Morgunblaðið - 08.06.2021, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Öll íslensk fiskiskip þurftu sam-
kvæmt lögum um sjómannadag að
vera í höfn frá kl. 12 á hádegi á laug-
ardag til klukkan 12 á hádegi á
mánudag. Fjöldi fiskiskipa lét úr
höfn síðdegis í gær og í gærkvöldi, en
strandveiðibátarnir voru hins vegar
komnir af stað aðfaranótt mánudags
þrátt fyrir að sérákvæði yfir þessa
báta sé ekki að finna í lögunum.
Í lögum um sjómannadag segir í 5.
grein: „Öll fiskiskip skulu liggja í
höfn á sjómannadag og hafa komið
til hafnar eigi síðar en kl. 12 á laug-
ardegi fyrir sjómannadag og láta
ekki úr höfn fyrr en kl. 12 á hádegi
næsta mánudag.“ Hefur Landhelg-
isgæsla Íslands eftirlit með fram-
kvæmd laganna og bera útgerð og
skipstjóri ábyrgð á að ákvæðum lag-
anna sé fylgt. Brot getur varðað
sektum.
Landhelgisgæslan telur þó ekki að
strandveiðisjómenn hafi brotið gegn
ákvæði laganna þar sem þeir hafi
samið við sjálfa sig um „mikilvæga
hagsmuni“, að því er fram kemur í
svari stofnunarinnar við fyrirspurn
blaðamanns. Í lögunum eru fáar
undanþágur og eru einu aðilarnir
sem eru beint undanþegnir ferjur
milli lands og eyja. Þá segir að hægt
sé að víkja frá ákvæðinu og leggja
frá bryggju fyrr „ef mikilvægir hags-
munir eru í húfi og samkomulag
tekst þar um milli útgerðar og skips-
hafnar“.
Í svarinu er bent á að í flestum til-
fellum strandveiðibáta er um að
ræða einyrkja sem eru sjálfir eig-
endur, útgerðarmenn og skipstjórar
bátanna. […] Segja má að það séu
hæg heimatökin fyrir einyrkjana að
ná slíku samkomulagi við sig sjálfa.“
Semja við sjálfa sig um
mikilvæga hagsmuni
- Strandveiðibátar héldu snemma til veiða eftir sjómannadag
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Strandveiði Fjöldi báta hélt til
veiða aðfaranótt mánudags.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza
Reid forsetafrú fóru í dag í sína fyrstu opinberu
heimsókn síðan heimsfaraldurinn skall á. Þá var
þétt dagskrá er þau heimsóttu sveitarfélagið Ölf-
us. Fyrsti viðkomustaður forsetahjónanna var
Herdísarvík þar sem Elliði Vignisson bæjarstjóri
Þorlákshafnar og Gestur Kristjánsson forseti
bæjarstjórnar tóku á móti þeim hjónum. Þeir
sögðu sögu víkurinnar og litu hjónin inn í hús
þjóðskáldsins Einars Benediktssonar. „Þetta er
fyrsta opinbera heimsókn okkar, bæði innanlands
og utan, eftir að heimsfaraldurinn skall á og mikið
ánægjuefni að við getum tekið upp þráðinn þar
sem frá var horfið,“ sagði forsetinn í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins. „Það er svo gaman
að finna að það er bjart fram undan, við erum á
þeirri leið að ná yfirhöndinni og senn getum við
fagnað fullum sigri, ef svo fer sem horfir, ef við
sýnum fulla aðgát.“ Þá fengu forsetahjónin einnig
kynningu á Löxum fiskeldi og Landeldi, heim-
sóttu Hjallakirkju og bæjarstjóri kynnti þeim
stækkun hafnarinnar. „Þetta er náttúrlega mikill
heiður fyrir okkur að taka á móti Guðna og Elizu
og ánægjulegt að þau skuli velja sveitarfélagið
Ölfus sem fyrsta áfangastað eftir þetta furðulega
Covid-tímabil og við erum stolt af því sem við höf-
um sýnt þeim,“ sagði Elliði Vignisson bæjarstjóri
Þorlákshafnar. „Guðni og Eliza hafa sýnt í dag
það sem við vissum, að þau eru hlý, elskuleg og
mannleg, og nánd þeirra er uppörvandi fyrir okk-
ur sem tökum á móti þeim.“
Þá sagði hann að gaman væri að heyra hversu
oft forsetahjónin hefðu talað um þann slagkraft
sem væri í samfélaginu í Ölfusi í dag, bjartsýni og
óbilandi trú. „Ég held að sveitarfélagið Ölfus og
forseti lýðveldisins séu í einlægum takti.“
rebekka@mbl.is
Mikil gleði Eldri borgarar í Ölfusi buðu forsetahjónunum í kaffi og þáðu þau af bestu lyst. Forsetahjónin Nemendur færðu Elizu Reid forsetafrú blóm og líkaði henni gjöfin vel.
Heiður að fá forsetahjónin í heimsókn
- Forseti og forsetafrú heimsóttu sveitarfélagið Ölfus - Tóku upp þráðinn þar sem frá var horfið
- Forsetahjónin kynntu sér Laxa fiskeldi og Landeldi, sem og stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Atvinnuvegir Forsetahjónin kynntu sér ýmsa atvinnuvegi í ferð sinni í Ölfus, meðal annars starfsemi Laxa fiskeldis og Landeldis.