Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sumarsýningarnar Róska – Áhrif og andagift, Iðustreymi og Yfirtaka verða opnaðar í dag kl. 15 í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Ástríður Magnúsdóttir er sýningarstjóri þeirrar fyrstnefndu og miðlar með henni baráttuanda Rósku og mynd- heimi sem var allt í senn marglaga, einlægur og ögrandi. Á sýningunni Iðustreymi má sjá verk myndlistar- kvennanna í Gjörningaklúbbnum og Katrínar Gunnlaugsdóttur, Katrínar Elvarsdóttur og Söru Björnsdóttur og einnig ljóð gjörningaskáldsins og rithöfundarins Elísabetar Jök- ulsdóttur. Sýn- ingarstjórar Iðu- streymis eru Kristín Scheving, forstöðumaður safnsins, og Ást- ríður. Þriðja sýn- ingin, Yfirtaka, hefst með sam- nefndum þátt- tökugjörningi Önnu Kolfinnu Kuran sem gerir til- raunir til að taka yfir rými með hjálp kvenna úr ólíkum áttum samfélags- ins og þá bæði við opnun sýninganna og í vídeóverki. Eina sýningu má svo nefna til viðbótar, svokallaða pop-up- sýningu í tilefni af 40 ára afmæli Leirlistafélags Íslands sem nefnist Hvítur. Marglaga myndheimur Rósku Róska var listamannsnafn Ragn- hildar Óskarsdóttur sem fæddist árið 1940 en hún lést aðeins 56 ára að aldri árið 1996. Róska var áhrifamik- ill myndlistarmaður í íslenskri lista- sögu og tengingar má finna milli fjöl- breyttra verka hennar og hinna sýninganna í safninu. Ástríður segir Kristínu safnstjóra hafa komið að máli við sig varðandi að stýra sýningu á verkum Rósku, og þar sem hún hefur mikinn áhuga og dálæti á listakonunni og verkum hennar tók hún verkefnið að sér án þess að hugsa sig um. Ástríður þekk- ir afar vel til listsköpunar Rósku þar sem hún skrifaði um hana BA-ritgerð í lok náms í listasögu og listfræði við Háskóla Íslands. „Hún er ein af mín- um uppáhalds íslensku listakonum. Ég tók kynjafræði sem aukafag í náminu og fór að rýna í verk hennar og sögu út frá femínískri listfræði og listasögu. Mér fannst mjög áhuga- vert hvernig hún tókst á við að vera skapandi listakona í karllægum heimi myndlistar á seinni hluta síð- ustu aldar. Verk hennar tala til mín því þau eru kraftmikil, róttæk, falleg og heiðarleg. Róska endurspeglar eigin hugarheim og hugarheim kvenna á bersöglan og róttækan hátt, í marglaga verkum sem eru unnin í ólíka miðla. Hún hafði ein- stakt lag á að miðla því sem skipti hana máli, og fyrir Rósku var lífið og listin í raun sami hluturinn. Næmið, fagurfræðin og náðargáfa hennar skín úr hverju verki, þau búa yfir andstæðum, sannleika og sögu; sögu samfélags og hennar eigin sögu. Verkin eru það sterk að úr verður samtal sem mér finnst magnað, sam- tal milli áhorfandans og Rósku,“ seg- ir Ástríður. Ástríður talar um að það sé mikill heiður að fá að setja upp sýningu á verkum Rósku í Listasafni Árnes- inga og kynnast listsköpun hennar enn betur. „Við Kristín höfum síðan verið í góðu samtali og teymisvinnu við undirbúning Iðustreymis og völd- um í sameiningu þær listakonur sem okkur þótti ríma við hugmyndafræði og róttækni Rósku, listakonur sem hafa orðið fyrir áhrifum frá henni eða hennar líkum og vinna með þá miðla sem Róska var óhrædd við að til- einka sér í sinni listsköpun, bæði sem aðgerðasinni og listamaður.