Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 42
42 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
60 ÁRA Jónas Geirsson er fæddur og
uppalinn í Reykjavík, en býr á Akra-
nesi. Hann lauk námi í tannlækningum
frá HÍ og meistaranámi í tannfyllingu
og tannsjúkdómafræði frá Háskól-
anum í Norður-Karólínu, BNA. Jónas
hefur verið tannlæknir á Akranesi frá
1988 og lektor við tannlæknadeild HÍ
frá 2006.
Jónas hefur setið í stjórn Stangveiðifélags Akraness í um 30 ár og einnig í
stjórn Landssambands stangveiðifélaga. „Ég var að koma frá Laxá í Mývatns-
sveit en ég byrja alltaf tímabilið þar, næst á dagskrá er opnun Veiðivatna. Ég
hef mjög gaman af veiðiskap, bæði stangveiði og skotveiði. Ég hef reyndar
gaman af allri útivist og er þessa stundina að byggja sumarbústað í Hafnar-
skógi.“ Jónas hefur verið knattspyrnudómari frá 1992. „Þetta er skemmtilegt
starf í góðum félagsskap auk þess að halda manni í þokkalegu formi.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Jónasar er Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir, f. 1964,
upplýsingafræðingur. Börn þeirra eru Trausti Geir, f. 1990, og Dagmar Elsa,
f. 1993. Foreldrar Jónasar voru Geir Christensen, f. 1927, d. 2012, rafvirkja-
meistari og útsendingarstjóri í Ríkisútvarpinu, og Guðrún Eðvaldsdóttir, f.
1937, húsmóðir, búsett í Reykholti í Biskupstungum.
Jónas Geirsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þótt sumum þyki nóg um þá
ábyrgð sem þér er falin þarftu ekkert að
óttast, því þú ert maður fyrir þinn hatt.
20. apríl - 20. maí +
Naut Misstu aldrei trúna á sjálfan þig,
þótt einhver ský kunni að draga upp á
himininn. Byrjaðu smátt og auktu svo
álagið, ekki reyna of mikið á þig.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Beindu orkunni sem er allt um
kring þessa dagana í réttan farveg í
vinnunni. Kannski kynnist þú nýrri mann-
eskju fyrir vikið.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þótt þér séu allir vegir færir þarft
þú eins og aðrir að fá hrós og uppörvun
af og til. Leggðu áherslu á að umgangast
aðeins jákvætt fólk.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er mikil spenna milli þín og
kunningja þíns og þú þarft að komast að
því hvað veldur henni. Taktu þér tíma til
að kanna stöðuna. Gerðu ekki ráð fyrir
neinum skyndilausnum.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þegar málin eru skoðuð ofan í kjöl-
inn muntu sjá að eitthvað reynist ekki
eins eftirsóknarvert og þér fannst í upp-
hafi. Horfstu í augu við staðreyndirnar
eins og þær eru.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Nú ríður á að þú haldir fast við þitt
og látir ekki smáatriðin trufla þig. Eitt og
annað skemmtilegt verður á döfinni í
sumar.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Ánægja og hamingja koma
ekki alltaf frá einhverju áþreifanlegu, held-
ur líka frá fyrirbærum eins og undir-
meðvitund og ímyndunarafli.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Allir leita til þín í dag. Gefðu
þér því nægan tíma. Einnig er ráð að setj-
ast að spjalli með fjölskyldunni.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Fallegar hugsanir, sem áður
komu af sjálfsdáðum, láta nú á sér standa
vegna flókinna tilfinninga í garð einhvers.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú verður að læra að viður-
kenna mistök þín og síðan vilja leiðrétta
þau eftir fremsta megni. Fyrsta skrefið
gæti verið að standa undir ábyrgðinni.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú ert hvorki betri né verri en þú
vilt vera og átt því að horfast í augu við
sjálfan þig og sannleikann um líf þitt.
allra fyrst á veðurfarsdeild, en síðan
aftur á Keflavíkurflugvelli, um fimm
vikum áður en spástarfsemi þar var
flutt til Reykjavíkur – hinn 1. júlí 1979.
Hann vann síðan á spádeild Veðurstof-
unnar til aprílloka 1985. Fór þá aftur á
veðurfarsdeildina og varð deildarstjóri
þar 1988 og síðan forstöðumaður úr-
vinnslu- og rannsóknasviðs 1994. „Í
þeirri stöðu var ég til ársloka 2003 – en
gerðist þá aftur óbreyttur sérfræð-
ingur á sviðinu og hef verið þar síðan.
þrasgjörn vinna. Ég hef mikla
ánægju af veiðimannatali, bæði
stangveiði og netaveiði, en hef þó
aldrei haldið á stöng eða dregið net.
Eitt sumarið vann ég á veðurstofunni
á Keflavíkurflugvelli. Vildi ekki hafa
misst af því, áttaði mig á þeim þjóð-
sagnakenndu aðstæðum sem þar
ríktu og fræddist lítillega um innviði
bandaríska hersins.“
Trausti byrjaði í janúar 1979 að
vinna á Veðurstofunni í Reykjavík,
T
rausti Jónsson fæddist 5.
júní 1951 í gamla póst- og
símstöðvarhúsinu í Borg-
arnesi. „Ég ólst upp í for-
eldrahúsum á Miðnes-
klettum í Borgarnesi, kynntist þar
vel veðri, vindum og sjávarföllum –
en þau réðu oft leikjum í fjöru og á
leirum. Gamli miðbærinn í Borg-
arnesi og Brákarey voru full af iðandi
mannlífi og margt að sjá. Flóabát-
arnir, Laxfoss, síðan Eldborg og
Akraborg komu með fólk og varning
– einnig komu þar erlend skip. Allt
blasti við úr gluggunum og af hólnum
heima. Fjölskyldan dvaldist allmörg
sumur í skólunum á Varmalandi í
Stafholtstungum, því þar og á Lauga-
landi stóðu yfir margs konar fram-
kvæmdir sem faðir minn tók þátt í.
