Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 43

Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 43
DÆGRADVÖL 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HÆTTU ÞESSU BAULI – FYRR GET ÉG EKKI HJÁLPAÐ ÞÉR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að uppskera eins og maður sáir til. ÉGÆTLA Í GÖNGUTÚR VILJANDI? HRÓLFUR, MIG LANGAR TIL AÐ HRÓSA ÞÉR! EN HVENÆRÆTLAR ÞÚ AÐ GEFA MÉR ÁSTÆÐU TIL ÞESS? „ÞETTA ER FYRIR VESALINGS DÝRIN – OG FYRIR AÐ HUNSA MIG.“ Held því fram að þar sé samankom- inn mesti fróðleikur fyrr og síðar um bæði veðurfar og sögu veðurfars á Ís- landi.“ Trausti hefur einnig svarað fjölmörgum spurningum á Vísindavef Háskóla Íslands. Ríkisútvarpið og tónlistin Trausti stundaði veðurspár í sjón- varpi frá ágúst 1979 til ársloka 1983 og síðan aftur 1989-1994 og 1998- 2005. „Hjá Ríkisútvarpinu var gott að vinna á þessum árum. Kynni mín af góðu fólki þar leiddu til þess að ég fékk góðan farveg fyrir vinnu að öðru áhugamáli, tónlist og tónlistarsögu. Sá ég (ásamt öðrum) um nærri 100 þætti um slík efni í útvarpi, auk þess að koma nærri fáeinum sjónvarps- þáttum, bæði sem stjórnandi og þátt- takandi. Starfsfólki útvarpsins á ég mikið að þakka. Sömuleiðis hef ég séð um efnisval á fjölmargar endurútgáfur gamalla hljóðritana, fyrst á plötur en síðan diska. Þetta leiddi síðan til kynna minna við Jónas Ingimundarson Trausti Jónsson Kristín Árnadóttir húsfreyja á Akranesi Sigurður Jónsson sjómaður og fiskmatsmaður á Akranesi Júlíana Sigurðardóttir húsfreyja og símamær í Borgarnesi Þorkell Teitsson póst- og símstöðvarstjóri í Borgarnesi Oddný Kristín Þorkelsdóttir húsfreyja í Borgarnesi Oddný Jónsdóttir húsfreyja í Borgarnesi Teitur Jónsson umboðsmaður, hafnsögumaður o.fl. í Borgarnesi Katrín Jónsdóttir húsfreyja Ólafur Brandsson bóndi, lengst á Vatni í Haukadal Solveig Ólafsdóttir húsfreyja á Núpi Guðmundur Guðmundsson bóndi á Núpi í Haukadal, Dal. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja Guðmundur Jónsson bóndi, síðast á Núpi Úr frændgarði Trausta Jónssonar Jón Kr. Guðmundsson pípulagningameistari í Borgarnesi píanóleikara og sameiginlegs átaks til bæði tónleikahalds og útgáfu á ís- lenskum einsöngslögum. Allvel hefur miðað og mörgum að þakka. Ég stússa enn við þessi tónleika-, hljóm- plötu- og nótnaútgáfumál í tóm- stundum.“ Trausti starfaði talsvert að félags- málum á fyrri árum, sat t.d. lengi í stjórn Félags íslenskra náttúru- fræðinga á níunda og tíunda áratug aldarinnar og var varaformaður um tíma. Hann sat um stund í ritstjórn Náttúrufræðingsins. Fjölskylda Systur Trausta eru Oddný Sólveig Jónsdóttir, f. 10.12. 1952, starfsmaður Landbúnaðarháskóla Íslands, býr á Hvanneyri; og Júlíana Jónsdóttir, f. 19.12. 1959, skrifstofumaður, býr í Borgarnesi. Foreldrar Trausta voru hjónin Jón Kr. Guðmundsson, f. 2.3. 1923, d. 19.5. 2004, pípulagningameistari í Borgar- nesi, og Oddný Kristín Þorkelsdóttir, f. 18.8. 1920, d. 12.3. 2017, húsmóðir. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Brennandi kennd í brjósti þér. Bana það hefur í för með sér. Tilþrifamikið áhlaup er. Einlægt hún kisa þangað fer. Þessi er lausn Hörpu á Hjarð- arfelli: Ástarskot í brjósti brann. Byssuskotið drepa kann. Skot að marki áhlaup er. Út í skotið kisa fer. Eysteinn Pétursson svarar og segir: „Þótt ótrúlegt sé kom þetta næstum eins og skot“: Skot er skammvinn ást. Skot til veiða fást. Skot við skatnar kljást. Í skoti kisa sást. Hér er lausn Helga Þorláks- sonar: Ástarskotið örvar þrá, illt þó skot í brjóst að fá, skot er áhlaup veðurs víst, vel hefur skotið kisu nýst. Svona hljómar lausnin hjá Helga R. Einarssyni þessa vikuna: Skotinn í vífi er ver. Voðaskotin forðast ber. Skotið veðuráhlaup er. Ætíð kisa’ í skotið fer. Guðrún B. svarar: Með ástarskot augum rennir. Andlát var bringuskot. Af mörgu markskoti brennir. Mjálmar í skoti got. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una svona: Skot er brennheit í brjósti þrá. Bana af skoti ýmsir fá. Skot er hretviðri hausti á. Hírast í skoti köttur má. Þá er limra: Er skotbyrgið nálgaðist Skjalda, hún skildi, hvað myndi valda að lá þangað leið, en leist hún ei greið, í móinn hún fór þá að malda. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Óskaplega andríkar, að eigin mati vinsælar berast frá mér bráðsnjallar í böguformi gáturnar: Vopn í hendi vera kann. Vel í eldstó logar hann. Eldur líka er með sann. Ástir við menn kenndu þann. Gömul vísa að lokum: Forlög koma ofan að, örlög kringum sveima, álögin úr ýmsum stað, en ólög fæðast heima. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þeim varð ekki skotaskuld úr því AUÐVELT, FLJÓTLEGT OG ÖFLUGT BYGGINGAKERFI Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR R NÝ VEFVERSLUNdvergarnir.is Bestu undirstöðurnar fyrir: SÓLPALLINN SUMARHÚSIÐ GIRÐINGUNA SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND ÞEGAR VERSLAÐ ER Á DVERGARNIR.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.