Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 21
HINSTA KVEÐJA Afi var besti rakari á landinu, klippti mig seinast þegar hann var 88 ára. Hann var góður maður og hafði ekkert til að sjá eftir í lífinu. Góðar minningar að koma og fá einn súkku- laðimola og hlusta á sög- urnar þínar. Elska þig elsku afi langi minn. Kyss, Stefán Valur Ég ætla að gera minn- ingarbók um þig. Afi langi ég elska þig og sakna þín. Kveðja Elsa Björg. Elsku besti afi Trausti. Ég elska þig svo mikið! Ég elskaði að sitja og hlusta á allar gömlu sög- urnar þínar og ég er svo glöð að þú hafir átt svona gott líf, ég hefði aldrei get- að óskað mér betri langafa. Mér þykir svo óendanlega vænt um þig og þú munt alltaf eiga þitt pláss í hjart- anu mínu. Þú ert frábær fyrirmynd fyrir mig og alla, ég er svo glöð að ég hafi náð að koma að kveðja þig, ég sakna þín svo mikið og er glöð að ég hafi fengið að hafa þig í lífi mínu. Stórt knús Dóra Sigrún. rekstri á Fótóhúsinu og sneri sér að hinu stóra áhugamáli sínu, klassískum gítarleik. Ég kveð Trausta Thorberg með þakklæti fyrir frábært samstarf og fallega vináttu í gegnum tíðina. Börnum hans, þeim Elsu og Óskari, og fjölskyldum þeirra sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Gísli Gestsson. Mér er ljúft og skylt að minn- ast og kveðja Trausta Thorberg Óskarsson. Hann fylgdi mér og fjölskyldu minni frá því ég man eftir mér. Ungur fór ég oft með foreldrum mínum í heimsókn á einstaklega fallegt heimili Trausta og Dóru. Hún og mamma voru miklar vinkonur. Þær spjölluðu í eldhúsinu með- an ég og pabbi fórum inn til Trausta, gítarar teknir upp, spilað og æft. Þessar heimsókn- ir voru mjög gefandi og skemmtilegar. Trausti var hátt- vísari en almennt gerist og mik- ill heimsborgari. Dóra var elskuleg og ljóðelsk hannyrða- kona. Þessi yndislegu hjón reyndust mér og pabba einstak- lega vel þegar mamma fórst í flugslysi 1978. Trausti var mikill fagurkeri og ástríðufullur safnari. Hann átti fjölda af gítarnótum og gít- artímaritum. Hann safnaði tón- bókmenntum, efnisskrám og úr- klippum; öllu sem tengdist klassískum gítar, af mikilli alúð og fagmennsku. Tónlistarsafn Íslands hefur sýnt þessu efni athygli og viðtal við Trausta hljóðritað. Unnið verður í því að koma efninu til varðveislu. Eyþór Þorláksson faðir minn og Trausti voru ekki nema mál- kunnugir um miðja síðustu öld, þótt báðir lékju á rafgítara fyrstir manna á Íslandi. Árið 1946 heyrði Trausti sænskan gítarleikara spila á klassískan gítar á tónleikum í Tjarnarbíói. Þarna opnaðist Trausta heimur klassíska gítarsins og hann ákvað að gera þetta göfuga hljóðfæri að sínu. En talsverð bið varð á að hann ætti kost á kennslu í þeim gæðaflokki sem hann krafðist. Hann starfaði sem hárskeri en á kvöldin var hann á kafi í tónlist, lék þá á rafgítar. Pabbi var við gítarnám í Englandi og Spáni. Trausti leitaði til hans að kenna sér og var það upphaf samvinnu og göfugrar vináttu sem varaði til æviloka. Pabbi spilaði mikið með námi hér heima og á Spáni. Hann og Trausti héldu alltaf sambandi og var Trausti auk þess í dans- hljómsveit pabba í nokkur ár. Pabbi fylgdist vel með nýjung- um, og 1960 kom hann heim með þýskan rafbassa. Trausti lék á hann í bandinu og var þetta fyrsti rafbassinn í ís- lenskri djass- og danstónlist. Trausti var áhugasamur nemandi og hafði tekið ástfóstri við klassíska gítarinn. Kennslan var öðru fremur samstarf og vinátta og Trausti stöðugt að bæta sig. Hann sagði mér síðar að samhliða kennslu hefði pabbi ákaft stutt sig og hvatt. Það hefði leitt til þess að hann sett- ist á skólabekk og lauk tónlist- arskólaprófi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar með pabba sem aðalkennara. Hann fékkst heil- mikið við kennslu undir lok starfsaldurs og gaf út bókina 33 íslensk sönglög, vandaða útgáfu á þekktum íslenskum sönglög- um sem hann útsetti fyrir klass- ískan gítar. Trausti og Dóra