Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Það er mjög
óraunverulegt að
setjast niður og
skrifa niður minn-
ingarorð um hana
Sunnu mína. Ég hef ekki enn get-
að samþykkt þann veruleika að ég
geti ekki talað við hana aftur, og
svo margt sem mig langar til að
segja henni. Sunna var fyrir mér
vinkonan sem hægt var að leita til
með allt, hversu stórt eða smátt
sem vandamálið var. Hún hlustaði
og kom með góð ráð, setti hlutina í
samhengi og sýndi tilfinningum
manns skilning. Sunna var eldklár
og vísindalega þenkjandi. Hún var
langskólagengin með doktorspróf
í lyfjafræði og starfaði við þróun
og rannsóknir. Námið kláraði hún
þegar hún barðist við krabbamein
en það sýnir það mikla baráttu-
þrek og æðruleysi sem hún bjó yf-
ir. Hún sigraðist á krabbameininu
og kláraði námið með glæsibrag.
Sunna var glöð og skemmtileg,
félagslynd og fannst gaman að
hitta fólkið sitt. Það sést á þeim
fjölda vina sem hún eignaðist og
þeim nánu tengslum sem hún
myndaði við þá. Það var gaman að
njóta samveru Sunnu og hún var
með mjög þægilega nærveru.
Húmor og jafnaðargeð einkenndu
hana og hún vildi öllum vel. Fjöl-
skyldan var mikilvægur stólpi í lífi
Sunnu og var hún einstaklega náin
fjölskyldu sinni. Sunna hitti ástina
sína, hann Ívar, og eignaðist síðar
Kötlu sína. Hún var ljúf móðir og
sinnti því hlutverki af kostgæfni.
Sunna naut virkilega lífsins og
vegna reynslu sinnar vissi hún að
það væri ekki gefið að vera á lífi,
hún var þakklát fyrir það sem hún
átti og var góð fyrirmynd, hún var
fyrirmyndin mín. Það hefur verið
erfitt síðastliðinn mánuð að geta
ekki leitað til hennar, að geta ekki
spjallað við hana. Ótal minningar
um Sunnu leita á hugann;
skemmtanaglaðar ungar stelpur
sem bjuggu í sömu blokk á stúd-
entagarði, kvöldmatur og kokteill
á fínni veitingastað þegar náms-
árin voru liðin hjá og bíó á kvöldin
eftir að búið var að svæfa börnin.
Það sem ég sakna þó mest frá
Sunnu er að geta spjallað við hana
um daginn og veginn, og deila með
hvor annarri hinu og þessu, sumu
alveg nauðaómerkilegu eins og
frétt um fræga fólkið eða
skemmtilegum þætti til að glápa á
en þetta hversdagslega er svo
mikilvægt og söknuðurinn er mik-
ill þar.
Vonandi eru allir svo heppnir
að fá að eiga eins góða vinkonu og
Sunna var. Ég er þakklát fyrir
tímann sem ég fékk með henni en
mikið vildi ég óska þess að hann
hefði mátt vera lengri.
Elsku Ívar, Katla, Júlíana, Jó-
hann, Sigrún og Freyr, mínar
innilegustu samúðarkveðjur til
ykkar.
Megi minning Sunnu vera ljós í
lífi okkar allra.
Kristjana Erna Pálsdóttir.
Elsku besta Sunna.
Ég man þig enn og mun þér aldrei
gleyma.
Minning þín opnar gamla töfraheima.
Blessað sé nafn þitt bæði á himni og
jörðu.
Mér finnst þetta erindi úr ljóði
Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi eiga vel við á þessari stundu.
Ég á aldrei eftir að gleyma þér,
brosinu þínu og öllum þeim góðu
stundum sem við eyddum saman í
gegnum árin. Það voru forréttindi
að eiga þig sem vin og ég á eftir að
Sunna
Jóhannsdóttir
✝
Sunna Jó-
hannsdóttir
fæddist 6. júlí 1985.
Hún lést 25. maí
2021.
Útför Sunnu fór
fram 3. júní 2021.
sakna þín meira en
orð fá lýst.
Þú varst ein af
mínum uppáhalds-
manneskjum og
allra bestu vinum.
Þinn vinur að ei-
lífu,
Daníel Örn
Árnason.
Þegar ég kynntist
Sunnu á menntaskólaárunum
komst ég að því að það var aldrei
skemmtilegra eða hlegið jafnmik-
ið og þegar hún var á svæðinu.
