Morgunblaðið - 08.06.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 08.06.2021, Síða 14
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is T ryggja þarf enn betur ör- yggi í jarðgöngum hér á landi og setja strangari reglur um öryggisþætti en gert er í drögum að reglugerð um ör- yggiskröfur í jarðgöngum sem sam- gönguráðuneytið hefur kynnt í sam- ráðsgátt. Þetta kemur fram í umsögnum við drögin. Eins og greint var frá nýlega í Morgunblaðinu verða gerðar samræmdar öryggiskröfur fyrir öll jarðgöng lengri en 500 metr- ar samkvæmt drögunum en þau eru þó sett í þrjá flokka eftir aldri og um- ferðarþunga og mismunandi örygg- iskröfur gerðar til hvers flokks. Í um- sögnum er þetta gagnrýnt og því haldið fram að allar öryggiskröfur ættu að gilda um öll göng þar sem það er tæknilega mögulegt. Í Fjallabyggð er að finna flest jarðgöng í einu sveitarfélagi, Stráka- göng, Múlagöng og Héðinsfjarðar- göng, en síðastnefndu göngin falla í annan öryggisflokk reglugerðar- innar. Í umsögn Fjallabyggðar er gagnrýnt að áfram sé gert ráð fyrir 250 metra millibili á milli neyðar- stöðva í Héðinsfjarðargöngum þótt reglugerð frá 2007 kveði á um að það skuli vera 150 metrar í jarðgöngum. Einnig sé með öllu óviðunandi að ekki er gerð skýlaus krafa um far- símasamband í öllum veggöngum sem eru yfir 500 metrar að lengd. „Að mati sveitarfélagsins skiptir þar engu aldur ganga eða fjarlægð á milli neyðarsíma, tækni dagsins er með þeim hætti að vel er mögulegt að koma á góðu farsíma- og gagna- sambandi í veggöngum.“ Þá sé ótækt að gera svo misjafnar öryggiskröfur til jarðganga eins og gert er í drög- unum með vísan til lengdar þeirra. Þannig séu í reynd öll önnur jarð- göng en Hvalfjarðargöng undan- skilin ýmsum öryggiskröfum s.s. um vélrænt loftræstikerfi. Samband íslenskra sveitar- félaga tekur undir með Fjallabyggð og segir að aðeins ætti að undan- þiggja jarðgöng frá öryggisskil- yrðum ef tæknilega sé ómögulegt að uppfylla þau. Sérstaklega verði að gæta þess að kröfur um fjarsíma- samband verði að meginstefnu þær sömu í öllum jarðgöngum, óháð lengd þeirra, umferðarþunga og aldri. Slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar lýsir í sérstakri umsögn stöðu örygg- ismála í göngunum í Fjallabyggð og kemur m.a. fram að úttekt slökkvi- liðsstjóra hafi leitt í ljós að fjar- skiptum í öllum göngum á svæðinu sé ábótavant og ekki tryggt að tetra- fjarskipti séu hnökralaus. Þá séu út- varpssendingar ekki til staðar til að koma skilaboðum á framfæri. „Því er ekki til að taka að öryggi sé þegar tryggt í jarðgöngum í Fjallabyggð. Sveitarfélagið og slökkviliðið hafa um langa hríð krafið Vegagerðina um úr- bætur í Múla- og Strákagöngum án þess að við því hafi verið brugðist á fullnægjandi hátt, sama má segja um Gagnrýna ólíkar ör- yggiskröfur í göngum Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Héðinsfjarðargöng Neyðarstöðvar eru með 250 metra millibili. Að sögn slökkviliðsstjóra er ekkert útvarpssamband og óvíst hvenær úr því verði bætt. Héðinsfjarðargöng,“ segir í umsögn slökkviliðsstjóra, sem vitnar einnig í úttekt Samgöngustofu þar sem m.a. kemur fram að engir brunahanar séu í eða við Múlagöngin og ekki tryggt að nægilegt vatn fáist eftir öðrum leiðum Dalvíkurmegin. Ekkert út- varpssamband sé í Héðinsfjarðar- göngum og engin neyðarlýsing. Sama eigi við í Strákagöngum, sem uppfylli ekki kröfur og þar hafi ekki verið unnið áhættumat svo vitað sé. „Sveitarfélög á Tröllaskaga geta ein- angrast vegna veðurfars og í þeim að- stæðum er ekki tryggt að aðstoð ber- ist úr öðrum umdæmum verði alvarlegur atburður á svæðinu,“ segir í umsögn slökkviliðsstjóra. Í umsögn Samgöngufélagsins segir að eftir því sem næst verði komist sé búnaður til útsendinga útvarps í fimm jarðgöngum af ellefu hér landi, þ.e. í Hvalfjarðar-, Dýrafjarðar-, Bolungarvíkur-, Vaðlaheiðar- og