komu nokkr- um sinnum til Costa Brava, þar sem við feðgar dvöldum á sumr- in. Pabbi naut þess að sýna þeim allt sem svæðið hafði upp á að bjóða og var ég iðulega með í ferðum um ströndina og til Barcelona. Sérstaklega minnist ég bílferðar frá Spáni til Danmerkur þar sem okkur var fagnað á heimili Elnu syst- ur Trausta. Ég þakka Trausta Thorberg vináttu hans og góðvild og votta aðstandendum hans samúð mína og fjölskyldu minnar. Sveinn Eyþórsson. Öðrum þræði er það dulítið hæpið að nefna Trausta Thor- berg í íslensku samhengi, enda var hann í eðli sínu evrópskur hefðarmaður, ættaður frá Borg- undarhólmi í móðurlegg. Við ræddum aldrei um stjórnmál. Þankar hans á því sviði eru mér því lokuð bók. En í lifnaði var hann íhaldsmaður af bestu gerð. Hann reykti pípu eftir ákveðnu ritúali, sem ekkert fékk raskað. Já, og hann var Vesturbæingur í þeirri merk- ingu, sem flestum er hulin nú til dags. Það breyttist ekki, þótt hann byggi í Kópavogi í lok sinnar fáguðu lífsgöngu. Trausti fór ekki varhluta af sorginni á sinni vegleið, en hann bar hana af þeirri reisn er eðli hans bauð. Og sveið þó undan. Um miðjan síðasta áratug lið- innar aldar, þegar Trausti hafði fyrir löngu horfið frá rakaraiðn- inni til annarra starfa, brá svo við að hann féllst á að leysa af hólmi Pétur rakara á Skóla- vörðustíg, sem sökum heilsu- brests þurfti að hverfa frá rak- arastólnum. Þá átti ég leið um þessa ágætu rakarastofu. Ég settist í stólinn hjá rakara, sem ég þekkti ekki. Það var Trausti. Ekki hafði hann lengi farið fingrum um hár mitt þegar hann lét þess getið að ég væri sonur hans Lalla Bjarna. Ég hváði við og spurði hvernig hann vissi það. Jú, það var vegna þess að hann þekkti þetta þykka og stríða hár. Faðir minn lést árið 1974, en þá hafði Trausti ekki starfað sem rakari í rúman áratug. Ef þetta er ekki næmi, þá veit ég ekki hvað næmi er. Trausti var ástríðufullur bókamaður. Meðal annars sank- aði hann að sér nótnabókum, enda tónlistarmaður af Guðs náð. Má í því sambandi nefna að hann spilaði m.a. með fyrsta KK-sextettinum, auk þess sem hann fékkst lengi við gítar- kennslu. Er þá fátt eitt nefnt af tónlistarstörfum hans. Nú er það svo með nótna- bækur, að þær eru gjarnan prentaðar á slakan pappír, auk þess sem þær slitna mjög þegar þeim er flett við notkun. Trausti þurfti því oft að verða sér úti um fjölda eintaka af sömu nótnabókinni, til þess að geta steypt síðum saman í heilsteypt verk. Þegar líða tók á ævikvöld- ið vildi hann koma þessu ein- staka safni sínu á einn stað og var Þjóðarbókhlaðan honum efst í huga, sem vert var. Það féll í minn hlut að leita hófanna þar á bæ. Því miður reyndust staðarmenn ekki hafa næmari skilning á sínu hlutverki en svo, að þeir vildu aðeins taka á móti því efni, sem ekki var fyrir á safninu. Hvers metum við sum- ar, án fuglasöngs og blárra heiðarvatna í órofa heild? Og nú er hann horfinn, minn aldraði vinur, á vit þeirra er hurfu honum of snemma af braut. Fjölskyldu hans vottum við fjölskyldan okkur innileg- ustu samúð. Þess skal að lokum getið, að 29. desember 1996 birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins viðtal sem ég tók við Trausta. Pjetur Hafstein Lárusson. Í dag kveð ég samferðamann minn Trausta Thorberg Ósk- arsson hárskerameistara, sem giftur var Dóru Sigfúsdóttur móðursystur minni. Starfs- tengdur félagi, vinur og tryggðatröll um alla tíð, svo vitna má allt til uppruna míns og ævi í sjötíu ár. Um stórt svið er að fara, skyldi allt til talið er Trausti hefur fengist við: Send- ill, sundkappi, sjóari, sigldur, bakstur, rakstur, hárskurður, hljómlist af ýmsum toga, skrif- uð, kennd og leikin, ljósmynd- un, bókband, lestur, grúsk og söfnun margs lags fróðleiks með varðveislugildi. Fyrri og seinni ára samverustundir með Trausta leiddu til áhugaverðs fróðleiks um hugðarefnin, og ríflega það. Kvöldstundir okkar með „náttmatnum“, jólaköku og