Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 56
Samstarfsverkefninu Global
Music Match var hleypt af
stokkunum í fyrra og þótti
heppnast afar vel og verður
því endurtekið í ár og hefst
7. júní. Í því taka þátt 78 tón-
listarmenn frá 17 löndum og
fjórum heimsálfum og fyrir
Íslands hönd verður það Ösp
Eldjárn. Er þetta talið
stærsta tónlistarsamstarfsverkefni heims og næstu
þrjá mánuði mun Ösp vinna með fjölda tónlistarmanna
að tónlist yfir samfélagsmiðla, að því er segir í tilkynn-
ingu. Markmiðið er að stuðla að áframhaldandi upp-
byggingu tónlistarfólks innan þjóðlagatónlistar á tím-
um heimsfaraldursins. Í fyrra tóku Svavar Knútur, Brek
og Ásgeir Ásgeirsson þátt í verkefninu fyrir Ísland.
Global Music Match hefst mánudaginn 6. júní og
stendur til 29. ágúst. Finna má frekari upplýsingar á
globalmusicmatch.com og með því að skoða #Global-
MusicMatch á samfélagsmiðlum.
Ösp Eldjárn tekur þátt í stærsta
tónlistarsamstarfsverkefni heims
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 156. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Stjarnan komst í gærkvöld í undanúrslit Íslandsmóts
karla í handknattleik á afar dramatískan hátt en
Garðbæingar unnu tveggja marka sigur á Selfossi eftir
að hafa tapað fyrri leiknum á heimavelli með sama
mun. Fleiri mörk á útivelli fleyttu Stjörnunni áfram og
liðið mætir nú Haukum. Valur vann hins vegar öruggan
sigur á KA, samtals með tíu mörkum í tveimur leikjum,
og mætir Eyjamönnum. »44
Stjarnan og Valur í undanúrslitin
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Heimsmeistaramót eldri keppenda í
badminton (BWF World Senior
Championships) fer fram á Spáni í
desember næstkomandi og þar ætl-
ar Elsa Nielsen sér stóra hluti. „Ég
stefni á að verða heimsmeistari í ein-
liðaleik í flokki 45 ára og eldri,“ segir
hún, en Elsa varð fyrst Íslands-
meistari í einliðaleik kvenna 1991, þá
16 ára, og fagnaði sigri í tvíliðaleik
kvenna ásamt Drífu Harðardóttur á
Íslandsmótinu um liðna helgi. Þá
voru 19 ár frá því hún varð síðast Ís-
landsmeistari, í tvenndarleik með
Tryggva, bróður sínum.
„Þetta var óvænt ánægja,“ segir
Elsa um nýjasta Íslandsmeistaratit-
ilinn, 30 árum eftir að hún fagnaði
þeim fyrsta. Miðjubarnið hafi verið
að útskrifast úr Verzlunarskólanum
um helgina og því hafi hún þurft að
hugsa sig um þegar Drífa, sem
venjulega spili með Erlu Hafsteins-
dóttur, hafi hringt og beðið sig að
spila með sér þar sem Erla væri
meidd. „2002 var ég ófrísk að dóttur
minni, sem var að útskrifast núna,
og hætti því að æfa með árangur í
huga fyrir 19 árum en hef alltaf
haldið mér við og keppt mér til gam-
ans, hoppað inn í þegar þurft hefur á
að halda, verið svona uppfyllingar-
efni.“
Útskriftin í forgangi
Vegna útskriftarinnar þurfti að
hnika til tímasetningu undanúrslita-
leiksins. „Mér hentaði best að spila
hann á föstudaginn en þá var mót-
spilari minn að útskrifast þannig að
við spiluðum bara fyrr á laugardag-
inn en til stóð.“ Hún hafi látið slag
standa, ekki síst vegna þess að hún
hafi verið sannfærð um að hún ætti
möguleika á að sigra og hafi auk
þess engu haft að tapa. „Pressan var
á ungu landsliðsstelpunum og svo
var þetta spurning um dagsform og
hugarfar. Eins skemmdi ekki fyrir
að ég hef spilað nokkra úrslitaleiki
áður.“ Hún var Íslandsmeistari í ein-
liðaleik 1991-1995 og 1998-2000, í tví-
liðaleik 1994-2000 og í tvenndarleik
1994, 1996 og 2002. Keppti á Ólymp-
íuleikunum 1992 og 1996. „Ég var
fiðrildi í menntaskóla þegar ég varð
fyrst meistari en er nú reynslunni
ríkari, það var extra gaman að upp-
lifa sigurinn með börnunum mínum
og ég held áfram að spila eins lengi
og búkurinn leyfir.“
Elsa er grafískur hönnuður og
hönnunarstjóri hjá auglýsingastof-
unni Kontor Reykjavík. Hún hefur
myndskreytt átta barnabækur, sem
Jóna Valborg Árnadóttir hefur
skrifað, og var bæjarlistamaður Sel-
tjarnarness 2016 auk þess sem hún
er listmálari. „Eftir að æfingar
hættu að vera á hverju kvöldi skap-
aðist tómarúm og ég fór að sinna
listinni í staðinn, mála, teikna og svo
framvegis.“
Undanfarin sex ár hefur Elsa ver-
ið á fullu í golfinu. „Ég stefni á að
komast í 50+ landsliðið eftir þrjú
ár,“ segir hún áköf, en Elsa hefur
tekið framförum jafnt og þétt og er
komin með 8,5 í forgjöf. „Golfið er
með góða tengingu í badmintonið,“
heldur hún áfram og bætir við að
hún spili reglulega með Rögnu Ing-
ólfsdóttur í Nesklúbbnum, þar sem
hún sé líka virk í kvennastarfinu.
„Við Ragna erum hvor af sinni kyn-
slóðinni og náðum ekki að spila sam-
an badminton – hún var margfaldur
Íslandsmeistari á eftir mér – en spil-
um saman golf í staðinn.“
Elsa hefur engu gleymt
- Fyrst Íslands-
meistari 1991 og
nú með Drífu
Fögnuður Íslandsmeistararnir Elsa Nielsen og Drífa Harðardóttir.
Á Spáni Kylfingurinn Elsa Nielsen
er með 8,5 í forgjöf í golfi.