Hugur hennar var svo frábær og
það var svo margt óvænt sem
henni datt í hug að segja, hvort
sem það var staðhæfingin að norð-
ur væri alltaf til hægri eða ákveða
að best væri að fallbeygja
skemmtistaðinn „Ari í Ögri“ sem
„Ara í Ögra“.
Bestu tímar okkar saman voru í
Danmörku þar sem við vorum
hvort í sínum lýðháskólanum en
fórum í heimsóknir hvort til ann-
ars og svo saman til Danna og
Jóns Otta í þeirra skóla. Sunna
var frábær í hópi en á þessum
tíma tengdumst við betur og að
vera einn-á-einn með henni var
jafnvel betra. Það var hægt að tala
um hvað sem var við Sunnu, hún
var frábær vinur með góð ráð og
ég vonandi fyrir hana.
Henni var gefið langt og erfitt
verkefni og hún barðist eins og
hetja fyrir meiri tíma. Ég er svo
þakklátur fyrir að hún gerði það
og við fengum meiri tíma með
henni, hún fékk meiri tíma með Ív-
ari og að eignast fallegu dóttur
þeirra. Ég náði að hitta vinkonu
mína þegar ég var síðast á landinu
og allt virtist við ljúfa löð og hlut-
irnir í fullkomnu jafnvægi. Mig ór-
aði ekki fyrir því hversu dýrmæt-
ur sá hittingur yrði mér.
Sunna lifir áfram í hjörtum
okkar sem þekktum hana. Inni-
legustu samúðarkveðjur til fjöl-
skyldu Sunnu og allra vina henn-
ar. Suns, þú ert best.
Smári Gunnarsson.
Ein mín besta vinkona er farin
frá okkur, tekin burtu allt of
snemma.
Elsku Sunna, elsku fallega vin-
kona mín. Það er hræðilegur
raunveruleiki að skrifa þessi orð.
Á þessari stundu horfi ég til
baka og fer yfir allar fallegu minn-
ingarnar og góðu stundirnar sem
þú gafst mér og okkur öllum í
kringum þig.
Sunna var samferða mér alla
mína grunnskólagöngu en í 7.
bekk vissi ég ekki að ég væri að
taka eitt af mínum stærstu gæfu-
sporum í lífinu þegar ég skipti al-
farið um vinahóp. Það voru mikil
forréttindi fólgin í því að kynnast
Sunnu og fá að vera samferða
henni í gegnum allar okkar sorgir
og sigra.
Hún var alltaf svo ljúf og góð og
bræddi alla með sakleysislegu yf-
irborðinu.
Djúp og varanleg vinátta
er dýrmætari
en veraldlegar viðurkenningar,
og allt heimsins gull og silfur.
Henni þarf ekki endilega alltaf
að fylgja svo mörg orð
heldur gagnkvæmt traust
og raunveruleg umhyggja.
Kærleikur,
sem ekki yfirgefur.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
En nú þegar komið er að leið-
arlokum okkar, þá þakka ég sam-
fylgdina og minning yndislegrar
vinkonu mun lifa í huga mínum.
Það er komið að kveðjustund í
bili, mín trú er sú að við munum
hittast aftur.
Elsku Ívar, Katla Rannveig,
Júlla, Jóhann, Sigrún og Freyr.
Ég sendi ykkur hlýja strauma og
samúðarkveðjur á þessum erfiðu
tímum.
Þín vinkona,
Kristín Hjálmarsdóttir.
Sunna dó í sólinni.
Það er svo skrýtið og illskiljan-
legt að reyna ná utan um það þeg-
ar ung og dásamleg kona fellur
frá. Hvernig er hægt að ná utan
um slíkt áfall? Spurningarnar sem
hellast yfir eru samhengislausar,
eins og þessi óraunverulegi veru-
leiki. Er þetta ekki bara martröð?
Förum við ekki öll alveg að vakna
bara og þá verður allt aftur gott?
Því miður er svo ekki. Eftir
standa mölbrotnir ástvinir og
spyrja: af hverju? Af hverju átti líf
Sunnu að vera svona ógurlega
stutt?
Ástvinirnir hafa ekkert annað
val en að halda lífinu áfram án
hennar, full af söknuði og þrá fyrir
lífinu sem átti að vera með henni.
Tárin streyma niður við að
skoða myndirnar hennar, sem hún
setti á snjáldurskinnuna sína.
Hamingjusama og glæsilega
Sunna með gullunum sínum,
Kötlu dóttir sinni og honum Ívari
sínum. Fyrir tveimur mánuðum
gengu hún og Ívar að eldgosinu og
voru mynduð saman. Nú er hún
dáin.