létt- mjólk í hóflegu magni, kyntu undir einkennilega hvetjandi frásagnarvilja til umræðu og upprifjunar lífsferils Trausta og dagfarslegra atburða. Sagt hef- ur verið og nærri má geta að með nánd sinni komist fáar starfsstéttir nær persónuein- kennum einstaklingsins en hár- skerinn. Hvað sem því líður þá átti það við um Trausta. Vin- margur og víðlesinn með þekk- ingu á þverskurði lífs og sögu þjóðar og þjóða og margvíslegr- ar menningar, ætíð reiðubúinn að ræða og fræða. Þekktur mið- borgari hinnar gömlu Reykja- víkur, og sagan þar um var skýr allt til hins síðasta, athyglisverð og mörgum til eftirbreytni að fræðast um: Hver byggði hvað, hver bjó þar, hvernig var hand- verkið eða skreytingin á þak- skegginu? Hönnuður fram í fingurgóma við hvert handtak. Allt þekkti Trausti. Við leiðarlok. Takk minn kæri fyrir samfylgd, tryggð og umhyggju við fjölskyldur okkar allra afkomenda Sigrúnar Berg- ljótar Þórarinsdóttur og Sigfús- ar Elíassonar. Aðstandendum er vottuð samúð. Þorberg Ólafsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 Elskuleg móðir mín, RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR frá Deildartungu, Birkigrund 63, Kópavogi, sem lést 11. desember sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 10. júní klukkan 15. Öll velkomin, streymt er frá athöfninni á https://hljodx.is/index.php/streymi Björn Friðgeir Björnsson Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, KARLOTTA BIRGITTA AÐALSTEINSDÓTTIR, löggiltur endurskoðandi, lést þriðjudaginn 1. júní. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 10. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Lárus Pétur Ragnarsson Ragnar Jóhann Lárusson Ann Sofie Egholm Sigurbjörn Birkir Lárusson Brynhildur Magnúsdóttir Jón Bjartmar Lárusson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR FRIÐRIKKA JÓNSDÓTTIR, sem lést 27. maí, verður jarðsungin frá Neskirkju miðvikudaginn 9. júní klukkan 13. Slóð á streymi er: https://www.skjaskot.is/sigridur. Rebekka G. Gundhus Anders Gundhus Anna Ólafía Guðnadóttir Viðar Böðvarsson Arnfríður Lára Guðnadóttir Sveinbjörn Lárusson Kristín Guðnadóttir Einar Vignir Sigurðsson Jóna Björk Guðnadóttir Jón Marinó Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR SAMÚELSSON, Sólheimum 23, lést laugardaginn 29. maí á hjartadeild Landspítalans. Útför hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 10. júní klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Landsbjörg. Edda Ögmundsdóttir Kristján Sigurðsson Sigurður Sigurðsson Guðrún Lilja Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og ómetanlegan stuðning vegna andláts og útfarar ástkærs sonar okkar og bróður, PATREKS JÓHANNS KJARTANSSONAR EBERL Veronika Eberl Kjartan Þór Kristgeirsson Þórhildur Lotta Kjartansdóttir Eberl Þormar Fálki Kjartansson Eberl Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN FJELDSTED öryggisstjóri, Lundi 21, Kópavogi, lést á Landspítalanum Fossvogi 3. júní, útför auglýst síðar. Ingibjörg Kristjánsdóttir Ásta Björk Sveinsdóttir Jón Júlíus Elíasson Kristján Þór Sveinsson Hulda I. Magnúsdóttir Guðmundur Sveinsson Hulda Sævarsdóttir afa- og langafabörn Ástkær eiginkona og besti vinur minn, móðir, tengdamóðir og amma, EYGLÓ ÓSKARSDÓTTIR, Sóleyjagötu 10, lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum laugardaginn 5. júní. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 19. júní klukkan 14. Svavar Steingrímsson Óskar Svavarsson Anna Sigríður Erlingsdóttir Halla Svavarsdóttir Ólafur Ágúst Einarsson Steingrímur Svavarsson Katrín Stefánsdóttir ömmubörn Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNA ÓLAFSDÓTTIR, lést á heimili sínu laugardaginn 29. maí. Ólafur Einarsson Jenný Davíðsdóttir Böðvar Ólafsson Katarzyna Anna Kapitan Ragna Ólafsdóttir Geir Garðarsson Dagný Fjóla Ómarsdóttir Jón Sverrisson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.