Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Eru sparifötin
hrein?
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sumarsýningarnar Róska – Áhrif og
andagift, Iðustreymi og Yfirtaka
verða opnaðar í dag kl. 15 í Listasafni
Árnesinga í Hveragerði. Ástríður
Magnúsdóttir er sýningarstjóri
þeirrar fyrstnefndu og miðlar með
henni baráttuanda Rósku og mynd-
heimi sem var allt í senn marglaga,
einlægur og ögrandi. Á sýningunni
Iðustreymi má sjá verk myndlistar-
kvennanna í Gjörningaklúbbnum og
Katrínar Gunnlaugsdóttur, Katrínar
Elvarsdóttur og Söru Björnsdóttur
og einnig ljóð gjörningaskáldsins og
rithöfundarins
Elísabetar Jök-
ulsdóttur. Sýn-
ingarstjórar Iðu-
streymis eru
Kristín Scheving,
forstöðumaður
safnsins, og Ást-
ríður. Þriðja sýn-
ingin, Yfirtaka,
hefst með sam-
nefndum þátt-
tökugjörningi
Önnu Kolfinnu Kuran sem gerir til-
raunir til að taka yfir rými með hjálp
kvenna úr ólíkum áttum samfélags-
ins og þá bæði við opnun sýninganna
og í vídeóverki. Eina sýningu má svo
nefna til viðbótar, svokallaða pop-up-
sýningu í tilefni af 40 ára afmæli
Leirlistafélags Íslands sem nefnist
Hvítur.
Marglaga myndheimur Rósku
Róska var listamannsnafn Ragn-
hildar Óskarsdóttur sem fæddist árið
1940 en hún lést aðeins 56 ára að
aldri árið 1996. Róska var áhrifamik-
ill myndlistarmaður í íslenskri lista-
sögu og tengingar má finna milli fjöl-
breyttra verka hennar og hinna
sýninganna í safninu.
Ástríður segir Kristínu safnstjóra
hafa komið að máli við sig varðandi
að stýra sýningu á verkum Rósku, og
þar sem hún hefur mikinn áhuga og
dálæti á listakonunni og verkum
hennar tók hún verkefnið að sér án
þess að hugsa sig um. Ástríður þekk-
ir afar vel til listsköpunar Rósku þar
sem hún skrifaði um hana BA-ritgerð
í lok náms í listasögu og listfræði við
Háskóla Íslands. „Hún er ein af mín-
um uppáhalds íslensku listakonum.
Ég tók kynjafræði sem aukafag í
náminu og fór að rýna í verk hennar
og sögu út frá femínískri listfræði og
listasögu. Mér fannst mjög áhuga-
vert hvernig hún tókst á við að vera
skapandi listakona í karllægum
heimi myndlistar á seinni hluta síð-
ustu aldar. Verk hennar tala til mín
því þau eru kraftmikil, róttæk, falleg
og heiðarleg. Róska endurspeglar
eigin hugarheim og hugarheim
kvenna á bersöglan og róttækan
hátt, í marglaga verkum sem eru
unnin í ólíka miðla. Hún hafði ein-
stakt lag á að miðla því sem skipti
hana máli, og fyrir Rósku var lífið og
listin í raun sami hluturinn. Næmið,
fagurfræðin og náðargáfa hennar
skín úr hverju verki, þau búa yfir
andstæðum, sannleika og sögu; sögu
samfélags og hennar eigin sögu.
Verkin eru það sterk að úr verður
samtal sem mér finnst magnað, sam-
tal milli áhorfandans og Rósku,“ seg-
ir Ástríður.
Ástríður talar um að það sé mikill
heiður að fá að setja upp sýningu á
verkum Rósku í Listasafni Árnes-
inga og kynnast listsköpun hennar
enn betur. „Við Kristín höfum síðan
verið í góðu samtali og teymisvinnu
við undirbúning Iðustreymis og völd-
um í sameiningu þær listakonur sem
okkur þótti ríma við hugmyndafræði
og róttækni Rósku, listakonur sem
hafa orðið fyrir áhrifum frá henni eða
hennar líkum og vinna með þá miðla
sem Róska var óhrædd við að til-
einka sér í sinni listsköpun, bæði sem
aðgerðasinni og listamaður.“
Ástríður segir allar listakonurnar
búa yfir álíka eldmóði og Róska gerði
sem var ögrandi og heillandi og hik-
aði hvergi í sköpunarferlinu. „Mark-
miðið með sýningunni er að gera
Rósku hátt undir höfði og sýna fjöl-
breytt og einstök verk frá ferli henn-
ar og skoða áhrifin og innblástur sem
leyna sér ekki í verkum samtíma-
listamanna. Áhrifin sem sterkt, ein-
lægt og kröftugt myndlistarverk get-
ur haft á einstaklinga og samfélag
eru einstök og mikilvæg, eins og list-
sköpun og aðgerðir Rósku,“ segir
Ástríður.
