Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 Akrýlsteinn • Yfirborðsefni sem endist og upplitast ekki • Viðhaldsfrítt, slitsterkt og hitaþolið - endalausir möguleikar • Auðvelt að þrífa og gera við Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is 8. júní 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.38 Sterlingspund 171.67 Kanadadalur 100.18 Dönsk króna 19.78 Norsk króna 14.484 Sænsk króna 14.556 Svissn. franki 134.33 Japanskt jen 1.1028 SDR 174.74 Evra 147.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.7681 Hrávöruverð Gull 1869.55 ($/únsa) Ál 2412.5 ($/tonn) LME Hráolía 71.25 ($/fatið) Brent « Birgir Jónsson, forstjóri flugfélags- ins Play, segir að gríðarlegur áhugi sé hjá fjárfestum að taka þátt í fyrir- huguðu hlutafjár- útboði flugfélags- ins. „Það eru ekki mörg fyrirtæki á Ís- landi sem eru í kauphöllinni hérlendis, sérstaklega í ferðaþjónustunni. Það er rosalegur áhugi hjá almennum fjár- festum að koma inn og taka þátt í við- reisn ferðaþjónustunnar.“ Birgir tekur fram að fjármagnið sem mun safnast í útboðinu sé hvorki nauð- synlegt fyrir félagið til þess að hefja starfsemi, né til að fjármagna þá rekstr- aráætlun sem fyrirtækið er búið að setja upp. „Það er ekki hægt eiga of mikið af lausafé í flugrekstri. Það er nú oftast þannig að það er sniðugra að afla pen- inganna þegar þú getur það, heldur en þegar höggið kemur. Þá getur verið erf- itt að fara í svona fjármögnun þar sem það tekur tíma,“ segir Birgir. Hann segist vera spenntur fyrir skráningunni og það myndi mikinn aga fyrir rekstur fyrirtækisins að vera í skráðu umhverfi. logis@mbl.is Mikill áhugi á hluta- bréfaútboði Play Play hefur áætl- unarflug 24. júní. STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Samkvæmt nýbirtri útboðslýsingu fyrir hlutafjárútboð Íslandsbanka, sem hófst í gær, verður leitast við að skerða ekki tilboð í útboðinu undir einni milljón króna. Lágmarksboð er fimmtíu þúsund krónur. Verði um- frameftirspurn eftir hlutum gætu til- boð yfir einni milljón króna orðið fyr- ir skerðingu. Áætlað markaðsvirði Íslands- banka í kjölfar útboðsins er 150 milljarðar króna, að því gefnu að verð á útboðshlut verði miðpunktur leiðbeinandi verðbils í útboðinu, eins og það er orðað í útboðslýsingunni. Leiðbeinandi verð útboðshluta er á bilinu 71 til 79 krónur. Áskriftir fyrir öllum hlutum Í gærkvöldi tilkynntu Bankasýsl- an og Íslandsbanki að áskriftir hefðu borist fyrir þeim hlutum sem í boði eru í útboðinu umfram efri mörk út- boðsstærðar, þ.m.t. valréttarhluti, á öllu verðbilinu. Sé miðað við neðra gildi útboðsbilsins hafa því borist til- boð upp á yfir 50 milljarða króna í 35% hlut í bankanum. Útboðið held- ur engu að síður áfram en því lýkur kl. 12:00 þriðjudaginn 15. júní 2021. Fagfjárfestar og almennir Útboðið fer fram annars vegar með almennu útboði á hlutabréfum til fagfjárfesta og almennra fjárfesta á Íslandi og lokuðu útboði til tiltek- inna fagfjárfesta erlendis og skiptist því í áskriftarleið A og B. Stærð áskrifta í leið A er að fjár- hæð 50.000 kr. til 75 milljónir króna en í leið B er stærðin allar upphæðir yfir 75 milljónum króna, að því er fram kemur í lýsingunni. Útboðið nær til allt að 636.363.630 af útgefnu og útistandandi hlutafé bankans, en íslenska ríkið á bankann að fullu. Til að mæta umframeftir- spurn í útboðinu hefur seljandi veitt söluráðgjöfum rétt til að kaupa 63.636.363 hluti, sem eru ígildi 10% af útboðshlutunum. Til sölu eru að lágmarki 25% af út- gefnu og útistandandi hlutafé bank- ans. Heimilt verður, sem hluti af út- boðinu, að stækka útboðið í allt að 35% af útgefnu útistandandi hlutafé bankans. Hornsteinsfjárfestar Í upplýsingum frá Íslandsbanka kemur fram að sjóðir í stýringu hjá Capital World Investors, RWC As- set Management LLP, Gildi-lífeyr- issjóður og Lífeyrissjóður verzlunar- manna, sem hornsteinsfjárfestar, hafi hver um sig skuldbundið sig til að kaupa samtals 200 milljónir hluta á endanlegu útboðsgengi. