Morgunblaðið - 14.06.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
s
595 1000
sé
rr
ét
ll
ið
tti
a
lk
.
t
.
Tenerife Verð frá kr.
99.900
16. júní í 7 nætur
Hotel Gala
aaaa
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Síðasta þingi kjörtímabilsins lauk í
fyrrinótt með ávarpi Steingríms J.
Sigfússonar, forseta Alþingis, og
verður gengið til kosninga þann 25.
september næstkomandi. Á þinginu
hafa 133 stjórnarfrumvörp, ellefu
nefndarfrumvörp og sex þingmanna-
frumvörp orðið að lögum og því 150
lög verið samþykkt.
Nokkur ágreiningsmál hlutu þá
ekki afgreiðslu og ber þar hæst
stjórnarskrárfrumvarp Katrínar
Jakobsdóttur og frumvarp Guð-
mundar Inga Guðbrandssonar um-
hverfis- og auðlindaráðherra um
stofnun hálendisþjóðgarðs. Þá var
rammaáætlun ekki tekin til af-
greiðslu, né heldur mál um vindorku
eða fiskveiðistjórnun. Aftur á móti
var fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðs-
dóttur samþykkt þrátt fyrir miklar
mótbárur.
Faraldurinn setti stóran svip
Þá hefur 261 skriflegri fyrirspurn
til ráðherra verið svarað auk 18
munnlegra fyrirspurna en sjö málum
vísað til ríkisstjórnarinnar. Þá voru
sérstakar umræður 26 talsins.
Kórónuveirufaraldurinn setti svip
sinn á störf þingsins og nefndi þing-
forseti í ræðu sinni að vel hafi tekist
að halda Alþingi starfhæfu síðan það
virkjaði viðbragðsáætlun sína við
kórónuveirufaraldrinum þann 15.
mars á síðasta ári. Síðan þá hefur
Svandís Svavarsdóttir í tíu skipti
gefið Alþingi skýrslu um stöðu kór-
ónuveirufaraldursins og ráðstafanir
vegna hans. Sagði Steingrímur það
standa upp úr að tekist hefði að
halda Alþingi starfhæfu á meðan far-
aldurinn geisaði: „Í þeim efnum hafa
þingmenn og starfsfólk lagst á eitt
um að gera slíkt mögulegt og ég vil
þakka fyrir það. Jafnframt er ljóst
að stórfelld notkun fjarfundatækn-
innar í þessum faraldri á eftir að hafa
varanleg áhrif á starfshætti Alþing-
is,“ sagði Steingrímur.
Á tveimur síðustu löggjafarþing-
um hafa 57 lagafrumvörp og tvær
þingsályktanir verið samþykktar
sem tengjast faraldrinum og eru
hrein viðbót við venjuleg störf Al-
þingis. Þá jókst traust til þingsins
verulega milli kannana sem gerðar
voru í febrúar 2020 og febrúar 2021,
þar sem það fór úr 23% í 34% á milli
ára. „Ég vil í þessu sambandi ítreka
það sem ég sagði í eldhúsdagsum-
ræðum á dögunum, að traust og virð-
ing Alþingis er áunnið fyrirbæri,“
sagði Steingrímur í þessu sambandi.
22% eiga ekki afturkvæmt
Rúmur fimmtungur þingmanna
(22%) hefur með beinum hætti
ákveðið að sækjast ekki eftir endur-
kjöri og er í þeim hópi forseti Alþing-
is, sem kveður þingið eftir 38 ára
þingsetu.
„Þar sem ég er í hópi þeirra þing-
manna sem láta nú af þingmennsku
vil ég sérstaklega þakka samferða-
fólki mínu hér í gegnum tíðina fyrir
góð kynni þótt vissulega hafi skipst á
skin og skúrir eins og í lífinu al-
mennt,“ sagði Steingrímur í lokin.
Síðasta þingi kjörtímabilsins lokið
- Nokkuð um að mál hafi ekki hlotið afgreiðslu - Stofnun hálendisþjóðgarðs og stjórnarskrárfrum-
varp fengu ekki framgöngu - 22% þingmanna sækjast ekki eftir endurkjöri - Steingrímur J. hættir
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Þinginu lauk í fyrrinótt og verður gengið til kosninga í september.
Rebekka Líf Ingadóttir
rebekka@mbl.is
Í þessari viku er búist við 25.000
skömmtum af bóluefni. Á mánudag-
inn verður Janssen-dagur, þar sem
búist er við 10.000 skömmtum, Pfiz-
er á þriðjudaginn þar sem er von á
tæplega 10.000 skömmtum og síðan
Moderna á miðvikudaginn þar sem
er von á 5.000 skömmtum. Þá er
bæði verið að bjóða endurbólusetn-
ingar og eftir handahófsröðuninni.
„Við óskum eftir því að þeir, sem
koma og eiga strikamerki fyrir
þann dag sem þeir mæta, komi á til-
settum tíma, þeir sem ekki mættu
þann dag sem þeir voru boðaðir
geta mætt eftir kl. 14 til þess að
ekki verði of langar biðraðir,“ sagði
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í
samtali við Morgunblaðið. Þá ítrek-
ar hún einnig að ef biðraðir myndist
megi fólk sem á erfitt með að ganga
endilega láta vita af sér og verði
reynt að kippa því fram fyrir.
Í síðustu viku var stór Janssen-
bólusetningardagur á fimmtudeg-
inum þar sem fjöldi fólk af yngri
kynslóðinni streymdi inn í Laug-
ardalshöll og fékk bóluefni eftir
langa bið. Þá segir Ragnheiður að
töluvert hafi verið um yfirlið þann
dag. „Það er töluvert meira um yf-
irlið hjá yngri kynslóðinni, það var
mjög sjaldgæft að það væri að líða
yfir fólk af eldri kynslóðinni en
þetta er algengt hjá yngri,“ sagði
Ragnheiður. Þá hvetur hún alla sem
mæta í bólusetningu til þess að
borða og drekka áður en þeir mæta.
„Ekki koma til okkar á fastandi
maga.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bólusetning Búist er við 25.000 skömmtum af bóluefni í vikunni og bólusett á mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
Töluvert meira um yfirlið
hjá yngri kynslóðinni
- 25.000 skammtar í þessari viku - Töluvert um yfirlið
Ný tilfelli
» Einn greindist hér á landi
með Covid-19-smit í innan-
landsskimunum í gær, viðkom-
andi var í sóttkví.
» Tíu dagar eru síðan smit
greindist síðast utan sóttkvíar.
» Tveir greindust í landa-
mæraskimun.
Birgir Þór-
arinsson,
þingmaður
Miðflokks-
ins, var
ræðukóngur
151. þings
Alþingis sem
lauk í fyrri-
nótt. Heild-
arræðutími
hans var
einn dagur, þrjár klukkustundir,
20 mínútur og sex sekúndur en
samtals flutti hann 324 ræður.
Næstur á eftir Birgi var Guð-
mundur Ingi Kristinsson, þing-
maður Flokks fólksins, en hann
átti einnig flestar ræður þings-
ins, 436 ræður. Þetta er þriðja
árið í röð sem Birgir vermir
toppsætið.
Birgir flutti
324 ræður
RÆÐUKÓNGUR
Birgir Þórarinsson