Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 „Mér finnst þetta líka ótrúlega skemmtilegt,“ sagði Þorbergur. „Ég hef oft líkt þessum lang- hlaupum við lífið sjálft. Þú upplifir bæði hæðir og lægðir í lífinu, alveg eins og í langhlaupunum þar sem þú ferð upp á toppa og niður í djúpa dali. Þú lendir í því að verða alveg hamraður í hausnum og það er ótrúlega gefandi tilfinning að halda alltaf áfram, gefast ekki upp og koma þannig út úr þessu sem sterkari einstaklingur,“ bætti Þorbergur við. „Það er eitthvað svo gott við það að verða, þreyttur, svangur og bug- aður í löppunum,“ sagði Þorbergur Ingi Jónsson, fremsti langhlaupari landsins, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðs- ins. Þorbergur, sem er 38 ára gamall, tók þátt í heimsmeistaramótinu í ut- anvegahlaupum í Annecy í Frakk- landi árið 2015, fyrstur Íslendinga, þar sem hann hafnaði í 9. sæti. Eftir þetta fór hann að leggja meiri áherslu á utanvegahlaup en hann hefur tvívegis tekið þátt í erf- iðasta langhlaupi heims, Ultra- Trail du Mont-Blanc, sem fram fer í Chamonix í Frakklandi en þar eru hlaupnir 170 kílómetrar með rúm- lega 10.400 metra hækkun. Sambærilegt við lífið sjálft Ljósmynd/Ultra-Trail du Mont-Blanc Seigla Þorbergur endaði í 25. sæti í Ultra-Trail du Mont-Blanc 2019. NBA Gunnar Valgeirsson Los Angeles Leikir annarrar umferðar úrslita- keppni NBA-deildarinnar hófust um helgina og eins og oft hefur verið bent á í þessum pistlum í gegnum ár- in hefst þá loksins keppnin fyrir al- vöru – þótt fyrsta umferðin í ár hafi veitt nokkra spennu nú þegar. Brooklyn Nets vann fyrsta leik sinn í viðureigninni við Milwaukee Bucks á laugardag í Austurdeildinni og léku liðin aftur í nótt. Þetta virðist topprimman í umferðinni og gæti sigurvegarinn farið alla leið. Við hér á Morgunblaðinu vorum á sjöunda leik Clippers og Dallas hér í Staples Center á sunnudag. Ávallt gaman að fara á sjöunda leik í NBA- rimmu. Leikurinn var jafn og spenn- andi þar til Clippers skoruðu 24 af síðustu 28 stigum þriðja leikhlutans. Eftir það klóraði Dallas nokkuð í for- ystuna, en heimamenn innsigluðu sigurinn, 126:111, af yfirvegun. Luka Doncic var besti maður leiksins með 46 stig og 14 stoðsend- ingar fyrir Dallas, en hann fékk ekki nægan stuðning samherja og það gerði gæfumuninn. Svo virðist sem Clippers séu að skríða saman og að meiri stöðugleiki sé í leik liðsins en ég hef áður séð frá hópi Tyronne Lue þjálfara. Kawhi Leonard lék sinn venjulega leik með 28 stig, tíu frá- köst og níu stoðsendingar. Of mikið álag Bent var á í þessum pistlum fyrir fyrstu umferð að meiðsl lykilmanna hefðu sett stórt strik í stöðu liðanna fyrir úrslitakeppnina. Sú staða held- ur áfram að hafa áhrif í úrslita- keppninni. Meiðsl lykilmanna hjá meisturum Lakers leiddu til þess að þeir áttu aldrei gott tækifæri til að verja titilinn. Þetta bendir til þess að ákvörðun forráðamanna deildarinnar um að stytta bilið milli tímabila og leika síð- an fleiri leiki hverja viku en að venju sé að skila sér í auknum meiðslum þeirra sem mest reynir á hjá topp- liðunum. Charles Barkley, nú talandi höfuð hjá TNT-sjónvarpsstöðinni, benti á að ekki væri hægt að ætlast til þess að toppleikmenn gætu komið beint úr meiðslum inn í keppnina í úrslitakeppninni. „Um leið og úrslitakeppnin hefst eru þessir leikmenn að spila annan hvern dag í nokkrar vikur og ákefð leikjanna eykst töluvert. Ef þú ert að koma til baka úr meiðslum á legg eða ökkla áttu litla möguleika á að koma líkamanum í keppnisform í sjúkra- þjálfun. Þú gengur ekki bara úr sjúkraherberginu beint inn í leiki úr- slitakeppninnar.