Þar var gott að vera.“
Trausti gekk í barnaskóla í Borg-
arnesi og síðan í Miðskóla Borgar-
ness (eins og það þá hét). „Ég lenti
síðan í Menntaskólanum á Akureyri,
þar sem móðir mín hafði verið við
nám 30 árum áður. Þar bjó ég lengst
af á gömlu heimavist skólans – í
skólahúsinu sjálfu – við mjög félags-
lega þroskandi aðstæður. Ég er
þakklátur mínum gömlu félögum og
kennurum fyrir árin þau. Gott var
einnig að kynnast norðlensku veðri af
eigin raun, en óvenjukalt og illviðra-
samt var á Akureyri þessi ár, hafís-
árin svonefndu. „Linduveðrið“ svo-
nefnda er þar sérlega minnisstætt.
Ég lauk stúdentsprófi vorið 1970 og
fór eftir það til útlanda í fyrsta sinn,
vestur til Ameríku. Var jafnvel að
hugsa um að halda þangað til náms.“
Litið til veðurs
„Veturinn 1970 til 1971 kenndi ég
stærðfræði og slíkt við Héraðsskól-
ann á Laugarvatni. Það var afskap-
lega lærdómsríkur tími með góðu
fólki. Síðla sumars var haldið til náms
í Noregi, fyrstu tvö árin rúm í Ósló og
síðan í Bergen. Gekk það nokkuð
sæmilega greiðlega fyrir sig og end-
aði með embættisprófi (já, það heitir
það) í veðurfræði undir jól 1978.
Norðmenn reyndust mér vel. Á
sumrin var ég heima, flest sumurin
við veiðieftirlit í Borgarfirði. Það var
skemmtileg, en stöku sinnum nokkuð
Formleg starfslok eru nú við sjón-
deildarhring.“
Trausti kom nærri fjölmörgum
málum á Veðurstofunni. „Ég kalla
mig þó gjarnan gagnahirði, hef unnið
mjög mikið að rannsóknum á eldri
gögnum og sögu veðurs- og veður-
athugana í landinu. Á árunum 1988
og vel fram yfir aldamót tók ég mjög
virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi um
slík efni og ritaði eða tók þátt í að rita
fjölmargar greinar sem birtust í svo-
kölluðum alþjóðlegum ritrýndum
tímaritum. Furðumikið hefur verið
vitnað í sumar þessara greina. Snjó-
flóðin miklu og aðgerðir vegna þeirra
lentu mjög í mínum höndum á ár-
unum 1994 og fram yfir aldamótin og
tók skipulagning aðkomu Veður-
stofunnar þá umtalsverðan hluta af
tíma mínum. Stjórnunarumstangið
varð að lokum það mikið að velja
þurfti á milli áframhaldandi stjórn-
unarframa eða vinnu við veðurfræði
og veðurgögn. Valið varð ekki erfitt.“
Árið 2010 stofnaði Trausti bloggið
„hungurdiskar“, sem síðan hefur ver-
ið vistað á Morgunblaðinu. „Er ég
þakklátur blaðinu og starfsmönnum
þar fyrir greiðasemi og vinsemd.
Pistlarnir eru nú nærri 3.000 talsins
og fylla um 20 allþykk prentuð bindi.
Trausti Jónsson veðurfræðingur – 70 ára
Veðurfræðingurinn Spáð í veður sumarsins með nýjustu slembiaðferðum.
Gagnahirðir í veðri og tónlist
Tónlistargrúskarinn Eftir vel heppnaða tónleika í Borgarnesi árið 2016.
Til hamingju með daginn
Á morgun, 6. júní, eiga
hjónin Sölvi Víkingur
Aðalbjarnarson og
Sigurborg Sigurbjörns-
dóttir sjötíu ára brúð-
kaupsafmæli. Þau eru ein
af frumbyggjum Egils-
staðakauptúns en dvelja
nú á dvalarheimilinu
Fossahlíð á Seyðisfirði.
Platínubrúðkaup
SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS
VOLVO XC60
MOMENTUM
Raðnúmer 280238
Nýskráður 7/2018
Akstur 42 þ.km.
Dísel
Fjórhjóladrif
Sjálfskipting
191 hestöfl
5 manna
Næsta skoðun 2022
Aðgerðahnappar í stýri
Bakkmyndavél
Bluetooth
Dráttarkrókur (aftengjanlegur)
Fjarlægðarskynjarar aftan
Glerþak
Heilsársdekk
Hiti í fram- og aftursætum
Hraðastillir
Hraðatakmarkari
ISOFIX festingar í aftursætum
Leðuráklæði
Loftkæling
Lykillaus ræsing
Rafdrifin framsæti
Rafdrifin handbremsa
Regnskynjari
Reyklaust ökutæki
Stafrænt mælaborð
Start/stop búnaður
Tveggja svæða miðstöð
USB tengi
Verð 7.790.000 kr.