Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Útsölustaðir: Apótek og heilsuhillur stórmarkaða. Vönduð bætiefnalína hönnuð til að styðja við almenna heilsu Bragðgóðar & sykurlausar freyðitöflur Í heilbrigðismálum er verið að fara illa með fé. Öll þekkjum við væntanlega dæmi um einstaklinga sem eru sendir út til Sví- þjóðar með fylgd- armanni á Saga Class í aðgerðir sem hæg- lega væri hægt að gera hér heima. Kostnaðurinn við þessa stefnu er gríðarlegur og tel- ur þá bara ekki kostnaðurinn við ferðalögin. Skoðum líka efnahags- og fé- lagslegan skaða sem hlýst af því að hafa fólk óvinnufært gegn vilja sínum, einstaklinga sem bíða til dæmis eftir liðskiptum á hné. Tök- um dæmi af iðnaðarmanni sem treystir algerlega á að fæturnir beri hann í vinnu. Hann þarf að bíða mjög lengi eftir að fá tíma hjá lækni og þá eftir það er bið eftir aðgerð, hann getur ekki unnið, missir tekjur og þarf jafnvel að leita eftir opinberum styrkjum til þess að framfleyta sér og sínum. Andlegt álag sem hlýst af því að vera veikur og geta ekki unnið jafnvel sökum verkja getur haft mjög skaðleg og var- anleg áhrif með til- heyrandi kostnaði sem getur lagst samhliða á samfélagið. Að þessu sögðu er ekki verið að leggja það til hér að einka- rekstur læknastofa eigi að vera að öllu leyti óheftur og án eftirlits. Fylgjast þarf grannt með gjald- skrám lækna á einka- stofum svo ekki sé verið að rukka sjúk- linga óhóflega og misnota nið- urgreiðslur Sjúkratrygginga Ís- lands. Slíkt þyrfti og ætti að koma fram í ársskýrslum og ársreikn- ingum einkarekinnar læknisþjón- ustu. Mikill styr hefur einnig verið um hversu mikið eða lítið starfshlutfall læknar ættu að þurfa að vinna á sínum stofum og hversu mikið þeir mega vinna inni á spítölum. Nú segja mér fróðari menn að það sé nauðsynlegt fyrir lækna að starfa samhliða á spítala og einkastofu þar sem spítalinn þarf á sérmennt- unarhæfni lækna að halda. Í dag mega „stofulæknar“ aðeins vinna 80% eða minna á spítala, tillagan frá heilbrigðisráðherra er núna að þrengja enn frekar að læknum með því að krefjast þess að þeir séu 80% eða meira starfandi á stofum sínum. Með þessum hlut- föllum er augljóslega enn frekar vegið að frelsi í einkarekstri og til- lögurnar stangast á. Það er ljóst að það þarf að ná einhverri sameiginlegri sýn á störf lækna á stofum og á spítalanum og ná samningum á milli Sjúkratrygg- inga og sérfræðilækna. En satt best að segja þarf að mínu mati að nota fleiri skynfæri en bara vinstra augað til að slík lausn geti orðið að veruleika og til þess þarf Sjálfstæðisflokkurinn að taka að sér forystu í heilbrigðismálum Ís- lands. Illa farið með fé Eftir Karen Elísabetu Halldórsdóttur » Andlegt álag sem hlýst af því að vera veikur og geta ekki unn- ið jafnvel sökum verkja getur haft mjög skaðleg og varanleg áhrif með tilheyrandi kostnaði sem getur lagst sam- hliða á samfélagið. Karen Elísabet Halldórsdóttir Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. kareneha@gmail.com Kosningabarátta og frammistaða Jóns Gnarrs sem borg- arstjóri Reykjavíkur er eflaust sá listgjörn- ingur sem hefur haft hvað mest áhrif á stjórnmálasögu Ís- lands frá upphafi. Með húmorinn að vopni náði hann að afvopna jakka- fataklædda stjórn- málamanninn sem tel- ur sig vita allt best og sýna fram á að stjórnmál þurfi ekki að snúast um frekju og völd heldur frekar vilja til þess að gera vel og þjóna íbú- um landsins án þess að þurfa að taka sig of al- varlega. Hér á Seltjarnarnesi hefur boðskapurinn ekki alveg náð inn í bæjarstjórnina þar sem jakkafataklæddur sjóðsstjóri situr bæði sem forseti bæj- arstjórnar og formaður bæjarráðs og telur sig ekki þurfa að hlusta á vilja íbúa eða starfsfólks bæjarins. Hann æsir sig við fulltrúa minnihlut- ans sem setja spurningarmerki við þjónustuskerðingar og hallarekstur sveitarfélagsins og talar um draum vinstrimanna um háa skatta þegar honum er bent á að auka þurfi tekjur ef halda á uppi því þjónustustigi sem hann sjálfur lofar. Í valdatíð bæjarsjóðsstjórans hef- ur A-sjóður Seltjarnarnesbæjar ver- ið rekinn með yfir milljarð í halla á síðustu sex árum og skuldaviðmið sveitarfélagsins farið úr 10% árið 2016 upp í 78% árið 2020. Á kjörtímabilinu hefur bæjar- sjóðsstjórinn skorið niður starf félagsmiðstöðvar og tónlistarskóla, hækkað gjaldskrár á barna- fjölskyldur og eldri borgara, dregið úr niðurgreiðslu til dagforeldra og hætt heimgreiðslum til þeirra sem ekki fá pláss á leikskóla eða dagfor- eldri. Í þjónustukönnun Gallup hefur á sama tíma ánægja og traust íbúa með þjónustu bæjarins minnkað á öllum sviðum og farið úr því að vera með eina bestu