“ Meiðsl Hardens dýrkeypt? Að keppni Philadelphia og Atlanta ólastaðri verður það rimma Mil- waukee gegn Brooklyn sem mun vekja mesta athygli. Þetta eru tvö bestu liðin austanmegin og búast flestir sérfræðingar við hörkuslag. Milwaukee er nú þriðja árið í röð með stórar væntingar á bakinu eftir góða deildakeppni, en liðið hefur valdið vonbrigðum í úrslitakeppninni undanfarin tvö ár. Verði liðið nú slegið út í átta liða úrslitunum mun það setja stórt spurningarmerki á allt apparatið hjá klúbbnum. Undirritaður var bjartsýnn á Brooklyn í upphafi þessarar úr- slitakeppni og sú skoðun hefur lítið breyst eftir að liðið rúllaði Boston upp í fyrstu umferðinni. Þríeyki þeirra Kevins Durants, Kyrie Irv- ings og James Hardens virðist óstöðvandi, en ef Harden verður frá keppni það sem eftir lifir tímabilsins, gæti það sett strik í reikninginn. Hjá Bucks er þetta hins vegar besti hóp- ur liðsins undanfarin þrjú ár, þannig að þetta verður hörkurimma þar sem sigurinn gæti lent hvorum megin sem er. Sigurvegarinn ætti að kom- ast alla leið í lokaúrslitin. Í hinni rimmu Austurdeildarinnar vann Atlanta enn á ný, nú fyrsta leik- inn gegn Philadelphia, 128:124, á sunnudag. Þrátt fyrir ævintýraleik Trae Young hjá Atlanta í fyrstu um- ferð held ég að reynsla Philadelphia muni gera gæfumuninn í þessu ein- vígi. Ef Joel Embiid nær að komast í leikform er erfitt að sjá Atlanta merja sigur. Þetta verður samt jafn- ari rimma en margir hefðu haldið. Utah stefnir á lokaúrslitin Keppni Phoenix og Denver vest- anmegin ætti að verða spennandi. Miðherjanum Nikola Jokic hjá Den- ver er spáð nafnbótinni Mikilvægasti leikmaður deildarinnar (MVP) á næstu dögum og sókn Nuggets gengur alfarið í gegnum hann. Den- ver er hins vegar með jafnan hóp í kringum hann, en þeir verða að eiga svar við þeim Chris Paul og Devin Booker hjá Suns. Paul og Booker gætu þó tekið yfir þetta einvígi ef dæma má af baráttu Phoenix gegn meisturum Lakers í fyrstu umferð. Er Phoenix eitt eða tvö ár frá því að komast í lokaúrslitin, eða er þetta loksins tími Denver? Við veðjum ein- um dal á Denver hér. Ekki meira. Fyrsti leikurinn fór fram í nótt. Í hinni rimmunni verður erfitt að veðja á móti Utah í viðureigninni við Clippers. Stjörnuleikmaðurinn Don- ovan Mitchell er nú aftur í leikstjórn- endastöðunni eftir að hafa náð sér af meiðslum og það sem undirritaður hefur séð af báðum liðum í vetur finnst manni að Utah sé heilsteypt- ara lið. Jazz vann ekki toppsætið í góðri Vesturdeildinni að ástæðu- lausu. Ungir leikmenn taka völdin Úrslitakeppnin í ár hefur sýnt að framtíðin virðist björt þrátt fyrir að nokkrar af skærustu stjörnum deild- arinnar séu komnar yfir þrítugt: Le- Bron James (36), Kevin Durant (32), James Harden (31), Chris Paul (37), og Stephen Curry (33). Aðrir leik- menn eru nú á hátindi getu sinnar, svo sem Joel Embiid (76ers), Kawhi Leonard (Clippers), Donovan Mitch- ell (Jazz), Nikola Jokic (Nuggets), Giannis Antetokounmpo (Bucks), Jason Tatum (Celtics), Bradley Beal (Wizards), Damian Lillard (Blazers) og Anthony Davis (Lakers), þannig að komandi kynslóðaskipti hjá topp- leikmönnum ættu sjálfsagt að ganga snurðulaust fyrir sig. Það sem hefur vakið athygli und- irritaðs í þessari úrslitakeppni er frammistaða yngri leikmanna sem eru að taka liðin á herðar sínar. Hjá Atlanta er það leikstjórnand- inn Trae Young sem sá um New York í fyrstu umferðinni. Meistarar Lakers áttu ekkert svar við stórleik Devins Bookers hjá Phoenix, sem virðist nú geta gert hvað sem hann vill. Luka Doncic hjá Dallas er nú al- mennt talinn einn af fimm bestu leik- mönnum deildarinnar og hann er leikmaður sem Clippers einfaldlega ákváðu að þeir gætu ekki stöðvað. Í staðinn ákváðu þjálfarar