Morgunblaðið - 08.06.2021, Side 32

Morgunblaðið - 08.06.2021, Side 32
Gjörningur eftir myndlistarmanninn Ragnar Kjart- ansson verður fluttur í hinu þekkta Guggenheim- safni í New York 2.-5. júlí og nefnist hann Romantic Songs of the Patriarchy eða Rómantískir söngvar feðraveldisins. Í samtali við The New York Times segir Ragnar að mörgum þeirra söngva sem fluttir verða sé ætlað að heilla og skjalla konur en að samanlögðu sýni þeir þó uppbyggingu samfélagsins. Söngvarnir verða fluttir af konum og fólki sem skilgreinir sig ekki eftir kyni og munu flytjendur bæði leika lögin á gítar og syngja. Í tilkynningu segir að í gjörn- ingnum sé popptónlist hyllt en um leið megi finna samfélags- lega gagnrýni, og andstæður á borð við kúgun og frelsi mæt- ist, sem og taktur og glund- roði. Gestir þurfa að panta sér miða þar sem takmarkaður fjöldi er heimilaður og einnig er grímuskylda í safninu. Ragnar með gjörning í Guggenheim Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fastagestir eru í öllum sundlaugum og Steingrímur Þorvaldsson, fyrr- verandi skipstjóri, er í þeim hópi í Laugardalslaug. „Ég segi öllum að ég syndi á hverjum degi en stundum dettur úr dagur og dagur svo ætli ég syndi ekki fimm sinnum í viku að meðaltali,“ segir hann kankvís. Þegar Steingrímur var á sjónum brá hann sér gjarnan í laugina á milli túra. „Ég synti alltaf í inniverum en aldrei eins mikið og oft og eftir að ég hætti á togurunum fyrir um 12 ár- um.“ Sóknin er stundum háð veðri, rétt eins og á sjónum. „Ég reyni að synda 500 metra í hvert sinn en stundum fer ég bara 300 metra.“ Um tveggja metra hái maðurinn þarf sitt pláss og því vill hann helst vera á „dauða“ tímanum í lauginni. „Það er rólegast um miðjan daginn og það hentar mér vel,“ segir hann, en þrjá morgna í viku fer hann í göngutúra með Korpúlfum, félagi eldri borgara í Grafarvogi. „Við leggjum af stað klukkan tíu á mánudögum, mið- vikudögum og föstudögum.“ Allir á móti borgarlínunni Steingrímur útskrifaðist úr Gagn- fræðaskólanum við Lindargötu fyrir um 60 árum og hitti nokkra skóla- félaga sína af því tilefni á dögunum. „Flesta þeirra hafði ég ekki séð í 60 ár, ekki einu sinni á förnum vegi, en þegar ég byrjaði að synda reglulega hitti ég nokkra þeirra fyrir tilviljun í lauginni og síðan höfum við fengið okkur kaffi saman eftir sundið. Við setjumst við borðið í anddyrinu um klukkan þrjú og förum yfir sviðið.“ Þessir skóla-, sund- og kaffifélagar eru Trausti Valsson skipulagsfræð- ingur, Hjálmar W. Hannesson, fyrr- verandi sendiherra, og Erlendur Magnússon, fyrrverandi forstjóri Samsölubakaríanna. „Við ræðum það sem er efst á baugi hverju sinni, skipulagsmálin hjá Trausta og borg- arlínuna. Það eru allir á móti henni og því held ég svolítið með henni til þess að halda umræðunni gang- andi.“ Að loknu námi í Gaggó Lind fór Steingrímur á sjóinn og stundaði sjómennsku í rúm 49 ár. „Ég var alltaf með það í maganum að fara til sjós og þegar ég hætti í gaggó kom ekkert annað til greina,“ segir hann. Hann hafi síðan komist að því í nem- endahittingnum um daginn að einn annar hafi verið um stund á sjónum. Steingrímur byrjaði 15 ára sem háseti og netamaður á Víkingi AK, skaust í síldina á Hafrúnu ÍS áður en silfur hafsins hvarf af miðunum und- ir lok sjöunda áratugarins, fór svo aftur á Víking, var síðan 2. stýrimað- ur á Þormóði goða RE, 1. stýrimað- ur á Röðli GK, 1. stýrimaður á skut- togaranum Vigra RE í þrjú ár og síðan skipstjóri á honum og síðar skipstjóri á frystitogaranum með sama nafni frá fyrsta degi 1992, sam- tals í um 34 ár. Þess má geta að 1989 voru fyrst veitt verðlaun fyrir sér- staka árvekni í öryggismálum kaup- skipa og fiskiskipa og fékk áhöfn Vigra undir stjórn Steingríms annan bikarinn. „Ég var með strand- veiðibátinn Þorvald SH undanfarin tíu ár, fór bara út mér til gamans á sumrin, þegar veðrið var gott, en seldi hann fyrir stuttu. Held samt áfram að stíga ölduna í lauginni,“ segir skipstjórinn síkáti. Stígur ölduna í lauginni - Sundið og þjóðmálin tekin við af áratuga sjómennsku Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Skóla-, sund- og kaffifélagarnir Erlendur Magnússon, Hjálmar W. Hann- esson, Steingrímur Þorvaldsson og Trausti Valsson til hægri. Á strandveiðum Steingrímur naut veiðanna á Þorvaldi SH í áratug. Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 Við erum sérhæfð í gluggatjöldum TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA PLÍ-SÓL GARDÍNUR GLUGGATJÖLD SCREEN RÚLLUGARDÍNUR alnabaer.is ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Keflvíkingar eru komnir í úrslit á Íslandsmóti karla í körfuknattleik eftir sannfærandi sigur á KR-ingum, 88:70, í þriðja leik liðanna í gærkvöld. Þar með er ein- okun Vesturbæinga á Íslandsmeistaratitlinum að ljúka en þeir hafa unnið hann sex sinnum í röð frá árinu 2014. Nú er ljóst að Keflavík, Þór úr Þorlákshöfn eða Stjarnan tekur við Íslandsbikarnum í sumar. »26 Keflvíkingar sendu KR-inga í frí ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.