Fréttirnar komu eins og þruma
úr heiðskíru lofti. Samt datt okkur
ekki annað í hug en að Sunna
myndi sigrast á því, enda hafði
hún gert það fyrir 10 árum, svo af
hverju ekki aftur? Svona getum
við verið einföld.
Sunna og Ívar náðu að gifta sig
á ögurstundu. Höfðu eignast sam-
an Kötlu Rannveigu sína og fram
undan var öll ævin þeirra saman.
Að vera foreldrar og eldast sam-
an. Nú stendur Ívar frammi fyrir
þeim kalda veruleika að ala Kötlu
upp án Sunnu sinnar. Missir
þeirra feðginanna er afar sár og
við hin fylgjumst bara með orð-
laus yfir þessum aðstæðum.
Jói og Júlla þurfa nú að jarða
yngstu dóttur sína og það er akk-
úrat ekkert sanngjarnt við það.
Ég minnist þess þegar Júlla sagði
mér að hún vissi að Sunna yrði
fyrst til að gera hana að ömmu.
Móðir þekkir börnin sín.
Jói og Júlla, sem alltaf hafa ver-
ið stolt af Sunnu sinni, sem ein-
göngu 26 ára gömul sigraðist á
hvítblæði, gerði sér svo lítið fyrir
og skellti sér í doktorsnám og út-
skrifaðist úr því í janúar 2018, geri
aðrir betur takk fyrir.
Þau elskuðu Sunnu sína afar
heitt og hún þau. Foreldrar eiga
ekki að jarða börnin sín, það er
eitthvað mjög rangt við þá tíma-
röð.
Sunna var yngst af systkina-
hópnum, litla systir Sigrúnar og
Freys, öll afar náin og yndislegur
systkinahópur. Þær systur eins
konar tvíburasálir, saman í nýjum
hlutverkum. Þær ætluðu að ala
stelpurnar sínar upp saman, hlið
við hlið. Systur og frænkur, sam-
ferða í lífinu.
Nú er það hlutverk ástvina
Sunnu að sjá til þess að Katla alist
upp með vitneskju um mömmu
sína, fái að kynnast henni í gegn-
um minningar og kærleika ástvina
sinna. Ástvinir Sunnu munu svo
finna og sjá hana í Kötlu litlu. Það
verður ljúfsárt.
Elsku Ívar, Katla Rannveig,
Júlla og Jói, Sigrún og Freyr, og
allir sem elskuðu Sunnu. Sorg
ykkar er ólýsanleg og ekkert eðli-
legt við þau spor ykkar að vera að
kveðja elsku Sunnu. Tíminn
læknar ekki þessa sorg, þið mun-
uð bara læra að lifa með henni.
Þið eigið þó hvert annað og þar
er styrkurinn ykkar, í fjölskyld-
unni og ástvinum ykkar. Sunna er
og verður alla tíð í hjarta ykkar og
minningum.
Við fjölskyldan vottum ykkur
okkar dýpstu samúð.
Rannveig Ernudóttir.
Elsku Sunna hefur kvatt okkur.
Það er ákaflega erfitt að meðtaka
og trúlega eigum við eftir að læra
það þegar frá líður.
Sunna hefur verið samstarfs-
kona okkar í tæp fjögur ár og fyrir
það erum við þakklát. Hún vann
fyrst fyrir Oculis sem mastersnemi
og því verkefni sinnti hún af mikilli
prýði. Síðar fór hún í doktorsnám
og að því loknu lá beint við að hún
kæmi til okkar.
Sunna bjó klárlega yfir þeirri
þekkingu sem okkur vantaði, við
vissum að hún myndi styrkja okk-
ar litla hóp bæði faglega og fé-
lagslega. Sunna var hreinskiptin í
samskiptum, sinnti verkefnum vel,
mætti þeim af æðruleysi og náði að
setja sig hratt og vel inn í verk-
efnin. Sunna var metnaðarfull,
fann einfaldar lausnir og hugsaði
hlutina til enda.
Sunna sinnti kennslu með námi
sínu, hún átti auðvelt með að miðla
og við nutum góðs af því. Hún var
ætíð tilbúin að aðstoða, hjálpa og
miðla úr eigin viskubrunni.
Reynslan kenndi Sunnu að
njóta þess sem er og líta á björtu
hliðarnar. Fjölskyldan var henni
mjög dýrmæt og naut hún þess að
eiga gæðastundir með henni.