Norð- fjarðargöngum. Í annarri umsögn bendir Höskuldur Haukur Einarsson hjá fyrirtækinu Bráðalausnum, fyrrverandi deildarstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæð- isins, á að enginn sértækur búnaður til björgunar úr jarðgöngum sé til hjá slökkviliðum sem koma að björgun úr fjölförnustu göngum landsins, Hvalfjarðargöngum. Hann telur flest eða öll slökkvilið vera vanbúin og vanþjálfuð til að fást við alvörueld í jarðgöngum og ekki sé stafur um eld í jarðgöngum eða hvernig á að standa þar að björgun í kennsluefni Brunamálaskólans. Leggur hann einnig til að komið verði á fót stjórnstöð sem vakti öll jarðgöng á landinu. Útvarp í 5 af 11 göngum BÆTA ÞARF ÖRYGGIÐ 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er þekktað ýmsaryfirlýsingar sem gefnar eru í prófkjörsbaráttu eða í kosningaslag falla hratt í verði. Stundum eru þær úr sögunni á sama andar- taki og þær voru gefnar. Og það er ekkert ósiðlegt við það, því að þær bera það með sér. Muna mætti er fámennur sértrúarsöfnuður í Sjálfstæðis- flokki nuddaði út úr forystu- mönnum flokksins það sem hann taldi fyrirheit til sín á fundi á reykvísku hóteli. Þar virtist um algera kúvendingu að ræða á yfirvegaðri stefnu flokksins varðandi afstöðuna til hugsanlegrar aðildar að ESB. Yfirlýsingar forystunnar sýnd- ust vissulega yfirgengilega glannalegar, og handan við allt umboð sem samþykktir á veg- um flokksins sýndu. Og má full- yrða að sjaldan hafa forystu- menn keypt sig jafndýru verði að komast sem fyrst af leiðin- legum fundi með fáeinum sér- vitringum. En það sem lakara var var að um hríð virtust þeir sem gleymt höfðu ábyrgð sinni fyrir lítið láta í framhaldinu ýta sér nokkrum sinnum út í horn, er hópurinn þveri krafðist þess að flokksforystan stæði við útaf- akstur sinn gagnvart sér þótt hann gengi gegn vilja alls flokksfólksins að öðru leyti, og öllum opinberum samþykktum hans og staðfastri og marg- ítrekaðri stefnu. En það má minna á að yfir- lýsingar af slíku tagi með fá- mennum hópi sérvitringa í flokki eru með allra billegustu útsölum sem þekkjast. Og þeir sem vafasama vöru kaupa á bil- legustu útsölum geta gefið sér að hún stæðist ekki gæða- skoðun. Báðir aðilar sem körp- uðu á þessum fámenna fundi vissu vel að ekki stæðu neinar forsendur til þess að slík kú- vending fengist staðfest og hlyti brautargengi innan flokksins. Staðfastari hópur en þarna var mættur var í marg- földum meirihluta á við útsölu- hópinn sem gerði forystunni kröfur sem hún var ófær um að efna. Það varð réttilega ákveðið án formlegrar ákvörðunar að gera ekki meira með þetta mál en gert er almennt með, til að mynda, slys í ölæði eða í öðru dómgreindarbasli, sem menn jafna sig eftir síðar. Í gleði sinni yfir falli Sovétríkjanna var þannig eitt og annað sam- þykkt. Til að mynda ACP, gagnkvæmur réttur til vopna- eftirlits úr lofti, frá árinu 1992, við Rússland. Það blasti við, að fljótlega eftir að „múrinn“ féll, þá var hið víðfeðma Rússland komið að fótum fram bæði efnahagslega og hernaðarlega. Vesturlönd skynj- uðu að þau áttu nú alls kostar við það á hinu alþjóðlega sviði og Kína hafði ekki enn stigið inn á það, svo að eftir því væri tekið. Því var hægt að láta undan Rússlandi og skapa því ró með því að fallast á samninga sem fólu þá í sér fáar hættur fyrir „sigurvegara kalda stríðsins“. En síðar fór að bera á því að Rússland áskildi sér rétt til að hafa á því sitt einhliða mat hvernig slíkir samningar skyldu virtir. Trump forseti ákvað því að endunýja ekki fyrrnefndan samning við þá. Rússar andmæltu þeirri ákvörðun ákaft. Mótframbjóðandi Trumps í forsetakjöri, Joe Biden, for- dæmdi forseta Bandaríkjanna af þessu tilefni „fyrir alvarleg mistök“. Nú, þegar Biden er kominn endanlega upp úr kjallaranum, eins og fyrrnefndur hópur af leynifundi í hótelsalnum úr Sjálfstæðisflokknum, gerir