heildareinkunnina, 4,3 af 5 árið 2015, niður í að vera með eina lægstu, 3,4 af 5, árið 2020. Í skoðanakönnun sem Maskína vann árið 2020 kom fram að aðeins 26% íbúa eru ánægð með stjórnun bæjarins og að minnihluti íbúa styð- ur við meirihluta bæjarstjórnar. Meirihluti Seltjarnarnesbæjar hefur ekki getað staðið við stærsta kosningaloforð sitt um að byggja nýjan leikskóla á kjörtímabilinu vegna lélegrar fjárhagsstöðu bæj- arins og nú er inntaka í leikskólann komin í hnút þar sem húsnæðið er bæði sprungið og illa við haldið. Þetta hefur valdið miklum áhyggj- um meðal foreldra og vantrausti frá starfsfólki leikskólans sem mótmælt hefur harðlega frekari bráðabirgða- lausnum. Þrátt fyrir þetta skilur bæjar- sjóðsstjórinn ekki af hverju fulltrúar minnihlutans eru gagnrýnir og spyrja hann spurninga um hvernig snúa eigi rekstrinum við eða standa vörð um þjónustuna. Hann fer mik- inn í fjölmiðlum um að þessar stað- reyndir séu einfaldlega upphlaup og miskilningur minnihlutans. Hann heldur því fram að tapið sé ekki tap, skuldaaukningin ekki skuldaaukn- ing og þjónustuskerðingarnar ekki þjónustuskerðingar. Kunnugleg rödd Georgs Bjarnfreðarsonar, ann- ars góðs listgjörnings Jóns Gnarrs, byrjar að hljóma: „Þetta er bara mis … þetta er bara miskilningur.“ Þetta er bara misskilningur Eftir Guðmund Ara Sigurjónsson »Rekstur Seltjarnar- nesbæjar, þjónustu- stig og traust íbúa fer versnandi með hverju ári. Forseti bæjar- stjórnar sér ekki vandann og segir allt misskilning. Guðmundur Ari Sigurjónsson Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingar Seltirninga. gummari@gmail.com Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Lifandi Guð! Við biðjum þig um að vaka yfir okkur, fjölskyldu okkar og vinum. Viltu hjálpa okkur að halda friðinn, varðveita einingu og blessa viðleitni okkar til samstöðu og ein- ingar, þótt við skemmtilega ólík að einhverju leyti kunn- um að vera. Blessaðu einnig samskipti okkar við alla samferðamenn og viltu mis- kunna þeim sem sæta ofbeldi eða kúgun, lifa við misnotkun og stöð- ugan ótta. Vak einnig yfir öllum þeim sem búa við stríðsógnir og stríðsátök hvar sem vera kann í ver- öldinni. Skapa með okkur vilja til að reyna að gera betur, líta í eigin barm og gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma á réttlæti og friði í nærumhverfi okkar sem og í heim- inum öllum. Þar sem við mættum horfast í augu við og taka tillit til þarfa hvert annars með því að lifa í kærleika og friði þar sem allir eru virtir til jafns og fái að njóta sín og sinna hæfileika, náunganum og um- heiminum til blessunar, þér til dýrð- ar og þannig sjálfum sér til farsæld- ar og heilla. Við biðjum einnig fyrir þeim sem nýlega eða einhvern tíma hafa misst ástvin og þekkja því af eigin raun hvað það er að syrgja og sakna. Biðjum einnig fyrir þeim sem orð- ið hafa fyrir hvers kyns vonbrigðum og eða hafa upplifað áföll og gengið í gegnum erfiða tíma. Við biðjum svo ekki síður fyrir öllum þeim sem daglega ganga til sinna hversdagslegu verka og heyja þannig sína stöðugu lífsbar- áttu. Já, öllum þeim sem elska lífið, þrá að höndla það, fá að halda í það og njóta þess. Blessaðu okkur svo öllum þessar þráðu sumarvikur og allt sem fram undan er. Hjálp- aðu okkur að gera okkar besta og standa saman í þínum anda sem bræður og systur svo allt fari eins farsællega og mögulegt er í öllum aðstæðum og áskorunum á ævinnar göngu. Njótum stundarinnar, alla ævi. Í Jesú nafni. Einlægar blessunaróskir með kærleiks- og friðarkveðju. – Lifi lífið! Verum móttækilegur jarðvegur og farvegur fyrir blessun Guðs Guð vill fá að planta blessun sinni í garð okkar hvers og eins. Leyfum honum það og tökum á móti í auð- mýkt og með þakklæti. Leyfum blessuninni svo að þroskast í garð- inum okkar og dýpka. Vaxa síðan upp, dafna og njóta sín. Hugsum vel um garðinn okkar og höldum honum við. Vökvum hann og gleymum ekki að reyta arfann. Látum blessunina ekki kafna í illgresi vegna hirðuleys- is. Frelsarinn okkar, Jesús Kristur, gefi ykkur öllum og andi á okkur sín- um heilaga góða anda. Anda sem uppörvar, minnir okkur á og hvetur til góðra verka. Veitir sköp- unarkraft, djörfung og þor, styrk og gleði. Djúpa og varanlega von sem öllu breytir og fylgir varanleg ham- ingja og kærleikur, friður, réttlæti, sátt og líf. Með kærleiks- og friðarkveðju. – Lifi lífið! Bæn dagsins, alla daga Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson »Frelsarinn okkar, Jesús Kristur, gefi ykkur öllum og andi á okkur sínum heilaga góða anda. Anda sem upp- örvar, minnir okkur á og hvetur til góðra verka. Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.