Við sem vorum svo lánsöm að
vinna með Sunnu fengum að fylgj-
ast með Kötlu og viðfangsefnum
þeirra mæðgna í gegnum Sunnu.
Okkur finnst við þekkja Kötlu þó
svo að sum okkar hafi ekki hitt
hana. Sunna naut þess virkilega að
vera mamma og hún var svo þakk-
lát fyrir það bakland sem þau eiga.
Að eiga tvö sett af ömmu og afa er
dásamlegt og Sunna var meðvituð
um það. Þegar Katla var með leik-
skólapest virtist ávallt vera amma
eða afi til staðar. Sunna var einnig
þakklát fyrir Ívar sinn, við fengum
óspart að heyra af matreiðsluhæfi-
leikum hans. Sunna kæmi aðallega
inn í eldhúsið til að borða góðan
mat, það færi betur á að Ívar eldaði.
Það má segja að Sunna hafi
kennt okkur að njóta þess sem er
og vera þakklát. Við munum halda
áfram að njóta þess sem hún hefur
kennt okkur og leiðbeint okkur
með.
Elsku Ívar, Katla, foreldrar,
systkini og fjölskylda Sunnu, við
vottum ykkur samúð okkar.
Guð veri með ykkur og styrki.
Er sárasta sorg okkur mætir,
og söknuður huga vorn grætir.
Þá líður sem leiftur af skýjum,
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(HJH)
Fyrir hönd samstarfsfólks í
Oculis,
Guðrún Marta Ásgrímsdóttir.
Elsku ljúfa, fallega Sunna. Þeg-
ar ég var látin vita af andláti þínu
þá brast eitthvað innra með mér.
Hrikalega getur þetta líf verið
óskiljanlegt og óréttlátt. Seinast
þegar ég var á Íslandi þá varst þú
svo glöð, þú varst svo ánægð með
að vera komin yfir fimm ára mörk-
in. Mörkin sem áttu að vernda þig
fyrir þessum hryllilega sjúkdómi.
Það hvarflaði ekki að mér að þetta
væri ekki búið. Ósanngjarnt, órétt-
látt og óskiljanlegt, orðin sem end-
urtaka sig í hausnum á mér.
Ég á svo margar og skemmti-
legar minningar með þér. Þegar ég
loka augunum og hugsa til þín sé
ég fallegt, breitt og vinalegt bros.
Þú varst alltaf svo hlý, glaðlynd,
róleg og trygg. Þú varst fluggáfuð,
ákveðin, vissir hvað þú vildir,
hörkudugleg og með óútskýran-
lega ofurkrafta. Þú reyndir aldrei
að vera neitt annað en þú sjálf og
ég leit upp til þín á svo margan
hátt. Þú skilur eftir þig stórt skarð
í svo mörgum hjörtum og Folda-
skvísuhópurinn verður aldrei sá
sami án þín. Þú hefur kennt mér
mikilvægi fjölskyldunnar, vina og
að sjá gleðina í hverdagslegum
hlutum.
Ég er þakklát fyrir að hafa
kynnst þér.
Innilegar samúðarkveðjur til
Ívars, Kötlu litlu og fjölskyldu,
hugur minn er hjá ykkur.
Elsku Sunna, ég kveð þig ekki,
ég segi sjáumst seinna.
Þín vinkona,
Líf.
✝
Sigrún Mar-
grét Júl-
íusdóttir, Há-
konarstöðum,
fæddist 25. febrúar
1932 á Akureyri.
Hún lést 9. maí
2021. Foreldrar
hennar voru Júlíus
Davíðsson og Mar-
grét Sigurrós Sig-
fúsdóttir, Ak-
ureyri. Hún átti
einn hálfbróður, Kristján Frí-
mannsson, d. 2010.
Maður hennar var Þórður
Sigvaldason, Há-
konarstöðum, f. 19.
maí 1929. Börn
þeirra: Anna Sig-
urjóna, d. 1959,
Sigvaldi Júlíus,
Gréta Dröfn, Há-
kon Jökull, Reynir,
d. 2002, og
Trausti. Barna-
börnin eru 10 og
barnabarnabörnin
16.
Jarðarför Sigrúnar Mar-
grétar fór fram 22. maí í kyrr-
þey að hennar ósk.
Hinsta stund er runnin upp,
Sigrún systir mín hefur kvatt
þetta líf. Á æskuheimili mínu á
Akureyri kölluðum við hana allt-
af Diddu sem hefur verið barns-
lega útgáfan af „systu“ en aðrir
þekktu hana sem Sillu. Hún kom
til föður síns Júlíusar Davíðsso-
nar og Önnu Helgadóttur eig-
inkonu hans um 12 ára aldur.