Biden ekkert með sín eigin mótmæli í kosningabaráttunni. „Það var þá,“ segir hann nú. Pútín forseti hefur reynst miklu öflugri forseti en Jeltsín fyrirrennari hans og þótt efna- hagur Rússlands sé enn fremur veikur hafa áhrif landsins auk- ist mun hraðar en efnahag- urinn einn stendur undir. Pútín hefur nú fyrir sitt leyti staðfest með lögum sem hann undirrit- aði, að samningurinn um „Open skies“ sé úr gildi fallinn aðeins tveimur vikum fyrir væntan- legan fund þeirra Bidens í Sviss. En því fylgdi kunnugleg yfirlýsing frá Kreml um að Joe Biden hefðu orðið á „pólitísk mistök“ með yfirlýsingum sín- um um að endurnýja ekki fyrr- nefnda samningsgerð. Trump forseti og utanríkis- ráðherra hans sögðu hins vegar á sínum tíma að Rússland hefði efnt þessa samninga algjörlega eftir því sem þeim hentaði hverju sinni. Leiðarahöfundar The Wall Street Journal fögn- uðu ákvörðun Bidens nú, þótt hún gengi þvert á yfirlýsingar hans í kosningabaráttunni enda batnandi mönnum best að lifa. Sagði blaðið á þá leið að fyrrnefnd sáttargjörð hefði fallið í almennu bjartsýniskasti sem eðlilega hefði fylgt falli Sovétríkjanna. En blaðið bætti því við að slíkir samningar hefðu því að- eins raunverulegt gildi að allir aðilar fylgdu þeim og umgengj- ust í „góðri trú“. Ómerk sáttargjörð getur falið í sér sjálfkræfa ógildingu} Sumir „samningar“ ónýtir frá öndverðu S varið er einfalt þótt hægt sé að setja það fram á ýmsa vegu: Við kjósum milli framþróunar og stöðnunar. Við kjósum milli frjálslyndis og afturhalds. Við kjósum milli hagkvæmni og sóunar. Við kjósum milli sanngirni og vinargreiða. Við kjósum milli alþjóðahyggju og ein- angrunarstefnu. Við kjósum milli lýðræðis og stjórnlyndis. Við kjósum um hvort allir eru jafnir eða sumir jafnari en aðrir. Við kjósum um hvort er mikilvægara, fólk- ið eða kerfið. Við kjósum milli vitrænnar umræðu og lýðskrums. Við kjósum milli opins og gagnsæs stjórn- kerfis og leyndarhyggju. Við kjósum milli hagræðingar og skattahækkana. Við kjósum milli hófsemi og óráðsíu. Við kjósum milli frjálsrar samkeppni og fákeppni út- valinna. Við kjósum milli alvörugjaldmiðils og krónunnar. Við kjósum milli góðs viðskiptasiðferðis og spillingar. Við kjósum milli hugsjóna og metorðagirndar. Við kjósum milli heiðarlegra vinnubragða og klækja- stjórnmála. Við kjósum milli almannahagsmuna og sérhagsmuna. Allir eiga að hafa sama rétt. Sjávarútvegur borgi markaðstengt auðlindagjald með því að árlega fari ákveðinn hluti kvótans á markað. Hættum að vernda bankana gegn alþjóð- legri samkeppni með því að nota mynt sem enginn alþjóðlegur banki þorir að vinna í. Landbúnaður á að lúta lögmálum al- mennrar samkeppni og bændur að taka ákvarðanir á viðskiptalegum forsendum. Hætt verði að skilyrða styrki til landbún- aðar og dregið úr þeim í áföngum jafnframt því sem innflutningshöft og tollar á land- búnaðarvörur verða afnumin. Ríkið hætti að sinna verkefnum sem einkaaðilar geta vel annast. Sýnum þann metnað að námsárangur í grunn- og framhaldsskólum nái að minnsta kosti meðaltali innan OECD. Réttindi einstaklinga og fyrirtækja gagn- vart ríkinu verði tryggð þannig að ríkið uppfylli sjálft kröfur um eðlilega stjórn- sýslu. Kosningaréttur á að vera jafn, óháð búsetu. Ríkið á að búa til umgjörð stöðugleika sem dregur úr hættu á því að pólitíkusar, auðjöfrar eða sérhagsmunahópar geti ráðskast með þjóðina og eignir hennar. Hluti af þessari umgjörð er breytt stjórn- arskrá sem tryggir að almenningur geti komið að mál- um ef ákveðinn fjöldi kjósenda krefst þess. Um allt þetta ættum við að kjósa. Við vitum að óbreytt ástand er í boði, en spurningin er: Verður ein- hver trúverðugur kostur í framboði til þess að hrinda breytingum í framkvæmd? Benedikt Jóhannesson Pistill Um hvað verður kosið í haust? Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.