far-
inn undir 5%. Hefur sjóðurinn jafnt og
þétt selt sig niður í félaginu og í síð-
ustu vendingum fækkaði hlutum í eigu
hans um 56,8 milljónir hluta. Fer sjóð-
urinn nú með 4,84% hlut í flugfélaginu
og að baki honum standa 1.376,5 millj-
ónir hluta. Eru þeir miðað við dags-
lokagengi Icelandair í Kauphöll í gær
metnir á ríflega tveir milljarða króna.
Stærsti hluthafi flugfélagsins er nú Líf-
eyrissjóður starfsmanna ríkisins og á
hann í gegnum A- og B-deildir sínar ríf-
lega 5% hlut.
Gildi þynnir hlut sinn
í Icelandair Group
Bókaútgáfan Forlagið var rekin með
rúmlega fimmtán milljóna króna tapi
á síðasta ári samkvæmt nýbirtum
ársreikningi félagsins. Árið 2019 var
hins vegar hagnaður af rekstri fyrir-
tækisins upp á 23 milljónir króna.
Eignir Forlagsins námu 1,5 millj-
örðum króna í lok síðasta árs og
drógust þær saman um tæp þrjú
prósent á milli ára. Eigið fé fyrir-
tækisins er 703 milljónir króna og
dróst það saman um rúm tvö prósent
á milli ára. Eiginfjárhlutfall félags-
ins er 47%.
Tekjur Forlagsins á síðasta ári
voru 927 milljónir króna en voru
tæplega 1,1 milljarður árið á undan,
sem er 13% lækkun.
Kostnaður vegna sölu bréfa
Í ársreikningum er Covid-19-far-
aldurinn nefndur sem ástæða verri
afkomu á árinu. Þá hafi komið til ein-
skiptiskostnaður vegna mögulegrar
sölu á hlutabréfum í félaginu sem
gekk ekki eftir. Eins og sagt var frá í
Morgunblaðinu á sínum tíma hugðist
streymisveitan Storytel kaupa 70%
hlut í fyrirtækinu. Frá því var fallið.
tobj@mbl.is
Forlagið tapaði
fimmtán milljónum