Tveimur árum síðar fæddist ég á
heimili þeirra og ólst þar upp
alla tíð. Við tengdust sterkum
böndum þótt aldursmunurinn
væri mikill. Á milli okkar ríkti
órjúfanleg tryggð. Hún hafði alla
tíð sterkar taugar til æskustöðv-
anna á Akureyri og minntist oft
á æskuvinkonurnar, Deddu,
Möggu og Daisy. Hún hafði un-
un af tónlist og fallega söngrödd.
Fyrstu minningar mínar um
hana eru hún að syngja og spila
á gítar – og vinkonurnar að
syngja með. Að loknum skóla fór
hún í kaupavinnu á Möðrudal og
átti þar yndislegan tíma. Vinátt-
an við heimilisfólkið þar hélst
alla tíð. Eftir að hún giftist Þórði
sínum flutti hún á Hákonarstaði
á Jökuldal og varð húsfreyja í
sveit. Þeim varð sex barna auðið
og barnabörnin eru orðin á ann-
an tug. Það var ekki auðvelt að
setjast að á Efra-Jökuldal á 6.
áratugnum, samgöngur lélegar
og veður válynd. Öll aðföng voru
svo erfið að á haustin þurfti að
skipuleggja innkaup fyrir allan
veturinn. Þá kom sér vel hve hún
var útsjónarsöm og smekkleg,
nýtin og úrræðagóð. Sjálfbærni
var lykilatriði og matvæli unnin
á staðnum, veiði nýtt úr heiðinni,
bakstur og matargerð mikið
verk á stóru heimili. Hún hafði
yndi af öllu handverki, málaði,
prjónaði og saumaði fallega
muni bæði á sitt fólk og seldi
stundum á handverksmörkuðum.
Hún systir mín sýndi líka ein-
dæma bjartsýni og þrautseigju
þegar hún kom upp gróðurvin
við bæinn, ræktaði þar tré og
ótrúlegustu plöntur, meðal ann-
ars í heimagerðu gróðurhúsi
þeirra. Innandyra var líka safn
fagurra blóma. Það höfðu ekki
margir trú á að hægt væri að
búa til einstakan unaðsreit svo
nærri Öræfunum.
Systir mín var með létta lund
og notaleg svo fólk laðaðist að
henni. Hún og Þórður voru höfð-
ingjar heim að sækja. Margar
ferðir fór ég til þeirra í æsku og
síðar með mína eigin fjölskyldu.
Þau hjónin áttu sjaldnar heim-
angengt en gaman var að taka á
móti þeim á Akureyri þar sem
þau komu á Willys-jeppa, fullum
af börnum. Í sveitinni varð hver
dagur að ævintýri. Oft var farið
inn á Öræfin að njóta náttúrunn-
ar og kyrrðarinnar eða veiða sil-
ung í vatninu uppi á heiði. Þau
hjónin nutu sín í tónlist, þar sem
Þórður var organisti og kórstjóri
og þau forystufólk í slíku starfi.
Eftir fráfall Þórðar stóð systir
mín styrk og þrautseig sem áð-
ur. Síðustu ár fór minnið og
heilsan að gefa sig, en hún naut
umönnunar á Dyngju þótt hug-
urinn væri alltaf heima í sveit-
inni.
Systir mín gat litið stolt yfir
farinn veg og verið hreykin af af-
komendum sínum. Ég er þakklát
fyrir samleið okkar í þessu lífi og
áfram nýt ég tryggðar og vináttu
afkomenda þeirra. Við vitum að
nú syngja þau saman hjónin í
sumarlandinu.
Góða ferð mín elskulega og
takk fyrir allt.
Þín systir,
Valdís.
Sigrún Margrét
Júlíusdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR,
Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði
föstudaginn 21. maí. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Ási fyrir einstaka umönnun
og hlýtt viðmót.
Magnús Haukur Hannesson Hrönn Þorsteins
Þorvaldur Hannesson Ingveldur Sigurðardóttir
Inga Lóa Hannesdóttir Svanur Kristinsson
og barnabörn
Ástvinir þakka auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
JÓNS TÓMASSONAR,
Hafnarstræti 21, Akureyri,
sem lést 14. apríl.
Þórey Bergsdóttir
Tómas Jónsson Helga Margrét Sigurðardóttir
Ragnhildur Jónsdóttir
Bergur Jónsson Guðrún Hallfríður Björnsdóttir
Kristín B. Jónsdóttir Tryggvi Haraldsson