Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Íbúðir sem uppfylla
skilyrði um
hlutdeildarlán
Berjateigur 33-39, 250 Garði
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Nýjar fullbúnar og vandaðar 3ja herbergja íbúðir í raðhúsi á einni
hæð, með sólpalli. Frábært útsýni yfir Snæfellsjökul o.fl.
Afhending í september 2021
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Berjateigur 33 82,9 m2 Seld
Berjateigur 35 81,9 m2 36.400.000.-
Berjateigur 37 81,9 m2 Seld
Berjateigur 39 82,9 m2 Seld
B
ent Larsen var án efa
merkasti skákmaður
Norðurlanda á 20. öld.
Hann var raunar sæmdur
nafnbótinni í tengslum við 100 ára
afmæli norræna skáksambandsins
árið 1999. Larsen tók þátt í átta
millisvæðamótum og vann tvö
þeirra, í Sousse 1967 og í Biel 1976.
Þá varð hann efstur við fjórða
mann á millisvæðamótinu í Amster-
dam árið 1964. Á sjöunda og átt-
unda áratug síðustu aldar var hann
einn sigursælasti stórmeistarinn á
hinum alþjóðlega vettvangi skák-
arinnar. Árangur hans í einvígjum
var misjafn en þó má nefna sigra
hans yfir Tal, Portisch og Geller.
Ýmis leikbrögð hans voru skemmti-
leg. Hann var t.a.m. mikill áhuga-
maður um framrás kantpeðanna.
Eitt sinn heyrði ég hann lýsa því
með tilþrifum hvenær heppileg skil-
yrði fyrir framrás hvíta h-peðsins
mynduðust: um leið og f6-riddarinn
skryppi frá mætti þeyta h-peðinu
fram! Hann lét sig nú samt hafa
það að leika h2-h4 þó að f6-
riddarinn væri enn til varnar. Ein
byrjun ber nafn hans: Larsen-
byrjun hefst með 1. b2-b3 en í
frægustu skák Larsens í byrjun
sinni tapaði hann þó í aðeins 17
leikjum fyrir Spasskí á 1. borði í
keppni Sovétríkjanna gegn heims-
liðinu í Belgrad 1970. Sú skák var
einhverju sinni rakin í þessum
pistlum.
Það er öllum ljóst að heimsmeist-
arinn Magnús Carlsen er arftaki
Larsens sem skákmaður 21. aldar á
Norðurlöndum. Sú spurning vakn-
aði um daginn hvort hann hefði eitt-
hvað lært af Bent. Magnús teflir
allt og um daginn valdi hann Lar-
sen-byrjun gegn harðvítugum and-
stæðingi í mótasyrpunni á netinu
sem ber nafns hans. Þeir þræddu
hina frægu skák Larsens við
Spasskí fram í fimmta leik en þá
kom nýr snúningur:
FTX Crypto Cup. Undankeppni,
8. umferð:
Magnús Carlsen – Alexander
Grischuk
Larsen-byrjun
1. b3 e5 2. Bb2 Rc6 3. c4 Rf6 4.
Rf3 e4 5. Rd4 Bc5
6. Rf5!?
Larsen lék 6. Rxc6 og framhaldið
varð 6. … dxc6 7. e3 Bf5 8. Dc2 De7
9. Be2 0-0-0 10. f4 Rg4 11. g3 h5 12.
h3 h4 13. hxg4 hxg3 14. Hg1 Hh1
15. Hxh1 g2 16. Hf1 Dh4+ 17. Kd1
gxf1(D)+ – og hvítur gafst upp.
6. … d5
Öruggara var 6. … 0-0.
7. Rxg7+ Kf8 8. cxd5 Bd4 9. Rc3
Re7 10. e3 Bxc3
Eftir 10. … Be5 getur hvítur
leikið 11. Rh5 eða fyrst 11. d6 cxd6
12. Rh5.
11. dxc3 Kxg7 12. c4 Rg6 13. g4!
Hvíta staðan með biskupinn á b2
er ekki árennileg.
13. … h6 14. h4 c5 15. Be2
Jafnvel enn sterkara var 15. h4.
15. … Kg8 16.Dc2 Hh7 17. 0-0-0
Það er áreiðanlega hægt að tefla
stöðuna til sigurs með öðrum leið-
um en hann velur að ljúka liðskipan
í rólegheitum og síðan kemur loka-
atlagan.
17. … Rxg4 18. h5 Rf8 19.Dxe4
f5 20. Dc2 Rxf2 21. Hhg1+ Kf7 22.
Hdf1 Dh4 23. Be5 De4 24.Dc3 Rh3
25. Hg4
- og svartur gafst upp.
FTX Crypto Cup var sjötta mótið
í tíma-mótasyrpunni sem hófst und-
ir lok árs 2020 og lýkur í október á
þessu ári. Tefldar eru atskákir, með
tímamörkunum 15 10. 16 skákmenn
tefldu allir við alla og voru átta sæti
í útsláttarkeppninni í boði. Magnús
hlaut 8½ vinning af 15 og rétt
marði að komast í átta manna hóp-
inn en í útsláttarkeppninni vann
hann Nakamura, Radjabov og loks
Wesley So eftir mikla baráttu.
Armageddon-skák réð úrslitum. At-
hygli vekur að hluti verðlaunafjár
var greiddur með rafmyntinni
bitcoin.
Næsta mót í syrpunni hefst hinn
26. júní nk.