“ Ástríður segir allar listakonurnar búa yfir álíka eldmóði og Róska gerði sem var ögrandi og heillandi og hik- aði hvergi í sköpunarferlinu. „Mark- miðið með sýningunni er að gera Rósku hátt undir höfði og sýna fjöl- breytt og einstök verk frá ferli henn- ar og skoða áhrifin og innblástur sem leyna sér ekki í verkum samtíma- listamanna. Áhrifin sem sterkt, ein- lægt og kröftugt myndlistarverk get- ur haft á einstaklinga og samfélag eru einstök og mikilvæg, eins og list- sköpun og aðgerðir Rósku,“ segir Ástríður. Bersögul og blátt áfram Ástríður segir að þeim Kristínu hafi þótt spennandi að rýna í þau áhrif sem Róska og framsæknar listakonur höfðu á samtíðarmenn og komandi kynslóðir listamanna. Áhrifin eru greinileg á sýningunum þremur sem nú eru opnaðar í Lista- safni Árnesinga og úr verður samtal sem einkennist af hugarheimi og orku kvenna, róttækni, framúrstefnu og einlægni sem streymi frá og á milli verka þeirra allra. „Þú byggir alltaf á sögunni, því sem hefur verið gert og því sem hefur haft áhrif á þig, hugmyndir koma til þín og blandast þínum hugðarefnum og áherslum og til verður nýtt sköpunarverk, sem byggist á fortíð og nútíð en færir okkur til framtíðar. Áhrifin end- urspeglast kristaltært í verkunum, þróuninni og samtalinu sem á sér stað. Á sýningunum finnst okkur skapast mengi og flæði sem vísar í þessi áhrif,“ segir Ástríður og nefnir verk Gjörningaklúbbsins og Katrínar Elvarsdóttur sem dæmi. Hún segir vídeóverk Gjörningaklúbbsins tákn- mynd barráttuandans sem rísi upp úr hafinu sem innblástur fyrir þá um- breytingu sem konur séu að upplifa í samtímanum, undir áhrifum bylt- ingar- og baráttuanda gegn óréttlæti og ofbeldi. Ljósmyndir Katrínar séu hlaðnar sögu og minningum og rími við myndheim og ljósmyndir Rósku. „Hugarheimur kvenna og tungu- málið er einnig áberandi í nútíma- legum útsaumsverkum Katrínar Gunnlaugsdóttur og beinskeyttum textaverkum Söru Björnsdóttur. Bersögul og framúrstefnuleg ljóð og gjörninga-skáldskapur Elísabetar Jökuls rammar inn sterka kvenorku og einlægni sem einkennir verk allra listkvennanna á sumarsýningunum í Listasafni Árnesinga,“ segir Ástríð- ur. Ósýnd verk í einkaeigu Nokkur verka Rósku á sýningunni hafa ekki verið sýnd áður og verða nú sýnd í flæði við þekktari verk eftir hana. Ástríður segist hafa fundið þessi verk, sem eru flest í einkaeigu, við rannsóknarvinnu fyrir sýninguna sem nær allt aftur til vormánaða í fyrra. Verkin á sýningunni eru því bæði í einkaeigu og frá söfnum, m.a. fengin að láni hjá Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur og Nýlista- safninu, sem Róska átti þátt í að stofna. Afraksturinn er Róska eins og Ástríður vildi sýna listakonuna. „Þetta er algjört draumaverkefni, það er búið að vera sérstaklega gam- an að vinna með mögnuðu teymi í Listasafni Árnesinga, leita verka á söfnum og í einkaeigu, spjalla við vini og samtíðarmenn Rósku og sjá sýn- inguna verða til. Ég er spennt að sýna afraksturinn, ég er nokkuð viss um að Róska hefur verið með okkur í ferlinu og ég vona að hún sé ánægð,“ segir Ástríður að lokum og tilhlökk- unin leynir sér ekki. Síðasta hálmstráið Eitt verkanna á sýningunni um Rósku, frá árinu 1969. Aqua Maria Úr vídeóverki Gjörningaklúbbsins á sýningunni Iðustreymi. Yfirtaka Verk Önnu Kolfinnu Kuran er röð gjörninga þar sem markmiðið er að fylla ólík rými með kvenorku og líkömum, eins og segir á vef safnsins. Ástríður Magnúsdóttir „Algjört draumaverkefni“ - Þrjár sumarsýningar verða opnaðar í Listasafni Árnesinga í dag - Róska, samsýning listakvenna og þátttökugjörningur - Sannleikur og heiðarleiki, segir Ástríður Magnúsdóttir um verk Rósku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.