Bersögul og blátt áfram
Ástríður segir að þeim Kristínu
hafi þótt spennandi að rýna í þau
áhrif sem Róska og framsæknar
listakonur höfðu á samtíðarmenn og
komandi kynslóðir listamanna.
Áhrifin eru greinileg á sýningunum
þremur sem nú eru opnaðar í Lista-
safni Árnesinga og úr verður samtal
sem einkennist af hugarheimi og
orku kvenna, róttækni, framúrstefnu
og einlægni sem streymi frá og á
milli verka þeirra allra. „Þú byggir
alltaf á sögunni, því sem hefur verið
gert og því sem hefur haft áhrif á þig,
hugmyndir koma til þín og blandast
þínum hugðarefnum og áherslum og
til verður nýtt sköpunarverk, sem
byggist á fortíð og nútíð en færir
okkur til framtíðar. Áhrifin end-
urspeglast kristaltært í verkunum,
þróuninni og samtalinu sem á sér
stað. Á sýningunum finnst okkur
skapast mengi og flæði sem vísar í
þessi áhrif,“ segir Ástríður og nefnir
verk Gjörningaklúbbsins og Katrínar
Elvarsdóttur sem dæmi. Hún segir
vídeóverk Gjörningaklúbbsins tákn-
mynd barráttuandans sem rísi upp
úr hafinu sem innblástur fyrir þá um-
breytingu sem konur séu að upplifa í
samtímanum, undir áhrifum bylt-
ingar- og baráttuanda gegn óréttlæti
og ofbeldi. Ljósmyndir Katrínar séu
hlaðnar sögu og minningum og rími
við myndheim og ljósmyndir Rósku.
„Hugarheimur kvenna og tungu-
málið er einnig áberandi í nútíma-
legum útsaumsverkum Katrínar
Gunnlaugsdóttur og beinskeyttum
textaverkum Söru Björnsdóttur.
Bersögul og framúrstefnuleg ljóð og
gjörninga-skáldskapur Elísabetar
Jökuls rammar inn sterka kvenorku
og einlægni sem einkennir verk allra
listkvennanna á sumarsýningunum í
Listasafni Árnesinga,“ segir Ástríð-
ur.
Ósýnd verk í einkaeigu
Nokkur verka Rósku á sýningunni
hafa ekki verið sýnd áður og verða nú
sýnd í flæði við þekktari verk eftir
hana. Ástríður segist hafa fundið
þessi verk, sem eru flest í einkaeigu,
við rannsóknarvinnu fyrir sýninguna
sem nær allt aftur til vormánaða í
fyrra. Verkin á sýningunni eru því
bæði í einkaeigu og frá söfnum, m.a.
fengin að láni hjá Listasafni Íslands,
Listasafni Reykjavíkur og Nýlista-
safninu, sem Róska átti þátt í að
stofna. Afraksturinn er Róska eins
og Ástríður vildi sýna listakonuna.
„Þetta er algjört draumaverkefni,
það er búið að vera sérstaklega gam-
an að vinna með mögnuðu teymi í
Listasafni Árnesinga, leita verka á
söfnum og í einkaeigu, spjalla við vini
og samtíðarmenn Rósku og sjá sýn-
inguna verða til. Ég er spennt að
sýna afraksturinn, ég er nokkuð viss
um að Róska hefur verið með okkur í
ferlinu og ég vona að hún sé ánægð,“
segir Ástríður að lokum og tilhlökk-
unin leynir sér ekki.
Síðasta hálmstráið Eitt verkanna á sýningunni um Rósku, frá árinu 1969.
Aqua Maria Úr vídeóverki Gjörningaklúbbsins á sýningunni Iðustreymi.
Yfirtaka Verk Önnu Kolfinnu Kuran er röð gjörninga þar sem markmiðið
er að fylla ólík rými með kvenorku og líkömum, eins og segir á vef safnsins.
Ástríður
Magnúsdóttir
„Algjört draumaverkefni“
- Þrjár sumarsýningar verða opnaðar í Listasafni Árnesinga í dag - Róska, samsýning listakvenna
og þátttökugjörningur - Sannleikur og heiðarleiki, segir Ástríður Magnúsdóttir um verk Rósku