Morgunblaðið - 08.06.2021, Page 6

Morgunblaðið - 08.06.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir 544 515 1 tímapantan ir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK af vinnulið einkabifreiða PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Stefán Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri hvalaskoðunarfyr- irtækisins Gentle Giants, rak upp stór augu á sunnudaginn þar sem hann var staddur í Flatey á Skjálf- anda þegar falleg æðarkolla kom labbandi undan traktornum sem hann hugðist nota. Þegar seglið var tekið af tækinu kom í ljós að æðar- kollan hafði gert sér hreiður þar undir en fjölskrúðugt fuglalíf er á eyjunni og margar fuglategundir verpa þar eggjum. Kippti sér lítið upp við atvikið Stefán segir fuglinn hafa tekið þessari truflun af mikilli yfirvegun en hann virtist lítið kippa sér upp við boðflennurnar. „Hún stoppaði bara við hliðina á mér og var alveg slök. Ég skildi þetta ekki alveg.“ Kveðst þá Stefán ekki vita af öðru tilviki þar sem æðarkolla gerir sér hreiður og verpir undir farartæki á þessu svæði en hann hefur verið með annan fótinn í Flatey frá því hann fæddist eða í rúm 50 ár. Sem betur fer þarf Stefán ekki oft að nota traktorinn en eftir að hann lauk verkefninu gætti hann þess að skilja við hreiðrið eins og komið var að því. „Við pössuðum okkur vel, lögðum tækinu aftur á sinn stað og færðum seglið yfir. Kollan skreið svo aftur í hreiðrið sitt þegar við vorum búnir.“ Bætir Stefán við að þegar félagi hans í Ameríku hafi séð myndina hafi hann spurt hvort þetta væri eini traktorinn sem verpti eggjum. Traktor sem verpir eggjum í Flatey - Æðarkolla gerði sér hreiður í skjóli dráttarvélar í eynni Ljósmynd/Stefán Guðmundsson Fuglalíf Æðarkollan kippir sér lítið upp við gesti sem kíkja á hreiðrið til hennar. Hún kemur sér fyrir eftir að traktornum hefur verið lagt aftur. Ljósmynd /Stefán Guðmundsson Hreiður Hugað að hreiðrinu undir dráttarvélinni. Stefán Guðmundsson segist ekki vita til þess að æðarkolla hafi áður verpt undir farartæki í eynni. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gerð hafa verið frumdrög að varnar- garði framan við Nátthaga til að beina hraunstraumi út á hraunin framan við Suðurstrandarveg og freista þess að verja Ísólfsskála, að sögn Fannars Jónassonar, bæjarstjóra í Grindavík. Þetta kom fram á stöðufundi fjölskip- aðs almannavarnahóps í gærmorgun þar sem voru fulltrúar bæjarfélags- ins, björgunarsveita, lögreglu, al- mannavarna, Veðurstofu o.fl. Annar fundur verður haldinn síðar í vikunni. Framan við Nátthaga rís Slaga sem er 152 metra há hæð. Hraunið gæti leitað fram um geilar sitt hvor- um megin við Slögu. Fari það vestan megin er jörðin Ísólfsskáli í hættu. Fari það austan megin fer hraunið yf- ir Suðurstrandarveg, yfir gömul hraun og svo fram í sjó. Hugmynd um varnargarð „Ein hugmyndin er að gera varnar- garð í geilinni vestan við Slögu og reyna að beina hraunstraumnum austur fyrir. Miðað við góða reynslu af varnargörðunum uppi á brúninni ofan við Nátthaga má sjá fyrir sér að hægt sé að beina hraunstraumnum til austurs með góðum leiðigarði. Það er búið að hanna þessa ferla,“ sagði Fannar. Hann tók fram að þetta væri einungis hugmynd og engin ákvörðun hefði verið tekin, þetta hefði ekki heldur verið borið undir viðeigandi stofnanir né fjárveiting til verksins tryggð. Fyrir miðjum Nátthaga var upp- þornaður tjarnarbotn, þakinn þurr- um leir. Hraunið var komið fram yfir gamla botninn í gær og mjakaðist stöðugt fram. „Haldi gosið áfram kemur ekkert til með að stoppa hraunið. En spurn- ingin er hvort við getum beint því í einhverjar rásir og komið í veg fyrir að það flæmist yfir stórt svæði eða Ís- ólfsskálalandið,“ sagði Fannar. Ýmsum hugmyndum hefur verið fleygt eins og t.d. að gera rás í Suður- strandarveginn fyrir hraunið og brú þar yfir. Fannar kvaðst ekki vita hversu raunhæf sú hugmynd væri. Eins hafi verið rætt um að rjúfa veg- inn á kafla og gera rás í hann fyrir hraunið. Þannig verði reynt að koma í veg fyrir að það flæmist yfir mjög langan vegarkafla. Suðurstrandar- vegurinn er mjög mikilvægur fyrir Grindvíkinga bæði vegna vöruflutn- inga t.d. til Þorlákshafnar, fólksflutn- inga og tengingarinnar við Suður- land. Því þarf að finna leið til að Suðurstrandarvegur verði ekki lengi lokaður komi til lokunar hans. Talið er að stysti fyrirvari til að- gerða geti verið tvær til þrjár vikur. Ef rennsli hraunsins eða gosið breyt- ist getur fyrirvarinn orðið lengri eftir atvikum. Það fer eftir því hver hraun- framleiðslan er og hvert hraunið rennur. Fannar sagði að hraun gæti áfram runnið austur í Meradali og í Geldingadali. Eins niður í Nátthaga og þaðan fram í sjó. Gönguleið B líklega löguð Ef Geldingadalir fyllast getur hraun leitað eftir gönguleið A og vest- ur í Nátthagakrika. Standi gosið í marga mánuði eða ár muni hraun flæða yfir stór svæði. Hraunrennslið hefur þrengt að aðkomuleiðum að gossvæðinu. Fann- ar sagði að nú væri verið að skoða að lagfæra gönguleið B upp á hjallana of- an við Geldingadali. Það verður skoð- að nánar þegar nýtt hraunflæðilíkan liggur fyrir síðar í þessari viku. Aðsókn erlendra ferðamanna hefur vaxið mikið, ekki síst þegar veður er leiðinlegt. Þá halda Íslendingar sig heima en útlendingarnir láta sig hafa það að fara að gosinu. Fannar sagði að veitingamenn og þeir sem selja gistingu fyndu fyrir aukinni umferð ferðafólks. Hraunið leitar suður Nátthaga - Hugmynd um varnargarð vestan við hæðina Slögu til að verja Ísólfsskála - Haldi hraunflæði áfram niður Nátthaga verði því beint yfir Suðurstrandarveg á kafla, yfir gömul hraun og þaðan út í sjó Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Nátthagi Hraunfossar hafa bunað niður í dalinn. Hraunið var að renna yfir uppþornaðan tjarnarbotn á sunnudag- inn var. Hann var allur kominn undir í gær. Hugmyndin er að stýra rennsli hrauns út úr Nátthaga og til sjávar. Borgar- fjall G el di ng ad al ir Syðri- Mera- dalur Ísólfsskáli Lo ft m yn d ir eh f. Mögulegur farvegur hrauns Suðurstrandarvegur Mögulegur leiðigarður vestan við Slögu Mögulegur farvegur Slaga Ná tt ha gi Fag rad als - fja ll

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.