Clippers að reyna að stöðva aðra leikmenn Dall- as. Loks er það Ja Morant hjá Memphis, sem er nú lykilmaður liðs- ins þótt hann sé aðeins 21 árs. Utah átti í stökustu vandræðum með hann í fyrstu umferðinni og það var ekki fyrr en Donovan Mitchell kom aftur til leiks hjá Jazz eftir að missa af fyrsta leiknum að Utah náði loks að yfirbuga Memphis. Þessir fjórir leikmenn og lið þeirra sjá góða daga framundan ef forráða- menn liðanna ná að byggja í kringum þessar ungu stjörnur. gval@mbl.is Jafnast ekkert á við Jazz - Önnur umferð úrslitakeppni NBA hafin - Margir lykilmenn glíma við meiðsli - Fara Brooklyn Nets og Utah Jazz alla leið? - Ungir leikmenn að taka völdin AFP Lykilmaður Trae Young er í stóru hlutverki hjá Atlanta Hawks og hér rennir hann sér framhjá Matisse Thybulle hjá Philadelphia 76ers. Bandaríski framherjinn Aerial Chavarin var besti leikmaður 6. umferðar úrvalsdeildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Hún átti stjörnu- leik og skoraði tvö mörk í gríðarlega óvæntum sigri Keflvíkinga á Breiða- bliki, 3:1, og fékk þrjú M fyrir frammistöðu sína. Chavarin, sem er 23 ára og kom til Keflavíkur frá Chicago Red Stars fyrir þriðju umferð deild- arinnar, hefur gjörbreytt sóknarleik liðsins og skoraði fjögur mörk í þess- um fjórum leikjum, og hefur fengið sex M í þeim í einkunnagjöf blaðsins. Samherjar hennar þær Tiffany Sornpao markvörður og fyrirliðinn Na- tasha Anasi eru einnig í liði 6. umferðar sem sjá má hér að ofan. Natasha er í liðinu í þriðja sinn, eins og Katherine Cousins hjá Þrótti. vs@mbl.is 6. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 24-3-3 Tiffany Sornpao Keflavík Anna María Baldursdóttir Stjarnan Málfríður Erna Sigurðardóttir Stjarnan Liana Hinds ÍBV Lorena Baumann Þróttur Ásdís Karen Halldórsdóttir Valur Natasha Anasi Keflavík Aerial Chavarin Keflavík Þóra Björg Stefánsdóttir ÍBV Katherine Cousins Þróttur Elín Metta Jensen Valur 2 3 2 3 Chavarin best í 6. umferð Svokallað offramboð ríkir í heimi íþróttanna þessa dagana. Þetta er auðvitað allt hið besta mál, fyrir áhugafólk um íþróttir hið minnsta. Maður átti þetta reyndar inni eftir þennan bless- aða kórónuveirufaraldur þar sem allt íþróttalíf lá í dvala svo mán- uðum skiptir. Maður er í raun í þeirri stöðu að þurfa að velja og hafna hvaða viðburði maður ætlar að horfa á og mæta á. Sem starfandi íþróttablaðamaður hefur mér tekist að fara á bæði leiki í úr- slitakeppni Íslandsmótsins í handboltanum og körfubolt- anum, að meðtöldum leikjum í Íslandsmótinu í knattspyrnu. Ég veit ekki hvort það sé eitt- hvað í vatninu hjá handknatt- leiks- og körfuknattleiksfólki landsins þessa dagana. Kannski er maður búinn að gleyma því hvernig stemningin var í úr- slitakeppnunum eftir að þær voru blásnar af á síðasta ári vegna kórónuveirufaraldursins. Það hefur alla vega verið þannig hingað til í ár að maður er að horfa á skemmtilegustu og mest spennandi leiki í báðum íþróttum sem maður hefur séð lengi. Hingað til hafa 95% af leikj- unum, bæði í handboltanum og körfuboltanum, alls ekki verið fyrir hjartveika. Maður óskar sér þess helst að þetta taki aldrei enda og ef fólk hefur ekki haft tækifæri til þess að kíkja á leik í úrslitakeppninni í vor mæli ég svo sannarlega með því. Að lokum verður maður að nýta tækifærið og óska KA/Þór til hamingju með fyrsta Íslands- meistaratitilinn í handknattleik í sögu félagsins. Það er alltaf eitt- hvað rómantískt við það að sjá heilu bæjarfélögin fylkja sér á bak við íþróttaliðið sitt og maður getur ekki annað en samglaðst þegar svoleiðis lið, og auðvitað bæjarfélög, uppskera bikar. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.