Byrjun Larsens
nýtur enn vinsælda
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Kjartan Briem
Efstu menn Benedikt Briem sigraði á meistaramóti Skákskóla Íslands skip-
uðu keppendum undir 2.000 elo-stigum. Ingvar Wui Skartphéðinsson (fyrir
miðju ) varð í öðru sæti og Matthías Björgvin Kjartansson í því þriðja.
Lög og reglur um
sölu og dreifingu
áfengis á Íslandi
standast hvorki nýja
framleiðslu- og versl-
unarhætti né neyslu-
viðhorf almennings.
Innlend netverslun
þarf að geta staðist
samkeppni við erlend-
ar netverslanir með
áfengi og litlu brugg-
húsin um allt land vilja afgreiða
sína viðskiptavini á staðnum.
Lögbönn á netverslun
og brugghús?
Nú horfir svo ólánlega að frum-
varp dómsmálaráðherra, sem ætl-
að var að rýmka áfengislöggjöfina
fyrir brugghús, mun líklega daga
uppi á Alþingi í vor. Á stjórn-
arheimilinu var jafnræði í við-
skiptum ekki metið meira en svo,
að erlendar netverslanir geta hald-
ið áfram að selja áfengi til ein-
staklinga á Íslandi meðan íslensk-
ar geta það ekki. Brugghúsin
munu líklega halda áfram að selja
bjór á framleiðslustað eins og þau
hafa gert afskiptalaust af hálfu yf-
irvalda um nokkra hríð. Nema
ÁTVR taki sig til og krefjist lög-
banns á þau líka eins og á áfeng-
islager frönsku netverslunarinnar
Santewines SAS.
Ráðherra skorti stuðning
Í þessu máli hefur dóms-
málaráðherra mátt sín lítils. Það
er skiljanlegt vegna þess að Ás-
laug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur
ekki fengið þann stuðning sem
vænta hefði mátt frá stórum
áfengisinnflytjendum og sam-
tökum þeirra. Félag atvinnurek-
enda talar yfirleitt hreint út úr
pokahorninu. Þegar um jafnræði
milli innlendrar og erlendrar net-
verslunar er að ræða bregður hins
vegar svo við að ekkert heyrist
nema loðmullan úr því
horni. Þegar taka hef-
ur þurft til máls gegn
einokun ríkisins á
ýmsum sviðum, sam-
keppnishamlandi að-
gerðum stjórnvalda í
viðskiptum með bú-
vörur og gegn tollum
og hvers kyns nið-
urgreiðslum hefur
engin linkind eða tví-
ræðni einkennt mál-
flutning Félags at-
vinnurekenda.
Líður vel í faðmi ÁTVR!
Í þessu máli treður félagið sann-
arlega marvaðann: Ekki er hægt
að taka smáu skrefin til framfara
nema „heildstætt mat“ eigi sé stað
og tekið verði á öllum hlutum í
einni beit. Maður sér fyrir sér ráð-
herra Framsóknar og VG í sam-
tölum við sjálfstæðisráðherrana:
Sjáiði, áfengisinnflytjendum líður
vel í faðmi ÁTVR!
Og það má vel túlka þögn félags-
ins um afdrif tillagna er varða
jafnræði fyrir íslenskar netversl-
anir á þann veg að stóru áfeng-
isinnflytjendurnir vilji vera áfram í
bómullinni hjá ÁTVR í stað þess
að taka þátt í virkri samkeppni.
Vel tímasett þögn segir meira en
mörg orð. En væri ekki meiri
bragur á því að skilja eftir sig spor
í átt til aukins viðskiptafrelsis og
frjálsræðis heldur en sitja á hæg-
um sessi inni á gafli hjá ÁTVR?
Loðmullulegur
heimur Félags
atvinnurekenda
Eftir Arnar
Sigurðsson
»Nú horfir svo ólán-
lega að frumvarp
dómsmálaráðherra, sem
ætlað var að rýmka
áfengislöggjöfina fyrir
brugghús, mun líklega
daga uppi á Alþingi í vor.
Arnar Sigurðsson
Höfundur er víninnflytjandi.
Guðný Árnadóttir fæddist 5.
júní 1813 í Fljótsdal, N-Múl.
Ein heimild segir á Valþjófs-
stað en önnur á Víðivöllum.
Foreldrar hennar voru hjónin
Árni Stefánsson. f. 1783, d.
1864, og Hallgerður Gríms-
dóttir, f. 1789, d. 1840.
Guðný var nefnd Skáld-
Guðný og var sögð hraðkvæð-
ust skálda að Símoni Dala-
skáldi undanskildum. Eftir
hana liggur mikið af skáldskap
og árið 2020 var gefin út bókin
Hugurinn einatt hleypur minn
með ljóðum hennar.
Guðný fór í vinnumennsku á
prestssetrið á Hallormsstað
árið 1835 og árið 1839 eign-
aðist hún þar soninn Árna, en
barnsfaðir hennar drukknaði í
Lagarfljóti árið 1838. Hún gift-
ist árið 1841 Bjarna Ásmunds-
syni, f. 1800, d. 1864, og voru
þau lengst af í húsmennsku á
ýmsum bæjum á Héraði. Þau
eignuðust fjögur börn sem
komust upp, auk Árna. Árið
1861 fluttu þau að Skriðu-
klaustri til Þóru systur hennar
og þar orti hún sín þekktustu
kvæði.
Eftir lát eiginmanns síns
flutti Guðný til Bjarna sonar
síns í Hvalnesi í Lóni. Þar varð
hún ljósmóðir Bæjarhrepps-
umdæmis, sem er í Lóni, 1873-
1887, og naut fullra launa frá
1878.
Guðný lést 3. júní 1897.
Merkir Íslendingar
Guðný
Árnadóttir