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra segir í tilkynning- unni að það sé ánægjulegt að sjá hlutafjárútboð Íslandsbanka hefjast eftir mikla og vandaða vinnu síðustu mánuði. „Það hefur lengi staðið til að draga úr umfangsmiklu eignarhaldi ríkisins á fjármálamarkaði og koma hér á fyrirkomulagi í líkingu við það sem þekkist í nágrannalöndum okk- ar. Útboðið er fyrsta skref í þá átt. Með skráningunni verður íslenskur hlutabréfamarkaður stærri og fjöl- breyttari, og það er jákvætt að fjár- festingarkostum almennings og fag- fjárfesta fer sífellt fjölgandi.“ Skerði ekki tilboð í Íslands- banka undir einni milljón Lykiltölur og virði bankanna Milljarðar kr. Íslandsbanki Arion banki Kvika* Landsbankinn 1. ársfj. 2021 Markaðsvirði 150 232 103 Starfsmenn 774 772 319 865 Eigið fé 186 189 70 261 Eignir 1.385 1.181 260 1.601 Árið 2020 Tekjur 43,0 51,0 8,7 38,3 Hagnaður 6,8 12,5 2,3 10,5 *Sameining Kviku og TM gekk í gegn 30.mars sl. Útboð » Útboðið hófst í gær og stendur til 15. júní nk. » Citigroup Global Markets Europe AG, Íslandsbanki hf. og J.P. Morgan AG hafa sameig- inlega umsjón með útboðinu og eru leiðandi söluráðgjafar ásamt Barclays Bank Ireland PLC, HSBC Continental Eur- ope, Fossum mörkuðum hf. og Landsbankanum hf. » Verð er á bilinu 71 til 79 kr. - Íslandsbanki metinn á 150 milljarða króna að loknu hlutafjárútboði Morgunblaðið/Árni Sæberg Skráning Stjórn Íslandsbanka mun óska eftir því að allt hlutafé bankans verði tekið til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, segir myndlykla munu verða í notk- un næstu tíu árin. Þeir muni ekki hverfa í einni lotu heldur muni notk- unin minnka smátt og smátt. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að Síminn hefði tilkynnt að myndlyk- ill væri orðinn valkvæður og að app frá Sjónvarpi Símans væri orðið not- hæft í flestum snjalltækjum. Af þessu tilefni var Heiðar spurð- ur út í stöðuna hjá Vodafone. „Við höfum boðið upp á app í mörg ár og erum að þróa það og þannig stöðugt að bæta afhendinguna til viðskiptavina. Og þeir eru að horfa á efnið okkar á sífellt fleiri vegu í gegnum tölvu, snjallsíma og snjall- sjónvörp og auðvitað er þetta tæki- færi fyrir okkur til að koma efninu enn víðar,“ segir Heiðar. Nálgast efnið á nýjan hátt Spurður hvort myndlykillinn sé á útleið hjá Vodafone nefnir Heiðar út- varpið til samanburðar. „Meirihluti útvarpshlustunar er ekki lengur í gegnum hefðbundin út- vörp, heldur forrit. Auðvitað breytist þetta eins og annað. Ég ætla ekki að spá um það en það tekur að minnsta kosti áratug að skipta út svona kerfi [myndlykla]. Þetta er mjög víða og það eru ekki allir það tæknivæddir að þeir séu með nýjustu sjónvörpin sem geta tekið við útsendingum fram hjá myndlykli.“ Útsending í gegnum loftið Heiðar bendir svo á að enn séu í notkun um tíu þúsund myndlyklar á Íslandi sem taka við sjónvarps- útsendingu í gegnum loftið. Engin gagnvirkni sé í slíkum myndlyklum og því ekki hægt að velja dagskrár- liði. Útsendingin sé línuleg. Með þessu móti sé Sýn, ólíkt Sím- anum Sport, með 100% afhendingu á sjónvarpsefni. M.a. verði Evrópu- mótið í knattspyrnu öllum aðgengi- legt gegn gjaldi. baldura@mbl.is Morgunblaðið/Hari Sýn Höfuðstöðvarnar í Reykjavík. Myndlyklar verði í notkun í áratug - Forstjóri Sýnar segir endurnýjun munu taka tíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.