Morgunblaðið - 08.06.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 08.06.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 „HANN KLÚÐRAÐI VÍTASKOTINU.“ „SAMKVÆMT UPPLÝSINGUM MÍNUM MUN ÞAÐ LÍKLEGA REYNA AÐ STINGA ÞESSUM GÚMMÍHLUT UPP Í ÞIG.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að gera það besta úr öllum aðstæðum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „ÁTTU KÆRUSTU?“ ER ÞETTABRANDARI? VOOOOFF …„KÆRA SPYRÐU HUNDINN, MÉR FINNST ÞÚ SÆTUR“ ÞAÐ ER ENGIN KLUKKA HÉR INNANDYRA … HVERNIG VEISTU AÐ KVÖLDMATURINN ER TILBÚINN? HÚN SLÆR MIG SAMT EKKI ÚT AF LAGINU! HELGA! HÚN VEIT ALLTAF HVAÐ KLUKKAN SLÆR! HÚN ER EINSOG MENNSK VEKJARAKLUKKA! HUNSKASTU HEIM ÁÐUR EN MATURINN KÓLNAR! gengu í hjónaband 3.10. 1953. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar Sigrúnar voru hjónin Halldóra Þór- dís Sveinbjörnsdóttir frá Heiðarbæ í Þingvallasveit, f. 22.7. 1906, d. 1.10. 1944, húsfreyja í Reykjavík, síðan á Seli í Grímsnesi, og Guð- mundur Jóhannsson frá Nesjavöll- um, f. 27.5. 1884, d. 14.4. 1974, verkamaður í Reykjavík. Þau skildu. „Þá flutti Sigrún með móður sinni að Mosfelli í Grímsnesi og síð- ar Seli, er móðir hennar giftist Árna Kjartanssyni. Þar ólst hún upp hjá móður og stjúpföður og kunni vel að meta fegurð sveit- arinnar. Hálfsystir Sigrúnar var Þórunn Árnadóttir. Þær unnu náið saman alla ævi. Þórunn hafði húsnæði hjá systur sinni 1956-1994 á meðan hún stundaði kennaranám og kenndi við Hvassaleitisskóla í Reykjavík en þar var Sigrún líka kennari. Eftir að Þórdís Pétursdóttir, dóttir Þór- unnar, fæddist [f. 30.6. 1963, d. 19.5. 2006] bjuggu þær mæðgur hjá okk- ur Sigrúnu en voru á Seli á sumrin. Þórdís ólst því upp sem fósturdóttir okkar alveg frá fæðingu þar til hún lauk kennaraprófi. Hún naut að- stoðar Sigrúnar við námið og var mjög kært með þeim alla tíð. Ég að- stoðaði stjúpföður Sigrúnar við ým- islegt varðandi bústörfin. Eftir að Þórunn tók við búinu á Seli ann- aðist ég túnaslátt fyrir hana og fjöldamargt annað sem gera þurfti í sveitinni.“ Bræður Kristjáns: Gunnar Jón Sigtryggsson, f. 3.2. 1928, d. 10.1. 2002, trésmíðameistari; Ólafur Hörður Sigtryggsson, f., 17.3. 1934, d. 20.10. 2017, plötu-, ketilsmíða- meistari og forstjóri; og Kristinn Gils Sigtryggsson, f. 2.2. 1944, end- urskoðandi, búsettur í Kópavogi. Foreldrar Kristjáns voru hjónin Kristjana Vigdís Jónsdóttir frá Arnarnesi í Dýrafirði, f. 23.11. 1904, d. 1.11. 1984, húsfreyja, og Sig- tryggur Kristinsson frá Núpi í Dýrafirði, f. 18.11. 1896, d. 19.12. 1972, bóndi og verkamaður. Þau voru búsett á Alviðru og Langholts- vegi 181 í Reykjavík. Kristján Sigtryggsson Guðlaugur Jóhannesson bóndi á Þremi í Garðsárdal, Eyjaf. Guðný Jónasdóttir húsfreyja á Þremi Kristinn Guðlaugsson bóndi á Núpi Rakel Jónsdóttir húsfreyja á Núpi í Dýrafirði Sigtryggur Kristinsson bóndi á Alviðru og verkamaður í Reykjavík Jónas Jónasson bóndi á Ingveldarstöðum Margrét Hallsdóttir húsfreyja á Ingveldarstöðum í Hjaltadal, Skag. Kristján Jónsson bóndi á Alviðru Vigdís Teitsdóttir húsfreyja á Alviðru í Dýrafirði Jón Ólafur Kristjánsson skipstjóri á Gerðhömrum Guðrún María Gilsdóttir húsfreyja á Gerðhömrum í Dýrafirði Gils Þórarinsson bóndi á Arnarnesi Guðrún Gísladóttir húsfreyja á Arnarnesi í Dýrafirði Úr frændgarði Kristjáns Sigtryggssonar Kristjana Vigdís Jónsdóttir húsfreyja á Alviðru og í Reykjavík Í dag er öld liðin frá fæðingu JónsIngibergs Bjarnasonar ritstjóra Verslunartíðinda, tímarits Kaup- mannasamtaka Íslands. Þess minn- ist fjölskyldan með því að safna saman brotum úr ævi hans, ljóðum og greinum og birta í fallegum bæklingi. Þar er ljóðið „Móður- hönd“: Ó, mjúka, ljúfa móðurhönd, þín mildi er djúp og hlý. Þú gafst mér eilíf unaðslönd, og öruggt þangað flý. Ef gengi bregst og gæfa dvín, ef grætur hugur minn, þá er það heilög höndin þín sem huggar drenginn sinn. Ó, mjúka, ljúfa móðurhönd ég man frá bernskutíð. Þú leiðir mig um ljóssins strönd þó leiftri jarðarstríð. Þú fórnar þér með ást og yl á altari kærleikans. Þú leggur dýrsta djásnið til í drauma sérhvers manns. Þetta ljóð heitir „Vor“: Nú vaknar lítið lauf í mó og lýtur rakri mold í bæn við unaðsblíða aftanró og aftur verður jörðin græn. Nú kveður lítil lind í hlíð, sitt ljóð til vorsins – heita bæn, svo undurþýtt og unaðsblítt að aftur verður jörðin græn. Og aftur speglast rós við rós í rökkurskyggðum straumsins hyl. Við hæsta tind, við ysta ós er yndislegt að vera til. Óþekktur höfundur orti um Ólaf Stefánsson stiftamtmann: Ekki sá ég hann iðja par á svo væri snilli; hann var að strjúka hendurnar og hló svo smátt á milli. Páll Ólafsson kvað undir prédik- un í Heydalakirkju: Að heyra útmálun helvítis hroll að Páli setur. Eg er á nálum öldungis um mitt sálartetur. Enn yrkir Páll í kirkju: Hættu þessu heimskujapli herra prestur! Mínum úti kólnar kapli og króknar hestur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á aldarafmæli merkismanns

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.